Morgunblaðið - 20.07.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.07.1999, Blaðsíða 1
161. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS John F. Kennedy yngri, eiginkona hans og mágkona talin af eftir flugslys Reuters Karl hælir bresku nautakjöti KARL Bretaprins gæddi sér á nautasteik í gær og lýsti því um leið yfir að breskt nautakjöt væri það besta sem hægt væri að fá. Karl heimsótti sveitabýli í Staf- fordskíri í Mið-Englandi og var þar boðið upp á úrval kjötrétta en ekki eru nema örfáir dagar síðan framkvæmdastjóm Evrópusam- bandsins létti banni af útflutningi bresks nautakjöts, næstum þremur og hálfu ári eftir að það var sett á vegna ótta um að fólk gæti veikst af hættulegum heilarýmunarsjúk- dómi við neyslu þess. Munu bresk- ir nautabændur vonast til þess að stuðningsyfirlýsing verðandi kon- ungs hjálpi þeim að öðlast traust neytenda á ný. Deilur Kínverja og Taívana magnast enn Kínverjar úti- loka ekki beit- ingu hervalds Vín, Peking. Reuters. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kvaðst í gær afar áhyggjufullur vegna vaxandi spennu í samskiptum Kína og Taí- vans og hvatti hann leiðtoga land- anna tveggja til að hefja aftur leit að friðsamlegri lausn deilunnar um stöðu Taívans. Jiang Zemin, forseti Kína, sagði Bill Clinton Bandaríkja- forseta í símasamtali sem þeir áttu á sunnudag að kínversk stjómvöld teldu sig hugsanlega ekki eiga annan kost en beita hervaldi eftir yfirlýs- ingar Lee Teng-hui, forseta Taívans, um að Taívanar gerðu ráð fyrir því að haga samskiptum sínum við Kín- verja eins og um tvö sjálfstæð ríki væri að ræða. „Þetta er áhyggjuefni,“ sagði Ann- an í gær, „en ég vona að þessi deila magnist ekki um of.“ Lét hann þau orð falla að ummæli forseta Taívans hefðu greinilega komið stjórnvöldum í Peking í opna skjöldu. Yfirlýsingar Lees virtust benda til að Taívanar hygðust henda fyrir róða samkomulagi við Kínastjórn sem komið hefur í veg fyrir stríð milli landanna tveggja eftir að kín- verskir kommúnistar höfðu betur í borgarastríði árið 1949 og þjóðernis- sinnar, sem látið höfðu í minni pok- ann, flúðu til Taívan og tóku þar völdin. Kínverjar líta svo á að Taívan til- heyri Kína og hafa tekið illa tilraun- um taívanskra stjórnvalda til að halda úti eigin stjórnarstefnu, ekki síst í utanríkismálum. Taívanar hafa hins vegar undanfarin ár haft áhuga á að brjótast úr spennitreyju þeirri, sem Kinverjar halda þeim í. Sagði Jiang Zemin við Clinton Bandaríkja- forseta á sunnudag að Taívanar hefðu stigið „afar hættuleg skref ‘ en ástæðan væri öllum Ijós, ákveðin öfl í Taívan og annars staðar í heiminum vildu skilja Taívan frá Kína. Clinton mun hins vegar hafa ít- rekað þá afstöðu stjórnvalda í Washington að þau líti á Kína og Taívan sem eitt ríki og sagðist for- setinn jafnframt vona að Kínverjar og Taívanar legðu allt kapp á að leysa deilu sína á friðsamlegan hátt. Clinton hefur áður varað Kínverja við að Bandaríkjamenn myndu líta það „afar alvarlegum augum“ ef þeir reyndu að þvinga Taívana til hiýðni með vopnavaldi. Clinton minnist Kennedys sem „einstaks góðmennis“ Otis í Massachusetts, Washington. Reuters, AFP. BJORGUNARMENN höfðu í gær gefið upp alla von um að finna John F. Kennedy yngri, eiginkonu hans og mágkonu á lífi en flugvél þeirra fórst skammt frá eyjunni Martha’s Vineyard, undan ströndum Massachusetts-ríkis í Bandaríkjun- um aðfaranótt laugardags að ísl. tíma. Leit að flaki vélarinnar var þó haldið áfram í gær enda er það talið geta gefið mikilvægar vísbendingar um orsök slyssins. Þótt ekki væri bú- ið að finna Iík þremenninganna höfðu þegar borist samúðarkveðjur frá ýmsum fyrirmennum beggja vegna Atlantsála. Notaði Bill Clinton Bandaríkjaforseti tækifærið í gær og sagði Kennedy hafa verið „einstakt góðmenni" og að hann hefði reynst sér, konu sinni og dóttur afar vel. Leitarsvæðið hafði verið þrengt nokkuð í gær og voru kafarar m.a. sendir niðm- á tilteknum svæðum á haffletinum í leit að braki úr sex sæta, eins hreyfils Piper Saratoga-flugvél Kennedys sem hvarf undan vestur- enda Martha’s Vineyard. Talið er full- víst að Kennedy hafi sjálfur flogið vél- inni en auk hans eru eiginkona hans, Carolyn Bessette Kennedy, og systir hennar, Lauren Bessette, taldar af. Gaf Kennedy-fjölskyldan frá sér yf- irlýsingu seint í gær þar sem hún við- urkenndi að Kennedy væri að öllum líkindum látinn. Það sama höfðu að- standendur Bessette-systra gert íyrr -j'Jit' t7 Maitha’s ^ Vim*- Kennedy yard án björgun- arbáts eða björgunarvestis, en hvor- ugt var til staðar í flugvélinni. Þegar hefur farangur og brak úr flugvélinni rekið upp á land eða fundist í sjónum í nágrenni eyjunnar. Fyrir framan íbúð Kennedys og Carolyn, eiginkonu hans, í New York höfðu velunnarar komið fyrir blóm- um og handskrifuðum skilaboðum til hinna látnu, kertum og teikningum. Kennedy-fjölskyldan hélt sig hins vegar til hlés í húsakynnum sínum í Hyannisport á Cape Cod og beið fregna af leitinni að líkamsleifum þremenninganna. Systir Kenn- edys, Caroline Kennedy Schloss- berg, var þó sögð dvelja hjá eigin- manni sínum og þremur börnum þeirra á Long Island í New York. Eins og kunnugt er var John F. Kennedy eldri Bandaríkjaforseti myrtur í Dallas í nóvember 1963 og bróðir hans, Robert F. Kennedy, lík- legur forsetaframbjóðandi, hlaut sömu örlög í júní 1968 í Kaliforníu. Fleiri meðlimir fjölskyldunnar, sem mikið hefur borist á í bandarískum stjómmálum og samkvæmislífi und- anfarin 50 ár, hafa einnig hlotið voveifleg örlög og þykir harmsaga fjölskyldunnar með eindæmum. ■ Sjá umfjöllun á bls. 24-26 Reuters MEÐAL þess sem velunnarar skildu eftir í gær við heimili Johns F. Kennedys yngri í New York var sögufræg mynd þar sem hann heilsar að hermannasið líkkistu Johns F. Kennedys Bandarfkjaforseta í nóvember 1963. Viðskiptadeila Bandarikjainaima og ESB Refsitollar á evrópskar vörur Washington. AFP. BANDARÍSK stjórnvöld tilkynntu í gær, að þau myndu leggja 100% toll á fjöldann allan af evrópskum vörum, til að svara fyrir innflutn- ingsbann Evrópusambandsins (ESB) á bandarískt hormónakjöt. Roquefort-ostur og gæsalifrar- kæfa eru meðal þeirra vara sem tollurinn leggst á, en ársvelta þessa vöruútflutnings til Bandarfkjanna nemur nú um 8,4 milljörðum króna. Er talið að Danir, Frakkar og Þjóð- verjar muni finna mest fyrir ákvörðun Bandaríkjastjórnar en hún markar nýtt hámark í ».við- skiptastríði sem staðið hefur yfir í alllangan tíma milli ESB og Banda- ríkjanna. Fulltrúar ESB og Bandaríkjanna hafa reynt að semja um lausn ágreiningsefna sinna - fyrst um banana og nú um kjöt af nautgrip- um sem aldir eru á hormónum - á vettvangi Heimsviðskiptastofnunar- innar, WTO, en ekki tekizt. Hinn 13. maí sl. rann út frestur sem WTO hafði gefið ESB til að aflétta inn- flutningsbanni á bandarískt og kanadískt hormónakjöt, og í kjölfar þess veitti stofnunin Bandaríkja- mönnum heimild til að leggja á refsitolla, þó minni en þeir höfðu farið fram á. Refsitollarnir taka gildi frá og með 29. þessa mánaðar, og bætast við sambærilega refsitolla sem búið var að leggja á aðrar evrópskar vör- ur vegna þess tekjutaps sem Bandaríkjamenn halda fram að bandarísk fyrirtæki sem hafa hags- muna að gæta í útflutningi banana frá Mið-Ameríkuríkjum verði fyrir vegna meintrar mismununar í inn- flutningsreglum ESB. * Afengi sem eldsneyti EMBÆTTISMENN í Litháen, langþreyttir á því að hella nið- ur ólöglegu áfengi eftir að það hefur verið gert upptækt, íhuga nú að nýta frekar mjöð- inn til að knýja ökutæki. „Það er skoðun okkar að við ættum að láta af því, eins fljótt og auðið er, að hella áfenginu niður og nýta hagkvæmari leið- ir þess í stað,“ sagði Eugenijus Maldeikis efnahagsmálaráð- herra í Vilnius í gær. Sagði Maldeikis að ein hugmyndin beindist að því að nota áfengið til að bæta eldsneyti bifreiða og að nefnd embættismanna myndi taka málið til umfjöllun- ar á næstunni. A fundinum kom fram að stjórnvöld í Litháen hafa hellt um 400.000 tonnum af áfengi niður á síðasta ári. Telja emb- ættismenn að ef eldsneytishug- myndin verði ekki að veruleika megi endurvinna áfengið og nýta það til lyfjaframleiðslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.