Morgunblaðið - 22.05.1999, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 69 ^
Molar frá Cannes
Skilnaðurinn
opnar dyr
fyrir Gerede
KVIKMYND tyrkneska leikstjór-
ans Canan Gerede Skilnaðurinn
sem m.a. er framleidd af íslensku
kvikmyndasamsteypunni var
frumsýnd á hátíðinni í Cannes og
fékk miðlungs dóma í kvikmynda-
tímaritinu Variety.
I bakgrunni myndarinnar er
sagan af baráttu Sophiu Hansen
fýrir því að endurheimta dætur
sínar tvær frá föður sínum í
Tyrklandi en þó er mörgu breytt,
til að mynda nöfnum og einstök-
um atburðum, og skáldað í eyð-
urnar.
Deborah Young, gagnrýnandi
Variety, segir söguna áhrifaríka
og að hún eigi eftir að opna fleiri
dyr fyrir leikstjóranum Gerede í
Evrópu. Þó finnur hún að stirð-
busalegri ensku, gagnrýnir leik-
inn nokkuð og segir að það vanti
upp á að sýna sálræna hlið per-
sónanna.
Ennfremur segir í gagnrýninni
að sagan veki ýmsar spurningar,
FÓLK í FRÉTTUM
LEIKSTJÓRINN Atom Egoyan með dóttur sinni, eiginkonu og leikar-
anum Mel Gibson við frumsýningu myndarinnar Felicia’s Journey.
t.d. hvort feður hafi rétt á að aia
afkvæmi sfn upp í eigin strangtrú-
uðu skoðunum. I lokin segir gagn-
rýnandinn að myndin komi út sem
and-tyrknesk og það geti varla
verið sem leikstjórinn hafi ætlað
sér, hvað sem gagnrýnandinn hef-
ur nú fyrir sér í því.
„Næstum allar myndirnar í
keppninni fjalla um samtímann,"
segir Gilles Jacob í viðtali við
Moving Pictures. Hann er yfir há-
tíðinni og sér um að velja myndir
í þær opinberu dagskrár sem
boðið er upp á. „Leiksljórar um
allan heim eru að leita að nýjum
leiðum til að segja sögu á filmu til
að mæta kröfum nýs árþúsunds."
Hann ætti að vita það því hann
ásamt aðstoðarfólki sínu horfði á
ríflega 500 kvikmyndir, 500 stutt-
myndir og 400 myndir eftir leik-
stjóra sem eru að gera sína fyrstu '*í-
atrennu að kvikmyndagerð.
Jacob vill gjarnan viðhalda
jafnvægi á milli mynda sem eru
listrænar og þeirra sem hafa
skemmtanagildi. „Stundum fáum
við hvort tveggja í einni og sömu
myndinni eins og gildir um mynd
Almodovars Allt um móður mína
og mynd Atoms Egoyans
Felicia’s Journey. Það eru alltaf
meðmæli." Báðar myndirnar
þykja einmitt lfklegar til að
hreppa gullpálmann á Iokahátfð-
inni á sunnudag.
Sá orðrómur fer á kreik á
hverju ári að það Jacob ætli sér
að hætta enda hefiir hann verið
yfir hátfðin í 21 ár. En hann hafn-
ar því alfarið. „Það kemur ekki
til mála. Mér finnst þetta frábært
starf og ef enginn hefur neitt við
það að athuga þá er ég ekkert á
þeim buxunum að hætta."
T.V.
◄ AÐSTANDENDUR kvikmyndar-
innar „The Straight Story“ (f.v.)
John Roach annar handritshöfund-
urinn, Angelo Badalamenti er sá
um tónlistina, Harry Dean Stanton
leikari, Mary Sweeny handritshöf-
undur, David Lynch leikstjóri, ^"
Sissy Spacek leikkona og Richard
Farnsworth leikari.
T.H.
◄ UÓSMYNDARAR eru fjölmargir
á kvikmyndahátfðinni en skýla sér
iðulega bakvið linsur myndavéla.
Hér eru þeir þó í aðalhlutverki og
hafa vakið áhuga konu fremur en
stjörnurnar dáðu sem myndaðar
eru sem mest.
TITILL nýjasta afsprengis
bandaríska leikstjórans Davids
Lynch gefur óneitanlega til kynna
breyttar áherslur. Hún nefnist „The
Straight Story“ og hefðu það ein-
hvern tíma þótt tíðindi um manninn
sem gerði m.a. sjónvarpsþáttaröðina
„Twin Peaks“ og kvikmyndina „Lost
Highway" sem voru báðar úr tengsl-
um við raunveruleikann.
Ekki er nóg með að „The Straight
Story“ sé raunsærri en aðrar myndir
Lynch heldur er hún líka byggð á
sannri sögu. Hún fjallar um bræður
sem hafa ekki talað saman í tíu ár.
Annar þeirra dettur og slasar sig og
þegar hann er að jafna sig fréttir
hann að hinn bróðirinn hafi fengið
hjartaáfall. Hann fær áhyggjur af
bróður sínum, vill sættast og ákveð-
ur að leggja upp í mörg hundruð
kílómetra ferð til að hitta hann. Þar
sem hann hefur ekki efni á að kaupa
sér miða, er ekki með nógu góða sjón
til að keyra og er of stoltur til að
þiggja far leggur gamli maður upp í
ferðina á garðsláttuvélinni sinni og
dregur á eftir sér vagn með birgðum
fyrir ferðina.
„Ég býst við að ég verði að taka
undir að þessi mynd er ólík þeim
niyndum sem ég hef gert upp á
síðkastið," segir Lynch sem að vanda
er með hárið úfið að hætti aðalsögu-
persónunnar úr fyrstu mynd sinni
„Erasurehead". Hann heldur áfram:
„En maður verður alltaf að taka mið
af aðstæðum hveiju sinni og eins
þurfti ég að taka mið af sögunni.
Þetta var það sem myndin þurfti. Og
við lögðum í hann. Það var einfald-
lega eitthvað í handritinu sem sagði
mér að þetta væri rétta leiðin."
Lynch hefur tvisvar áður komið til
Cannes með myndir sínar. Hann
fékk gullpálmann fyrir myndina
„Wild At Heart“, sem framleidd var
af Sigurjóni Sighvatssyni, og var
rakkaður niður fyrir myndina „Twin
Peaks: Pire Walk With Me.“ En
hvernig er hann stemmdur fyrir há-
tíðina að þessu sinni? „Þetta er stór-
fenglegasta kvikmyndahátíð í heim-
inum og það er gaman að taka þátt í
aðalkeppninni. Það eykur á spenn-
una,“ segir hann og bætir við:
„Stundum ber maður eitthvað úr
býtum og stundum ekki. Þannig er
lífið. En hvernig sem keppnin fer þá
nýt ég þess að vera hér.“
Ástæðuna fyrir því að Lynch valdi
að gera mynd við þessa sögu segir
Kvikmyndahátíðin í Cannes
Lynch leitar
á nýjar slóðir
Leikstjórinn David Lynch hefur oft vakið deilur
með myndum sínum en skiptir um ham í nýjustu
mynd sinni sem frumsýnd var í Cannes í gær-
kvöldi. Pétur Blöndal sótti blaðamannafund með
honum og leikurum myndarinnar,
hann vera næmið fyrir
tilfinningum í handrit-
inu sem Mary Sweeney
og John Roach skrif-
uðu. „Það var fyrirgefn-
ingin sem snart mig
dýpst,“ bætir hann við.
En hvemig höfðu hand-
ritshöfundarnir upp á
sögunni. „Ég las um
ferðina í New York
Times þegar hann lagði
í hana árið 1994,“ segir
Sweeney. „Fjölmiðlar
fjölluðu mikið um ferð-
ina. Ég þurfti að bíða í
nokkur ár því aðrir
urðu fyrri til að verða
sér úti um réttinn að
kvikmyndinni en þegar
það verkefni rann út í
sandinn og rétturinn losnaði þá var
ég fljót til og við lukum við handritið
á fjórum mánuðum."
Lynch á varla orð til að lýsa leik-
hóp myndarinnar. „Eins og þú veist
er Richard Farnsworth næstum því í
hverju einasta atriði myndarinnar.
Stundum er sagt að menn séu fæddir
í hlutverk og ef það hefur nokkurn
tíma átt við þá er það núna. Það er
svo yndisleg manneskja sem skín í
gegnum hvert orð og augnatillit og
mikil gæfa að hafa hann í myndinni.
Mig hafði alltaf langað til að vinna
með Sissy Spacek. Hún er eins og
kamelljón að því leyti að hún getur
leikið hvaða hlutverk sem er. Og
hvað Harry Dean Stanton varðar þá
leikur hann aðeins í
einu atriði, en það er
gríðarlega mikilvægt og
hann leysir það vel af
hendi.“
„Það var ekki mjög
erfitt að leika í þessari
mynd,“ , segir
Farnsworth. „Ég náði
góðum tengslum við
persónuna án þess að
þurfa að setja mig inn í
annan hugarheim.
Enda gæti þetta verið
saga um mig,“ segir
hann og hlær. „Raunar
er það dálítið spaugi-
legt að ég var nýkom-
inn úr aðgerð og ekki í
góðu líkamlegu ásig-
komulagi þegar mér
var boðið hlutverkið. Eg gekk við
staf og þegar umboðsmaðurinn minn
hringdi og sagðist hafa lesið yndis-
legt handrit þá sagðist ég ekki vera
viss um að ég væri til stórræðanna."
Hún sagði: „Þú átt ekki eftir að trúa
þessu en þessi sögupersóna gengur
við tvo stafi.“ Og ég svaraði: „Ég
ætti að geta ráðið við það.“
Farnsworth er með kúrekahatt og
góðmennskan skín úr hverjum and-
litsdrætti eins og í myndinni. Það
býr líka seigla í honum því hann
byrjaði ferilinn sem áhættuleikari.
„Ég var áhættuleikari í 25 ár,“ segir
hann. „Astæðan fyrir því að ég gerð-
ist leikari var sú að jörðin var orðin
ansi hörð viðkomu og ég var orðinn
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
LEIKSTJÓRINN
David Lynch með
úfið hár að vanda.
þreyttur á að vinna við að brotlenda
á henni. Ég bjóst nú reyndar aldrei
við að komast að sem leikari og ætl-
aði bara að hætta í kvikmyndum en
þegar tækifærið bauðst var ég ekki
seinn til að grípa það.“
Myndin „The Straight Story“ er
afar hæg og einn gagnrýnandi lýsti
henni svo að hún væri ferðalag um
Bandaríkin á 5 kílómetra hraða. „Ég
þurfti að fá mér gamlan hjarta-
gangráð til þess að geta þetta,“ segir
Lynch og kímir. Gagnrýnendum hef-
ur einnig orðið tíðrætt um að enginn
deyr í myndinni og að þar sé engin
undirhggjandi þjóðfélagsádeila, sem
verði að teljast afar ólíkt myndum
Lynch. Hann hefur aðeins eitt um
það að segja: „Mary Sweeney þurfti
að bregða sér frá þegar hún átti von
á símtali frá kvikmyndaeftirlitinu.
Ég svaraði því símanum og náungi
að nafni Tony sagði við mig: „Mynd-
in er leyfð til sýninga fyrir alla ald-
urshópa." Og ég svaraði: „Þú verður
að endurtaka þetta því ég örugglega
á aldrei eftir að heyra þetta aftur
það sem eftir er ævi minnar.“„
„The Straight Story“ verður að
teljast óður til þrjóskunnar. >rAðal-
persónan verður að sýna mikla
seiglu og sigrast á ótal hindrunum til
að sýna bróður sínum hversu honum
er annt um hann,“ segir Lynch. Að-
spurður um hvað varð um bræðurna
segir hann: „Því verður svarað í The
Straight Story II,“ og brosir. Enda
kannski ekki hið dæmigerða efni í
framhaldsmyndir. En þegar Lynch
er annars vegar - hver veit?
Sólþurrkaðir tómatar
MONLVMM
Hámarks gœði, einstakt bragð
Góðir með gríllmat!
Drelfing Heilsa ehf • sími 533 3232
Hiti i sætum, rafmagnsrúður, sportpakki (sportsæti, stýri. skipting
fjöðrun), teðurinniétting, armpúði, höfuðpúðai, loftpúðai. 4x4
akstuistötva, hraðastillir, rafmagnsstýri, topptúga, lafmagnssaeti, 5 gira
sjátfskiptur og beinskiptur, HIFf system ineð útv., kass. og geislaspitara
dökk viðarinnrétting, 17“ átfetgur, lestrartjós, fjarst. centrat með þjðfavörn
Upplýsingar í síma 565 8386 og 896 2282