Morgunblaðið - 19.09.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.09.1999, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR í dag er merkisdagur í íslensku tónlistarlífí er tvö ný og glæsileg pípuorgel verða vígð í tveimur kirkjum í Reykjavík, Langholtskirkju og Neskirkju. Sérstaka athygli vekur að bæði hljóðfærin eru smíðuð af einum og sama manninum, hinum þýsk-bandaríska Fritz Noack. Þrátt fyrir skyldleikann eru orgelin mjög ólík, bæði að „útliti og innræti“ eins og fram kemur í viðtölum sem Hávar Sigurjónsson átti við organista beggja kirknanna og orgelsmiðinn sjálfan í tilefni þeirrar orgelhátíðar sem nú stendur fyrir dyrum. Dagskrá í Langholtskirkju Sunnudagur 19. september Kl. 11: Vígslumessa. Frum- flutningur á útsetningu eftir Þorkel Sigurbjömsson á sálm- inum Heilagi Guð á himni og jörð og orgelverk eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Þátttakendur í messunni eru allir kórar kirkj- unnar. Kl. 16:30: Vígslutónleik- ar: Peter Sykes, organleikari frá Bandaríkjunum. Efnisskrá: Praeludium et Fuga í G dúr BWV 541 „0 Mensch, bewein’ dein’ Siinde grofl“, BWV 622 Partita „0 Gott du frommer Gott“ BWV 767 Fantasia et Fugue í g moll BWV 542 Concerto in G Major BWV 592 „Allein Gott in der Höh sei Ehr“ BWV 662 Praeludium et Fuga b moll BWV 544 Mánudagur 20. september Kl. 10-12 og 13: Kl. 12-12.30 - Opið hús - Hádegistónleikar: Victoria Wagner, organleikari frá Bandaríkjunum. Þriðjudagur 21. september 12-12.30 - Opið hús - Hádegis- tónleikar: Ami Arinbjamar- son, organisti Grensáskirkju. Ki. 20 - Kór / orgeltónleikar: Kór og Gradualekór Lang- holtskirkju, stjómandi Jón Stefánsson, organleikari Kári Þormar - Fmmflutt verkin: Laudate Dominum eftir Oliver Kentish (Davíðssálmur 150 - 1993/8) fyrir bamakór og orgel Davíðssálmur 100. „Öll veröld- in fagni fyrir Drottni!" eftir Tryggva Baldvinsson fyrir Gradualekór Langholtskirkju og orgel „Ég vil vegsama I)rottin“ eftir Ama Harðarson (1997) a capella fyrir Kór - og Gradualekór Langholtskirkju „Dies Irae“ eftir Árna Egilsson (endurskoðað í feb. ‘99) fyrir kór og orgel. Miðvikudagur 22. sept. Kl. 12-12.30 - Opið hús - Hádegistónleikar: Lára Bryn- dís Eggertsdóttir. Kl. 20: Org- eltónleikar. Björn Steinar Sól- bergsson, organisti Akureyrar- kirkju. Fimmtudagur 23. septem- ber: Kl. 12-12.30: Opið hús - Há- degistónleikar: Kjartan Sigur- jónsson, organisti Digranes- kirkju. Kl. 20: - Orgeltónleik- ar: Jón Stefánsson, organisti Langholtskirkju, leikur eftir Johann Sebastian Bach; Der Tag der ist so freudenreich (BWV 605), Es ist das Heil uns kommen her (BWV 638), Ich mf zu dir, Herr Jesu Christ (BWV 639), Herr Gott, nun schleuss den Himmel auf (BWV 617), Vor deinen Thron tret ich (BWV 668), Toccata et Fuga, d-moll (BWV 565), Schmiicke, dich, o liebe Seele (BWV 654) og Praeludium et Fuga, D-dur (BWV 532). Föstudagur 24. september Kl. 12-12.30: - Opið hús. Há- degistónleikar: Douglas A Brotchie organisti Háteigs- kirkju. Sunnudagur 26. september Ki. 17: Orgeltónleikar: Pró- fessor Michael Radulescu frá Vínarborg leikur verk eftir Buxtehude - Te deum, BuxWV 218; Purcell - A Voluntary for ye Double Organ; Handel - Fuga in G; Handel - Fuga in B; Bach - Allein Gott in der Höh’ sei Ehr, BWv 663, Bach - Praeludium & Fuge in e-moll, BWV 548 og Michael Radu- lescu - Ricercari (1984). „ÞAÐ hefur orðið ótrúleg breyting á kirkjunni við að fá í hana orgelið og steinda gluggann í gaflinn á bak- við,“ segir Jón Stefánsson, organisti og kórstjóri Langholtskirkju, sem nú sér langþráðan draum rætast er hið nýja orgel kirkjunnar verður vígt í dag. „Breytingin verður enn meiri og fyllri þegar steint gler verður komið í glugga vesturgafls og hliðarglugga kirkjunnar en það bíður betri tíma,“ segir hann. „Þetta er í einu orði sagt stór- kostlegt hljóðfæri og möguleikarnir sem opnast með því til tónlistariðk- unar hér í kirkjunni era fjölmargir. Orgelið gegnir mjög mikilvægu hlutverki við helgihaldið, það leiðh- kór og söfnuð í söngnum og stað- setning þess í kirkjunni hefur líka áhrif á það,“ segir Jón. Orgelið er staðsett fyrir miðjum kór, fyrir aft- an altarið og kórinn mun standa til hægri handar við orgelið utan úr kirkjunni séð. „Mig langar til að vitna í séra Sigurð Hauk Guðjóns- son varðandi þetta atriði en ekki vora allir sammála um þessa stað- setningu orgelsins og kórsins á sín- um tíma. Þá sagði séra Sigurður: „Ég er alveg viss um að ef Drottinn Guð hefði ætlast til þess að org- anistinn og kórinn væri í hinum enda kirkjunnar þá hefði hann snúið eyranum hinsegin á höfðinu á okk- ur.“ Að sögn Jóns er nýja orgelið 34 radda, í því era 2200 pípur og það er í sjálfstæðu orgelhúsi þannig að það er frístandandi fyrir enda kirkjunn- ar. „Þetta er meðalstórt orgel smíð- að í hreinum barokstíl en samt sem áður fullkomlega nútímalegt hljóð- færi.“ Til samanburðar má geta þess að orgel Hallgrímskirkju er 72 radda en Langholtskirkjuorgelið er svipaðrar stærðar og orgelin í t.d. Bústaðakirkju og Kópavogskirkju. „Miðað við stærð kirkjunnar hér hefðum við átt að vera með stærra orgel en hljómburðurinn er svo góð- ur að þetta orgel nægir okkur fylli- lega. Byggingarlag þess, útlit og hljómur gera það sérstaklega vel Nútímalegt barok-orgel Morgunblaðið/Kristinn „Nýja orgelið er mótvægi við einfaldleik kirlgubyggingarinnar, gleður augað jafnt sem eyrað,“ segir Jón Stefánsson, organisti. fallið til flutnings á barok-tónlist, frábærlega vel vil ég segja, en þó er að sjálfsögðu hægt að spila á það alla tónlist. Mér hefur alltaf fundist vanta stílhreint barok-orgel í orgel- fjölskyldu landsins og nú er það komið. Reynsla okkar af flutningi helstu verka baroktímans hefur sannfært okkur um að sú tónlist hentar Langholtskirkju vel. Því var ákveðið að velja henni hljóðfæri sem hæfði hljómburðinum og væri einnig mótvægi við einfaldleik kirkjubyggingarinnar, gleddi augað jafnt sem eyrað,“ segir Jón. Orgelsmiðurinn Fritz Noack seg- ir að þó flokka megi nýja hljóðfærið sem barok-orgel, „þá er það í raun og vera nútíma-orgel sem ætlað er Langholtssöfnuði í nútíð og framtíð. Raddskipanin er að mestu norður- þýsk með „prinsípalkór“ og flautur sem helst eiga ættir að rekja til org- elsmiða frá Saxlandi á tímum Bachs. „Svellverkið" er lítið og minnir helst á 19. aldar kórorgel frá Nýja-Englandi og það gerir einnig hinn mOdi tónn orgelsins. Við vild- um gjarnan halda skýrleika barok- orgelsins eins og algengt er í nýjum orgelum, en bæta við hlýjum og mildum tóni til að endurspegla kær- leiksboðskap kirkjunnar," segir Noack. Jón Stefánsson hefur í 35 ár verið organisti án orgels. „Það er nú kannski fulldjúpt í árinni tekið því hér hefur verið lítið orgel sem þrátt fyrir allt er mjög gott hljóðfæri. En flutningur orgeltónverka við kirkju- legar athafnir hefur ekki verið mögulegur hér í kirkjunni fyrr en nú. Það má segja að kórinn hafí ver- ið hljóðfærið mitt hér við kirkjuna. Nú verður hægt að leika undir með kómum við flutning stórra tónverka fyrir kór og orgel og hægt að leika með Sinfóníunni. Langholtskirkja er orðin fullgilt orgeltónleikahús,“ segir Jón sem heldur sína fyrstu einleikstónleika á orgel í Langholts- kirkju næstkomandi fimmtudags- kvöld klukkan 20. Fyrstu hljóð- ritanir af nýju orgelunum Morgunblaðið/Kristinn Peter Sykes við nýja orgelið í Neskirkju. BANDARÍSKI organleikarinn Peter Sykes leikur á vígslutón- leikum Langholtskirkju í dag og mun einnig kynna orgel Nes- kirkju í hátiðarguðsþjónustunni þar í tilefni orgelvígslunnar. Hann mun í kjölfarið hljóðrita efni á tvær hljómplötur þar sem hann leikur á bæði nýju orgelin og ætlar hann að hljóðrita annars vegar baroktónlist og hins vegar 20. aldar tónverk fyrir orgel, þ.á.m. verk eftir íjögur islensk tónskáld, þá Jón Þórarinsson, Jón Nordal, Jón Ásgeirsson og Gunnar Reyni Sveinsson. Peter Sykes er bandarískur að uppruna. Hann er virtur og fjöl- hæfur tónlistarmaður en hann leikur á sembal, klavíkord, píanó og orgel. Hann hefur á undan- förnum árum komið fram á org- eltónlistarhátíðum mjög víða í Bandaríkjunum og hvarvetna hlotið einróma Iof. Einnig hefur hann leikið í útvarpi, bæði í Bandaríkjunum og í Svíþjóð og Hollandi. Þá hafa hljómdiskar hans hlotið verðskuldaða at- hygli, t.d. hans eigin útsetning á Plánetunum eftir Gustav Holst sem Raven-útgáfan gaf út. Sá hljómdiskur hlaut viðurkenning- una Orgelupptaka ársins 1996 hjá tímaritinu Absolute Sound. Peter Sykes hefur unnið til fjölda verðlauna, meðal annars Chadwick-verðlaunanna árið 1978 fyrir frábær námsafrek en þau verðlaun veitir the New England Conservatory. Árið 1983 hlaut hann verðlaun banda- rískra organista (American Guild of Organists) sem sérstak- lega voru veitt ungum og efni- legum organistum og árið 1986 vann hann alþjóðlega samkeppni semballeikara. Árið 1993 hlaut hann Erwin Bodky-heiðursverð- laun fyrir frábæra túlkun á eldri tónlist. Peter Sykes er tónlistar- stjóri við First Church-kirkjuna í Cambridge, Massachusetts, en hann er yfir þeirri deild Longy- tónlistarháskólans sem sérhæfir sig í eldri tónlist, einnig kennir hann kammertónlist og á orgel og sembal. Þá starfar hann fyrir New England Conservatory. Hann hefur verið í dómnefndum við margar keppnir organista og semballeikara, gegnt trúnaðar- störfum fyrir Organ Historical Society og einnig er hann stofn- félagi í Boston Clavichord Soci- ety. Á orgelvígslutónleikunum í Langholtskirkju mun Peter Sykes flytja verk eftir J. S. Bach. Á efnisskránni eru Praeludium et. Fuga í G dúr BWV 541 „O Mensch, bewein’ dein’ Siinde groB“, BWV 622 Partita „O Gott du frommer Gott“ BWV 767 Fantasia et Fugue í g moll BWV 542 Concerto in G Major BWV 592 „Allein Gott in der Höh sei Ehr“ BWV 662 Praelu- dium et Fuga b moll BWV 544. Tónleikarnir heljast klukkan 16.30. I " .....~~ ......................... 'WSS^^^fr~ ~~ ~ ~ ~ ~~ ~ ‘ "WHi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.