Morgunblaðið - 08.08.1999, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 08.08.1999, Blaðsíða 42
$2 SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞÓRLAUG GUÐNÝ BJÖRNSDÓTTIR + Þórlaug Björns- dóttir fæddist í Hrísey 31. mars 1907. Hún lést 23. júli siðastliðinn á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Foreldrar hennar voru hjónin Signý Margrét Sæmunds- dóttir, f. 3.8. 1864, d. 26.10. 1949, og . Björn Bjartmars- 'son, f. 10.10. 1861, d. 22.4. 1923 bóndi og sjómaður á Skriðulandi í Arn- arneshreppi og víðar í Eyja- firði. Systkini Þórlaugar, sem öll eru látin, voru: Axel, Unnur, Karl, Bjartmar og Júlíus hálf- bróðir samfeðra. Fóstursystir hennar var Ingibjörg Björns- dóttir búsett á Akureyri. Þórlaug giftist Mikael Ein- Mig langar í örfáum orðum að minnast ömmu minnar, Þórlaugar Björnsdóttur. Eftir því sem árunum fjölgar gerir -ájpaður sér betur grein fyrir því hvað hamingjurík og áhyggjulaus æska er mikilvæg fyrir mótun hvers einstak- lings og lífshamingju. Að eiga góðar bernskuminningar er eitt dýr- mætasta og mikilvægasta veganesti fyrir lífið sjálft. í nokkur skipti dvaldi ég hluta úr arssyni, f. 2.9. 1914, d. 19.1. 1996, frá Jaðri í Glerárþorpi á Akureyri og eru dætur þeirra: 1) Guðbjörg Margrét Stella, gift Roland Möiler og eiga þau eina dóttur og fóst- urson 2) Aðalheiður Ingibjörg, en henn- ar maður var Trausti Jóhannsson. Börn þeirra eru tjögur. Dóttir Þór- laugar og Ágústs Kvaran, f. 16.8. 1894, d. 30.1. 1983, er Hjördís, gift Gunnlaugi Briem og eiga þau fjögur börn. Barnabörn Þórlaugar eru tíu og barna- barnabörn 23. Þórlaug var jarðsett frá Gler- árkirkju 5. ágúst og fór útförin fram í kyrrþey að hennar ósk. sumri á Akureyri hjá ömmu minni og eiginmanni hennar, Mikael Einars- syni, sem ég kallaði gjarnan afa. Hann lést fyrir þremur og hálfu ári. Frá þessum tíma á ég yndislegar minningar. I huga mínum var veðrið alltaf gott og sólin skein á litla húsið þeirra sem bar nafnið Jaðar. Túnið var stórt og þar voru margir blóm- vendirnir tíndir sem enduðu á eld- húsborðinu hennar ömmu. Við húsið voru há tré sem gaman var að klifra í DAGBJÖRT „ GUÐMUNDSDÓTTIR + Dagbjört Guð- mundsdóttir fæddist í Keflavík 20. febrúar 1908. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 2. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson sjó- maður, f. 1886 á Grímsstöðum Landeyjum, d. 1907, og Anna Sigríður Sveinsdóttir, f. 2. ágúst 1888 á Stóra Hólmi í Leiru, d. 1918. Hinn 3. júli 1930 giftist hún Þorleifi Jónssyni loftskeyta- manni, f. 6. janúar 1909, d. 3. júlí 1987. Foreldrar hans voru Jón Þorleifsson, kirkjugarðsvörður í Hafnarfirði, og Guð- laug Oddsdóttir. Börn þeirra: Þóra Eygló Þorleifsdóttir hárgreiðslumeist- ari, maki Páll S. Jónsson rafvirki; Jón Norðíjörð raf- virki, maki Svava Gunnarsdóttir hús- móðir. Fóstursonur: Jón Pálsson vél- virki, maki Salome Kristín Jakobsdóttir húsmóðir. Utför Dagbjartar fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 9. ágúst og hefst athöfnin klukkan 13.30. Það verður enginn héraðsbrestur þótt háöldruð kona kveðji þennan heim, samt hugsa ættingjar og vinir með trega til þeirra sem horfnir eru. Svo lengi sem ég man kynni okkar konu minnar Þóru, minnist ég móður hennar Dagbjartar sem nú er kvödd hinstu kveðju. Mér var tekið þar opn- um örmum af þeim báðum tengdafor- eldrunum. Eg kynntist þeim fyrst á Hringbraut 105 þar sem þau bjuggu. Það var mitt lán að eiga samleið igieð Dagbjörtu nær því í hálfa öld. Eg eignaðíst heimili hjá þeim fyrst og var það notalegt. Ég hafði verið í námi við lítil efni eins og títt var um unga menn utan af landi á þeim tíma. Seinna byggðum við hlið við hlið í Garðabænum. Þar bjuggu fjölskyld- urnar í nánu sambandi sem ein væri. Þau Dagbjört og Þorleifur ólu upp elsta son okkar Þóru, og reyndust honum sem bestu foreldrar, sem og hinum börnum okkar afi og amma. Dagbjört var glæsileg kona og dugleg svo af bar allt fram á efri ár. Þessi fáu kveðjuorð mín eiga að vera þakklæti mitt til hennar, hún reynd- ist mér ávallt sem önnur móðir, um leið þakka ég Dagbjörtu fyrir alla tryggð og kærleika við mig og mína. Guð blessi minningu Dagbjartar Guðmundsdóttur. Páll S. Jónsson. LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 og í litlum reit leyfði amma okkur bömunum að rækta ýmsar plöntur og búa til skreytingar. Á bak við hús var afi með hesta og höfðu þeir mikið aðdráttarafl. Amma mín var hlý og yndisleg kona og hugsaði einstaklega vel um okkur bamabörnin. Hún var mjög trúrækin og kenndi mér margar bæn- ir og vers er hún sat hjá mér þegar ég var háttuð í tandurhreint og ilmandi rúmið. Þegar ég átti að vera sofnuð heyrði ég hana sjálfa fara með bæn- irnar sínar. Á morgnana vaknaði ég við að amma var að sýsla í eldhúsinu en þar vora ávallt miklar kræsingar á borðum. Bar ég þess merki þegar ég kom aftur suður, bústin og sælleg. Amma gaf sér líka góðan tíma til að ræða við okkur um lífið og tilverana í eldhúsinu sínu en hún var fremur al- vöragefin kona sem lét sér annt um bæði menn og málefni og hafði á hvora tveggja ákveðnar skoðanir. Eftir að ég komst á unglingsárin fór ég sjaldnar norður og hitti ömmu mína því ekki eins oft en í hvert skipti sem ég kom var það jafn nota- legt og alltaf fékk ég þær yndisleg- ustu móttökur sem hægt er að hugsa sér. Amma flutti á dvalarheimilið Hlíð fyrir nokkram áram og bjó þar við gott atlæti til dauðadags. Þar var hún mjög dugleg að mála á lín og eig- um við eftir hana fallega dúka og svuntur, auk þess eiga dætur mínar boli sem þær era afskaplega stoltar af að vera í, af því að langamma mál- aði á þá fallegar myndir. Ég kveð þig nú, amma mín, hafðu hjartans þökk fyrir allt. Minningarn- ar sem ég á um þig og með þér era mér dýrmætar og munu lifa um ókomna tíð. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Áslaug Briem. Elsku Þórlaug. Mig langar í örfá- um orðum að þakka þér fyrir þær stundir sem ég átti með þér. Þær vora langflestar á Akureyri, á Jaðri, litla húsinu ykkar Mikka sem alltaf var gott að heimsækja. Ég var svo heppin að kynnast þér sem lítil stelpa þar sem ég var þorpari, húsin þar ekki mörg, svo allir þekktu alla. Þeg- ar ég fór að vinna í kjörbúðinni í Höfðahlíð komst þú yfirleitt á hverj- um morgni og keyptir fisk til að sjóða í hádeginu, spjallaðir á þinn yfirveg- aða hátt og hjálpaðir mér að fínna besta hráefnið í fiskbakkanum. Þá vissi ég ekki að ég ætti eftir að tengj- ast inn í þína fjölskyldu en þegar sú stund kom, tókst þú þétt utan um mig og lýstir ánægju þinni með ráða- haginn. Þér fannst gott að dóttursonurinn næði í Akm-eyring og ekki verra að hún var úr þorpinu. Við áttum mörg góð samtöl í eld- húsinu á Jaðri, þar sem þú lýstir skoðunum þínum á mönnum og mál- efnum á mjög fordómalausan hátt. Þú sást alltaf það besta í öllum. Fjölskyldan skipti þig mikli máli og varðst þú að fá upplýsingar um alla, sérstaklega sunnanfólkið sem þú sást sjaldan. Inga og fjölskylda vora alltaf stór hluti af þínu lífi og veit ég að þú mast mikils hvað þau gerðu fyrir þig og Mikka. Ég veit, Þórlaug mín, að þú varst tilbúin að kveðja þetta líf, sátt við Guð og menn. Við Gulli, Aníta og Katrín kveðjum þig og hugsum til fjölskyldunnar þar sem við getum ekki verið við jarðar- förina, en vitum að það verður vel tekið á móti þér þar sem þú ert núna. Erna Þórarinsdóttir. Elsku amma. Síðast þegar ég sá þig vissi ég að ég væri að kveðja og það var eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera. Ég gat ekki ímyndað mér að fá aldrei að sjá þig aftur, en nú veit ég og ég fann það strax að þú ert með mér, þú og Mikki. Ég veit að þér líður vel núna, loksins fékkstu hvíldina og getur dreift allri þinni hlýju, ást og góðmennsku til allra þama uppi. Ég sakna þín, amma mín. Aníta Briem. JÓNÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR MATTHÍAS EINARSSON + Jónína Þórðar- dóttir fæddist í Hæðargarði hinn 3. júní 1911. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 24. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Víkur- kirkju 7. ágúst. Matthías Einars- son fæddist í Þórisholti í Mýrdal 24. maí 1904. Hann lést á Dval- arheimilinu Iljalla- túni 3. janúar siðastliðinn og fór útför hans fram frá Víkurkirkju 9. janúar. Mig langar að minnast ömmu og afa í Vík og þakka þeim allar góðu stundimar í gegnum árin. Það era ekki miklar vegalengdir á milli húsa í Vík og þess nutum við bræðumir, og síðar bömin mín, að geta oft heimsótt ömmu og afa í Nausthamri. Þar var alltaf gott að koma og vel tekið á móti öllum. Amma átti alltaf eitthvað gott handa smáfólkinu og passaði vel upp á að enginn færi svangur út, hún eldaði og bakaði þann besta mat sem til var. Gönguferðirnar hans afa niður að sjó vora margar og ævintýri lík- ast að fara með honum. Afi hafði líka mjög gaman af að tefla og var ólatur við að kenna okkur mannganginn. I Nausthamri hafði afi sitt smíða- herbergi sem alltaf var kallað uppi í Everest og kenndi þar margra grasa, þar naut afí sín vel við að smíða og lagfæra ýmsa hluti úr tré. Hann talaði oft um Kötlugosið 1918 og hamfarirnar sem urðu þá og hefði öragglega fylgst vel með því sem nú er að gerast í Mýrdalsjökli ef hann væri á lífi. Amma bjó yfir endalausri þolin- mæði en stundum þegar brenndar voru næfrar í stofunni var henni nóg boðið og vorum við vinsamlega beðin að gera þetta annarsstaðar. Þær vora óteljandi allar góðu sam- verastundirnar með ömmu og afa og getum við aldrei þakkað þær nógu vel. Það er ómetanlegt fyrir börn að alast upp í nánu sambandi við ömm- ur og afa og þess nutum við í mörg ár þar til amma og afi létust með nokkurra mánaða millibili, hann í janúar og hún í júlí. Elsku amma og afi, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an. Legg ég nú bæði Iíf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðastþegarégsofnafer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Matthías Jón Björnsson og fjölskylda. Elsku amma og afí, margs er að minnast á liðnum áram, umhyggja og ást ykkar á okkur bræðranum er ómetanleg og erfitt að kveðja ykkur bæði og einnig Sæmund afa, á þeim sjö mánuðum sem liðnir era af þessu ári. Mamma og pabbi bjuggu sín fyrstu ár heima hjá ykkur og þar fæddist Matti bróðir. Ömmu fannst sjálfsagt að passa hann svo mamma gæti unnið úti á meðan þau vora að byggja sér hús hér í Vík. Við bræðumir voram alltaf með annan fótinn á ykkar heimili enda stutt að fara vesturúr, eins og við kölluðum það, því gott var til ykkar að leita ef eitthvað vantaði, hvort sem það var til að fá eitthvað í svanginn eða ef okkur vantaði pen- inga fyrir nammi, flugeldum eða öðra slíku, þá var það auðsótt mál. Amma prjónaði á okkur margan sokkinn og vettlinginn þegar við vor- um litlir og ef þurfti að stoppa í sokka eða gera við föt vissum við alltaf hvert átti að fara. Mörg vora matarboðin hjá henni ömmu og þótti sumum nágrönnum nóg um „átroðninginn hjá henni Jónu“ en þessi átroðningur, sem sumum fannst, var það sem hún bauð upp á því alltaf vildi hún vera að bjóða okkur til sín. Það þótti sjálfsögðu skylda að koma við hjá þeim og kveðja og fá kannski fullt box af pönnukökum í nesti þegar far- ið var í sumarbústaðinn þegar við voram litlir, og eins þegar komið var heim, þá var kíkt inn og látið vita að drengirnir væra komnir. Afí var góður smiður og vel og traustlega gert það sem hann smíð- aði. Við bræður byggðum nokki’ar göngubrýr með öðram strákum yfir Víkurá því þær tók stundum af í vatnavöxtum. Að verki loknu var afi fenginn á staðinn til að taka verkið út og vígja brúna með því að klippa á borða. Það var ömmu og afa mikið áfall þegar Sæmi bróðir lést af slysföram fyrir fimm áram en það gladdi ömmu mjög að hann hafði verið í matarboði hjá henni daginn sem hann lést. Sól- argeisli í lífi þeirra varð svo Sædís Birna, dóttir hans, sem fæddist 6 mánuðum eftir lát hans. Það vora líka börn Matta bróður, Kolla Magga, Þorvaldur og Ingi- björg. Þess var beðið með óþreyju á aðfangadagskvöld að þau kæmu í heimsókn til mömmu og pabba en afi og amma vora alltaf hjá okkur þá. Okkur var svo öllum boðið til þeirra á jóladag. Elsku afi og amma, hafið þökk fyr- ir allar góðu samverustundirnar. Ingi Már Björnsson. Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A- 4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tlvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.