Morgunblaðið - 22.05.1999, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 73
FYRIFt
»' 990 FUNKTA
• FmUIBÍÓ
KRINGLU!: i
EINA BÍÓID MEÐ
THX DIGITAL i
ÖLLUM SÖLUM
Kringlunni 4-6, sími 588 0800
fújmmúumaðijf.;
Ogleymanleg mynd með öllum helslu
stjömum roppheimsins. Hefur verið kölluð
nútímoútgófo of Scorfoce og vor bönnuð viðs
vegor um Bondoríkin.
Sjóðu hana ef þú þorir.
NAS
DMX
TASAL HiCHS
BBDbEY
f*i0Z
MlfiOÐ MAN
A HYPE WILLIAMS FILM
Synd kl. 7, 9 oq 11. b.us.BODiGnAL
sömu sýningartímar alla helgina
BICBCCe
FYFtlR
990 PUFIKTA
FERDU i BÍÓ
Snorrabraut 37, sími 551 1384
Olivia
lason
Virkilega skemmtileg mynd ser
hlotiö hefur fróbæro gognryiÆg
fjöldaverölauno, m.o. sögð Hesta mynd
ársins af timaritunum Spin og Premiere.
Bill Murrcy fer algjörlega á kostum i írabæru hlutverk
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
WWWttf&z
OfE TRJE THiNG
Kl. 6.40.
Kl. 4.45, 7 og 9.15
sömu sýningartimar alla helgina
li ©MÍOGÍMN
Hverfisgötu U SSf 9000
|Q
lo
l'O
1.0
fb
lo
-
□
SV MBL
ÍTTLE VÖÍCi:
Taktu
jflÁGIÐ LÓÁ
Ki. 5, 7. 9 og 11.
V Q R V I IM □ A R
KVIKMYNDAHÁTÍÐ HASKOLABÍOS OG REGNBOGANS
). mai-9. juni
Englar (Talk of Angels)
Leikstjóri: Nick Hamn. Aðalhlutverk: Polly Walker og Vincent Perez
Sýnd kl. 5 og 7
www.kvikmyndir.is
Kvikmyndahðsii) eru oninn alla hvítasunnuhelgina
hérlendis. Jóhann Sigmarsson segir
gaman að sjá nýja kvikmyndagerðar-
menn bætast í hópinn.
STUTTMYNDADAGAR í Reykja-
vík verða haldnir 24., 25. og 26. maí í
Tjarnarbíói. Húsið opnar kl. 19.30
hvert kvöld og verður þá sýndur
hluti stuttmyndanna í keppninni, auk
þess sem einn fyrirlesari flytur er-
indi. Pyrirlesarar verða Einar Már
Guðmundsson handritshöfundur,
Vilhjálmur Knudsen heimilda-
tnyndagerðarmaður og Sigurður
Valgeirsson, sem heldur fyrirlestur
um sunnudagsleikhúsið.
Það er Kvikmyndafélag Islands
sem stendur fyrir Stuttmyndahátíð-
inni, en það eru þeir Jóhann Sig-
marsson og Júlíus Kemp ásamt
framkvæmdastjóranum Bryndísi Jó-
hannsdóttur. Dómnefndina skipa
Hilmar Karlsson kvikmyndagagn-
rýnir á DV, Guðmundur Bjartmars-
son kvikmyndatökumaður og Mark-
ús Örn Antonsson útvarpsstjóri.
Úrslitin verða ljós seinasta kvöldið
og eru verðlaunin fyrir fyrsta, annað
og þriðja sæti tvö hundruð þúsund,
eitt hundrað þúsund og fímmtíu þús-
und krónur, sem Reykjavíkurborg
gefur. í ár mun DV einnig veita sér-
stök verðlaun.
„Þetta er í níunda sinn sem Stutt-
myndadagar verða haldnir,“ segir
Jóhann Sigmarsson frumkvöðull há-
tíðarinnar. „Þegar ég stofnaði hátíð-
ina vildi ég að fagfólk og áhugamenn
gætu komið saman og skoðað þær
stuttmyndir sem verið var að gera.
Það var mjög lítið um að stuttmyndir
væru sýndar opinberlega og ekkert
sem kynnti þennan vettvang. Eg hef
alltaf haldið því fram að stuttmyndin
væri mjög mikilvægur hluti kvik-
myndagerðar, og ekki síst fyrir þá
sem eru að stíga sín fyrstu skref sem
kvikmyndagerðarmenn.
Vettvangur fyrir áhugamenn
og fagfólk
í dag er mjög mikil gróska í stutt-
myndagerð og margir frægir kvik-
myndagerðarmenn sem nota þetta
form. Því stuttmyndin er ekki bara
fyrir byrjendur, og ég kýs að lýsa
stuttmyndinni sem ljóði kvikmynd-
anna, sem er einnig erfitt að gera
vel.“
- En er þessi stuttmyndahátíð
ekki tileinkuð þeim sem eru að stíga
sín fyrstu skref?
„Nei, eiginlega ekki. Þegar ég
hélt hátíðina í fyrsta sinn voru
menn eins og Óskar Jónasson, Júlí-
us Kemp og Steinþór Birgisson
Morgunblaðið/Ásdls
▲ UR stuttmynd-
inni Verðlauna-
bikarinn eftir
G.H.Ö. og M.H.Í.
Morgunblaðið/Golli
▲ BRYNDÍS Jó-
hannsdóttir og
Jóhann Sigmars-
son hafa veg og
vanda af Stutt-
myndahátíð
Reykjavíkur í ár.
▲ PÓSTURí
óskilum eftir
Jón Ásgeir
Gestsson og
Guðmund
Pálsson.
▲ ÚR Deginum eftir, stutt-
mynd Karls Inga Karlssonar.
Eina íslenska
kvikmynda-
hátíðin
Gróskan í stuttmyndagerð fer stigvaxandi
Stuttmyndadagar í Reykjavík að hefjast
meðal þátttakenda. Friðrik Þór
Friðriksson er að gera stuttmynd,
og honum er frjálst að taka þátt ef
honum sýnist næsta ár. Allar
myndirnar hingað til hafa verið
gerðar af íslendingum, sem er gott
mál. En gróskan fer stigvaxandi og
við Bryndís erum að vinna að því að
hátíðin verði alþjóðleg á næsta ári.
Við vonumst þá til að fá erlendar
myndir í keppnina og erlenda fyrir-
lesara. Þá myndum við auðvitað
flokka myndirnar niður, og ég hef
hugsað mér að það verði eftir
reynslu leikstjórans, en ekki lengd
mynda, eins og sumar hátíðir gera.
Það verður flott að vera með al-
þjóðlega kvikmyndahátíð í Reykja-
vík.“
Ótnlleg aukning
„Það hafa aldrei verið sendar inn
jafn margar stuttmyndir til keppni
og í ár. Sextíu myndir eru skráðar,
en svo verður eitthvað af aukamynd-
um. Ég býst við að þessi aukning
stafi af því að það er mun auðveldara
í dag að gera stuttmynd en var fyrir
nokkrum árum. Ég er viss um að ef
Leonardo Da Vinci væri á lífi, myndi
hann gera stuttmyndir jafnt sem
auglýsingar. Hann væri örugglega
að gera Nike-auglýsingu.“
- Hvað finnst þér það besta sem
þessi stuttmyndahátíð hefur leitt af
sér undanfarin ár?
„Hún hefur alið af sér marga góða
kvikmyndagerðarmenn sem eru að
vinna við greinina í dag. Hvatt þá til
að halda áfram á þessari braut. Svo
eru Stuttmyndadagar orðnir árviss
hluti af menningarlífi borgarinnar.
Þeir eru skemmtilegir, mikið að ger-
ast og það er gaman að fylgjast með
nýju fólki bætast í hóp kvikmynda-
gerðarmanna.
Ég hef tekið eftir því að kvik-
myndagerðarmenn, bæði yngri og
eldri, eru að stinga rýtingi í bakið
hver á öðrum, og það er mikil sam-
keppni þeirra á milli. Stuttmynda-
dagar hafa orðið vettvangur fyrir
kvikmyndagerðarfólk til að hittast
og viðra ólíkar skoðanir sín á milli.
Auk þess er þetta eini vettvangur-
inn fyrir íslenska kvikmyndagerðar-
menn til að sýna verk sín hérlendis.
Á Kvikmjmdahátíð í Reykjavík eru
bara erlendar kvikmyndir. Þetta er
eina íslenska kvikmyndahátíðin.“
f'