Morgunblaðið - 08.08.1999, Blaðsíða 64
*
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSIHÓLF3040, NBTFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆ7TI1
SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Skortur á meinatæknum og hjúkrunarfræðingum
á stóru sjúkrahúsunum
Meinatæknar verið
ráðnir frá útlöndum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miklar gróðurskemmdir
í Herðubreiðarlindum
Ung stúlka
tilkynnir nauðgun
.. Tveggja
manna
leitað
LÖGREGLAN flutti á sjötta
tímanum í gærmorgun unga
stúlku, undir tvítugu, á neyð-
armóttöku Sjúkrahúss
Reykjavíkur eftir að hún hafði
tilkynnt um nauðgun. Hafði
stúlkan látið vita af sér á kaffi-
húsi í Vallarstræti laust fyrir
klukkan fimm. Hún var þá illa
á sig komin og sagði að tveir
menn, um tvítugt, hefðu
t' S’nauðgað sér. Þegar lögreglan
kom á vettvang voru liðnar 30
til 60 mínútur frá atburðinum,
að mati stúlkunnar. Árangurs-
laus leit var gerð að meintum
nauðgurum en málið er nú í
höndum rannsóknardeildar
lögreglunnar. Enn hefur ekki
verið tekin skýrsla af
stúlkunni og ekki er vitað
hvort hún leggur fram form-
lega kæru.
SKORTUR hefur verið á meina-
tæknum á stóru sjúkrahúsunum í
Reykjavík, einkum á Sjúkrahúsi
^teykjavíkur, sem meðal annars
hefur leitt til þess að ráðnir hafa
verið meinatæknar að utan. Magn-
ús Pétursson, forstjóri sjúkrahús-
anna í Reykjavík, segir að ástandið
í þessum efnum hafi verið erfitt í
ár, ekki hvað síst nú í sumar vegna
sumarleyfa.
Magnús sagði að bæði væri um
það að ræða að meinatæknar hefðu
leitað í önnur störf, og að margir
þeirra hefðu leitað í störf utan stóru
sjúkrahúsanna vegna aukinnar eft-
irspumar eftir sérþekkingu þehra.
Skortur á hjúkrunarfræðingum
væri ekki síður mikill og ekki hefði
tekist að manna deildir af þeim sök-
um. Þar kæmi ýmislegt til. Fólk
hefði farið í önnur störf, launadeilur
hefðu verið í gangi, auk þess sem
evrópska vinnutímatilskipunin gerði
það að verkum að fólk ynni sér inn
meiri frírétt en áður hefði verið.
Samkeppni væri um þá sem kæmu
úr hjúkrunamámi og launamálin
vægju þungt í þeim efnum, en að-
staða stóra sjúkrahúsanna hvað þau
snerti væri erfið vegna þess hversu
stórir vinnuveitendur þau væm.
Vinnuhópur settur á laggirnar
Magnús sagði að manneklan á
sjúkrahúsunum hefði verið til sér-
stakrar umræðu innan stjóma
þeirra í vor og ákveðið hefði verið
að setja á laggirnar vinnuhóp til
að kanna hvaða leiðir væm færar
til að vinna bug á henni. Ekki væri
víst að lausn vandamálsins fælist
einungis í því að fjölga útskrifuð-
um hjúkrunarfræðingum, heldur
gæti hún einnig falist í breyting-
um á vinnuskipulagi á sjúkrahús-
unum, launum og öðm þessu
tengdu.
„Spítalamir vilja skoða það hvort
þeir geti komið fram með tillögur
um hvað megi verða til að draga úr
þessari manneklu, sem sannarlega
er mikið vandamál," sagði Magnús
ennfremur.
HLAUPIÐ í Kreppu og Jökulsá á
Fjöllum um siðustu helgi olli mikl-
um skemmdum á gróðri í Herðu-
breiðarlindum og þar sem áður
mátti sjá grænar eyrar er nú svart
yfir að líta. í hlaupinu fiæddi yfir
stórt svæði í Herðubreiðarlindum
og tók beljandi fljótið m.a. með sér
þijár göngubrýr yfir Lindaá. Allt
svæðið sem sést fremst á myndinni
fór á kaf og breiddi fljótið úr sér
alveg að dökkum hraunjaðrinum
sem sést aftast á myndinni. Til
hægri er ein göngubrúin, mikið
skemmd, sem fór í hlaupinu.
Að sögn Róberts Þórs Haralds-
sonar, Iandvarðar í Herðubreiðar-
lindum, urðu mestar skemmdir á
hvönn og gróðri meðfram Lindaá.
Hvönnin rifnaði upp mikið til og
sömuleiðis heilu breiðumar af
gróðri. „Gróðurinn flettist sums
staðar af eins og túnþökur og flaut
í burtu með straumnum," segir
hann. „Þetta er þó ótrúlega vel
sloppið miðað við vatnsmagnið
sem fór hér um og greinilegt að
gróðurinn hér er mjög sterkur
þótt hann þoli illa ágang manna.
Eyrarósin felldi ekki einu sinni
blöð þótt hún færi undir beljandi
fijót.“ Þá segir Róbert að talsvert
af vikri úr Krepputungu hafi
borist með flaumnum yfir til
Herðubreiðarlinda og er hann
áberandi á nokkmm stöðum á
svæðinu vegna þess hve hann er
ljós á litinn. Vikurinn á þó eftir að
fjúka í burtu með túnanum eða
molna niður.
Róbert telur að svæðið muni að
mestu gróa á nokkmm ámm.
„Það mun taka einhver ár þótt
sum þessara barða grói kannski
ekki.“ Þar sem Herðubreiðarlind-
ir em friðland mun ekki fara
fram nein uppgræðsla á svæðinu
eða vinnuvélar notaðar til að færa
til börðin. Hins vegar, segir Ró-
bert, munu sjálfboðaliðar á veg-
um Ferðafélags íslands sjá um að
endurreisa þau mannvirki sem
fóra í flóðinu og þar á meðal
brýmar þijár.
<tr:
Gæsir merktar
í Pjórsárverum
UNDANFARIN Qögur ár hafa
starfsmenn Náttúmfræðistofn-
unar Islands, í samvinnu við
bresku samtökin Wildlife and
Wetland Tmst, unnið að merk-
ingum á gæsum hérlendis. Til-
gangurinn með merkingunum
er tvíþættur. Merkingarnar
gefa í fyrsta lagi tækifæri til að
fylgjast með ferðum gæsanna
en megintilgangurinn er sá að
afla upplýsinga um dánartíðni
og lífslíkur fuglanna.
Að sögn Arnórs Sigfússonar
fuglafræðings vom rúmlega
'1.000 heiðagæsir merktar í
Þjórsárvemm á fjóram dögum
um miðjan júlí og er þetta
fyrsta árið sem fúglar em
merktir þar í þessu verkefni.
Áður en haldið var í Þjórsár-
verin fóru fram merkingar á
grágæsum og helsingjum á Iág-
lendinu. Á þessum tíma er best
að eiga við gæsirnar á meðan
þær era ófleygar og ungarnir
orðnir nægilega stórir til merk-
inga.
Þessu verkefni verður haldið
áfram á næsta ári, því merkja
þarf fúglana í a.m.k. 5 ár til að
hægt sé að reikna út lífslíkur
og dánartíðni. Megnið af þessu
er lesið á Bretlandseyjum á
vetrarstöðvum fuglanna. Þar
era það líffræðingar og ekki
síst áhugamenn sem fylgjast
með gæsunum. Hér á landi er
einnig fylgst með fuglunum og
er t.d. mikilvægt að merki af
veiddum fuglum skili sér til
N áttúrafræðistofnunar.
---------------
Seyðisfjörður
Reynt að
hefta lekann
KAFARARNIR sem köfuðu niður
að flaki E1 Grillo fyrir hádegi í gær
hafa staðsett olíulekann. Ekki hefur
verið ákveðið til hvaða aðgerða verð-
ur gripið til að stöðva hann, en það
verður gert á næstu dögum, að sögn
Eyjólfs Magnússonar, sérfræðings
Hollustuverndar.
Hann segir að erfítt hafí verið að
koma auga á sjálft gatið vegna röra-
lagna á skipinu, en búið sé að af-
marka svæðið nægilega. Á næstu
dögum verði reynt að koma í veg fyr-
ir að olían dreifi sér. Hugsanlega
verði festrn- eins konar hattur á flak-
ið yfir lekanum, til að safna olíunni
þar fyrir. Ur hattinum lægi síðan
barki upp á yfirborðið þannig að
hægt yrði að dæla olíunni upp.