Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 14
14 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Sambaæði
í Þýskalandi
GIOVANNl Elber er ekki fyrsti Brasiiíumaðurinn sem leikur í þýsku
knattspyrnunni, en aftur er hann er sá leikmaður sem olli þeirri
fióðbylgju leikmanna frá Brasilíu sem nú tröllríður knattspyrnunni
í Þýskalandi. Allir þekkja miðherjann Elber og samba-takta hans
með Stuttgart og Bayern Miinchen. Færri þekkja hina frábæru
knattspyrnumenn og ianda hans sem nýkomnír eru til liðanna í
Þýskalandi. Þýska blaðið Sport-Bild fékk Elber til að segja álit sitt
á löndum sínum.
Elber byrjar á besta vini sínum í
brasilíska landsliðinu - hinum 23
ára Emerson, sem leikur með
Leverkusen. „Emerson og ég tölum
saman daglega, þrátt fyrir að lið okk-
ar séu harðir keppinautar og komi til
með að berjast um meistaratitilinn,"
segir Elber, sem er undrandi á
hversu framarlega Christoph Daum,
þjálfari Leverkusen, lætur Emerson
leika. „Hann er allt annar og enn
betri leikmaður ef hann fær að sinna
varnarhlutverkinu betur. Það hefur
hann margsýnt með landsliðinu. Það
kom fram í álfukeppninni í Mexíkó,
þar sem hann fór á kostum. Emerson
er mjög þekktur í Brasilíu og var
meira að segja gerður að fyrirliða
liðsins. Það er mikill heiður og sýnir
hversu sterkur persónuleiki hann er.
Hann er enn samt ekki eins góður og
Romario eða Dunga, en hann verður
betri.“
Ze Roberto, 25 ára, er snillingur
með knöttinn og getur leikið hveða
vöm sem er grátt með leikni sinni og
hraða. Hann leikur einnig með
Leverkusen. „Ze Roberto er leik-
maður sem Bayem Miinchen vantar
illilega í leik sinn. Við yrðum ósigr-
andi ef hann væri innan okkar raða -
hefur yfir miklum hraða að ráða og
er fljótur að átta sig á aðstæðum
hverju sinni. Það em fáir sem ráða
við hann þegar hann er kominn á
skrið, enda verða liðin að setja tvo
menn honum til höfuðs er hann fer á
ferðina. Eg hef heyrt að Ulf Kirsten
hafi kvartað um að fá of fáar sending-
ar frá honum, en það er Kirsten sjálf-
um að kenna. Roberto sækir meira
aftur og nær í boltann en Ulf Kirsten
liggur bara frammi og bíður eftir
sendingum. Þegar þeir hafa náð sam-
an verða þeir sennilega hættulegasta
framlínuparið í Þýskalandi.“
Robinson Ponte 22 ára og leikur
einnig með Leverkusen. Hann er
dýrasti leigði leikmaður deildarinnar,
því Leverkusen borgar 120 milljónir
króna í leigu fyrir hann á hverju ári.
„Ponte á eftir að verða fastamaður
hjá Leverkusen. Snilli hans er ótví-
ræð, en hann á eftir ýmislegt ólært.
Hann á eftir að ná upp meiri hraða
og vera fljótari að senda knöttinn til
samherja. Ponte þarf tíma, framtíðin
er hans.“
Marcio Borges er 26 ára - fyrsti
leikmaðurinn frá Brasilíu sem leikur
hjá Bielefeld. Hann er varnarmaður
og viðurkennir Elber að hann hafi
verið undrandi þegar hann sá að
hann var kominn til Þýskalands. Bor-
ges kom frá Waldhof Mannheim til
Bielefeld. „Borges hefur byrjað mjög
vel og sýnt að hann getur líka verið
stórhættulegur sóknarleikmaður
þegar hann vill það við hafa,“ segir
Elber.
Rathino, hinn 28 ára leikmaður
Kaiserslautern, er miðjumaður.
Hann hefur töluvert setið á vara-
mannabekknum hjá Otto Rehhagel.
„Rathino er stundum eins og töfra-
mús - læðist um völlinn. Þú veist
ekki af honum fyrr en hann sprettur
skyndilega í'ram og gerir frábæra
hluti. Hann er „Kokolores" - brand-
arakarl - og við hlæjum mikið að
fyndni hans. Það er ótrúlegt spaug
sem vellur upp úr honum á góðum
stundum.
Staða Rathino hjá Kaiserslautern
er hins vegar ekkert hlátursefni.
Hann hefur átt við töluverð meiðsl að
stríða og svo hefur hann verið að
spila stöður sem falla honum ekki
vel. Ekki bætir úr skák fyrir hann að
Djorkaeff er kominn til liðsins og
gerir samkeppnina enn harðari."
Jesus Junior er annar Brasilíu-
maðurinn hjá Kaiserslautern. Hann
er aðeins 21 árs og hann hefur þegar
sýnt í Evrópuleikjum hversu mikil-
vægur hann er fyrir Kaiserslautem.
„Junior þarf í augnablikinu að leika
töluvert með varaliðinu því öll þrjú
sæti útlendinga [utan Evrópubanda-
lagsins] hjá Kaiserslautem eru
mönnuð með afburðaleikmönnum.
Ég hugsa að hann eigi eftir að fá sér
þýskt vegabréf og þá er hann um leið
orðinn fastamaður hjá góðu liði Ka-
iserslautern," segir Elber um þennan
stórefnilega sóknarleikmann.
Evanilson, sem Dortmund keypti
óvænt fyrir 400 milljónir rétt fyrir
byrjun deildarkeppninnar, er 23 ára.
„Eg óska Dortmund hjartanlega til
hamingju með að hafa fengið Evanil-
son, sem leikur sem hægri útherji.
Hann er ný stjarna í brasilískri
knattspymu - órtrúlega fljótur og
einnig mjög góður varnarmaður.
Evanilson á eftir að fmna sig vel við
hliðina á Lars Rieken. Hann getur
hlaupið endalaust - hvort sem er í
vöra eða sókn. Er ótrúlega ósérhlíf-
inn og verður Dortmund mun meiri
styrkur en nokkur áttar sig á í dag.
Evanilson er svo mikill hlaupagikkur,
að ég hugsa að það þurfi að biðja
hann að hægja á sér til að allir hæfi-
leikar hans fái að njóta sín.“
Dédé, 21 árs, sem kom á síðasta ári
til Dortmund er þegar orðinn stór
stjarna í þýskri knattspyrnu.
„Draumabakvörður sem spilar eins
og sóknarmaður þegar Dortmund er
með boltann og á flestar fyrirgjafir
frá vinstri vængnum. Tækni Dédé er
ótrúleg og er hann nú fastamaður í
brasilíska landsliðinu eftir frábært
tímabil með Dortmund. Hraði Dédé
er ekki bara á vellinum, ég heyrði að
hann hefði nærri keyrt Nienbaum,
forseta Dortmund, niður á bíl sín-
um,“ segir Elber.
Hinn 23 ára Didi, er dæmi um að
félögin fylgjast náið með brasilískum
knattspyrnumönnum. Hann kom
nefnilega til Stuttgart eftir að hafa
verið með brasilísku sýningarliði í
Þýskalandi. „Ég hefði reyndar aldrei
tekið þátt í svona sýningarferðalagi
til að reyna að fá samning,“ segir El-
Einn nýliði er í sextán manna
landsliðshópi kvenna sem Þórð-
ur Lárasson landsliðsþjálfari kynnti
í gær og mætir Ítalíu í riðlakeppni
Evrópukeppninnar í knattspyrnu á
Laugardalsvelli á miðvikudaginn í
næstu viku. Nýliðinn er Guðrún
Sóley Gunnarsdóttir úr KR. Þá kom
Helena Ólafsdóttir, fyrirliði íslands-
og bikarmeistara KR, inn í landsliðið
á ný eftir nokkra fjarveru. Annars er
hópurinn þannig skipaður:
Markverðir:
Sigríður Pálsdóttir.....................KR
Þóra B. Helgadóttir............Breiðabliki
Aðrir leikmenn:
Margrét Ólafsdótir ............Breiðabliki
Rakel ögmunfisdóttir...........Breiðabliki
Sigrún Ottarsdóttir............Breiðabliki
Erla Hendriksdóttir..........Fredriksbergi
Katrín Jónsdóttir..................Kolbotn
Ásthildur Heigadóttir ..................KR
Edda Garðarsdóttir......................KR
Guðlaug Jónsdóttir .....................KR
Guðrún J. Kristjánsdóttir...............KR
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir..............KR
ber, en Dldi hafði heppnina með sér.
„Stuttgart er frábært lið og þar tala
ég af reynslu," segir Elber, sem lék
áður með Stuttgart.
Ailton, sem Werder Bremen fékk
til sín í ár, er 26 ára sóknarmaður.
Elber segist vera í stöðugu sambandi
við hann. „Ég var náttúrlega ekki
ánægður að Bremen stal af okkur
bikarnum, en ég gat virkilega unnt
honum þess sigurs. Ailton hefur ekki
átt auðvelda daga hjá Werder
Bremen og þurft að þola ýmsar að-
finnslur, eins og að hann sé of feitur
- og geti ekki leikið knattspymu.
Hvoratveggja er rangt,“ segir Élber
og bætir við: ,Ailton hefur aldrei ver-
ið grannur, en samt alltaf sóknarmið-
herji í háum gæðarflokki - skorar
mikið af mörkum. Ef hann er metinn
rétt þakkar hann fyrir sig með mörk-
um í öllum regnbogans litum.“
Marcelo Bordon, 23 ára, kom til
Stuttgart til að taka við af Hollend-
ingnum Verlaat, sem óvænt fór til
Ajax. „Hann á eftir að verða einn af
burðarásum Stuttgart, þegar fram
líða stundir. Þessi ljóshærði varnar-
maður er ekki bara eins og Evrópu-
búi í útliti - hann spilar þegar eins og
evrópskur miðvörður. Bardon er
mjög sterkur skallamaður og sterkur
maður á móti manni. Hann hefur
dýrslegt áhugamál - á átta hunda.“
Julio Cesar, hinn 36 ára varnar-
jaxl, kom óvænt aftur í þýsku knatt-
spymuna - gekk til liðs við Werder
Bremen. Hann lék áður með Ilort-
mund en fór á flakk og var síðast í
Grikklandi. „Cesar er algjört fatafrík
eftir langa vera sína á Italíu. Hann
klæðir sig alltaf eins og hann sé að
fara í eigið brúðkaupið," Elber. „Ces-
ar er sem klettur - ákveðinn og þétt-
ur fyrir. Þrátt fyrir aldur sinn á hann
nóg eftir og verður Bremen mikill
styrkur. Og það að hann kom hingað
aftur sýnir að honum líkar hér vel líf-
ið og að hann er stórt nafn hér.“
Paulo Sergio er dýrasti leikmaður
Bayern Munchen. Hann kostaði liðið
500 milljónir króna. Hann var áður
hjá Leverkusen og Roma og nú er
hann kominn til besta liðs Þýska-
lands. „Það var öllum mikið áfall þeg-
ar hann meiddist illa í fyrsta leiknu -
varð að fara í uppskurð við nára-
meiðslum. Auðvitað er frábært að
hafa landa sinn með sér í liði þegar
maður leikur í útlöndum. Ég réð mér
ekki fyrir kæti að Sergio var fenginn
til liðsins. Hann er frábær knatt-
spymumaður og góður félagi. Nú er
hann að verða tilbúinn í slaginn á ný
og við verðum frábærir sarnan,"
sagði Elber, sem á von á skemmti-
legu keppnistímabili.
Helena Ólafsdóttir........................KR
Auður Skúladóttir ..............'.Stjörnuimi
Ásgerður Ingibergsdóttir ............. .Val
Rósa Stcinþórsdóttir ................. .Val
Olga Færseth er meidd og gaf því
ekki kost á sér og sama á við um
Helgu Ósk Hannesdóttur, Breiða-
bliki, og Ingu Dóru Magnúsdóttur,
KR, en Helga og Inga vora í hópnum
í síðasta leik - gegn Ukraínu.
Viðureignin við Ítalíu verður ann-
ar leikur Islands í riðlakeppninni.
Fyrsti Ieikurinn, sem var við ljkra-
ínu, endaði með jafntefli, en íslandi
var úrskurðaður sigur, 3:0, þar sem
Ukraínumenn notuðu ólöglegan leik-
mann í jeiknum.
Lið Ítalíu er sterkt, um það er
engum blöðum að fletta. Það lék til
úrslita í síðustu Evrópukeppi og tap-
aði naumlega, 1:0, fyrir Þýskalandi.
Þá lék það einnig í úrslitakeppni HM
í Bandaríkjunum í sumar, en féll úr
leik í riðlakeppninni.
Einn nýliði
Reuters
Giovanni Elber hefur fagnað mörgum mörkum með Stuttgart
og Bayern Miinchen.
Ætla sér
að stöðva
Duranona
Björn Ingi
Hrafnsson
skrífar frá
Skopje
Stevce Stefanovski, þjálfari
makedónska landsliðsins í hand-
knattleik, segir að erfitt verði að
vinna upp níu marka
forskot íslenska liðsins
frá fyrri leik liðanna og
leggur áherslu á að
stöðva Róbert Julian
Duranona, er skoraði 12 mörk gegn
Makedóníumönnum í Kaplakrika
síðastliðinn sunnudag. Búist er við
um fimm þúsund áhorfendum á leik-
inn í Kale-höllina í Skopje þegar Is-
lendingar mæta Makedóníu í síðari
leik þjóðanna í undakeppni Evrópu-
mótsins í handkanttleik í Skopje í
dag.
„íslendingar era með frábært lið,
eins og sást vel í fyrri leiknum, en
enginn er þó hættulegri en stór-
skyttan Duranona. Það er algjört
lykilatriði að hafa hemil á honum en
við höfum síðustu sex daga þróað
sérstaka varnaraðferð til varnar
stórskyttunni," sagði þjálfarinn.
Makedóníumenn telja sig betur
búna undir átökin við íslenska liðið
en fyrir viku, líkamlegt ástand leik-
manna sé betra aukinheldur sem
þeir verði studdir af þúsundum
áhorfenda í Kale-höllinni, sem sé
stundum kölluð vítið. Státa
makedónskir fjölmiðlar sig af því að
liðið hafi aldrei beðið þar ósigur í
handknattleik, ekki einu sinni fyrir
andstæðingum eins og Spánverjum
og Króötum, svo dæmi séu tekin.
„Byrjunin ræður öllu í leiknum og
vonandi verður heppnin með okkur.
Fyrst og fremst verðum við að leika
betri varnarleik og keyra á fullu frá
fyrstu mínútu. Ég legg áherslu á að
leikmenn líti hvorki á stiga- né
leikklukkuna heldur keyri sig út all-
an tímann. Við sjáum síðan til hvort
það dugar okkur,“ sagði Stefanovski.
Mikill handknattleiksáhugi virðist
í Makedóníu. Fjalla fjölmiðlar þar í
landi geysimikið um landsleikinn við
íslendinga og er honum lýst sem ein-
hverjum mikilvægasta landsleik í
handknattleikssögu þess, ef marka
má stærsta íþróttablað Skopje, höf-
uðborgar landsins. Fjölmiðlar þar
virðast hins vegar hræddir við ráss-
neskt dómarapar er dæmir leikinn
og telja að það verði Islendingum
hliðhollt.
Bílstjóri íslenska landsliðsins, er
kom til Skopje á föstudagskvöld,
sagði að allar götur borgarinnar
hefðu verið auðar er sýnt var beint
frá fyrri landsleik liðanna, er fram
fór fyrir viku. Hann sagði ljóst að
áhuginn yrði meiri nú og nefndi því
til stuðnings að uppselt væri á leik-
inn fyrir löngu. Hann sagði jafn-
framt að öll makedónska þjóðin yrði
sem límd fyrir framan sjónvarpið í
dag er sýnt yrði beint frá seinni
leiknum. Þess má geta að leikurinn
verður einnig sýndur beint á RUV
og hefst útsending kl. 17.50.
Búist er við að sami leikhópur ís-
lenska liðsins og mætti Makedóníu-
mönnum í Kaplakrika hefji leikinn
og að Guðjón Valur Sigurðsson og
Magnús Már Þórðarson hvíli.