Morgunblaðið - 08.08.1999, Síða 26

Morgunblaðið - 08.08.1999, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ JÓHANN Ingimarsson, húsgagnasmiður og myndlistarmaður, einnig þekktur sem Nói í Valbjörk. KÆRLEIKUR nefnist þetta listaverk eftir Jóhann sem stendur við Akureyrarhöfn og sést víða að úr bænum. Listin hans Nóa Hér og hvar á Akureyri, innan dyra og utan, má fínna listaverk eftir Jóhann Ingimarsson, sem kannski er betur ----------------- þekktur sem Nói 1 Valbjörk. A ófáum heimilum landans má og vafalaust enn líta húsgögn sem Jóhann hannaði og fram- leiddi í fyrirtæki sínu, Valbjörk. Jón Asgeir Sigurvinsson sótti Jóhann heim, naut leiðsagnar hans um Akureyri og fræddist um hann, kynni hans af Davið Stefánssyni og daðrið við listagyðjuna. JÓHANN fæddist á Þórs- höfn á Langanesi 23. júlí 1926 og er því nýorðinn 73 ára. Faðir hans var Ingi- mar Baldvinsson, sem stundaði bæði búskap og sjó- mennsku og var fulltrúi Pósts og síma auk margs annars. Móðir hans hét Oddný Arnadóttir. Hún var organisti í Sauðaneskirkju frá 16 ára aldri fram á elliár. Akureyri-Danmörk 18 ára gamall fór Jóhann í gagn- fræðaskólann á Akureyri sem hann lauk á tveimur árum. Hann hafði ekki hug á langskólanámi; hugur hans stóð fremur til iðnnáms og hann valdi húsgagnasmíði. Hús- gagnasmíði var hægt að læra á Akureyri og Jóhann lauk náminu á tilsettum tíma. Jóhann vildi fulina sig í húsgagnasmíðinni og brátt lá leiðin út til landa, nánar tiltekið til Danmerkur. „Sveinbjörn heitinn Jónsson í Ofnasmiðjunni kom mér í kynni við mjög færan húsgagna- framleiðanda," segir hann. „ Þar var ég í nokkra mánuði en líkaði ekki reglulega vistin hjá honum og komst að í Soborg Möblefabrik og vann þar með námi. Eg var í kvöld- skóla Teknologiske Institut og lærði þar póleringu og alls konar smíðar. Ég man eftir því að ég var látinn taka í gegn gamlan flygil, pússa hann allan upp og pólera. Það var óhemjuverk og maður átti ekki að fá neitt fyrir þetta en það var einhver kaupmaður sem átti þennan flygil og hann var svo ánægður með verkið að hann borg- aði mér 2000 krónur danskar sem var heljarmikil upphæð á þeim tíma og ég lifði á því lengi.“ Auk þess að vera í vinnu í Soborg, sem er út- borg Kaupmannahafnar, og sækja kvöldskóla hjá Tækniskólanum var Jóhann á kvöldnámskeiðum í hönn- un og byrjaði í húsgagnaarkitektúr. Magaveiki setti þá strik í reikning- inn. Hann var alltaf slappur svo að á endanum fór hann heim til ís- lands án þess að klára arkitektúr- Smíðaði húsgögn fyrir Davíð Stefánsson firðinga á tanganum stórt og mikið húsnæði. Við vorum þar í þrjú ár en hófumst síðan handa við byggingu nýs húsnæðis." Þegar í upphafi unnu á milli 15 og 20 manns hjá Valbjörk eh 40-50 manns unnu á verkstæðinu þegar best lét. Framleiðslan var að mestu leyti seld til Reykjavíkur en hráefn- ið flutti Valbjörk frá Skotlandi og Finnlandi. Má gera ráð fyrir að víða hafi húsgögn frá fyrirtækinu prýtt íslensk heimiii; kveikti það t.a.m. minningar í huga blaða- manns þegar hann sá myndir af þrífættum stól með lausri setu, gæruklæddri öðru megin, sem hægt var að snúa við og breyta stólnum þannig í borð. Fyrst í stað seldi Valbjörk hús- gögn sín í verslanir í Reykjavík en setti síðan á stofn eigin verslun í Brunabótafélagshúsinu við Hlemm. Að auki voru útibú á ísafirði og Vestmannaeyjum. Fjöldafram- leiðslan var auðvitað uppistaðan í SKÚLPTÚRINN er af Helgu, dóttur Jóhanns, og börnunum hennar. Myndin á veggnum er máluð af Garúnu, listakonu frá Ólafsfirði, á hurð úr kirkjunni á Ólafsfirði sem var fjar- lægð þegar kirkjan var endurnýjuð. inn, ætlaði að snúa aftur til Dan- merkur en ílentist í heimahögum. Heim kominn fór hann að vinna á síldarplani á Þórshöfn og lagaðist í maganum, enda í góðu fæði hjá móður sinni. -Fór danski maturinn svona illa í þig? „Ja, þegar ég var í Kaupmanna- höfn fyrstu mánuðina lenti ég hjá kerlingu í Hellerup og var hjá henni í fæði og það var eitthvað það versta fæði sem ég hef fengið um dagana því hún eldaði gjarnan þannig að ef það voru baunir eða baunasúpa, þá var ég látinn éta það út vikuna og þetta var orðið súrt og nánast óætt.“ Valbjörk ræktuð Þegar Nói var að vinna á síldar- planinu á Þórshöfn sá hann auglýs- ingu í Morgunblaðinu þar sem tré- smíðavélar voru auglýstar til sölu á Blönduósi. Hann var ekki að tvínóna við hlutina heldur fór vest- ur að skoða vélarnar. Guðbrandur Magnússon ísberg sýslumaður hafði með vélarnar að gera og tjáði Jóhann honum að hann ætti enga peninga. Kom það ekki að sök; sýslumanninum leist svo vel á hinn unga mann að hann sagði honum að fara bara með vélarnar og borga sér síðar þegar hann gæti. Urðu enda ekki vanefndir á því. Með þennan vélakost, sem var langtum síðri en Jóhann átti að venjast í Danmörku, hóf hann rekstur hús- gagnasmiðjunnar Valbjarkar 1952. Hinar frumstæðu vélar komu þó ekki í veg fyrir að reksturinn gengi vel. „Ég hannaði ný húsgögn," seg- ir Jóhann, „sem fóru á fyrstu iðn- sýninguna í Reykjavík 1952 og þau slógu í gegn þannig að það bárust til okkar miklar pantanir. Ég tók þá tvo félaga strax inn í Valbjörk, Benjamín Jósepsson og Torfa Le- ósson. Nú, þetta vafði upp á sig þannig að við höfðum alltaf yfirfullt að gera, vorum í litlu húsnæði sem Kristján Kristjánsson átti en feng- um síðan leigt hjá Kaupfélagi Ey- EFLAUST muna margir eftir þessum þrífættu koll- um sem Jóhann hannaði og framlciddi í Valbjörk. Set- an er laus, klædd gæru öðrum megin en ber hinum megin. Hægt var að breyta kollinum í borð með því að snúa setunni við. rekstrinum en þar fyrir utan sá Valbjörk um innréttingar ýmissa stofnana og fyrirtælga, t.d. fjöl- margra pósthúsa víða um land, sjúkrahúsa, sundlaugarinnar á Ákureyri, Glaumbæjar og Loft- leiðahótelsins. Svo heppilega vildi til að ófært var til Reykjavíkur landleiðina þegar flytja átti hús- gögnin í Hótel Loftleiðir þótt furðulegt kunni að virðast að það teljist happ þar sem flug var auð- vitað miklu dýrara en flutningur í bifreiðum. En tilfellið var að Val- björk þurfti ekki að borga krónu fyrir flutninginn. í samninginn hafði nefnilega verið sett ákvæði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.