Morgunblaðið - 22.05.1999, Side 68
188 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÞEIR, sem raða upp efni í sjón-
varpsdagskrár, eiga við þann
vanda að stríða, að gera sem flest-
um til hæfis. Eðlilegt er að það
gangi nokkuð bögsulega, enda má
sjá mýmörg dæmi þess í dag-
skránum. Bæði er að dagskrár-
stjórar hafa ekki hlotið sérstaka
þjálfun í starfi, heldur koma úr
hinum og þessum störfum, oft
varla komnir af fótboltaaldri, og
reynsluleysis þeirra gætir náttúr-
lega við hinar daglegu pælingar
við að koma saman dagskrá. Að
hinu leytinu þurfa þeir að fást við
þá sem hafa peningavöldin, sem
telja að nóg sé að kaupa kvikmynd
og minna máli skipti hvernig hún
er úr garði gerð. Mikill innflytj-
andi kvikmynda hefur hreiðrað um
sig á annarri helstu sjónvarpsstöð-
inni án þess að hann viti nokkuð
um kvikmyndir og kaupi þær inn í
næstum kílóatali eins og smjörlíki,
en sjónvarpsstöð hans er skyldug
til að kaupa hroðann. Með hroðan-
um eru svo skemmtidagskrár
búnar til handa almenningi, sem
auðvitað sér ekki nokkra glætu í
dagskránni. En almenningur
heldur hins vegar að dagskrár
svona fíns tækis hljóti að vera
vandaðar. Hann hefur engin tök á
að vita að gróðapungar hafa eng-
an áhuga á vönduðum hlutum.
Vandaðir hlutir eru leiðinlegir að
þeirra mati.
Þegar um ríkisrekna dagskrá
Þegar ríkið
borgar
er að ræða er afsökunin fyrir lé-
legri dagskrá hreint engin. Ný-
verið fór kaupfélag norður í landi
á hausinn af því inn í það hafði
verið hlaðið starfsmönnum, sem
höfðu haft fyrir vana á aðalfund-
um að láta líta svo
út sem þeir einir
vissu hvernig reka
átti fyrirtæki. Af
stöðugt tap
SJÓNVARPÁ
LAUGARDEGI
verið með hjartað í buxunum ára-
tugum saman út af því að vera
kallaðir vondir menn og þora því
ekki að ráða annað en einlitt fólk
andstæðinga. Niðurstaðan er
rekstri og auknar
álögur á skatt-
greiðendur auk
skylduáskriftar.
Þessir andstæð-
pólitískum ótta voru þessir menn
ráðnir ótt og títt til starfa. Síðan
rann upp sá dagur að fyrirtækið
fór á hausinn. Eini munurinn á
þessu kaupfélagi og ríkisútvarp-
inu er, að ríkið rekur útvarp og
sjónvarp og tapar stórfé áratug-
um saman, en skattgreiðandinn
borgar. Nýlega eyðilagðist hús í
Hafnarfirði af því maurar höfðu
étið innviðina. Menn sjá kannski
samlíkinguna. Þurfi að ráða
starfskraft að Ríkisútvarpinu hef-
ur það verið lenskan að saka borg-
araflokkana um að vilja mismuna
eftir pólitík. Þessir flokkar hafa
ingar borgaraflokkanna geta ekki
hugsað sér að mjólkurkýrin verði
seld.
Farið er að gaula lög í sönglaga-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
og hafa þau lítið batnað í áranna
rás. Islendingar, helteknir af eng-
ilsaxneskum músíkhnykkjum,
hafa hvergi komist í þessari
keppni og eiga ekki von á miklu,
þótt væntingar séu nógar. Vel hef-
ur gefist að sofa hjá svörtum, enda
eru allir að verða „afró“ í músík-
inni og myndu popp-hljómsveitir
íslenskar gera vel í því að leggja
þeldökka í ból með sér - fyrst
frægðin kemur þaðan. Allt viljum
við gera fyrir frægðina, meira en
að sitja á Gauki á Stöng, bjórsal-
emum eða hlandportum til að láta
DV taka myndir af okkur.
Bandarísk kvikmynd, Feigðar-
fórin, var sýnd í þremur hlutum
um síðustu helgi. Þetta var í raun
hálfgerður vestri og gerðist í
Texas á tímum átaka á milli
Mexíkóbúa og Texasmanna. Þessi
mynd var nokkuð langdregin á
köflum en bjargaðist á fyndnum
texta og að því er virtist sannferð-
ugum lýsingum. Sagan gerist um
miðja síðustu öld, eftir bardagann
við Alamó við bæinn San Antonio í
Texas. Fylkið er stórt og það kost-
aði mikla baráttu að ná því af
Mexíkönum. Hópur manna er á
leið vestur til Santa Fe en missir
hesta sína og farangur og má
ganga mest af leiðinni og þola
miklar höiTnungar. Það var í raun-
inni ótrúlegt- hvað fólk gat lagt á
sig við landnám vestra og ekki
nema von að af því spynnust ævin-
týrasögur. Texas er ríkt af slíkum
sögum í vitund Bandaríkjamanna
allt frá tímum Conquistadoranna.
Fyi'r í vikunni var sýnd mynd um
Casanova, þann átjándu aldar
kvennadólg og undanreiðarmann
Evrópubandalagsins. Myndin var
ekkert sérstök enda bólfarir
orðnar næsta algengar í kvik-
myndum.
Indriði G. Þorsteinsson
KVIKMYNDIR/Bíóborgin hefur tekið til sýninga gamanmyndina Rushmore með Bill
Murray og Jason Schwartzman í aðalhlutverkum.
. Sædýrasafn á
skólalóðina
Frumsýning
MAX Fischer er nemandi í
Rushmore skólanum og er
allt í öllu í félagslífi nem-
enda. Það er verst að
hann er líka einn
versti námsmaður-
inn í skólanum og á
3|Ær höfði sér brott-
rekstur af því hann
stenst ekki kröfum-
ar. Hann verður ást-
fanginn af kennara í
yngsta bekk í skólan-
um og ætlar að vinna
hjarta hennar með því
að reisa sædýrasafn á
skólalóðinni henni til
heiðurs. Hann gengur á
fund eins helsta velunn-
ara skólans, milljóna-
mæringsins Blume (Bill
Murray) og biður hann
um stuðning. Blume og
Max verða vinir en svo
"vhleypur snurða á þráðinn.
Max er rekinn úr skóla
fyrir að reyna að reisa sæ-
dýrasafn á hornaboltavelli skólans
og Blume verður líka ástfanginn af
kennaranum, og þá skellur á stríð
milli þeirra þar sem Max reynir
allt sem hann getur til að sigrast á
þessum fyrrverandi vini sínum.
Þetta er önnur gamanmynd
leikstjórans Wes Anderson. Hann
gerði áður Bottle
Rocket og eins
og þá skrifar
hann handritið
með Owen Wil-
son.
Owen lýsir
söguhetjunni
Max á þennan
hátt: „Mér
fellur vel við
fólk sem fær
eitthvað á
heilann. Til
dæmis hef
ég ekki
áhuga á
skák en ég
hef áhuga
á Bobby
Fischer
af því að
hann er
með skák á heil-
anum. Það er eitthvað fyndið við
svona fólk, sem hefur sjálft ekki
tilfinningu fyrir því hvað það er
skrítið.
9\[ctturgaíinn
Smidjuvegi 14, ‘Kópavogi, sími 587 6080
Dans- og skemmtistaður
í kvöld leika
Hilmar Sverrisson og
Anna Vilhjálms
Opió ffrá kl. 22—3
Næturgalinn
alltaf lifandi tónlist
Wes Anderson segir: „Max vill
vera álitinn sérfræðingur í öllu
mögulegu. Hann vill stjóma öllu.
Og hann lætur það ekki aftra sér
eða draga úr metnaðinum að hann
er ekkert sérstaklega hæfileika-
ríkur á flestum sviðum.“
í aðalhlutverki myndarinnar er
nýliðinn Jason Schwartzman sem
varð fyrir valinu eftir 9 mánaða
leit þar sem 1.800 umsækjendur
komu til greina. Bill Murray,
stórstjarna og leikari úr mörg-
um ógleymanlegum gaman-
myndum, varð svo fyrir val-
inu í hlutverk Blume. Bill
Murray segir um sinn mann,
Blume: „Blume er maður
sem á fullt af peningum en
fer að kynnast einfaldara lífi
eftir að hann eignast þennan
skólastrák að vini.“ Um vinn-
una við myndina segir Bill
„Þetta minnti mig á fyrstu
myndimar mínar þegar
fólk gat slappað af og
var ekki svona
stressaað út af
öllu.“
Jason
Schwartzman
sem er óreynd-
ur leikari segir
um framtíð sína
í þessum
bransa: „Fyiir
Rushmore var
líf mitt mun
einfaldara. Ég gekk í skóla og spil-
aði í hljómsveit. Nú er ég kominn í
kvikmynd.“ Schwartzman er
trommuleikari í hljómsveitinni
Phantom Planet, sem er með
hljómplötusamning hjá Geffen og
lauk við fyrstu plötu sína rétt áður
en tökur kvikmyndarinnar hófust.
Schwartzman, sem útskrifaðist úr
framhaldsskóla í fyrra, segir að
tónlistin muni áfram
hafa forgang hjá
sér.
BLUME
veit ekki
aura
sinna tal.
Stutt
Brjóstin
fuku fyrir
starfíð
BRESKA lögreglukonan Jackie
Smithies var það sárþjáð er hún
notaði skotheld vesti sem pössuðu
henni illa að hún ákvað að fara í
brjóstaminnkun. Samkvæmt dag-
blaðinu Sun lét hún taka um 1 kíló
af hvoru brjósti til að vestið yrði
víðara og þrengdi ekki að henni.
„Núna líður mér ekki eins og ég sé
með tvær melónur með dúndrandi
hjartslætti framan á mér þegar ég
fer úr vestinu," sagði Jackie eftir
aðgerðina.
Talsmaður lögreglunnar í
Manchester sem Jackie starfar hjá
sagði að óhjákvæmilega yrðu alltaf
vandræði með vestin vegna þess að
fólk er ólíkt að stærð og lögun.
Að höggva
mann og annan
TVEIR ræningjar vopnaðir kjöt-
hnífum réðust á ferðamanninn
Yank Shanyu í Hong Kong og
hjuggu af honum höndina til að
ná gullúri skrýddu demöntum
sem hann bar. Þeir hentu hend-
inni síðan í sjóinn en kafarar frá
lögreglunni fundu hana skömmu
síðar.
Læknar festu höndina á aftur
en segja að það ráðist eftir þrjá
sólarhringa frá aðgerðinni hvort
hún hafi heppnast eður ei. Nokk-
uð hefur verið um árásir á ferða-
menn á þeim slóðum sem slysið
átti sér stað og að sögn lögregl-
unnar stendur til að auka lög-
gæslu á staðnum.
Enga lögfræð-
inga, takk!
DRAUMAHEIMILIN í Fairway
Oaks-hverfinu í Kaliforníu eru öll
hönnuð með fimm svefnherbergj-
um, nuddpotti, risastórum garði
með sundlaug og þeim formerkjum
að engir lögfræðingar megi búa
þar.
Þessi ákvæði gerðu lögfræðing-
inn Timothy Liebaert brjálaðan svo
að hann lögsótti fyrirtækið sem
skipulagði og reisti hverfið. En
dómarinn ákvað að íbúar þess
hefðu allan rétt á að vera lögfræð-
ingalausir og að Timothy yrði að
leita sér annars staðar að heimili.
„Þetta er mikilvægt mál fyrir al-
mannaréttinn," sagði Timothy.
„Hvort fyrirtæki geti neitað að
þjónusta fólk vegna starfs þeirra."
Timothy hafði gert kauptilboð í hús
í hverfinu en var hafnað sökum
þess að hann starfaði sem lögfræð-
ingur. Honum þykir þetta vera brot
á mannréttindum en lögfræðingar
byggingaraðilans segja að þeir hafi
allan rétt á þessum takmörkunum
því að lögfræðingar almennt séu lík-
legri til að fara í mál en aðrir borg-
arar.
Ungur
bjargvættur
ÞRIGGJA ára stúlka bjargaði lífl
móður sinnar nýlega er hún
hringdi í neyðarlínuna í Kaliforn-
íu eftir að hafa fundið móðurina
liggjandi meðvitundarlausa á
gólfinu.
Móðirin, sem er flogaveikisjúk-
lingur, sagðist hafa kennt dóttur
sinni að hringja 1911 ef hún
fengi flog. „Eg hef fengið fiog
nyög oft upp á síðkastið en dóttir
mín er mjög skörp ung stúlka,“
sagði móðirin hreykin.
„Mamma vill ekki vakna, hún
fékk flog, sendið sjúkrabíl,"
sagði litla stúlkan er hún náði
sambandi við neyðarlínuna sem
fær sjálfkrafa upp á skjá hvaðan
er hringt og því kom sjúkrabíll
fljótt á vettvang.