Morgunblaðið - 27.07.1999, Blaðsíða 50
QfKagHPi"?
MORGUNBLAÐIÐ
. 50 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999
HESTAR
SKEIÐSPRETTIRNIR voru góðir hjá A-flokksgæðingum og bestir hjá Loga og Arnari Grant, Björgvin Sverrisson tók Geysi til kostanna í fyrsta skipti í úrslitunum og ekki annað að sjá
en allt færi vel og þá ekki síður hjá læriföður hans og samstarfsmanni, Baldvini Ara á Sesari.
[ Hátíðisdagar hestafólks
| Baldvin Ari
eins og kóngur
í ríki sínu
*
Hátíðisdagar hestafólks hafa um árabil
' verið haldnir á Melgerðismelum síðustu
helgina í júlí og á því var engin breyting
nú. Það eru hestamannafélögin Léttir og
Funi sem standa að mótinu sem var opið
og brá Valdimar Kristinsson sér norður
og fylgdist með úrslitunum á sunnudag.
LÉTT var yfir verðlaunahöfum barnaflokks, frá vinstri: Erla á Sæ, Anna á Diljá, Þorgils á Sóma, Unnur á
Feldi og sigurvegarinn Ragnhildur á Gauta.
BALDVIN Ari Guðlaugsson hefur
7 verið eins og kóngur í ríki sínu í
Eyjaflrði, borið ægishjálm yfir aðra
knapa í Eyjafirði og á þvi var lítil
breyting nú. Staða hans eftir for-
keppnina var vænleg, með Tuma frá
Skjaldarvík efstan í bæði B-flokki og
tölti. Reyndar langefstir í B-flokkn-
um með 8,67 svo segja má að himinn
og haf hafi verið í þá sem næstir
komu en næsthæsta einkunnin var
8,22. í A-flokki var hann efstur með
Geysi frá Dalsmynni með 8,46 og í
þriðja sæti með Sesar frá Vogum
með 8,37. Þá reið hann Vaski til sig-
urs í 150 metra skeiði á 15,25 sek-
úndum.
í úrslitum B-flokks var leikurinn
léttur hjá Baldvin og Tuma sem var
• í feikna góðu formi. Hækkaði sig
upp í 8,81 og var þar ekkert vangef-
ið. í A-flokksúrslitum eftirlét Bald-
vin aðstoðarmanni sínum, Björgvin
Sverrissyni, Geysi en reið sjálfur
Sesari frá Vogum. Arnar Grant, sem
vai’ með annan hest í forkeppni,
Loga frá Ytri-Brennihóli, sigraði
eftir spennandi keppni við Geysi og
Björgvin og Sesar og Baldvin héldu
þriðja sætinu. Hestarnir í A-
flokksúrslitum voru býsna góðir og
brást enginn skeiðsprettur hjá þeim.
Logi þeirra bestm- í úrslitum ösku-
viljugur með góðu tölti og grenjandi
vakm-.
Boðið var upp á B-úrslit í tölt-
keppninni þar sem Sveinn Ingi
t Kjartansson bar hæstan hlut á Vör
frá Hofi. Þegar kom að A-úrslitum
þótti honum eitthvað af hryssunni
; dregið og hugðist hætta við þátttöku
en á síðustu stundu snérist honum
hugur og skellti sér í leikinn. Bald-
vin Ari og Tumi voru enn í aðalhlut-
verki í A-úrslitum en Úlfhildur Sig-
urðardóttir veitti þeim góða keppni
á Skugga frá Tumabrekku, sem
minnir um margt á frænda sinn,
Hlyn frá Bringu, þann mikla gæð-
ing.
I yngri flokkum var heldur dræm
, þátttaka og þá sérstaklega í ung-
- t lingaflokki. Heldur var það skárra í
barna- og ungmennaflokkum. Það er
ætíð áhyggjuefni þegar lítil þátttaka
er í yngri flokkum og oft er það
mælikvarðinn á hversu vel eða illa
æskulýðsstarfinu er sinnt. En Ragn-
hildur Haraldsdóttir sigraði á Gauta
frá Akureyri í barnaflokki, Ásdís
^Helga Sigursteinsdóttir sigraði í
unglingaflokki og Þorbjörn Matthí-
y
asson sigraði í ungmennaflokki þar
sem keppendur voru býsna vel ríð-
andi.
Úrslit mótsins urðu sem hér seg-
ir:
A-flokkur
1. Logi frá Ytri-Brennihóli, eig.:
Einar Ö. Grant, kn.: Arnar Grant,
8,40/8,62
2. Geysir frá Dalsmynni, eig. og kn.
í fork.: Baldvin A. Guðlaugsson,
kn. í úrsl.: Björgvin Sverrisson,
8,46/8,54
3. Sesar frá Vogum, eig.: Erling
Ingvason og Guðlaugur Arason,
kn.: Baldvin A. Guðlaugsson,
8,37/8,50
4. Frigg frá Viðvík, eig. og kn.: Jó-
hannes Ottósson, 8,24/8,25
5. Hrammur frá Akureyri, eig. og
kn.: Birgir Árnason, 8,23/8,24
6. Pjakkur frá Krossum, eig. og kn.:
Höskuldur Jónsson, 8,21/8,21
7. Nótt frá Akureyri, eig.: Þorvar
Þorsteinsson og Haukur Sigfús-
son, kn.: Þorvar Þorsteinsson,
8,15/8,14
8. Denni frá Hornafirði, eig.: Gunn-
ar Sigursteinsson, kn.: Stefán
Friðgeirsson, 8,07/8,11
B-flokkur
1. Tumi frá Skjaldarvík, eig. og kn.:
Baldvin A. Guðlaugsson, 8,67/8,81
2. Skuggi frá Tumabrekku, eig.:
Úlfhildur Sigurðard. og Sigurður
Hjaltason, kn.: Úlfhildur Sigurð-
ard., 8,21/8,49
3. Vör frá Hofi, eig. og kn.: Sveinn
I. Kjartansson, 8,22/8,47
4. Hjörvar frá Árgerði, eig.: Stefán
B. Stefánsson og Magni Kjart-
ansson, kn.: Stefán B. Stefánsson,
8,17/8,28
5. Galsi frá Brún, eig. og kn.: Þor-
björn Matthíasson, 8,14/8,27
6. Drafnar frá Akureyri, eig. og kn.:
Þorsteinn Björnsson, 8,16/8,22
7. Snær frá Kanastöðum, eig.: Sól-
veig U. Eysteinsdóttir, kn.: Birg-
ir Arnason, 8,10/8,21
8. Máni frá Argerði, eig.: Egill
Ágústsson, kn.: Stefán B. Stef-
ánsson, 8,14/8,20
Tölt
1. Baldvin A. Guðlaugsson á Tuma
frá Skjaldarvík, 7,99
2. Úlfhildur Sigurðardóttir á
Skugga frá Tumabrekku, 7,56
3. Höskuldur Jónsson á Sölva frá
Dalvík, 7,32
4. Agnar S. Stefánsson á Toppi, 7,03
FRJÁLST er í fjallasal og fara þeir mikinn efstu hestarnir í B-flokki,
frá vinstri Máni og Magni, Vör og Sveinn Ingi, Skuggi og Úlfhildur og
sigurvegararnir Tumi og Baldvin Ari.
MorgunblaðiðA'aldimar Kristinsson
BALDVIN Ara vantaði 0,01 til að ná áttunni í A-úrslitum töltsins á
Tuma frá Skjaldarvík, sem er í feikna stuði þessa dagana.
5. Erlendur A. Óskarsson á Eydal,
6,85
6. Sveinn I. Kjartansson á Vör frá
Hofi, 6,73
7. Stefán B. Stefánsson á Kjarn-
oi’ku frá Árgerði, 6,14
8. Ásmundur Gylfason á Hauki frá
Akureyri, 6,12
9. Þorsteinn Björnsson á Drafnari
frá Akureyri, 5,93
10. Heimir Gunnarsson á Tvisti,
5,76
Ungmenni
1. Þorbjörn Matthíasson á Vini frá
Litla-Dunhaga, 8,07/8,41
2. Heimir Gunnarsson á Trausta frá
Akureyri, 8,04/8,38
3. Ásmundur Gylfason á Hauk frá
Akurgerði, 8,20/8,29
4. Bergþóra Sigtryggsdóttir á
Toppi frá Hömluholti, 8,09/8,27
5. Agnar S. Stefánsson á Fjalari frá
Feti, 8,08/8,25
Unglingar
1. Ásdís H. Sigursteinsdóttir á
Fleyg frá Teigi, 8,17/8,29
2. Dagný B. Gunnarsdóttir á Kol-
skör frá Syðra-Fjalli, 8,02/8,20
3. Rut Sigurðardóttir á Stormi frá
Krossi, 7,94/8,16
4. Guðlaug S. Tryggvadóttir á Sól-
eyju frá Ytra-Kálfskinni,
7,61/7,31
Börn
1. Ragnhildur Haraldsdóttir á
Gauta frá Akureyri, 8,18/8,32
2. Unnur Ásgeirsdóttir á Feldi frá
Akureyri, 8,29/8,31
3. Þorgils Magnússon á Sóma frá
Hofsstöðum, 8,03/8,26
4. Anna S. Ágústsdóttir á Diljá frá
Saurbæ, 8,02/7,73
5. Erla B. Birgisdóttir á Sæ frá
Kanastöðum, 7,98/0
Brokk 300 m
1. Trausti og Heimir Gunnarsson,
44,9
2. Gimsteinn og Erlendur A.
Óskarsson, 45,2
3. Aspar og Helga Pálsdóttir, 49,7
Skeið 150 m
1. Vaskur og Baldvin A. Guðlaugs-
son, 15,25 sek.
2. Skerpa og Friðrik Kjartansson,
16,20
3. Sól og Agnar S. Stefánsson, 16,48
sek. |
Stökk 350 m
1. Mozart og Anna C. Gros, 24,8
sek.
2. Funi og Sindri Bjarnason, 25,2
sek.