Morgunblaðið - 23.06.1999, Síða 23

Morgunblaðið - 23.06.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 23 VIÐSKIPTI Kaupþing hf, eignast 40% hlut í Lánstrausti ehf, Umsvif fyrir- tækisins aukast AÐ SÖGN Þorsteins Víglundsson- ar hjá Kaupþingi hf. hefur samn- ingur Kaupþings hf. og Láns- trausts ehf. um 40% eignarhlut Kaupþings hf. í fyrirtækinu áhrif á starfsemi Lánstrausts ehf. á þann hátt að umsvif aukast. „Við viljum bæta við sérstöku lánshæfismati þar sem lagt er ítar- legt hlutlaust mat á fyrirtæki varð- andi lánshæfi og greiðslugetu og fyrirtækjum er í lokin gefin ákveð- in lánshæfíseinkunn,“ segir Þor- steinn Víglundsson, „en þetta er sambærilegt við þá þjónustu sem erlend fyrirtæki eins og Moody’s og Standard & Poors veita. „Við viljum byggja þessa starf- semi upp til viðbótar þeirri starf- semi sem íyrir er hjá fyrirtækinu,“ segir Þorsteinn. „Markmið okkar er að skapa skilvirkari verðmynd- un á innlendum skuldabréfamark- aði. I framtíðinni mun þá ávöxtun- arkrafa skuldabréfa iyrirtækja væntanlega taka mið af slíkri láns- hæfiseinkunn." Þörf fyrir iánshæfismat á íslenskum fyrirtækjum „Við teljum þörf fyrir starfsemi af þessu tagi á innlendum markaði og með aukinni skuldabréfaútgáfu hér á landi er markaðurinn nú til- búinn fyrii' slíka starfsemi að okk- ar mati,“ segir Þorsteinn. „Eins getur slíkt lánshæfismat verið mik- ilvægt fyrir erlendar lántökur ís- lenskra fyrirtækja." Þorsteinn er nú stjómarformað- ur Lánstrausts ehf. og segir fyrir- tækið vilja fá fleiri aðila af fjár- magnsmarkaði til liðs við sig. Að- spurður segir hann bankana þar fyrst og fremst koma til greina en engar viðræður eru enn hafnar. „Við lítum svo á að við komum þessari starfsemi af stað og mun- um í kjölfarið leita eftir því við aðr- ar fjármálastofnanir á markaðnum að þær komi að verkefninu með einum eða öðrum hætti.“ Reynir Grétarsson er fram- kvæmdastjóri Lánstrausts og á auk þess 5% hlut í fyrirtækinu. Að hans sögn er samningurinn við Kaupþing í samræmi við markmið fyrirtækisins um að færa eignarað- ild frá einstaklingum til fyrirtækja. Fyrirtækið var á sínum tíma stofn- að af fimm einstaklingum, þ.ám. Reyni, en auk hans eru einungis fyrirtæki hluthafar í Lánstrausti ehf. Lánstraust ehf. var stofnað árið 1997 og hefur síðan starfrækt van- skilaskrá sem nú eru um 400 áskrifendur að. Fyrirtækið hefur starfað að fleiri verkefnum sem tengjast fjárhagsupplýsingum um einstaklinga og fyrirtæki og má þar m.a. nefna miðlun upplýsinga úr ársreikningum fyrirtækja. „Stefnt hefur verið að því að Lánstraust ehf. yrði í eigu fyrir- tækja á fjármálamarkaði og fyrir- tækja í skyldum rekstri og Láns- traust ehf.,“ segir Reynir. „Ástæð- an fyrir þessu er að fýrirtækið verður öflugra og tiltrú á það eykst. Þegar fyrirtæki búa yfir miklum upplýsingum um einstak- linga og fyrirtæki er heppilegra að mínu mati að það sé í eigu stórra og ábyrgra aðila frekar en að ein- staklingar eigi það,“ segir Reynir. Kaupþing á nú stærsta hlutann í Þorsteinn Reynir Víglundsson Grétarsson Lánstrausti ehf., u.þ.b. 40%. Ýmis fyrirtæki eiga alls 55% og Reynir Grétarsson, framkvæmdastjóri Lánstrausts ehf., á 5% hlut í fyrir- tækinu. Starfsmenn eru nú níu talsins og velta fyrirtækisins er um 60 milljónir á ári. 333MHz PowerPC G3-örgjörvi, 512K flýtiminni, 66MHz kerfisbraut, 15” hágæða skjár (1024x768), 32MB vinnsluminni (stækkanlegt í 256MB), 6MB ATIRAGE PRO TURBO skjákort, 6GB harður diskur, 24ra-hraða geisladrif, 10/100Base-Tx Ethernet á móðurborði, Innbyggt 56kbás mótald, Tvö USB-tengi sem hægt er að tengja skanna, prentara, stafrænar myndvélar og maigt fleira í. Innbyggðir víðóma hátaiarar (SRS-víðómur), Apple USB-hnappaborð og USB-mús, MacOS 8.5 staðfært og ókeypis uppfærsla í íslenskt MacOS 8.5, AppleWorks 5 (hét áður ClarisWorks), FaxSTF faxhugbúnaður, PhotoSoap myndvinnsluforrit, World Book fyrir Macintosh, Adobe PageMill 3.0, heimasíðugerðarforrit, Risaeðluskotleikinn Nanosaur, Netscape Communicator 4.5, og maigt, maigt fleira. PC / skipholti 17 / sími 530 1800 Macintosh / skipholti 21 / sími 530 1820 www.aco.is / www.apple.is aco opið virka daga: 9-18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.