Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 2

Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 2
2 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Utlit fyrir vaxtahækk- anir hjá bönkunum Uppsteypa hafin við Vatnsfell FRAMKVÆMDIR við Vatnsfells- virkjun eru komnar vel á veg og eru nú 108 manns við vinnu á staðnum. Að sögn Geirs Sæ- mundssonar aðstoðarstöðvar- sljóra ganga framkvæmdirnar mjög vel og samkvæmt áætlun. Verið er að setja upp steypumót fyrir um 100 metra langa botn- rás sem mun hleypa vatni undir stífluna. Einnig er byrjað að grafa fyrir stöðvarhúsi og að- rennslisskurði. Líkams- meiðingar í miðbæ HÖRÐ slagsmál brutust út milli tveggja manna fyrir framan skemmtistaðinn Glaumbar í Tryggvagötu um klukkan tvö í fyrri- nótt. Lá annar maðurinn rotaður eft- ir átökin og var fluttur á slysadeild, m.a. með áverka á hnakka. Lögreglan í Reykjavík handtók árásarmanninn og flutti hann í fangageymslur lögreglu. Hann var vistaður þar um nóttina og yfir- heyrður um hádegi í gær, eftir að runnið hafði af honum. Um fimmleytið í fyrrinótt slógust menn í Austurstræti og var einn fluttur á slysadeild í lögreglubíl. Hann var með talsverða áverka í andliti, jafnvel talinn kinnbeinsbrot- inn. Arásaraðilarnir voru famir af vettvangi þegar lögreglan kom á staðinn, en talið er víst hverjir þeir vora og átti lögregla von á að hafa uppi á þeim fljótlega. Grunur um fíkniefni Þá var bifreið stöðvuð klukkan rúmlega fjögur í fyrrinótt og reynd- ust þeir sem í henni voru hafa smá- ræði af hvítu dufti í fórum sínum, sem grunur leikur á að geti verið amfetamín. Tveir menn voru hand- teknir í tengslum við málið. ÚTLIT er fyrir að flestar lánastofn- anir muni hækka vexti sína í kjölfar vaxtahækkana Seðlabanka íslands. Seðlabankinn hækkaði vexti í við- skiptum við lánastofnanir um 0,6% eða 60 punkta á fóstudag. Ekki ligg- ur fyrir hjá einstaka lánastofnunum hve mikið vextimir hækka, sem verður þó að öllum líkindum á næst- unni. Guðmundur Hauksson sparisjóðs- stjóri segir öruggt að vextir SPRON verði hækkaðir á næstunni. Ekki hafi verið rætt innan sjóðsins hve mikil hækkunin verður eða hvenær hún eigi sér stað. Halldór J. Kristjánsson banka- stjóri Landsbankans segist gera ráð fyrir að Landsbankinn hækki sína vexti bæði af innlánum og útlánum í meginatriðum í samræmi við hækk- un Seðlabankans. Formleg ákvörð- un verði ekki tekin fyrr en á mánu- dag en þá verði kynnt hvemig staðið verði að breytingunum. Tryggvi Pálsson, framkvæmda- stjóri íslandsbanka F&M, sagði að íslandsbanki hefði spáð þessum hækkunum á stýrivöxtum Seðla- bankans. Þessi hækkun væri mun stærra stökk en við síðustu breyt- ingar og þess vegna væra þetta skýr skilaboð frá Seðlabankanum. Sagði hann að máUn yrðu skoðuð strax eft- ir helgi hjá Islandsbanka. Vaxtabreytingadagar útlánastofn- ana eru 1., 11. og 21. hvers mánaðar. Ekki náðist í stjórnendur Búnað- arbankans. Togstreita taívanskra stjórnmáiamanna ► Stirðari samskipti Taívans og Kína m.a. afleiðing þessa. /12 Ætlum að standa okkur í samkeppninni ► Mjólkursamlagið í Búðardal nýtur ávaxtanna af vel heppnaðri vöruþróun og færir út kvíarnar austur á bóginn. /24 Áhugamálið varð atvinna ►Viðskiptaviðtalið er við Auði Kristinsdóttur í Heildversluninni Tinnu. /30 ►l-24 Paradís karlmennskunnar ► f hreindýrastöðinni í Isortoq á Suður-Grænlandi hefur Stefán Hrafn Magnússon fest rætur og byggt upp umfangsmikinn atvinnurekstur. / 1&12-15 Þá hefði ég ekki piprað! ► íslensk bændastétt á marga hæfileikamenn innan sinna vé- banda. Einn slíkur er Einar Halls- son í Hallkelsstaðahlíð. /4 Dyraverðir í Djúpinu ►Af lundaveiðimönnum í Borgar- ey í ísafjarðardjúpi. /18 FERÐALÖG ► l-4 Stærsti flóamarkaður í heimi? ►Notting Hill hverfið fræga í London. /2 Morgunblaðið/Emil Þór A ► l-64 í keppni við sjálfan sig ► Margir hafa áhyggjur af vax- andi fákeppni í ýmsum greinum atvinnulífsins. /10 Morgunblaðið/V algeir Sigmarsson Strætisvagn fer sínar eigin leiðir Ökumenn varist sauðkindur LÖGREGLAN á Sauðárkróki vill koma þvi á framfæri við öku- menn að sýna fyllstu varfærni við akstur um Norðurárdal í dag, vegna smölunar úr Silfra- staðafjalli, sem vegurinn liggur um. Hætta er talin á að sauðfé slæðist inn á veginn. Réttir verða í Silfrastaðarétt í dag og má búast við að upp úr hádegi sé mesta hættan á að kindur fari inn á veginn og fram eftir degi. MEÐ Morgunblaðinu í dag er dreift blaði frá Heilsuhúsinu, „Góð heilsa í þínum höndum ... alla ævi“. MANNLAUS strætisvagn rann nokkurn spöl eftir götu í Kópa- vogp, um hálftíuleytið í gær- morgun og þykir mildi að hvorki aðrir bflar né gangandi vegfar- endur hafi orðið fyrir vagninum. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Kópavogi lagði bfl- stjórinn vagni sínum á strætis- vagnastöðinni á Digranesbrúnni og hefur líklega ekki sett hann nógu vel í handbremsu því þeg- ar bflstjórinn var kominn út byijaði vagninn að renna af stað. Vagninn rann vestur yfir hringtorg rétt við strætisvagna- stöðina og fór út af götunni rétt við Borgarholtsbraut þar sem undirgöng eru og stöðvaðist hann ofan á undirgöngunum. Stóð hann fram af brún þeirra en þó aldrei svo mikið að hann hefði getað steypst fram af. Vagninn var losaður með vöru- bflskrana en skemmdist ekki meira en svo að hægt var að aka honum af vettvangi. Verkalýðsfélag Reyð- arfjarðar vill víkja stjórnarmanni ASA Sagður vinna gegn hags- munum launafólks VE RKALÝÐSFÉ L AG Reyðar- fjarðar samþykkti á almennum fundi félagsins ályktun þess efnis að Hrafnkeli A. Jónssyni, ritara Al- þýðusambands Austurlands, yrði vikið úr stjórn þar sem hann, með aðgerðum sínum á Fljótsdalsheiði, hefði unnið gegn hagsmunum launafólks á Austurlandi. Erindið kom fyrir stjórn Alþýðu- sambands Austurlands á föstudag. Þar var bent á að þing sambandsins gæti eitt tekið ákvarðanir um þetta. Einnig var bent á að til þess að vísa mönnum úr stjórn þyrftu að liggja fyrir alvarleg brot á starfi stjórnar- manna. Hrafnkell A. Jónsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hann sæi enga ástæðu til þess að segja af sér og hann teldi sig ekki hafa unn- ið gegn hagsmunum launafólks á Austurlandi. Þvert á móti teldi hann mikla langtímahagsmuni fel- ast í því fyrir Austfirðinga að vinnubrögð við Fljótsdalsvirkjun yrðu eins og best yrði á kosið og því teldi hann rétt að fram færi lög- formlegt umhverfismat á virkjun- inni. Reka nú 80 manna hótel á Brjánsstöðum ►Akváðu að lifa af því sem landið gaf. /4 D BÍLAR ► l-4 Græn bylgja og hestaflakeppni ►Tvær andstæður rákust á á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt. /2 Reynsluakstur ► Fiat Coupé er fjörleg sport- kerra. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► l-24 Fyrsta uppgræðslu- verkefninu lokið ► SKIL 21 og Gróður fyrir fólk. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir l/WS/bak Brids 50 Leiðari 32 Stjörnuspá 50 Helgispjall 32 Skák 50 Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54 Skodun 36 Utv/sjónv. 52,62 Minningar 40 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Mannl.str. 16b Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 22b ídag 50 INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.