Morgunblaðið - 08.08.1999, Side 4

Morgunblaðið - 08.08.1999, Side 4
4 SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 7/6 -13/6 ► ÍSLENSKIR keppendur og gestir á heirasmeistara- móti íslenskra hesta í Þýska- landi hafa verið yfirheyrðir af þýskum tollyflrvöldum vegna rannsóknar á meintu skatta- og tollasvindli í tengslum við útflutning á ís- lenskum hestum. Rannsókn- inni á að ljúka fyrir árslok. ► MICK Jagger, söngvari Rolling Stones, hafði viðdvöl á Vestfjörðum frá seinasta laugardegi fram á þriðjudag. Milli þess sem hann skoðaði Vestfirði hafðist hann við í snekkju i eigu ítalsks auð- kýfings, sem er nú á ferð um landið. ► ORCA S.A., eignarhalds- fyrirtækið í Lúxemborg sem keypti í vikunni 26,5% í FBA er ekki enn skráð í Lúxem- borg. Þetta kom á daginn við eftirgrennslan blaðamanns Morgunblaðsins i Lúxem- borg í fyrradag. ► HAGNAÐUR FBA fyrstu sex mánuði ársins nam 973 milljónum króna fyrir skatta, sem er 173% aukning milli ára. Þetta er mun betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir. ► NYIR sigkatlar hafa myndast i Mýrdalsjökli sið- ustu daga. Jökullinn er mjög sprunginn og erfiður yfir- ferðar. Talið er hugsanlegt að þessi aukna jarðhita- virkni sé fyrirboði Kötlu- goss. Orca S.A. kaupir ÍFBA EIGNARHALDSFYRIRTÆKIÐ Orca S.A. í Lúxemborg keypti í vikunni dótt- urfyrirtæki Scandinavian Holding S.A., sem á 22,1% hlutafjár í Fjárfestingar- banka atvinnulífsins, auk um 4% til við- bótar. Viðskipti með hlutabréf FBA á Verðbréfaþingi Islands voru stöðvuð á miðvikudag þar sem ekki höfðu borist upplýsingar um hverjir eigendurnir væru. Þau voru opnuð aftur á fimmtu- dag, þó svo að þessar upplýsingar lægju ekki fyrir. Söluhagnaður Kaupþings, Sparisjóðabankans og sparisjóðanna, vegna sölunnar á hlutnum í FBA er tal- inn nema um 1.300 milljónum króna skv. heimildum Morgunblaðsins. Forsætisráðherra telur lagabreytingar koma til greina Davíð Oddsson forsætisráðherra telur koma til greina að gera breytingar á lögum til þess að tryggja dreifða eign- araðild að fjármálakerfinu. Hsnn segir jafnframt að það sem virðist vera að gerast varandi Fjárfestingabanka at- vinnulífsins hljóti að hafa áhrif á fram- tíðarhugmynd ríkisstjórnarinnar varð- andi sölu á öðrum bönkum. Stálsmiðjan og Slipp- stöðin sameinast AKVEÐIÐ hefur verið að sameina Stálsmiðjuna hf. í Reykjavík og Slipp- stöðina hf. á Akureyri í nýju hlutafé- lagi frá og með 31. ágúst nk. Hið nýja félag verður stærsta málmiðnaðarfyr- irtæki landsins, með um 280 starfs- menn og samanlagða veltu upp á um 1.600 miiljónir króna. MICK Jagger, söngvari Rolling Sto- nes, hafði viðdvöl á Vestfjörðum frá seinasta laugardegi fram á þriðjudag. Milli þess sem hann skoðaði Vestfirði hafðist hann við í snekkju í eigu ítalsks auðkýfings, sem er nú á ferð um land- ið. Mannskæð monsúnflóð í Asíu FLÓÐ af völdum óvenjumikilla monsúnrigninga ollu íbúum nokkurra Austur-Asíulanda miklum búsifjum í vikunni. Fellibylurinn Olga gekk yfir Kóreuskagann og á Filippseyjum fór- ust í kringum 100 manns í flóðum og aurskriðum sem steypiregn kom af stað. í Suður-Kóreu fórust að minnsta kosti 43 og 21 er saknað eftir mikið skýfall á því landsvæði sem næst ligg- ur landamærunum við Norður-Kóreu. Var þess vænzt að annar fellibylur gengi yfir landið nú um helgina. Ríkis- fjölmiðlar kommúnistaríkisins í norðri, þar sem hungursneyð hefur vofað yfir, upplýstu að „þónokkurt manntjón" hefði orðið og talsvert ræktarland eyði- lagzt. Kínversk stjórnvöld greindu frá því að 725 manns hefðu það sem af er sumri farizt í árvissum flóðum í land- inu, aðallega við Jangtse-fljót, og 5,5 milljónir manna hefðu verið fluttar frá heimilum sínum. Þykir þetta framför, þar sem í fyrra fórust yfir 4.100 manns í flóðum á sama svæði, og er hún þökk- uð bættum flóðavömum. I Kambódíu stefndi í að Mekong-áin flæddi yfir bakka sína, í Víetnam fórust tugir í flóðum í landbúnaðarhéraðinu Binh Thuan og í Taílandi fóru tugþúsundir hektara ræktarlands á kaf. 282 farast í lestarslysi á Indlandi MIKIÐ lestarslys varð á Indlandi að- faranótt mánudags, skammt frá lestar- stöðinni í Gaisal, um 500 km frá Kalkútta í Vestur-Bengal. Að minnsta kosti 282 létu lífið i slysinu, sem varð þegar tvær farþegalestir, hvor með yf- ir 1.000 farþega innanborðs, skullu saman á teinunum. Nitish Kumar, ráð- herra járnbrautarmála í indversku rík- isstjórninni, sagði af sér embætti í kjöl- far slyssins, sem er það mannskæðasta sem orðið hefur á Indlandi í áraraðir, þótt lestarslys séu þar tíð. ► GEORGE Robertson, varn- armálaráðherra Bretlands, var á miðvikudag útnefndur næsti framkvæmdastjóri Atl- antshafsbandalagsins, NATO. Hann tekur í október nk. við embætti af Spánverj- anum Javier Solana, sem þá tekur við nýju embætti æðsta talsmanns utanríkis- og ör- yggismála Evrópusambands- ins. ► SKÆRULIÐAR sjálfstæðis- hreyfingar Kúrda í Tyrk- landi lýstu því yfir á fimmtu- dag að þeir myndu verða við tilmælum Agdullahs Öcalans, leiðtoga Verkamannaflokks Kúrdistans (PKK), um að binda enda á fjórtán ára vopnaða baráttu. Öcalan, sem tyrkneskur dómstóll dæmdi nýlega til dauða, setti tilmælin fram fyrr í vikunni. ►HILLARY Clinton, forseta- frú Bandaríkjanna, sagði í viðtali í nýju bandarísku tímariti i vikunni að hún teldi ástæðna framhjáhalds eiginmanns sins m.a. að leita í því að hann hefði sætt sál- rænu ofbeldi i æsku. í nýrri bók sem út kom í vikunni er fullyrt að Hillary Clinton hafi átt í löngu ástarsam- bandi við Vincent Foster sem starfaði sem lögfræðiráð- gjafi í Hvíta húsinu en svipti sig lífi árið 1995. ►KRÖFUGÖNGURí serbneskum borgum þar sem krafist er afsagnar Slobod- ans Milosevics forseta héldu áfram í vikunni, en hann sýn- ir ekki á sér neitt fararsnið. Zoran Djindjic, einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar, spáði því þó á fimmtudag að Milos- evic myndi senn hrökklast frá völdum, jafnvel strax í haust. Mynd um sögu Kleppsspítala Brautry ðj endum verður seint þakkað GAMLI Kleppsspitalinn sem byggður var 1907. Nýja byggingin var tekin í notkun tuttugu og tveimur árum síðar. „ÞETTA var stórhuga fólk sem stóð í brautryðjendastarfi í umönn- un geðsjúkra hér á landi og því fólki verður seint eða aldrei full- þakkað,“ segir Þórunn Pálsdóttir hjúkrunarforstjóri geðdeildar Landspítalans. Tilefni samtals Þór- unnar og Sigríðar B. Tómasdóttur er að gerð heimildarmyndar um 90 ára sögu Kleppsspítala er nýlokið. Kleppsspítali tók til starfa árið 1907 og varð því 90 ára fyrir tveim- ur árum. Af því tilefni var ráðist í gerð myndarinnar og var það Kvik- myndagerð Valdimars Leifssonar sem gerði myndina. I henni er stiklað á stóru í sögu spítalans og þróunar í geðheilbrigðismálum hér á landi, meðferð og aðbúnaði geð- sjúkra. „Það var óskaplega mikil þörf fyrir spítalann á sínum tíma,“ segir Þórunn. „Það sést m.a. á því að fljótlega voru sjúklingar orðnir 118 en spítalinn var upphaflega byggð- ur fyrir 50 sjúklinga.“ Skilningur á geðheilbrigðismálum var takmark- aður á þessum tíma. Þórunn segir þessa viðhorfs jafnvel gæta enn þrátt fyrir að aðstæður hafi breyst mikið. Fordómar gagnvart vinnu með geðsjúkum Sem dæmi um það nefnir hún að í könnun sem hún gerði meðal starfsfólks á geðdeildum Landspít- alans í fyrra, sögðu rúmlega 40% hjúkrunarfræðinga að þeir yrðu oft eða stundum varir við fordóma gagnvart vinnu sinni á geðdeild. Meðal sjúkraliða var þessi tala yfir 60% og hafði aukist verulega síðan 1988. Sjálf segist Þórunn oft hafa fengið þá spurningu hvort hún sé ekki orðin hálf skrítin eftir allt þetta starf með geðsjúkum. Þórunn hóf störf á geðdeild árið 1964. Þá var tími umbóta í umönn- un geðsjúkra hafinn, en þær um- bætur byggðust á því að loks var farið að veita fjármagn til þessara málefna sem höfðu búið við mikinn fjárskort. „Með tilkomu lyfja við meðferð geðsjúkra á árunum 1950- 1960 breyttist mjög möguleiki starfsfólk á að vinna með sjúkling- unum. Á sjöunda áratugnum var farið að vinna í því að rjúfa ein- angrun sjúklinga, t.d. með því að fara með þá í leikhús og bæinn.“ Þessa vinnu segir Þórunn hafa verið unna í sjálfboðavinnu lengi vel. „Það er merkilegt hve allir sem vinna að málefnum geðsjúkra hafa lagst á eitt í gegnum tíðina. Frá upphafi hefur verið mikið af hugsjónafólki í starfinu." MYND teiknuð af Hauki Hall- dórssyni fyrir gerð heimilda- myndarinnar. Myndin er teikn- uð eftir ársskýrslu Þorgríms Johnsen héraðslæknis 1871 en þar segir: „Eg leyfi mér við þetta tækifæri að geta þess að engir sjúklingar hér á landi eru svo illa settir sem hinir geð- sjúku þar sem ekki er að finna eitt einasta geðveikrahæli hér á landi og ég þekki mörg dæmi þess að vegna þessara aðstæðna og til þess að gera þannig sjúk- linga hættulausa hafa menn neyðst til að grípa til þeirra villimannlegu aðgerða að loka sjúklingana inni í þröngum kössum með litlu opi fyrir fram- an andlitið. Þessir kassar eru si'ðan settir í eitthvert útihús til þess að sjúklingarnir trufli ekki ró annarra." Þó að starfsfólk geðheilbrigðis- mála hafi átt nóg af hugsjónum í gegnum tíðina þá hafa draumar þess ekki ætíð ræst. „Þegar maður skoðar t.d. teikningar af Klepps- spítalanum 1907 þá sér maður að starfsfólkið var mjög stórhuga, fjárskortur stóð hins vegar í vegi fyrir að áætlanir sem það hafði næðu fram að ganga.“ Sú er raunin enn í dag, segir Þórunn, sem á sér þann draum að allir geðsjúkir búi í einbýli, geðjúkir eigi einmitt oft í vand- ræðum með samskipti við aðra þannig að þetta sé mikilvægt mál. Það er þó ekki svo langt síðan ástandið var allt annað. í upphafi sjöunda áratugarins voru sjúkling- ar á Kleppsspítala 328 þegar flest var en eru nú 63-64. Dæmum ekki fortíðina út frá samtíðinni Þórunn segir þó mikilvægt að muna að dæma ekki fortíðina út frá samtíðinni. „Það hafa margar goðsögur verið í gangi um meðferð geðsjúkra fyrr á öldinni, t.d. að þeir hafi ekki losnað út af spítalan- um einu sinni þegar þeir voru komnir inn. Það er ekki rétt, alltaf hefur verið stefnt að því að út- skrifa þá sem hægt er að útskrifa. Aðstæður voru oft þannig að fólk gat eða treysti sér ekki til að hafa geðsjúka heima við og því bætti Kleppsspítali úr brýnni þörf. Sum- ir sjúklinga fóru þó heim öðru hvoru til að hjálpa til við heyskap eða annað ef fólk treysti sér til.“ Saga geðheilbrigðismála er Þór- unni áhugaefni, hún viðaði að sér ýmsum heimildum þegar hún kenndi sögu geðhjúkrunar í Hjúkrunarskólanum og finnst þörf á að saga þessara mála verði skrif- uð, myndin nái ekki að segja allt. „Ekki var t.d. unnt að segja frá öll- um sem unnið hafa að þessum mál- um í stuttri mynd sem þessari." Gífurlegar framfarir í umönnun geðsjúkra Fólkið sem hefur unnið að lækn- ingu og hjúkrun geðsjúkra er Þór- unni mjög hugleikið og segir hún mikla þörf á að auka fjárveitingu til starfsfólks. „Það hefur oft verið gengið framhjá geðdeild við fjár- veitingar, vegna þess að fjárveit- ingar til tækjakaupa hafa gengið fyrir öðrum, hjá okkur kemur starfsfólkið í stað tækja en lítill skilningur hefur verið á því.“ Annað sem Þórunni liggur á hjarta eru húsnæðismál geðdeild- arinnar. „Við erum uggandi hvað gerist í húsnæðismálum geðdeildar þegar hún missir húsnæðið að Kleppi er leigusamningur um það rennur út eftir fimm ár.“ Þrátt fyrir þessi orð leggur Þór- unn áherslu á að málefni geðsjúkra standi ágætlega hér á landi. „Það hafa orðið gífurlegar framfarir í umönnun geðsjúkra á öldinni. Það kemur berlega í ljós í myndband- inu. En það tekur svo langan tíma að byggja upp og stuttan að rífa niður og því er mikilvægt að vel sé á málum haldið." Þórunn segir stefnt á að mynd- bandið verði sýnt í sjónvarpi og hún vonast til að það fari sem víð- ast. „Oll fræðsla er af hinu góða og ég vona að sem flestir sjái þetta myndband.“ Þú hefur aldrei kynnst öðru eins: 9áaJ’ma - ‘BALI - Simamre TÖFRAR1001NÆTUR Á DEGISEMNOTTU 5 stjörnu gæði allt í gegn og fararstjórn Ingólfs. Örfá viðbótarsæti á GJAFVERÐI17. okt. 18 d. ef staðfest er núna! UNDUR MALASÍU - SUMARAUKINN 29. ág. 6 sæti TÖFRAR THAILANDS - SUMARAUK. 2. sept.- UPPSELT! STÓRA THAILANDSFERÐIN 16. sept.-upplifun! 8 sæti Þú gerir ekki (]^ lj^P PRJMAP Sími betri kaup! j)[| HEIMSKLÚBBUR INGÓIFS 562 0400 Útnefnd í alþjóðasamtökin EXCELLENCEIN TRAVEL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.