Morgunblaðið - 15.08.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999 1 9
LISTIR
Markviss
tölvunámskeið
DORA Bendixen og Björg Örvar vinna að uppsetn-
ingu sýninga sinna í vestur- og austursal Gerðarsalhs.
Morgunblaðið/Kristinn
KOLBRÚN Sigurðardóttir og Inga Rún Harðardóttir
við verkin sem m.a. eru í neðri sölum Gerðarsafns.
Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs
Fjórar sýningar
í sölum safnsins
FJÓRAR sýningar hafa verið opnað-
ar í sölum Gerðarsafns í Kópavogi.
I efri sölum Listasafnsins verða
opnaðar tvær sýningar sem eru að
nokkru leyti samtengdar. Þær bera
yfirskriftina Við hjartarætur/The
Heart of the Matter og sýnir Björg
Örvar í vestursal safnsins olíumál-
verk og vatnslitamyndir sem hún
hefur unnið á sl. tveimur árum, en í
austursal sýnir norski myndhöggv-
arinn Dora Bendixen skúlptúra úr
marmara og blekteikningar.
Sýningar þessar eru síðbúið sam-
starfsverkefni listakvennanna en
haustið 1994 deildu þær með sér
vinnustofu í marmarabænum Pi-
etrasanta á Italíu. „Þrátt fyrir ólíkt
efnisval og efnistök ákváðu þær að
láta reyna á tengsl þau sem þær
fundu við verk hvor annarrar og
stefna að samsýningu á Islandi fyrir
aldarlok,“ segir Guðbjörg Ki-ist-
jánsdóttir, forstöðumaður Lista-
safns Kópayogs.
Björg Örvar útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla Islands
1979 og fór síðan til framhaldsnáms
í Bandaríkjunum. Hún býr og
starfar á íslandi og hefur haldið
margar einkasýningar, tekið þátt í
samsýningum heima og erlendis
síðastliðin fimmtán ár auk þess sem
hún hefur gefið út ljóðabók og eina
skáldsögu. Björg hefur vinnustofu í
Álafosskvos í Mosfellsbæ.
Dora Bendixen er fædd í Noregi
1954. Hún nam við Statens Hánd-
verks- og Kunstindustriskole, Arki-
tekthoyskolen í Ósló, Kunstakademi-
et í Stokkhólmi og útskrifaðist frá
Statens Kunstakademi 1983. Hún
fluttist fljótlega eftir nám sitt suður
til Italíu, þar sem hún hefur unnið að
mestu leyti að list sinni. Dora Bend-
ixen hefur einkum sýnt í Noregi,
Frakklandi og Italíu og dvelur nú og
starfar ýmist í Noregi eða í marm-
arabænum Pietrasanta á Itahu.
Björg Örvar hlaut styrk bæjar-
listamanns Kópavogs 1999 en sýn-
ing Doru Bendixen er styrkt af
norska sendiráðinu. Sendiherra
Noregs á íslandi, hr. Knut Tarald-
set, mun flytja ávarp við opnun sýn-
ingar Doru Bendixen klukkan 14.
Hann og þær og í alvöru
I neðri sölum safnsins verða opn-
aðar tvær sýningar kl. 15. Kolbrún
Sigurðardóttir opnar sýningu á
leirskúlptúr og veggmyndum og
hefur sýningin yfirskriftina I al-
vöru. Á þessari sýningu er Kolbrún
að vinna með íslensku þjóðsögurnar
út frá kjaftasögum. Þjóðsögumar
byggja á sama grunni og Gróu- eða
kjaftasögur dagsins í dag, þær ber-
ast manna á milli og eru gjaman
kryddaðar í meðferð hvers og eins.
Kolbrún vinnur einkum umgjörð
þessara sagna og hugtök sem tengj-
ast þeim þegar þær berast mOli
manna.
Kolbrún Sigurðardóttir útskrif-
aðist frá Myndlista- og handíða-
skóla íslands árið 1995 og stundaði
síðan framhaldsnám við ungverska
listiðnarháskólann Magyar Iparmu-
vészeti Föiskola. Þetta er þriðja
einkasýning Kolbrúnar.
Inga Rún Harðardóttir opnar
sýningu á leirlistaverkum. Sú sýn-
ing ber heitið Hann og þær. Eitt
verkanna er portrett af karlmanni
en öll hin eru myndir af konum í
ýmsum tUbrigðum. Flest verkin á
sýningunni era unnin á alþjóðlegu
keramíkverkstæði í Skælskor í
Danmörku á þessu ári. Sum verkin
eru brennd í viðarbrennsluofni,
þeim eina sinnar tegundar í Dan-
mörku. Sú aðferð tekur lengri tíma
en hefðbundnar aðferðir og af ösk-
unni myndast blæbrigðarík áferð.
Inga Rún Harðardóttir útskrifað-
ist úr Myndlista- og handíðaskóla
íslands árið 1993 og var síðan við
framhaldsnám í Kolding í Dan-
mörku. Þetta er þriðja einkasýning
hennar og hún hefur einnig tekið
þátt í nokkmm samsýningum bæði
hér heima og erlendis.
Listasafnið er opið alla daga
nema mánudaga frá 12-18. Sýning-
unum lýkur sunnudaginn 29. ágúst.
NTV skólamir í Hafnarfirði og Kópavogi
bjóða upp á tvö hagnýt og markviss tölvunámskeið
íyrir byrjendur.
60 klst. eða 90 kennslustundir:
■" Grunnatriði í upplýsingatækni
*■ Windows 98 stýrikeifið
Word ritvinnsla
► Exeel töflureiknir
► Aecess gagnagrunnur
<► PowerPoint (gerð kynningarefnis)
► Internetið (vefurinn og tölvupóstur)
48 klst eða 72 kennslustundir:
► Almennt um tölvur og Windows 98
► Word ritvinnsla
•- Excel töflureiknir
Internetið (vefurinn og tölvupóstur)
Boðið er upp á bæði morgun- og
kvöldnámskeið sem hefjast í byrjun september.
UpþCýsingar og inraitun í símum
544 4500 og 555 4980 —
Nýi tölvu- &.
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Slmi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hlíðasmára 9- 200 Kópavogi - Sfmi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasfða: www.ntv.is
KUCHEN TECHNIK
Heimilistæki
Falleg og vönduð tæki á
hagstæðu verði!
http://www.heildsoluverlsunin.is
Innréttingar & tæki
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, • laugard. kl. 10-14
666^^W&qujrWJnuuM^^^