Morgunblaðið - 05.08.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Knattspyrnufélagið Þróttur flytur f Laugardalinn á 50 ára afmæli félagsins
Morgunblaðið/Ásdís
TRYGGVI E. Geirsson, formaður Knattspyrnufélagsins Þróttar,
á gervigrasvellinum í Laugardal.
Draumagjöf
til Þróttara
UNNIÐ er hörðum höndum að frágangi nýja félags-
heimilisins. Hér eru málarar að mála loftið í afgreiðslu-
sal á efri hæð hússins.
Laugardalur
KN ATTSPYRN UFÉ L AGIÐ
Þróttur fagnar þeim áfanga í
dag að hálf öld er liðin frá
stofnun félagsins. Veruleg
breyting er að verða á að-
stöðu Þróttar sem nú er að
flytja starfsemi sína frá
Sæviðarsundi í Laugardalinn.
Þar er nú verið að leggja
lokahönd á nýtt félagsheimili
auk þess sem ný æfingasvæði
og heimavöllur verða tekin í
notkun í sumar. Mikill hugur
er í Þrótturum við þessi um-
skipti sem Tryggvi E. Geirs-
son, formaður félagsins, telur
að sé draumagjöf til Þróttar á
50 ára afmælinu.
Sögu sína rekur Þróttur
aftur til ársins 1949 þegar
37 manns mættu á stofnfund
félagsins föstudaginn 5.
ágúst í skála Ungmennafé-
lagsins á Grímsstaðaholti.
Aðdragandann að stofnun
félagsins má rekja allt aftur
til áranna 1924-1925 þegar
drengir á Grímsstaðaholti
og í Skerjafirði stofnuðu
drengjafélagið Baldur, en á
þessum árum var talsverður
áhugi á knattspyrnu í þess-
um hverfum.
Upp úr 1930 fóru piltar að
keppa sín á milli í nokkurs
konar hverfaliðum. T.d. lék
Vestur-Holt á móti Austur-
Holti og Skerjafjörður á
móti Holtinu. Ut á við sam-
einuðust drengirnir síðan í
einu liði undir nafninu Knatt-
spyrnufélagið Þróttur og
varð Þróttarnafnið því að
einingartákni hverfanna.
Fljótlega eftir að Bretar
hemámu ísland misstu
drengirnir aðstöðu sína þeg-
ar herinn reisti tjaldbúðir á
Melunum og tók þar með at-
hafnasvæði knattspyrnuiðk-
enda. Lögðust þá kappleikir
af um skeið, þó að oft hafi
verið keppt við hermennina í
fótbolta.
Eftir stríðið lá knatt-
spyrnuiðkun drengjanna að
mestu niðri. Það var síðan
árið 1949 að Eyjólfur Jóns-
son og Halldór Sigurðsson,
fyrsti formaður félagsins,
stóðu fyrir kappleikjum milli
drengja úr Holtahverfum og
Skerjafírði við starfsmenn
Fiskhallarinnar. Eftir þá
leiki blossaði upp áhugi á
stofnun knattspyrnufélags
NÝTT félagsheimili Þróttar er nýstárleg en jafnframt glæsileg bygging.
V"*
EINN af rúmgóðum æfingavöllum Þróttar í Laugardalnum. Umgjörð þeirra er öll hin
skemmtilegasta með trjágróðri sem veitir gott skjól.
sem endaði með fyrrgreindri
stofnun félagsins.
Alsælir með flutninginn
í dag stendur Þróttur á
tímamótum hvað aðstöðu fé-
lagsins varðar. Tryggvi E.
Geirsson, segir aðstöðuleysi
lengi hafa verið fylgifisk fé-
lagsins. Aðstaðan á Gríms-
staðaholtinu hafi verið bág-
borin fyrstu 10 árin og upp
úr 1960 hafi líf félagsins nán-
ast hangið á bláþræði vegna
aðstöðuleysis.
Árið 1963 var Þrótti síðan
úthlutað svæðið við Sæviðar-
sund og flutti starfsemi sína
þangað árið 1969. Að sögn
Tryggva hafa menn þó lengi
séð að engin framtíð væri í
svæðinu þar og í dag væri að-
staðan gjörsamlega óviðun-
andi. Þar er aðeins eitt lítið
æfingasvæði og malarvöllur.
Aðdragandann að flutningi
Þróttar í Laugardalinn má
rekja tO ársins 1995. Þá höfðu
Þróttarar í hyggju að reisa
íþróttahús við Sæviðarsund
og voru búnir að fá til þess til-
skilin leyfi. Borgaiyfirvöld
sem þá tóku við vildu frekar
kanna þann möguleika að
flytja félagið í Laugardalinn,
þannig að hægt yrði að nýta
svæðið við Sæviðarsund und-
ir íbúðabyggð. Það var síðan
12. desember 1996 að undir-
ritaður var samningur við
borgina um flutning Þróttar í
Laugardalinn og sagði
Tryggvi að menn væru alsæl-
ir með þá ráðstöfun.
Glæsileg ný aðstaða
Að sögn Tryggva er aðstað-
an í Laugardal gjörbylting
frá því sem félagið hafði við
Sæviðarsund. Á nýja svæð-
inu eru þrjú stór æfinga-
svæði. Eitt er uppi við Suð-
urlandsbraut á stærð við tvo
fótboltavelli. Austan við
gervigrasið er svæði sem
rúmar einn og hálfan völl og
inn við TBR er eitt æfinga-
svæði á stærð við knatt-
spyrnuvöll. Auk þessara æf-
ingavalla segist Tryggvi
reikna með að félagið komi
til með að nota Valbjarnar-
völl sem heimavöll í framtíð-
inni. Hann væri hæfilega
stór fyiir þá aðsókn sem iðu-
lega mætti búast við í ís-
lenskri knattspyrnu.
Þessa dagana er verið að
leggja lokahönd á smíði nýs
félagsheimilis Þróttar í
Laugardalnum. Um er að
ræða 1.400 fermetra hús og
má segja að byggingarstíll-
inn sé nokkuð sérstæður. Ut-
litið jafnt að innan sem utan
er óvenjulegt af íþrótta-
mannvirki að vera en jafn-
framt glæsilegt. Ai-kitekt
hússins er Pálmar Krist-
mundsson.
Húsið er á tveimur hæðum.
Á efri hæð eru skrifstofur og
fundarherbergi, afgreiðsla og
samkomusalur. Á neðri hæð-
inni eru búningsklefar,
þvottahús, geymslur og lítill
íþróttasalur sem verður aðal-
lega til útleigu. Til stóð að
taka húsið í notkun sl. vor en
að sögn Tryggva hefur það
dregist nokkuð. Hann vonast
þó til að framkvæmdum fari
að ljúka og að hægt verði að
vígja húsið seinna í þessum
mánuði.
Samningurinn við borgina
hljóðar upp á makaskipti á
svæðinu við Sæviðarsund og
nýrri aðstöðu í Laugardaln-
um. Að sögn Tryggva kemur
uppbyggingin því ekki til
með að íþyngja félaginu fjár-
hagslega. Hann sagði að
Þróttarar væru mjög þakk-
látir borgaryfirvöldum fyrir
að hafa gefið þeim kost á að
komast í þessa aðstöðu.
Tryggvi kvaðst vonast til að
félagið væri þess verðugt að
takast á hendur þessa
ábyrgð og að það stæði undir
væntingum.
Auk þess að hafa til um-
ráða fyrrgreind æfinga- og
keppnissvæði mun Þróttur í
samstarfi við ITR sjá um
rekstur gervigrasvallarins í
Laugardalnum. Um 1600
tímar fara í útleigu til
Reykjavíkurfélaganna árlega
og munu Þróttarar þjónusta
félögin þegar þau eru á æf-
ingum á gervigrasinu. Nýbú-
ið er að skipta um klæðningu
á vellinum og setja á hann
sandlag sem gerir hann mun
mýkri og þægilegri en gamla
stama gervigrasið.
Byggt til framtíðar
Tryggvi sagði að ekki stæði
mikið til á þessum afmælis-
degi félagsins. Félagsmenn
myndu þó byrja daginn á því
að leggja blómsveig að leiði
Halldórs Sigurðssonar,
fyrsta formanns Þróttar. Að
því loknu stendur til að und-
irrita samning við David
Griffiths um uppbyggingu á
þjálfun yngri flokka félags-
ins. Verður hann yfirþjálfari
yngri flokkanna næstu þrjú
árin og segir Tryggvi að
mönnum lítist mjög vel á
hann sem þjálfara.
Að sögn Tryggva er ætlun-
in að leggja aukna rækt við
yngri flokkana hjá félaginu. I
því sambandi skiptir aðstaðan
miklu máli og segir Tryggvi
að nú þegar verði vart við
aukinn áhuga og að knatt-
spyman sé á uppleið. Mikið
hafi fjölgað á æfingum og öll
umgjörð væri viðráðanlegri.
„Ef íþróttafélag í dag hefur
ekki aðstöðu, hefur ekki æf-
ingavelli, þá strandar það
fyrr eða síðar,“ segir Tryggvi.
Það séu nútímakröfur að hafa
grassvæði fyrir yngri flokk-
ana og segir hann Laugardal-
inn bjóða upp á marga mögu-
leika á næstu árum sem
menn eru ekki ennþá búnir
að átta sig á.
„Að fá þetta í hendurnar á
50 ára afmælinu er drauma-
gjöf til félagsins," segir
Tryggvi og horfir björtum
augum til framtíðar.