Morgunblaðið - 23.06.1999, Síða 37

Morgunblaðið - 23.06.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 3£ Ofgafullir Islendingar ÞEGAR þetta er ritað þá stendur yfir „borgaralega þyrluverkefnið Norðurnágranni 99“ sem mun vera undanfari heræfingarinnar „Norður- víkingur 99“. Þar fara fremstir bandarískir heimilisfeður í stríðsleik undir því yfirskini að verið sé að æfa landvamir Islands. Heldur erfiðlega hefur gengið að finna verðuga and- stæðinga hin síðari ár, Sovétríkin fallin og alls ekki heppilegt að telja Norðmenn til óvina þrátt fyrir ýmsa árekstra síðan síðasta heræfing var haldin. En óvinurinn hefur fundist, hann er „öfgafullir umhverfisvernd- arsinnar" ásamt öðrum hryðjuverka- hópum. Þetta þykja svo sjálfsagðir óvinir að umhverfisráðherra sá enga ástæðu til athugasemda, aðspurð í fyrirspumartíma á Alþingi þann 14. júní sl. Máli sínu til sönnunar gat hún tiltekið dæmi þegar útsendarar Sea Shepherd samtakanna sökktu hvalveiðibátum hér um árið. Sá gjörningur átti hins vegar lítið skylt við umhverfisvemd og ætti enginn að verja slík spellvirki. Fróðlegra væri þó ef ráðherrann gæti tiltekið fleiri dæmi þar sem „öfgafullir" um- hverfisverndarsinnar hafa ráðist gegn íslandi með slíkum hætti og hvaða samtök væra helst líkleg til slíks í framtíðinni. Samtök Paul Wat- sons hafa aðsetur í Kaliforníu, er ekki verið að leita langt yfir skammt með að halda þessa heræfingu hér? Og öfgarnar? Nú háttar svo til á okkar litla landi að vart má nokkur tjá sig hlynntan náttúruvernd öðravísi en að verða stimplaður öfgasinni í náttúru- eða umhverfisvernd af nokkram valda- miklum stjórnmálamönnum þessa lands. Þeir hafa þó forðast að skil- greina hvað þeir eiga við þegar þeir tala um þennan öfgahóp, hvaða fólk þar eiginlega er á ferðinni, í hverju öfgar þeirra felast og í hverju sann- anlegir öfgamenn þekkjast frá al- múganum. Eða heyrast stjórnmála- menn ekki oft tala um öfgafólk þegar einhver dirfist að mótmæla fyrirhug- uðum framkvæmdum á hálendinu eða minna á að tvær skoðanir era Öfgar Hann er stór öfgahóp- urinn á Islandi, en Jóhann Þórsson segir skoðanakönnun DV í janúar sl. staðfesta það þegar tveir þriðju hlut- ar þjóðarinnar lýstu sig andvíga uppistöðu- lóni á Eyjabökkum. uppi varðandi nýtingu sjávarspen- dýra. Það þarf ekki mikið til að lenda í þeim öfgahópi. Öfgasinnarnir Þeir sem vilja að hægt sé farið við virkjanir norðan Vatnajökuls eru öfgasinnar og alvarleg ógnun við eðlilega framþróun heilla kjördæma, þeir sem telja að atvinnumálum á Austfjörðum sé betur borgið með öðram hætti en stóriðju era öfga- sinnar, gott ef ekki landráðamenn, og fólk sem syrgir það óspillta land sem fer undir háspennumöstur er öfgafólk. Og ekki era þeir skárri sem leyfa sér að andmæla vegalagningu um ósnortið land. Það fer lítið fyrir 5,4 tonn fjölhæf og lipur Einn allra besti kosturinn í dag Stuttur afreiðsltími Frábært verð! FtOBEX 55-3 Kraftmikil 58 hö. YANMAR vél Randalín ehf. v/ Kaupvang 700 Egilsstöðum sími 4.J1 2433 Handunnar gesta- og minningabækur fyrir: ✓ Ferminguna ✓ Brúðkaupið ✓ Merka ófanga ✓ Erfidrykkjuna Leitið upplýsinga um sölustaði skoðanafirelsinu hér. Hann er stór öfga- hópurinn á íslandi. Það staðfestir skoðanakönn- un DV í janúar nýliðn- um þegar tveir þriðju hlutar þjóðarinnar lýstu sig andvíga uppistöðu- lóni á Eyjabökkum. Það sannaðist líka þann 28. nóvember sl. þegar Há- skólabíó yfirfylltist af öfgafullum Islendingum sem vora að mótmæla fyrirhuguðum spjöllum á hálendinu okkar, stærsta víðerni V-Evr- ópu. Það vita landsfeð- urnir að þessi öfgahóp- ur er stór og í honum era fulltrúar allra stétta og stjórnmálaflokka, skoðana og málefna. Það er ekki glæsilegt að vita til þess að banda- rískir heimilisfeður og skrifstofu- menn skuli vera sérþjálfaðir til að fást við slíkan hóp, við getum alls ekki verið viss um að öfgasinnamir komi einungis utanlands frá, eða hvað? Hingað til hafa þeir menn sem beita hryðju- verkum verið kallaðir hryðjuverkamenn og spellvirkjar skemmda- verkamenn. Það skiptir engu máli hver mál- staður þeirra er. En hvergi á jarðarkringl- unni nema hér era unn- endur óspilltrar náttúru taldir öfgasinnar. Hvað þá talsmenn slíkra gæða sem óspillt nátt- úra er. Og hvergi nema hér dytti ráðherra í hug að verja slíka dellu sem einhveijum opinberam starfsmanni hefur nú dottið í hug, að kalla þetta æfingu gegn umhverfissinnum. A næstu árum fyrirhuga stjóm- völd að sökkva Eyjabökkum og það þarf ekki spakan mann til að sjá fyr- ir alvarlegan ágreining, ritdeilur og átök við „öfgasinnaðan“ almenning sem líkar ekki slík framkvæmd. Snýst æfingin um að ógna þeim hópi? Ráðamenn þjóðarinnar skulda al- menningi afsökun vegna þessarar æfingar og ummæla. Hinar sönnu öfgar Ef öfgar fyrirfinnast í þeirri um- ræðu sem hér fer fram nú um stund- ir, þá era þær sprottnar undan rifj- um stjómmálamanna sem stilla and- stæðum sjónarmiðum upp sem öfg- um annars vegar og skynsamlegri nýtingu náttúraauðlinda hins vegar. Þeirra skoðanir era vitaskuld ávallt í síðari flokknum, þó þeir eigi ekki hægt með að útskýra hvað skynsam- leg nýting er. Af orðum þeirra og verkum má þó marka að skynsamleg nýting felst í óðagoti við að umturna óspilltri íslenskri náttúra útlending- um til hagsbóta. * Fyrir þá sem ekki vita, þá felast öfgarnar í að vilja fara sér hægt og kanna fleiri leiðir til nýtingar auð- linda þjóðarinnar en stundarhags- munirnir bjóða upp á. Höfundur er líffræðingur og náttúruunnandi. Jóhann Þórsson UTILIF -^'1 sl-*/ Ný fluga, Baugur, hnýtt afjonasi Jonassyni. Hvað gerír Baugur í sumar, skákar hún Frances? Baugur er hnýtt sem tvíkrœkja og „hits" túba og fœst í Útilífi. GLÆSIBÆ Sími 581 2922 • www.utilif.is Utilífselur fjölbreytt úrval afveiðivörum frá heimsþekktum fram- leiðendum. =Abu Garcia Rerkteu 585 laxar MITCHELL i Norðura völdu Frances Eftirfaranai er listi yfir fengsœlustu flugumar í Norðurá sumarið 1998. mwmss. Frances Collie Dog Snælda Stoats Tail Mikró túpur Blue Charm Hairy Mary Hits túpur Dómarinn Monro Killer Pale Diablo 585 Engittn hnýtir Frances etns og fónas [ónasson. Flugumar hans fást í Útilífi. SIlStAR 117 50 48 40 www.nat.is A veiðivemum fist ítarlegar upplýsingar um helstu ár og veiðivötn á Islandi. Munið eftir mmm fríkortinu! 18 Opið 10 - 18, laugardaga 10 -16.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.