Morgunblaðið - 05.08.1999, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Kennari við skoskan skóla með nemendur á Islandi í níunda sinn
Njóta ferðarinnar
út í ystu æsar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Aj
HÓPURINN frá Edinburgh Academy-skólanum í Edinborg við komuna til Akureyrar í gær.
JEREMY Fenton er kennari við
skóla í Edinborg, Skotlandi. Ár-
ið 1973 var hann leiðangurs-
stjóri i skólaferðalagi til íslands
og hefur siðan komið hingað
með skólakrakka alls niu sinn-
um. Morgunblaðið hitti hann og
krakkana í veðurblíðunni á
Akureyri.
Ferðaðist áður
um á jeppum
„Já, ég hef komið níu sinn-
um með svona hópa. Við ferð-
uðumst um á Landrover-jepp-
um í fimm ferðum, einu sinni
var þetta gönguferðalag og
þrivsar sinnum höfum við
keyrt um á rútu, en það er sá
ferðamáti sem við notum í
þetta skiptið," sagði Fenton.
„Ég hafði aldrei komið hingað
til Islands þegar við fórum í
fyrstu ferðina fyrir 16 árum,
Morgunblaðið/Kristján
Vinsæl gönguleið lýst upp
ÞESSAR vikurnar er unnið að
því að setja upp götulýsingu frá
byggðinni í Ólafsfirði og suður
að Múlagöngum, en þetta mun
vera vinsæl gönguleið meðal
heimamanna. Um er að ræða
Jón Gunnarsson, starfsmaður
Trévers í Ólafsfirði.
Djass á heitum fímmtudegi í Deiglunni
Þekktir tónlistar
menn á ferð
TRÍÓIÐ Guitar Islancio leikur á
sjötta túborgdjassinum á heitum
fímmtudegi í Deiglunni á Akureyri
í kvöld. Tónleikamir hefjast kl.
21.30 og er aðgangur ókeypis. Tríó-
ið var stofnað síðsumars 1998, það
hefur leikið á nokkrum tónleikum
og/engið afar góðar móttökur.
í tríóinu leika þeir Björn
Thoroddsen og Gunnar Þórðarson
á kassagítara, ásamt Jóni Rafns-
syni á kontrabassa. Bjöm
Thoroddsen hefur verið leiðandi í
íslensku djasslífí síðan í lok 8. ára-
tugarins og leikið með mörgum
þekktum erlendum sem innlend-
um tónlistarmönnum. Gunnar
Þórðarson hefur verið í fremstu
röð íslenskra tónlistarmanna í
hartnær 40 ár en hann hefur í
auknum mæli hin síðari ár farið út
í að semja tónlist fyrir sjónvarp,
kvikmyndir, leikhús og sinfóníu-
hljómsveit.
Jón Rafnsson er klassíkt mennt-
aður bassaleikari með rætur í
popp- og rokktónlist og hann hefur
spilað með fjölda erlendra tónlist-
armanna og flestum af leiðandi
djasstónlistarmönnum landsins í
dag. Jón starfaði um árabil sem
tónlistarkennari við Tónlistarskól-
ann á Akureyri en flutti á síðasta
ári til Reykjavíkur.
en þá féll ég algerlega fyrir
landinu. Ég hef mikinn áhuga
á ósnortnum svæðum og ævin-
týralegum löndum á borð við
Island. Hálendið er svo ósnort-
ið. Þetta er líka mjög ungt
land samanborið við Skotland.
Einnig finnst mér löndin mjög
ólík,“ sagði Fenton. Þess má
geta að hann hefur komið
hingað til iands þrisvar sinn-
um á eigin vegum.
Hverir og heitar laugar
vinsælar hjá krökkunum
Fenton segist auglýsa ís-
landsferðina um veturinn í
skólanum og áhugasamir
krakkar hafa síðan samband
við hann. „í þessari ferð eru 24
krakkar á aldrinum 13-18 ára
auk tveggja kennara og
þriggja foreldra," sagði Fent-
on. Að sögn Fentons hafa þau
farið vítt og breitt um landið í
þessari ferð, þau hafa farið í
gönguferðir, baðað sig í heit-
um laugum, skoðað hveri og
fossa og notið þess sem landið
hefur upp á að bjóða. „Við gist-
um meðal annars í Þórsmörk,
Landmannalaugum, Skafta-
felli, á Egilsstöðum, í Kverk-
fjöllum, við Öskju, og í Mý-
vatnssveit. Allt í allt er þetta
hálfs mánaðar ferð, en við
höldum aftur til Skotlands á
sunnudaginn kemur,“ sagði
Fenton. Hann sagði að krakk-
arnir nytu ferðarinnar út í ystu
æsar og væru ánægðir með
landið. Að spjallinu loknu
héldu krakkarnir ásamt farar-
sljórum í skoðunarferð um
Akureyri, en óhætt er að segja
að veðrið hafi leikið við þau
þennan daginn, en að sögn
Fentons hafa þau verið mjög
heppin með veður í allri ferð-
inni utan tveggja rigningar-
daga í upphafi ferðar.
Ræða Ara Teitssonar á aðalfundi Norrænu bændasamtakanna
samstarfsverkefni Rarik, Vega-
gerðarinnar og Olafsfjarðarbæj-
ar.
Alls verða settir upp 40
ljósastaurar, auk þess sem um
1.800 metra Iangur háspennu-
strengur er lagður í jörð með-
fram veginum. I kjölfarið verða
háspennustrengur og staurar á
þessari leið teknir niður. Kostn-
aður við þessar framkvæmdir er
um 6 milljónir króna.
Á myndinni eru starfsmenn
Rarik, þeir Gunnlaugur Gunn-
laugsson og Ásbjörn Gislason, við
vinnu sína. f gröfunni er Svavar
Verða að þróast í takt við
breytingar í samfélaginu
AÐALFUNDUR Norrænu
bændasamtakanna, NTC, hófst í
gær á Akureyri. Formaður
Bændasamtaka Islands og forseti
NTC, Ari Teitsson, hélt ræðu við
upphaf þingsins þar sem hann kom
meðal annars inn á að nauðsynlegt
væri fyrir samtökin að fylgjast vel
með breytingum í heimi landbún-
aðarins til að samtökin væru áfram
árangursríkt afl í þágu bænda.
Hann talaði einnig um mikilvægi
norrænnar samvinnu og mikilvægi
þess að bændur störfuðu saman að
markaðssetningu landbúnaðaraf-
urða. Einnig kom hann inn á lið
sem síðar verður á dagskrá á þing-
inu, þátttöku kvenna í landbúnaði.
Samvinna bænda mikilvæg
Ari vitnaði í gamalt íslenskt
spakmæli í upphafi ræðunnar, sem
sagði eitthvað á þá leið að það sé
erfitt að standa kyrr, maðurinn
færir sig annaðhvort fram á veginn
eða til baka. í því samhengi gat Ari
þess að NTC yrði að fylgjast með
breytingum í heiminum annars
gengi árangurinn í starfí þess til
baka.
Ari kom inn á mikilvægi þess að
bændur störfuðu saman og væru
meðlimir í bændasamtökum. „Það
er skoðun norrænna bænda að sam-
vinnan hafi verið mesti drifkraftur-
inn í matvælaiðnaði, auk þess sem
hún gæfi bændum tækifæri til að
taka þátt í markaðssetningu land-
búnaðarafurða," sagði Ari. Hann
gat þess að verslunarsamtök
danskra bænda fögnuðu í ár 100 ára
aftnæli sínu og það þyrfti ekká nema
að líta á árangur danskra bænda til
að skilja hvaða möguleika samvinna
bænda hefði upp á að bjóða.
í ræðunni bar einnig þátttaka
kvenna í landbúnaði á góma. Ari
talaði um að með aukinni tækni
væri oftar en ekki aðeins einn aðili
sem starfaði á búinu. „Konurnar
hafa í auknum mæli leitað út fyrir
bændabýlið í leit að vinnu og staða
þeirra í landbúnaði hefur breyst.
Það er alla vega mikilvægt að þær
konur sem vilja vinna í landbúnaði
og að skipulagsmálum landbúnað-
ar, hafi til þess sömu tækifæri og
karlmenn," sagði Ari Teitsson í
ræðu sinni.
Ari endaði síðan á því að ítreka
Morgunblaðið/Kristján
ARI Teitsson flytur ræðu á þingi Norrænu
bændasamtakanna á Akureyri í gær.
þá ósk sína að Norrænu bænda- samtök sem væru í stakk búin að
samtökin þróuðust í takt við breyt- leysa verkefni nútímans með full-
ingar í heiminum og væru kröftug nægjandi hætti.
Söngvaka í
Minjasafns-
kirkjunni
í KVÖLD, fimmtudagskvöld,
verður söngvaka í Minjasafns-
kirkjunni á Akureyri kl. 21.
Rósa Kristín Baldursdóttir og
Hjörleifur Hjartarson flytja
sýnishorn úr íslenskri tónlist-
arsögu allt frá rímum og tví-
undarsöng til þjóðlaga okkar
daga.
Aðgangseyrir er 700 kr. og
er innifalinn aðgangur að safn-
inu sem er opið um kvöldið frá
kl. 20 til 23.1 safninu eru nýjar
sýningar um landnám og mið-
aldir.