Morgunblaðið - 08.08.1999, Qupperneq 48
*
48 SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Smáfólk
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Súni 569 1100 • Símbréf 569 1329
A hvaða leið
erum við?
Frá Valdimar Kristínssyni:
STÖÐUG fjölgun „náttúruperlna"
er farin að þrengja að mannlífinu í
landinu. Þannig hika sumir, sem
búa við allt aðrar aðstæður í þétt-
býli, ekki við að vísa Snæfellingum
á óþarfan fjallveg um alla framtíð.
Vatnaleiðina skal vemda fyrir veg-
farendum sem eru ekki of góðir til
að feta sitt Kerlingarskarð hvemig
sem viðrar.
Fyrir nær tveimur áratugum
vom háværar deilur um fyrirhug-
aða lagningu Leimvegar við Akur-
eyri. Einkum höfðu þeir sig í
frammi sem sögðust vilja vemda
Vaðlareitinn, til hans mátti aðeins
líta úr fjarlægð þótt vitað sé að ekk-
ert stuðlar jafnmikið að skógrækt-
aráhuga eins og nálægðin við trjá-
gróðurinn. Sumir gengu svo langt
að vilja sveigja hringveginn alla leið
að Hrafnagili og lengja hann þar
með um 20 km. Mundu þeir vilja
rifja upp baráttu sína núna?
Skemmst er líka að minnast taf-
anna við lagningu Háreksstaðaleið-
ar austan Möðmdalsfjallgarðs, þar
sem margir gerðu allt sem þeir gátu
til að spilla fyrir framkvæmdum á
þeirri leið, sem stuðla á að sem
tryggustum samgöngum milli Norð-
ur- og Austurlands og færir um leið
hringveginn umtalsvert nær Vopna-
firði.
Öfgar af þessu tagi sýnast vera af
sama meiði og sjónarmið þeirra sem
vilja vernda alla hvali. Eitt leiðir af
öðra. Nú er farið að tala um að
draga þurfi úr fiskveiðum svo að
hvalimir hafi nóg að éta. Á hverju
eigum við þá aðallega að lifa?
Mannvirki og náttúra
Sagt hefur verið að með Kára-
hnjúkavirkjun rísi hæsta stífla Evr-
ópu, yfir 200 metrar á hæð, en hún
yrði eitt mesta framkvæmdaafrek
íslenskrar þjóðar sem í þúsund ár
lagði varla einn stein ofan á annan.
Samspil mannlegs hugvits, atorku
og tækni í bland við hrikalega nátt-
úmna í gljúfrinu. Á þessu þarf ekki
að biðjast afsökunar, ekki hafa
pýramídamir verið taldir spilla
auðnum Egyptalands. Ferðamönn-
um myndi stórfjölga vegna bætts
aðgengis að svæðinu og varla
mundu öllu fleiri forðast mannvirk-
in en þeir sem hætt hafa við Þjórs-
árdalsferð vegna Búrfellsvirkjunar.
Hvað skyldu þeir annars vera
margir?
Ekki fæla orkuverin fólkið frá.
Blaðamaður Mbl. segir svo 11. júlí
sl.: ,Á- náttúraperlunni Nesjavöllum
er gisti- og veitingastaðurinn Nes-
búð sem £ upphafi var byggður sem
vinnubúðir fyrir verktaka sem
reistu Nesjavallavirkjun.“ Þá er
Bláa lónið við Svartsengi fjölsóttasti
ferðamannastaður landsins. Þar er
búið að kosta hálfum milljarði upp á
bætta aðstöðu vegna þess að að-
sóknin var orðin óviðráðanleg. Þótt
verksmiðjur séu sjaldan augnayndi
fá þær ekki slæma einkunn frá öll-
um sem hafa sérstakt auga fyrir
umhverfinu. I Mbl. 9. júlí sl. er við-
tal við hóp listamanna frá Québec,
sem dvalið hefur í listamiðstöðinni á
Straumi. Þar segir: „Það er því vel
við hæfí að sýningin sé haldin í
Straumi, með það dularfulla lands-
lag sem hraunið skapar allt í kring
og svo einnig álver sér við hlið sem
minnir á verk mannanna.“
Hvað sem líður spumingum og
svöram um nýtingu hálendisins þær
6 til 8 vikur á ári sem helst er von
fólks til fjalla, þá er óhætt að full-
yrða að virkjun helstu orkulindanna
mun ekki spilla fyrir umfangi ferða-
þjónustunnar í landinu, hið gagn-
stæða yrði nær lagi.
VALDIMAR KRISTINSSON,
Reynimel 65, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Útsalan hafin
fjöldi frábærra tilboöa
stæröir 36-41
útsöluverð
cr. 1.290
BALLY tilboð - ecco tilboð
SKÓUERSLUN
KÓPAUOGS
HAMRAB0RG 3 • SlMI 554 1754
Hvemig getur þú ákveðið
hvort þú átt að gelta þegar
einhver fer framhjá?
Voff!