Morgunblaðið - 08.08.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1999 3§
Jólasteikin vængstýfð
GÆSIRNAR, sem Jón Örn Frið-
rikssson og Sigþór Hallfreðsson
hafa koniið á legg í Hvallátrum
á Breiðafirði í sumar, mótmæltu
margar kröftuglega þegar fóst-
urfeður þeirra gripu til vopna á
dögunum og vængstýfðu þær.
Um fimmtíu gæsir er að ræða
sem fengu mannlega hjálpar-
hönd í upphafi en hafa síðan
fengið að ráfa um eyjarnar og
lifað á því sama og villigæsirnar
sem víða hafa viðdvöl í firðinum.
Nú var hins vegar svo komið að
þær voru teknar að gerast held-
ur ferðaglaðar og var því ákveð-
ið að hafa af þeim flugfjaðrirn-
ar, til að jólasteik þeirra sem
kaupa af félögunum flygi ekki á
brott. Gæsirnar halda að Jón
Örn sé foreldri þeirra og þegar
hann bregður sér í bláan
vinnugalla sem þær hafa barið
augum frá fyrstu tíð, elta þær
hann hvert á land sem er. Þær
voru hins vegar ekki alveg jafn-
Morgunblaðið/SF
Dagens Industri
fjallar um íslenska bræður
Hafa byggt upp at-
vinnulíf í Backam
SÆNSKA blaðið Dagens Industri,
stærsta dagblað í Svíþjóð sem fjall-
ar um viðskipti og atvinnulíf, birti í
vikunni frétt um tvo íslenska bræð-
ur sem hafa haft mikil áhrif í at-
vinnulífí smábæjarins Backamo í
Vestur-Svíþjóð. Bræðurnir heita
Brynjar og Ægir Guðmundssynir
og hafa undanfarin ár selt hjólhýsi
og sýslað með fasteignir í bænum.
Sala á hjólhýsum hefur verið að
glæðast að nýju í Svíþjóð eftir að
hafa legið niðri í því kreppuástandi
sem ríkt hefur í landinu nær allan
þennan áratug. Að sögn Dagens
Industri reikna bræðurnir með að
selja 150 hjólhýsi í ár fyrir um 11-12
milljónir sænskra króna, sem jafn-
gildir um 96-106 milljónum ís-
lenskra króna.
Backamo byggðist upp í kringum
umsvif sænska hersins og einnig
voru í bænum flóttamannabúðir um
skeið en athafnalíf í bænum lamað-
ist nær alveg eftir að ný hraðbraut í
nágrenninu beindi umferð frá hon-
um. Árið 1995 keyptu þeir Brynjar
og Ægir fyrrum húsakynni flótta-
mannabúðanna og fleiri fasteignir í
bænum og fengu þær á góðu verði
þar sem eignir voru nær verðlausar
vegna samdráttarins. Síðan hafa
umsvif þeirra í atvinnulífi bæjarins
vaxið og í kjölfarið hafa mörg ný
fyrirtæki hafið starfsemi í bænum í
húsakynnum sem bræðumir hafa
gert upp. Eitt þeirra er til dæmis
Jenving Technology sem framleiðir
hljóðtæknibúnað.
Athafnamenn ársins í Uddevalla
Stjórnendur sveitarfélagsins
Uddevalla, sem Backamo tilheyrir,
vilja útnefna þá Brynjar og Ægi
sem athafnamenn ársins í Udd-
evalla en sjálfir segjast þeir hafa
náð góðum árangri sínum með þrot;
lausri vinnu að hætti Islendinga. I
samtali við blaðið segist Ægir hafa
verið vanur að vinna tvöfalda vinnu
frá uppvaxtarárum sínum á Islandi
og að það sem hafi rekið sig áfram
sé þrá allra Islendinga eftir að eign-
ast eigið konungsríki.
■j“ Guðlaug Matthí-
■ asdóttir fæddist
í Skarði í Gnúpverja-
hreppi 17. ágúst
1910. Hún lést á
Sjúkrahúsi Suður-
Iands 22. júlí síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Hrunakirkju 29. júlí.
Ég skrifa þessar lín-
ur sem kveðjuorð til
konu sem mér þótti af-
ar vænt um. Amma og
afi bjuggu lengst af á
Bjargi með Guðjóni
frænda og konu hans Guðlaugu.
Þegar ég var í sveitinni hjá ömmu
og afa fór ég oft yfir til Guðjóns og
Laugu og átti þar margar góðar
stundir.
Lauga og Guðjón tóku pabba
mínum og hans systk-
inum mjög vel og
gerðu allt sem þau
gátu fyrir þau. Eins er
mér mjög minnisstætt
hve góð þau voru mér
alltaf. Ég sat hjá
Laugu heilu stundirn-
ar þar sem við spiluð-
um, lásum, eða það
sem var allra
skemmtilegast, hún
sagði mér sögur. Mér
fannst frábært að ein-
hver fullorðinn hefði
tíma til að segja mér
sögur og hlustaði ég
endalaust á sömu sögurnar aftur
og aftur. Sumar kunni ég næstum
utanað. Söguna af henni Nýpu
þekkti ég vel og þreyttist ég aldrei
á að hlusta á hana.
Stundum þegar ég hafði sótt
póstinn út á veg fór ég með hann til
Laugu og við sátum á móti hvor
annarri við eldhúsborðið í gamla
bænum á Bjargi og lásum Tímann;
þ.e. ég las teiknimyndasögurnar og>
borðaði súkkulaði. Lauga var líka
dugleg að gera margt með mér.
Þegar ég fékk óstöðvandi áhuga á
hestum löbbuðum við stundum
austur í Gildurholt og teymdum
gamla hestinn hennar, Neista,
heim að bæ og svo teymdi hún und-
ir mér á hlaðinu. Hún gladdist
mjög yfir áhuga mínum á hestum
og seinna gaf hún mér svo hnakk-
inn sinn sem hún hafði fengið í af-
mælisgjöf.
Þau eru nú orðin þó nokkur vett-
linga- og sokkapörin sem Lauga^
hefur prjónað handa mér í gegnum
tíðina. Sum hver fékk ég í afmælis-
gjöf, en við áttum sama afmælisdag-
inn.
Margs er að minnast um góða
konu nú að leiðarlokum. Ég vil
þakka fyrir allar stundimar okkar
saman sem eru mér ómetanlegar í
endurminningjmni.
Daldís Yr Guðmundsdóttir.
MINNINGAR
GUÐLAUG
MA TTHÍASDÓTTIR
1
GUNNAR HELGI
EINARSSON
+ Gunnar Helgi Einarsson,
múrarameistari, fæddist í
Reykjavík 15. ágúst 1936. Hann
lést á heimili sínu 25. júlí
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Fossvogskirkju 3. ágúst.
Dauðinn gerir ekki boð á undan
sér, það sýndi sig þegar Gunnar
Helgi var kallaður á brott svo
skyndilega og fyrirvaralaust og við
minnt á það að enginn ræður sínum
næturstað. Ljúfar minningar um
góðan dreng sitja hins vegar eftir.
Við starfsmenn Flutningsmiðlun-
arinnai’ Jóna hf. kynntumst Gunn-
ari Helga er hann hóf störf í fjöl-
skyldufyrirtækinu, „Heildverslun
J.S. Gunnarsson hf.“, og var þessi
heiðursmaður eftir það tíður gestur
hjá okkur í Hafnarfirði.
Létt lund og góðlegt fas ein-
kenndi komur Gunnars Helga til
okkar, enda einstaklega fróður um
menn og málefni og urðu umræð-
urnar þá oft fjörlegar, einkum voru
JÓHANNA
JÓHANNESDÓTTIR
+ Jóhanna Jóhannesdóttir
hjúkrunarkona fæddist á
Heiðarbæ í Þingvallasveit 8. aprfl
1944. Hún lést á Landspítalanum
22. júlí siðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Grensáskirkju
30. júlí.
Það var á 25 ára afmæli íþrótta-
félags fatlaðra í Reykjavík 30. maí
s.l. sem ég hitti Jóhönnu í síðasta
sinn. Við fögnuðum hvor annarri því
við höfðum ekki sést í langan tíma.
Ég hafði heyrt að Jóhanna væri bú-
in að vera veik, en hún myndi senni-
lega komast yfir veikindin. Ég hafði
á orði hve hún liti vel út og spurði
hvemig gengi í veikindunum. Jó-
hanna þagði litla stund og horfði á
mig. „Það er nú ekki gott,“ sagði
hún. „Krabbinn er kominn upp í
höfuð, svo það er nú lítið hægt að
gera.“ Jóhanna sagði þetta með svo
miklu æðmleysi að ég átti ekki orð.
Við töluðum saman góða stund.
Hún sagði mér hvað allir væru góð-
ir við sig og vildu allt fyrir sig gera.
Þegar hún gekk frá mér fylltist ég
svo mikilli reiði út í himnaföðurinn
sem öllu ræður. Hvers vegna Jó-
hanna? Hún sem var búin að eyða
mestum tíma sínum í að hugsa um
tvo mikið fatlaða drengi sem hún
átti, ásamt manni sínum, Gesti. Nú
eru þeir orðnir stórir og komnir á
sambýli fyrir fatlaða. Jóhanna og
Gestur hugsuðu svo vel um Sigur-
jón og Svenna að eftir var tekið og
um var talað. Ég trúi því nú að þeir
sem guðirnir elska deyi ungir.
Gestur minn, Sigurjón, Svenni og
Andri, hugur minn er hjá ykkur.
Guð blessi minningu um yndislega
konu sem Jóhanna Jóhannesdóttir
var.
Andrea Þórðardóttir.
Formáli minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um
hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá-
inn, um foreldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er tO að þessar upplýsingai’
komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinun-
um sjálfum.
íþróttimar honum hugleiknar, enda
synimir báðir landsþekktir á því
sviði, hvor á sinn mátann.
Við munum sakna Gunnars Helga
og vottum eftirlifandi móður, eigin-
konu, Jóhanni Inga, Steindóri og
Aðalheiði samúð okkar allra.
Ljósið í myrkrinu á þessari sorg-
arstund er hins vegar að minningin
um góðan dreng, Gunnar Helga, lif-
ir að eilífu.
Hvíl í friði, kæri vinur.
F.h. starfsfólks Jóna hf. í Hafnar-
firði,
Magnús og Kristinn
Kjærnested.
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áratöng reynsla.
Sverrir Otsen,
útfararstjóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
OSwALDS
simi 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
VOAUSTM'TI 4B • 101 REYKJAVIK
David Ingcr Olaftir
Ihfartmtj. Utnsjóu Otfimtmj.
LÍICKISTUVIN N USTOF A
EYVINDAR ÁRNASONAR
1899
Blómabwðm
(MauSskom
v/ PossvogsUiFkjwgaFð
Sími: 554 0500
Legsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
50LSTEINAK 564 3555
Þegar andlát ber að höndum
Útfararstofan annast meginhluta allra útfara
á höfuðborgarsvæSinu. Þar starfa nú 15 manns
við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
AtúSleg þjánusta sem byggir á tangrí reynslu
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.
Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266