Morgunblaðið - 19.09.1999, Síða 1
212. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR19. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
HROSSAREKSTUR Á LANDMANNALEIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
Flotadeildir taka sér stöðu undan ströndum Austur-Tímor
Friðargæslu-
sveitum hótað
heilögu stríði
Darwin, Atambua, Surabaya. Reuters, AFP.
AP
Austur-Tímorbúar í Darwin í Astralíu kveðja ástralska friðargæsiu-
liða er héldu áleiðis til A-Tímor í dögun í gær.
NÍU herskip, með hundruðum her-
manna innanborðs, héldu í gær frá
Darwin í Norður-AstraMu áleiðis til
Austur-Tímor þar sem þau munu
taka sér stöðu undan ströndum
landsins uns hersveitum sem um
borð eru verða gefín fyrirmæli um að
halda til lands og hefja friðargæslu-
störf undir merkjum Sameinuðu
þjóðanna. Eru þetta umfangsmestu
herflutningar í Asíu síðan á dögum
Víetnam-stríðsins. Fyrirhugað er að
yfirmaður friðargæslusveitanna, Pet-
er Cosgrove hershöfðingi, haldi til
Dili, höfuðstaðar A-Tímor, í dag til að
undirbúa komu hersveitanna.
Tugir þúsunda Indónesíubúa hafa
ritað nöfn sín undir yfirlýsingu þess
efnis að þeir muni há heilagt stríð
gegn friðargæsluliði SÞ á A-Tímor,
að sögn trúarleiðtoga í Indónesíu í
gær. Sögðu þeir við Reuters að fólk
þetta væri albúið til að fórna lífi sínu
fyrir málstað Indónesíustjórnar og
er talið að Þjóðvakningarflokkurinn,
einn stærsti þingflokkur í
Indónesíu, sé viðriðinn undirskrift-
irnar. Lýstu leiðtogarnir því yfir að
alls hafi 107.000 manns undirritað
yfirlýsinguna og sögðu þeir jafn-
framt að reiði Indónesíubúa beindist
ekki einvörðungu gegn Astrah'u
heldur einnig Bandaríkjunum.
Guterres, háttsettur maður innan
vígahópa sem styðja áframhaldandi
samband A-Tímor við Indónesíu,
sagði í gær að hann hefði lýst því yf-
ir við lögreglu- og hermálayfirvöld
að þau mættu fjarlægja vopn víga-
manna. Hins vegar sagði hann við
fréttamenn á Vestur-Tímor, þar sem
tugþúsundir flóttamanna eru saman
komnar, að A-Tímorbúar væru
þyrstir í blóð hvítra manna eftir að
Indónesíustjórn gaf SÞ leyfi til að
senda friðargæslusveitir til landsins.
Guterres gaf svipaðar yfirlýsingar
stuttu áður en tilkynnt var um úrslit
þjóðaratkvæðagreiðslunnar örlaga-
ríku fyrir stuttu.
kynnt að hún hafi slakað á viðskipta-
hömlum á Norður-Kóreu sem hafa
verið í gildi í 50 ár gegn skuldbind-
ingum N-Kóreustjómar að hún
muni ekki gera tilraunir með lang-
drægar eldflaugar. Markar ákvörð-
un stjórnarinnar tímamót hvað al-
þjóðasamskipti hinnar einangruðu
stjórnar N-Kóreu varðar.
Samkvæmt stefnu Bandaríkja-
Lífshættu-
legur fóta-
búnaður
The Daily Telegraph.
NOTKUN ungra kvenna á skóm
með mjög háum hælum eða þykk-
um botnum hefur valdið áhyggj-
um eftir að 25 ára gömul japönsk
kona í slíkum fótabúnaði hrasaði
og dó fyrir skömmu.
Misayo Shimizu fannst látin í bfl
sínum 26. ágúst og við krufningu
kom í ljós að hún hafði höfuð-
kúpubrotnað. Þótti allt benda til
að hún hefði dottið vegna þykkra
botnanna á skónum, sem voru um
13 sm háir.
Þykkir botnar eru í tísku í Jap-
an og ekki er óalgengt að sjá
stúlkur tipla um á allt að 25 sm
háum skóm. Hafa margar þeirra
leitað læknis vegna smávægilegra
óhappa af þessum sökum, en þetta
er fyrsta dauðsfallið af völdum
þykkra botna sem vitað er um.
stjómar era nú viðskipti með flestar
neysluvörur leyfð. Þá er gert ráð
fyrir óheftu ferðafrelsi til og frá N-
Kóreu og frjálsu flæði fjármagns.
Stjórnvöld í Washington munu hins
vegar viðhalda ströngu eftirliti með
fyrirætlunum N-Kóreu á sviði ger-
eyðingarvopna og hafa varað við því
að brot á alþjóðlegum sáttmálum
muni leiða til þess að viðskiptahöml-
unum verði aftur komið á.
Fornar veirur geta
herjað á mannkyn
í KJÖLFAR hækkandi hitastigs
yfirborðs jarðar og aukinnar
bráðnunar á íshellum heimskaut-
anna eykst hættan á því að lífs-
hættulegar veirusýkingar herji á
jarðarbúa að mati vísindamanna
við Syracuse-háskóla í New York.
Varnaðarorð þeirra eru byggð
á fundi fornrar veiru djúpt undir
íshellu Grænlandsjökuls fyrir
skömmu. Að mati vísindamann-
anna geta veirusýkingar líkt og
fornar gerðir inflúensu, mænu-
sóttar og bólusóttar - sem nú-
tímamaðurinn getur illa varist -
verið leystar úr læðingi og herjað
á mannkyn. Þrátt fyrir að vera
þúsunda ára gamlar séu veirur
þessar enn virkar og líklega smit-
andi og er það mat manna að að-
eins lítils háttar hitastigsbreyting
geti hrint af stað slíku ferli. Alvin
Smith, veirufræðingur við
Oregonháskól, sagði nýverið í við-
tali við New Scientist, að er veir-
ur þessar hafa legið í ísnum í ár-
þúsundir án þess að ónæmiskerfi
manna hafi þurft að vinna bug á
þeim skapi það hættu á hugsan-
legum smitfaraldri.
Tímamótaákvörðun í
málefnum N-Kóreu
Washington, Seoul. AFP.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur til-
I keppni við
sjálfan siff
10
Ætlum að
standa okkur í
samkeppninni
Útsendingar á annarri
sjnnvarpsrás
RUV í athugun
28
í . * *»
AHUGAMALÍD
VARD ATVINNA
B
PARADÍS
<ARIMENNSKUNNAR