Morgunblaðið - 19.09.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 51
í DAG
Árnað heilla
BRIDS
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétnrsson
llmsjón Guðmundiir
Páll Arnarson
ÝTNI er eiginleiki sem fólk
hefur gjarnan blendna af-
stöðu til. Öðrum þræði þyk-
ir slíkt skapgerðareinkenni
kostur, því ýtinn maður
kemur hlutunum í verk -
eða réttara sagt lætur aðra
vinna verkið. Sem er
kannski ástæðan til þess að
ýtni hefur einnig á sér nei-
kvætt yfirbragð, og þá aðal-
lega í huga þeirra sem ýtnin
beinist að. Ýtni við spila-
borðið er af svolítið öðrum
toga, en þó jafn tvíbent:
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
* 65
V KG95
* 1065
* K1095
Vestur Austur
* D93 A G8
V10642 V Á87
* KG ♦ ÁD8732
* G862 *D4
Suður
* ÁK10742
VD3
* 94
*Á73
Vestur Norður Austur Suður
- - 1 tíguii 1 spaði
Pass Pass 2tíglar 2spaðar
3tíglar 3spaðar ADirpass
Öll framganga austurs og
suðurs verður að
eðlileg og laus við frekju, en
þriggja tígla sögn vesturs er
dæmigerð ýtni. Tilgangur-
inn er sá að ýta andstæðing-
unum þrepinu hærra. Slíkt
er ekki áhættulaust, því ef
NS dobla þrjá tígla geta
þeir tekið samninginn tvo
niður og uppskorið 300. En
hér heppnaðist potið, því
norður lét teyma sig í þrjá
spaða. Hann taldi líklegt að
suður ætti einspil í tígli og
því myndu spilin nýtast bet-
ur til sóknar en varnar.
Rangt.
En nóg um sagnir. Það
má hnekkja þremur spöð-
um, en það er ekki alveg
einfalt mál við spilaborðið.
Leiðin er þessi: Tígulkóng-
ur út og tvisvar tígull í við-
bót. Suður trompar með tíu,
en vestur yfirtrompar, kem-
ur makker inn á hjartaás,
sem spilar svo enn tígli og
uppfærir spaðaníuna í slag.
Hvað er svona erfitt við
þetta?
Jú, ekki er alveg augljóst
frá bæjardyrum vesturs að
hann eigi að spila hjarta
frekar en laufi til áð koma
makker aftur inn. Vegna
tígultíunnar í borði verður
austur að spila hátíglum
hvort sem hann á hjartaás
eða laufás, og virðist því
ekki geta kallað til hliðar.
En það getur hann reyndar
á svolítið óvenjulegan hátt:
Austur yfirtekur tígulgos-
ann í slag tvö með ásnum og
spilar svo drottningunni.
Þessi röð myndi vísa á
hærri litinn - hjartað - en
röðin drottning og ás á
lægri litinn. Þetta er mögu-
leiki sem spilarar gleyma
stundum.
SAMANBURÐUR ALDA
Frost oc kuldi kvelia þjód,
koma nú skialdann árinn gód,
ecki er nærri öld svo fród
í guds ordi kláru,
sem var hún á villu-árum.
(1605)
0/"|ÁRA afmæli. Á
Ov/morgun, mánudaginn
20. september, verður átt-
ræð Ólöf María Guðmunds-
dóttir, Bólstaðarhlíð 41.
Hún tekur á móti gestum
sunnudaginn 19. september
kl. 15 í sal þjónustumið-
stöðvarinnar að Bólstaðar-
hlíð 43.
/AÁRA afmæli. í dag,
O Vfsunnudaginn 19. sept-
ember, verður fimmtugur
Guðmundur Ólafur Bald-
ursson, framkvæmdastjóri
Nota Bene hf., Stararima
16, Reykjavík. Eiginkona
hans er Helga Kristín Stef-
ánsdóttir. I tilefni dagsins
taka þau hjónin á móti gest-
um í Kiwanishúsinu
v/Engjateig, frá kl. 18-21 í
dag.
son.
STAÐAN kom upp á minn-
ingarmótinu um Rubinstein í
Polanica Zdroj í Póllandi í
sumar Gurevich.M (2640) -
Sutovsky,E (2585) [E91] Ru-
binstein Mem, Polanica
Zdroj POL (3), 1999 26.
Hxd4! _ cxd4 27. Dxd4+ _
Kg8 28. Bg4 _ Kf7 29. Hh3 _
h5 30. Df6+ _ Ke8 31. De6 _
Hxf4 32. Bxh5 _ gxh5 33.
Hxh5 _ Hfl+ 34. Kg2 _ Hf8
35. Hh7 _ Hg8+ 36. Kf3 _
Hf8+ 37. Ke2 og svartur
gafst upp.
fýt/AÁRA afmæli. Næst-
I v/komandi þriðjudag
21. september verður sjö-
tug Ingibjörg Pálsdóttir,
Laufvangi 1, Hafnarfirði.
Hún tekur á móti gestum
á afmælisdaginn, ásamt
manni sínum, Gunnari
Hjálmarssyni, að Hjalla-
hrauni 9, í húsi Slysa-
vamafélagsins, Hafnar-
firði, frá kl. 16.-19.
Ljósmyndarinn í Mjódd.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. júlí sl. í Garða-
kirkju af sr. Bjama Þór
Bjarnasyni Vala Guðnadótt-
ir og Jóhann S. Ingimundar-
LJOÐABROT
ORÐABÓKIN
Að fara villur vega
í Mbl. 31. ágúst sl. mátti
lesa eftirfarandi orðalag
hjá blaðamanni: „En þar
virðast menn hafa farið
villur vega...“ Eg hnaut
hér um beygingu lo. vill-
ur, en það mun einvörð-
ungu koma fyrir í orða-
sambandinu að fara vill-
ur vega. Samkv. OM
merkir villur sama og
villtur, sem hefur villzt.
Merking orðasambands-
ins er því sú að vera villt-
ur. Þar er einnig gefið
annað orðasamband:
vera, fara v[illur] um e-ð,
skjátlast um e-ð, vita e-ð
ekki með sannindum. Lo.
villur beygist að sjálf-
sögðu eins og önnur fall-
orð eftir kyni og tölu.
Þannig er sagt, að mað-
urinn hafi farið villur
vega, ef honum hefur
skjátlazt eitthvað. Á
sama hátt er sagt, að
konan hafi farið vill vega
eða barnið hafi farið villt
vega. Sé notuð ft. verða
dæmin þannig: Mennirn-
ir fóru villir vega, kon-
urnar fóru villar vega og
börnin fóru vill vega.
Hér má til samanburðar
hafa lo. villtur, sem er al-
gengt lo. Hann var villt-
ur, þeir voru villtir, hún
var villt, þær voru villtar,
barnið var villt, þau voru
villt. Af þessu má ljóst
vera, að blaðamaðurinn
hefði átt að skrifa, að
mennirnir hafi farið villir
vega, en ekki villur vega,
eins og stóð í Mbl. Þessi
ruglingur í beygingu lo.
er einmitt dæmi um það,
sem getur gerzt, þegar
orð er sjaldgæft í málinu.
- JAJ
STJÖRNUSPÁ
ofl ir Pra nci*x IIra ki>
MEYJA
Þú ert vandlátur og velur
aðeins það besta. Snyi-ti-
mennskan er þér eðlislæg á
öllum sviðum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) "r*
Kastaðu ekki til höndum við
störf þín því þá færðu á þig
illt orð sem getur dregið dilk
á eftir sér. Vel unnin verk
afla þér hins vegar vinsælda
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú skaltu gera ferðaáætlun
og þegar staðurinn hefur
verið valinn skaltu fræðast
um hann eins og þér er fært
svo þú njótir ferðarinnar til
fulls.
Tvíburar t
(21. maí - 20. júní) n í
Fáðu ekki minnimáttar-
kennd þótt þú ræðir við ein-
hvem sem gjörþekkir mál-
efnið því þú hefur fullan rétt
á að láta skoðanir þínar í ljós.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hættu að vorkenna þér og
komdu frekar auga á hvar
þér misferst. Stattu undir
þeirri ábyrgð sem þú tókst
að þér því það er skref í rétta
átt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) iW
Ef þú vilt forðast misskilning
verðurðu að tjá hug þinn all-
an á sannfærandi hátt. Þú
getur ekki ætlast til að aðrir
lesi hugsanir þínar.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <DSL
Þótt þú sért ekki í skapi til
að taka þátt í gleðskap í
kvöld skaltu þekkjast boð
sem þú færð því eitthvað
mun koma þér skemmtilega
á óvart.
(23. sept. - 22. október) m
Láttu hrokann ekki ná tök-
um á þér í samskiptum við
aðra þótt þeir reyni að láta
ljós sitt skína því þú hefur
engan einkarétt á því. Vertu
því hógvær.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér verða falin mannaforráð
og þá skiptir öllu að vera
sanngjarn og láta eitt yfir
alla ganga. Þú færð fólk til
fylgis við þig ef þú sýnir gott
fordæmi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) ítj)
Hafirðu ekki fulla stjóm á
skapi þínu skaltu halda þér
til hlés svo það bitni ekki á
þeim sem síst skyldi. Finndu
út hvað veldur þessu.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) itmf
Samskiptin við samstarfsfé-
lagana hafa aldrei gengið
betur þvl þú leggur svo mikla
áherslu á jákvæðni og hlýtt
viðmót sem hefur áhrif á
aðra.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Hugleiddu þann möguleika
að leggja greiðslukortinu því
þá er auðveldara að hafa
hemil á eyðslunni og þú fljót-
ari að komast á réttan kjöl.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert drífandi og aðrir taka
mark á orðum þínum og
leggja sig í líma að gera eins
og þú biður. Gættu þess að
misnota ekki aðstöðu þína.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki hyggðar á traustum
grunni visindalegra staðreynda.
Leikfimi í Breiðagerðisskóla
BHressandi leikfimi fyrir konur á öllum aldri
hefst þriðjudaginn 21. september.
Skráning og/eða upplýsingar í síma 554 2982.
Arna Kristmannsdóttir, íþróttakennari.
I
Ertu undir miklu álagi?
Ýmsir kviliar að hrjá þig?
Lent í áfalli nýlega?
Uppl. í síma 562 3633, Sveinb|örn.
DREMEL - TIFSAGIR
Óðinsgötu 7
Sími 562 8448
Hársnyrtistofa Ágústar og Garðars,
Suðurlandsbraut 10,
kynnir:
Heiðdís Einarsdóttir (Heiða),
hársnyrtimeistari, er komin til starfa.
Sími 553 2166
Umsókn um framlög ur
Framkvæmdasjóði aldraðra 2000
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr
sjóðnum árið 2000. Eldri umsóknir koma aðeins til greina séu þær endurnýjað-
ar. Nota skal sérstök umsóknare)'ðublöð sem fylla ber samviskusamlega út og
liggja þau frammi í afgreiðslu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
Einnig er ætlast til að umsækjendur lýsi bréflega einingum húsnæðisins, bygg-
ingarkostnaði, verkstöðu, fjármögnun, rekstraráætlun, þjónustu- og vistun-
arþörf ásamt mati þjónustuhóps aldraðra (matshóps) og þar með hvaða þjónust-
uþætti ætlunin er að efla. Umsókn skal fylgja ársreikningur 1998 endurskoðað-
ur af löggiltum endurskoðanda og kostnaðaryfirlit yfir fyrstu níu mánuði ársins
1999.
Sé ofangreindum skilyrðum ekki fúllnægt áskilur sjóðstjórnin sér rétt til að vísa
umsókn frá. Umsóknir skulu hafa borist sjóðstjórninni fyrir 1. desember
1999, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Nýtt — fæst hvergi annars staðar —
Skrúfblvantar fvrir skólann
Sérmerktir með nafni (fást í þremur litum) — verð kr. 1.380.
Sniðugar afmælis- og jólagjafir
Hringið og biðjið
um myndalistann
eða skoðið vöru-
úrvalið á vefnum
www.postlistinn.is.
Sendingarkostnaöur bætist viö
vöruverö.
Afhendingartími
7-14dagar
PÖNTUNARSÍMI
virka daga kl 16-19
557 1960
Að gera gott hjónaband betra
Helgarnámskeið fyrir hjón og sambýlisfólk
um samskipti, tjáskipti og tilfinningar
Næstu námskeið verða:
Reykjavík .... 24.-26. september
fsafirði ........... 1.-3. október
Akranesi ...........8.-10. október
Mosfellsbæ ........ 15—17. október
Keflavík ......... 22.-24. október
Akureyri .........29.—31. október
Stefón Jóhannsson, MA,
fjölskylduráðgjafi
Dagskráin er sett saman með stuttum fyrirlestrum,
vinnublöðum, hópvinnu og myndböndum.
Nánari upplýsingar og skráning í símum 553 8800 og 553 9040
^ Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið