Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 49í
STEINÞOR
ÁRNASON
+ Steinþór Árna-
son prentari
fæddist í Reykjavík
25. maí 1938. Hann
lést á heimili sínu
25. júlí síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Fossvogs-
kirkju 4. ágúst.
Minn kæri frændi og
vinur, hann Steinþór
Amason, er látinn. Það
var erfitt fyrir hann og
fjölskylduna að fá úr-
skurð á Þorláksmessu
um að hann væri með
krabbamein. Hann hafði barist svo
hetjulega við kransæðasjúkdóminn
og með miklum dugnaði og einstakri
umhyggju Ingu Ástu náði hann fullu
þreki eftir þá stóru aðgerð sem hann
þá gekkst undir. Hann spilaði bad-
minton oft í viku, fór á fjöll og stund-
aði mikið útilíf og hann hafði betur.
Við höfðum oft rætt það, að í okkar
fjölskyldu færu menn annaðhvort úr
hjartasjúkdómum eða krabba, oft
langt um aldur fram, eins og sést á
því hve stórt skarð er þegar höggvið í
frændsystkinahópinn. En það hvarfl-
aði aldrei að okkur að einhver, og síst
af öllu hann, fengi báða sjúkdómana.
Nú þegar þessu erfiða stríði er
lokið hjá Steina reikar hugurinn og
minningamar hrannast upp. Jóla-
boðin á Bakkastíg hjá Áma fóður-
bróður, Helgu frænku og strákun-
um Svavari, Jóni Gunnari og Steina,
en nú hafa þeir allir þrír horfið héð-
an af jörð. Allir í blóma lífsins. Á
Bakkastígnum var spilað og sungið,
og strákadótið var sérstaklega heill-
andi fyrir stelpuna sem engan bróð-
ur átti. Óskar föðurbróðir og hans
fjölskylda bjó í Bergstaðastræti. Úr
þeim systkinahópi er Helga farin.
Mín fjölskylda bjó einnig á Bestó og
Ema systir er einnig látin svo og
Atli hennar Esterar frænku. Fjöl-
skylda mín og fjölskyldur föður-
bræðra minna vora allar mjög nán-
ar á bamsáram mínum. Síðan rofn-
uðu tengslin dálítið. Mæður okkar
Steina vora þó áfram miklar vin-
konur, en báðar urðu þær ekkjur
innan við fimmtugt.
Eftir að ég gerðist bóndakona
styrktust aftur vináttubönd mín við
frændsystkinin, því mörg vora þau
mikið útivistarfólk. Þegar Steini og
Inga Ásta eignuðust svo sumarbú-
stað í Laugardalnum endurnýjuðust
gömul tengsl. Þá kynntist ég því
hve samhent þau hjón vora, ávallt
vora dætur þeirra og barnaböm í
fyrsta sæti hjá þeim, en hjartarými
var einnig fyrir föðurlausu bræðra-
börnin hans Steina.
Fyrir fjóram árum fóram við hjón-
in til Kanaríeyja með Steina og Ingu
Ástu, þar áttum við góða daga sam-
an. Reyndar tuðaði Steini á hverjum
morgni, meðan hann hellti upp á
kaffi, yfir að enginn nennti að hella
upp á, en það var hans aðferð til að
breiða yfir umhyggjuna, sem hann
bar fyrir fólki. Hann var ákaflega
greiðvikinn og var ekkert að hangsa,
hann framkvæmdi hlutina. Eitt sinn
kom hann að mér og dóttur minni við
að útbúa fréttabréf, við notuðum
reglustiku og voram mjög framstæð-
ar í vinnubrögðum. Steini brá við
skjótt og útvegaði okkur ljósaborð.
Þannig var hann, lét verkin tala.
Elsku frændi, þakka þér allar
góðu samverastundimar og ég bið
góðan guð að lýsa þér veginn á
þeirri braut sem allir ganga að
loknu jarðlífi.
Kæra Inga Ásta, Helga, Ingunn
og Odda, bamabömin öll og tengda-
synir, við Sigurfinnur sendum ykk-
ur innilega samúðai’kveðju og von-
um að ykkur veitist styrkur og
huggun í ykkar sára harmi.
Margrét Þórarinsdöttir.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Það er komið að kveðjustund,
minningarnar hrannast
upp, sunnudagar hjá
ömmu Helgu, jólaboðin
og þegar Inga Ásta og
Steini komu til Vest-
mannaeyja í heimsókn
til okkar, það var góð-
ur og skemmtilegur
tími og margt mætti
fleira til telja.
Það er undarlegt að
hugsa til baka og rifja
upp kynni mín við
Steina, uppáhalds-
frændann, sem oft var
svo líkur pabba og
ömmu í tilsvöram og
alltaf svo hlýr og góður og sam-
heldnin hjá fjölskyldunni eftirtekt-
arverð. Hann var einn orðinn eftir
af bræðranum sem allir dóu of ung-
ir og höfuð fjölskyldunnar ef svo má
segja.
Hann hélt henni saman með því
að byrja á að bjóða bræðrabömun-
um og fjölskyldum þeirra í jólaboð
sem síðan varð árviss viðburður,
síðan var því breytt og ákveðið að
hittast frekar að sumri til, svona lít-
il fjölskylduhátíð á Laugarvatni þar
sem hann og Inga Ásta eiga hlýleg-
an og fallegan sumarbústað í yndis-
legu umhverfi sem þau hafa ræktað
upp sjálf og eytt miklum tíma þar. I
sumar var ákveðið að sleppa því að
hittast þar sem Steini var orðinn
svo mikið veikur. Þess i stað mun-
um við hittast við öllu erfiðari að-
stæður til að kveðja Steina. Þetta
vekur mann til umhugsunar um
hvað lífið og samvistir við fjölskyldu
eru dýrmætar og minningar era
eitthvað sem enginn getur frá
manni tekið. Það ættu að vera gull-
molamir sem maður safnar því
þeim grandar ekkert. En því miður
er einhvem veginn alltof oft eitt-
hvað annað sem gengur fyrir heldur
en að rækja frændgarðinn.
Minningamar sem við eigum um
Steina era góðar og hlýjar og hans
verður sárt saknað. En söknuðurinn
verður alltaf mestur hjá Ingu Ástu,
dætram þeirra þremur og þeirra
fjölskyldum því Steini var einstakur
fjölskyldumaður og það eru efalaust
margar góðar minningar um góðar
samverastundir sem munu ylja
þeim í komandi framtíð. Nú er erf-
iður tími að baki en framundan
hvfld og ró.
Við biðjum Guð að blessa minn-
ingu Steina og vottum Ingu Ástu,
Ingunni, Helgu, Oddu og fjölskyld-
um þeirra okkar innilegustu samúð.
Helga, Erling og íjölskylda.
Það var veturinn 1958 að ungar
stúlkur hittust í Húsmæðraskóla
Reykjavíkur tfl að hefja þar nám.
Flestar höfðu ekki sést áður og
vora víðsvegar að af landinu.
Kynntumst við allar vel þennan vet-
ur, en þó misvel eins og gengur.
Er kom að árshátíð skólans og við
máttum bjóða piltunum okkar kom i
ljós að unnustinn hennar Ingu Ástu
var hann Steini, sem ég, Halla,
þekkti svo vel úr Bamaskóla Aust-
urbæjar. Steini var í G-bekknum
hans Jóns Þórðarsonar og vora það
bestu nemendur skólans, sem allir
hinir krakkamir vfldu líkjast.
Einnig þekkti ég Steina eftir öðram
leiðum, því móðurbróðir hans,
Hjörtur Jónsson í Olympíu, var
einn elsti og besti vinur föður míns.
Haustið eftir að skóla lauk ákváð-
um við nokkrar að stofna sauma-
klúbb og er sá klúbbur enn við lýði
og hefur þróast í ævarandi vináttu
milli okkar og maka okkar. Var það
ekki síst tryggð Ingu Ástu og Steina
að þakka. Okkur Braga er mjög
minnisstætt er hópurinn kom og
heimsótti okkur eitt sinn um versl-
unarmannahelgi með börnin. Tjald-
aði hópurinn á túninu og var glatt á
hjalla. Sést best hve ung og saklaus
við voram, að við skemmtum okkur
best um kvöldið, er bömin vora
sofnuð, við að festa upp rólu í fjár-
húshlöðunni og róla okkur og leika
og bara hlæja af eintómri lífsgleði.
MINNINGAR
En nú hafa árin liðið og hver
fengið sinn skammt af lífsreynslu
eins og gengur. Fjárhúshlaðan er
tóftir einar fyrir löngu og þaðan
berst ekki lengur ilmur af grænni
töðu. Og nú sit ég hér um verslun-
armannahelgi og reyni að festa á
blað minningabrot um hann Steina.
Minningamar þyrlast upp hver af
annarri og era allar fallegar. Þau
Steini og Inga Ásta komu oft við
hjá okkur á Vatnsleysu er þau voru
að koma úr tjaldferðum með telp-
urnar sínar og seinna eftir að þau
eignuðust sumarbústaðinn í Laug-
ardal, sem var þeima sælureitur. í
mínum huga og okkar allra í hópn-
um vora þau Steini og Inga Ásta
samhent fjölskylda og hamingjurík
og þau hjónin einstaklega miklir fé-
lagar.
Er ég hringdi seinni partinn í
fymasumar til að vitja um þau hjón-
in, því mér fannst langt síðan ég
hafði frétt af þeim, svaraði Inga
Ásta og sagði að þau hefðu ferðast
um landið og sólin hefði hreint og
beint elt þau hvert sem þau fóra.
Hefði þetta verið einstök ferð. Rétt
fyrir jólin kom svo fréttin um að
Steini hefði greinst með krabba-
mein, þennan illa vágest. Öll vorum
við vongóð um að hann myndi sigra
í þessari baráttu, en svo fór þó ekki
eins og hjá svo mörgum öðram, því
miður.
Eg er þakklát fyrir síðustu minn-
inguna um hann Steina, er ég heim-
sótti þau hjónin fyrir hálfum mán-
uði. Það var fagur dagur. Steini lá í
sjúkrarúminu sínu í stofunni við
gluggann út í garðinn eins og hann
óskaði sér, að vera heima hjá sinni
tryggu og kjarkmiklu konu, sem
stóð við hlið hans í blíðu og stríðu.
Ég mun alltaf sjá Ingu Ástu fyrir
mér eins og hún var þennan dag í
bláa afmæliskjólnum, yfirvegaða og
kjarkmikla. A meðan ég stóð við
kom einnig Jón Hjartarson, vinur
hans Steina og frændi, eins og hann
var vanur að gera á hverjum degi
alla sjúkdómsleguna. Steini spurði
mig hvemig gengi heima hjá mér,
hvemig heyskapurinn gengi og hve
langt Bragi væri kominn með hann
og bað mig fyrir kveðju tfl allra
heima.
Ég vil kveðja Steina með þeim
orðum sem ég kvaddi annan sem ég
missti og mér var kær: Góða ferð í
hið ókomna og megi kærleiksljósið
lýsa þér veginn.
Við munum hittast hinum megin.
Inga Ásta, Ingunn, Helga og
Odda, makar og bamaböm, megi
algóður guð styrkja ykkur í ykkar
miklu sorg.
Halla og Bragi,
Lára og Haukur,
LHja og Klemens,
Ragna og Pálmi.
Ekki man ég nákvæmlega
hvenær leiðir okkar Steinþórs lágu
saman fyrsta sinni, en nokkuð er
langt um liðið. Við voram þá nokkr-
fr starfsfélagar og góðir vinir úr
Áburðarverksmiðjunni nýbyrjaðir
að stunda badminton úti á Seltjam-
amesi og á næsta velli var Steinþór
ásamt félögum sínum. Einhver af-
föll urðu með áranum í báðum lið-
um og svo fór að Steinþór gekk til
liðs við okkur Gunnar Ólafs og
Steina Þórðar og saman spiluðum
við svo í áratugi. Með okkur tókust
góð kynni sem náðu út fyrir hnit-
völlinn og áttum við, ásamt konum
okkar, margar ánægjustundir með
þeim Ingu og Steinþóri. Má í því
sambandi nefna þorrablót sem við
héldum um árabil og dvöl í sumar-
bústað þeirra hjóna í Laugardal,
skammt innan við Laugarvatn. Þar
eins og annars staðar var Steinþór
ávallt hrókur alls fagnaðar, hafði
mikla og góða söngrödd og kunni
ótrúlegustu texta þegar einhver
stakk upp á næsta lagi. Það er ekki
nema liðlega eitt ár síðan við hitt-
umst fyrir austan síðast, en þá buðu
þau hjón okkur til ógleymanlegrar
helgardvalar í tilefni af sextugsaf-
mæli húsbóndans. Steinþór skipu-
lagði dagskrána, sem hófst í
íþróttahúsinu á Laugarvatni með
keppni í badminton um miðjan dag
á laugardegi, en síðan haldið til af-
mælisveislu í sumarhúsinu þeirra
góða þar sem biðu okkar kræsing-
ar. Þegar leið á kvöldið tók Gunnar
svo upp gítarinn og við sungum
langt fram eftir vornóttinni. Þessi
stund er nú dýrmætur fjársjóður í
safni minninganna. Um haustið vai»
svo áfram haldið í TBR-húsinu og
ekki annað að sjá en Steinþór væri í
fullu fjöri, keppnisharkan og
ákveðnin enn á sínum stað og við
sáum fram á enn einn veturinn
saman við þessa skemmtilegu og
nauðsynlegu iðkun okkar. En þegar
leið fram að jólum fór eitthvað að
breytast. Steinþór sagðist ekkert
botna í hvað hann væri eitthvað
slappur og sagði okkur að hann yrði
að láta líta á sig, en kæmi áreiðan-
lega aftur til leiks strax á nýju ári.
Ekki fór það nú svo, því miður.
Hann kom og sagði okkur frá stöðu '
mála, þetta væri eitthvað meira og
bið yrði á endurkomu sinni í liðið.
Hófst nú barátta hugrakks drengs
við sjúkdóminn skæða, krabba-
meinið. Alltaf var eitthvað að koma
til sem vakti bjartsýni okkar. Við
höfðum áður fylgst með Steinþóri
hrista af sér hjartasjúkdóm með tfl-
heyrandi aðgerð og töldum víst að
hann hefði enn á ný sigur í erfiðri
baráttu. Þetta reyndust tálvonir og
nú er hann allur, vinurinn góði. Eft-
ir stöndum við og söknum hans
ákaft. Það verður skrýtið að hefja
badmintonið á ný án hans, hans
sem alltaf var fyrstur mættur og lét
okkur stundum heyra það sem fyrir
kom að mættum ekki alveg á rétt-
um tíma. Sjálfur spilaði ég með
honum í tveimur tímum á viku,
þannig að skarðið er stórt.
Kæra Inga og fjölskylda. Við
Þurý sendum ykkur einlægar hlut-
tekningarkveðjur á þessari erfiðu
og ótímabæra stundu. Ég leyfi mér
jafnframt að senda ykkur samúðar-
kveðjur frá badmintonfélögunum
öllum og konum þeirra, þeim
Benna, Ella og Gunnari, og þótt
Steini hafi ekld verið með okkur síð-
ustu vetuma, þá einnig frá honum.,
Við minnumst ánægjustundanna
mörgu með söknuði. Blessuð sé
minning vinar míns Steinþórs Árna-
sonar.
Óli H. Þórðarson.
ÞURIÐUR
GUÐNADÓTTIR
+ Þuríður Guðna-
dóttir fæddist í
Kirkjulækjarkoti í
Fljótshlíð 19. apríl
1936. Hún andaðist
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 13. júlí
siðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Seljakirkju 22.
júlí.
Það er með miklum
söknuði og sorg í
hjarta að ég skrifa
þetta bréf. Eftir að
hafa fengið fréttir um að lyfin væru
nú að einhverju leyti farinn að
virka átti ég ekki von á að á þennan
veg færi svo fljótt, viku seinna var
hún farin frá okkur. Það sem hjálp-
ar manni í gegnum þessa erfiðu
tíma eru yndislegar minningar af
góðri konu, sem hún Dídí svo sann-
arlega var, en þetta líf er ekki
alltaf sanngjarnt og suma hluti
verðum við að sætta okkur við þótt
erfitt sé og vera þakklát fyrir þann
tíma og þær stundir sem við feng-
um að hafa hana Dídí hjá okkur.
Ég á óteljandi margar góðar minn-
ingar um Dídí úr Grófaselinu, það
var varla helgi sem leið að ég væri
ekki á hennar heimili alveg frá því
að ég var lítill polli og þetta era
tímar sem að munu alltaf verða
mér minnistæðir. Dídí lést langt
um aldur fram en ef við lítum í
kringum okkur sjáum við að það
era ekki allir sem fá að njóta þeirra
forréttinda, sem við fengum að
njóta öll þessi ár, þ.e.a.s að eiga
móður, ömmu, eiginkonu, systur,
frænku; allt það sem hún Dídí var
okkur.
Elsku Dídí, nú vitum við að þú
ert í góðum höndum og þarft ekki
að þjást lengur. Vertu
sæl, elsku frænka, þér
mun ég aldrei gleyma.
Þinn frændi,
Guðni.
Elsku systir mín,
Dídí, er horfin af sjón-
arsviðinu og söknuð-
urinn nístir huga og
sál, sem eðlileg við-
brögð mannlegs lífs,
en hjá þessu verður
ekki komist, því þetta
er leiðin okkar allra
fyrr eða síðar. Það sem skiptir öllu
máli er að vera viðbúinn að mæta
Guði og frelsara okkar Jesú
Kristi. Því hann segir: „Ég er veg-
urinn sannleikurinn og lífið og
enginn kemur tfl föðurins nema
fyrir mig (Jh. 14,6) og enn segir
hann: Komið til mín allir þeir sem
erfiði hafið og þungar byrðar, og
ég mun veita yður hvíld (Mt.
11,28). Systir mín, Dídí, var mikið
búin að líða og byrðin þung en nú
er hún hugguð í faðmi Jesú og
þjáningarnar á enda. Ég man oft-
ast eftir henni brosandi og í góðu
skapi. Hún kom stundum til mín á
verkstæðið til að skoða hvað ég
væri að smíða. Hún hafði mikinn
áhuga á að skapa eitthvað nýtt, al-
veg eins og ég, þetta áttum við
sameiginlegt. Svo fékk hún þegar
hún fór smá afganga af spýtum
sem vora dýrmætar í hennar aug-
um og ekki gleymdi hún að þakka
fyrir sig.
Guð blessi minningu hennar.
Elsku Palli og fjölskylda, Guð
blessi ykkur og styrki með kær-
leika sínum.
Grétar Guðnason.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1116, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Utför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa, bróður míns og mágs,
KRISTJÁNS G. HALLDÓRSSONAR
KJART ANSSONAR,
fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
6. ágúst kl. 15.00.
Iðunn Björnsdóttir,
Edda Birna K. Kjartansson, Magnús Gústafsson,
Birna M. Gústafsson,
Halldór K. Kjartansson,
Björn K. Kjartansson,
Áslaug H. Kjartansson, Björn Björnsson.