Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 25
Unnið er að þvi að byggja við húsnæði Mjólkursamlagsins i Búðardal.
Hér eru Sigurður Rúnar Friðjónsson mjólkursamlagsstjóri, Sævar
Hjalt;ison framleiðslustjóri og Elísabet Svansdóttir gæðastjóri í við-
byggingunni. Tveir deildarstjórar voru ekki viðstaddir myndatöku,
Jóhannes Haukur Hauksson, ostameistari og vöruþróunarstjóri, og
Páll Svavarsson, mjólkursamlagsstjóri á Blönduósi.
lagt niður mjólkurbú í Grundarfirði
og bændur á norðanverðu Snæfells-
nesi gengu inn í samlagið í Búðar-
dal. Arið 1993 var lagt niður samlag
á Patreksfirði og Búðardalsbúið hóf
þjónustu við bændur í Vestur-
Barðastrandasýslu, allt vestur í
Arnarfjörð. Afram var starfrækt
dreifingarstöð á Patreksfirði en nú
hefur verið ákveðið að leggja hana
niður og dreifa mjólkinni beint frá
Reykjavík. Mjólkursamlagið í Borg-
amesi var lagt niður í lok ársins
1995 en það hafði litlar breytingar í
för með sér í Búðardal. Þó fluttist
framleiðsla á sýrðum rjóma og
Engjaþykkni í Dalina.
Enn varð breyting í byrjun þessa
mánaðar. Mjólkursamsalan í
Reykjavík keypti eignir og rekstur
mjólkursamlagsins á Blönduósi og
fól Mjólkursamlaginu í Búðardal
reksturinn. Með því tvöfaldast inn-
viktun mjólkur hjá fyrirtækinu, fer
úr tæplega 4 milljónum lítra í rúm-
lega 8 þúsund lítra. Framleiðendum
á mjólkursamlagssvæðinu fjölgar úr
53 í 110.
Áfram vinnsla
á Biönduósi
Áfram verður framleiðsla í mjólk-
ursamlaginu á Blönduósi og mjólk-
ursamlagsstjóri stýrh- þar dagleg-
um rekstri. Mjólkursamlagið á
Blönduósi hefur sérhæft sig í fram-
leiðslu á nýmjólkurdufti til sælgæt-
isframleiðslu. Segir Sigurður Rúnar
að það verði áfram framleitt ásamt
viðbiti. Unnt er að auka hagkvæmni
duftframleiðslunnar með aukinni
sjálfvirkni og er verið að undirbúa
fjárfestingar á Blönduósi í því
skyni. Þá verður framleiðsla á skyri
aukin á Blönduósi með því að sú
framleiðsla sem fram hefiir farið í
Búðardal verður flutt þangað.
Mjólkurátöppun verður hætt á
Blönduósi með sama hætti og í Búð-
ardal. Reiknað er með að mjólkin
sem ekki verður notuð til fram-
leiðslu á Blönduósi fari til ostagerð-
ar í Búðardal og sem neyslumjólk á
höfuðborgarsvæðið.
Verulegur sparnaður næst með
sameiningu samlaganna. Samlegð-
aráhrifin felast í minni stjórnunar-
og skrifstofukostnaði og sérhæfingu
framleiðslunnar. Fram hefur komið
að sparnaðurinn er mældur í tugum
milljóna og segir Sigurður Rúnar
ljóst að verulegur spamaður náist
þegar á næsta áin. „Þetta styrkir
stöðu beggja rekstrareininganna og
gerir okkur kleift að bæta þjónustu
við mjólkurframleiðendur. Það
skiptir miklu máli í þessum tveimur
landbúnaðarhéruðum þar sem
mjólkurframleiðslan er mikilvæg.
Bæði samlögin hafa fengið mjög
gott hráefni og það gerir okkur
hugsanlega kleift að sækja á ný
mið,“ segir Sigurður Rúnar.
Samlögunum fækkar
Nú þegar starfssvæði Mjólkur-
samlagsins í Búðardal nær yfir
Austur-Húnavatnssýslu er Vestur-
Húnavatnssýsla með samlag á
Hvammstanga eins og eyja í starfs-
svæðinu. Þá er mjólkursamlag á
Isafirði sem _ tekur við mjólk af
bændum í Isafjarðardjúpi og á
norðanverðum Vestfjörðum. „Við
myndum vilja ná samkomulagi við
mjólkurframleiðendur á þessum
svæðum, til þess að tryggja okkar
hag og þeirra," segir Sigurður Rún-
ar þegar hann er spurður að því
hvort til greina komi að útvíkka
starfssvæðið enn frekar. „Við höf-
um þegar óskað eftir góðu samstarfi
við stjómendur mjólkursamlagsins
á Hvammstanga og erum opnir fyr-
ir öllum góðum hugmyndum, en
engar viðræður hafa verið ákveðnar
um kaup á samlaginu eða samein-
ingu.“
Telur Sigurður Rúnar að hinir
gömlu múrar sem verið hafa á milli
mjólkursamlagssvæða séu að
hverfa. Stjórnendur í mjólkurgeir-
anum og bændur hafí áður verið
meira bundnir af hreppa- og sýslu-
mörkum en séu nú farnir að hugsa
meira um hagkvæmnina, á hvaða
hátt væri best að framkvæma hlut-
ina. Því mætti búast við frekari
breytingum í framtíðinni. „Stöðug
krafa um hagræðingu hefur leitt til
sérhæfingar vinnslustöðva á undan-
fórnum árum og fækkunar mjólkur-
búa úr nítján í tólf. Eg sé það fyrir
mér að eftir tvö til þrjú ár verði hér
á landi 2-3 fyrirtæki í mjólkuriðnaði
með nokkrar vinnslustöðvar," segir
mjólkursamlagsstjórinn í Búðardal.
Hann er þess fullviss að áfram verði
unnin mjólk í Búðardal og í samlag-
inu þar verði ein af þeim sex
vinnslustöðvum sem hann reiknar
með að eftir verði í landinu.
Breytingar framundan
Velta Mjólkursamlagsins hefur
tvöfaldast á þremur árum og á eftir
að vaxa enn með yfirtöku reksturs-
ins á Blönduósi. Starfsmönnum hef-
ur fjölgað um 10 á síðustu fimm ár-
um, nú starfa þar 39, auk starfs-
manna á Blönduósi. Mjólkursam-
lagið er einn af mikilvægustu vinnu-
stöðunum í Dalabyggð.
„Við erum öflugur matvælafram-
leiðandi, nánast í útjaðri höfuðborg-
arsvæðisins en þó í landbúnaðar-
héraði þai- sem lögð hefur verið
áhersla á umhverfísmál. Og eigend-
urnir hafa staðið myndarlega að
rekstrinum. Eg tel því að framtíð
fyrirtækisins sé björt,“ segir Sig-
urður Rúnar.
Á næstu árum verða frekari
breytingar í landbúnaði. Verð
meirihluta mjólkurafurða er nú
ákveðið af opinberum verðlags-
nefndum en verðlagning allra
mjólkurafurða verður gefin frjáls í
síðasta lagi 1. júlí árið 2001 nema
hvað ríkið mun áfram tryggja
mjólkurframleiðendum ákveðið lág-
marksverð. „Þetta er hluti af
breyttum tímum og harðnandi sam-
keppni á markaðnum. Eg tel að
neytendur verði ekki varir við stór-
kostlegar breytingar en samlögin
þurfa að standa sig ennþá betur en
þau gera í dag. Samkeppnin mun
veita okkur aðhald, bæði framleið-
endur annarra matvæla og innflytj-
endur. Við höfum verið að búa okk-
ur undir breytingarnar. Þar skiptir
miklu máli að við erum aðilar að öfl-
ugu fyrirtæki, Mjólkursamsölunni í
Reykjavík, og í starfi undanfarinna
ára hefur verið tekið mið af breytt-
um tímum. Við ætlum að standa
okkur,“ segir Sigurður Rúnar Frið-
jónsson, mjólkursamlagsstjóri í
Búðardal.
Frábær skemmtun í vetur
IÐNO leikárið 1999 - 2000
Frankie
(^Johnny
FRANKIE OG JOHNNY
eftír Terrence McNally - Frumsýnlng 24. september
Þegar ástin knýr óvænt dyra, ertu þá tilbúinn til að taka á móti henni?
Tvær einmana sálir finna hinn hreina tón í ástinni þrátt fyrir ólíkan bakgrunn.
Óviðjafnanleg ástarsaga sem gerð var heimsfræg í samnefndri kvikmynd með Michelle
Pfeiffer og Al Pacino í titilhlutverkum. Myndin var góð en leikritið er enn betra.
Leikendur eru Halldóra Björnsdóttir og Kjartan Guðjónsson undir leikstjórn Viðars
Eggertssonar.
STIðRNUR A
■■IIHIMII
I
SJEIKSPIR
EINS OG HANN
LEGGURSIG
STJ0RNUR A MORGUNHIMNI
eftír Alexander Galin - Frumsýníng 28. desember
Atakanlegt og fallegt leikrit. Sögusviðið er Moskva árið 1980. Um leið og
ólympíueldurinn er borinn til borgarinnar húkir hópur undirmálsfólks i köldum
kumbalda svo það særi ekki ímynd Moskvuborgar. Á einni nóttu kynnumst við vonum,
ástum og þrám þessa fólks sem hefur verið svikið um þátttöku i ólympiugleðinni.
Eftir þessa nótt verður ekkert eins og það var...
Magnús Geir Þórðarson leikstýrir sjö manna leikhópi sem skipaður er nokkrum ffemstu
leikurum landsins. Sett upp í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.
SJEIKSPÍR EINS OG HANN LEGGUR SIG
(fluttur á 97 mínútum) - Frumsýning í lok febrúar
Rússíbanaferð á hljóðhraða gegnum öll verk William Shakespeare i þýðingu Gísla
Rúnars Jónssonar. Frábært verk sem farið hefur sigurför um Bretland og Bandarikin
og tekur nú ísland með trukki.
Varúð!
Sýningin er ekki fyrír hjartveika, bakveika, taugaveiklaða ogfólk sem tekur sig
of hátíðlega. Iðnó tekurenga ábyrgð á afleiðingum.
Þijár stórstjörnur af yngri kynslóðinni leika undir leikstjórn Mariu Sigurðardóttur.
ROMMI
eftír D.L Coburn - Tekií upp frá fyrra leikiri
Ekkert lát er á vinsældum Rommí sem hefur nú gengið sleitulaust fyrir fullu húsi i
heilt ár.
„...öminnig um hvað leikhús er" G.S. Dagur
„Bráðskemmtilegt, tragikómík afbestu gerð"S.A.B. Mbl
„Guðrún Ásmundsdóttir náði svo fullkomnu valdi á persðnunni að hún sendi hroll
niður bakið á manni. “ S.A. DV
„Erlingur Gíslason átti sannkallaðan stórleik í hlutverki Wellers." G.S. Dagur
Guðrún Ásmundsdóttir og Erlingur Gíslason leika undir leikstjórn Magnúsar Geirs
Þórðarsonar.
-<
ÞJONN
i súpunni
ÞJÓNN I SÚPUNNI - Tekið upp frá fyrra teikárí
Sprellfjörug leiksýning sem kemur ætið á óvart. Leikurinn berst um viðan völl og alla
leið út i Tjörn. Enginn er óhultur og ekkert er heilagt.
Sýning sem er að verða sígild.
„stórkostíeg" A.E. DV
„bráðskemmtileg" S.H. Mbl
„afbragðs skemmturí' G.S.H. Dagur
Leikendur eru Edda Björgvinsdóttir, Stefán Karl Stefánsson, Kjartan Guðjónsson og
Sigrún Edda Björnsdóttir. Leikstjóri er Maria Sigurðardóttir.
MEDEA
eftír Evrípídes - Frumsýnt um páskana
Sígilt verk um blinda ást, botnlaust hatur, svik, hefnd og morð. í nýrri leikgerð Þóreyjar
Sigþórsdóttur og Ingu Lisu Middleton. Sýning þar sem listamenn úr ýmsum áttum nýta möguleika
ólíkra miðla á spennandi hátt
Leikstjóri: Hilmar Oddsson
Hönnun myndbandsatriða: Inga Lísa Middleton
Leikmynd: Steve Christer
Sett upp í samstaifi við Fljúgandi fiska og er á dagskrá Reykjavíkur, menningarborgar Evrópu
árið 2000.
teikir
HAÐEOÍSLETKHUS
LEIKIR
eftír Bjarna Bjarnason - Frumsýnfng 6. oktðber
Verðlaunaleikrit sem fjallar um leikina sem verða til þegar karlar eru f konuleit og
konur eru í karlaleit. Leikstjóri er Hiimir Snær Guðnason.
HADEGISLEIKHUS
LEITUM AÐ UNGRI STULKU
eftír Krístján Þórð Hrafnsson - Tekið upp frá fyrra leikári
Eldfjörugt gamanleikrit um ólikt fólk. Sýningin var sýnd fyrir fullu húsi síðasta vetur.
Linda Ásgeirsdóttir og Gunnar Hansson leika undir leikstjórn Magnúsar Geirs
Þórðarsonar.
HADEGISLEIKHU5
1000 EYJA SOSA
eftir Hallgrím Helgason - Tekið upp frá fyrra leikári
Leikrit um yndislega óþolandi náunga. Kjörið fýrir alla sem hafa einhvern tímann stigið
upp í flugvél. Leikari er Stefán Karl Stefánsson og leikstjóri Magnús Geir Þórðarson.
HADEGISLEIKHUS
K0NAN MEÐ HUNDINN
eftír Anton Tsjekhov - Frumsýning í iok janúar
Tsjekhov-aðdáendur geta nú glaðst, þvf í vetur verður þekktasta smásaga Tsjekhov
sviðsett í fyrsta sinn hérlendis. Leikstjóri er Guðjón Pedersen en fyrri uppsetningar
hans á verkum Tsjekhov hafa vakið verðskuldaða athygli.
IÐNO-kortið
mmmmmmmmm
3.sýning
ViSA
0
FRIÐINDA
KLÚBBURINN
Þú velur!
Sex leiksýningar og tvær
gómsætar máltíðir á 7500 kr.
fyrír korthafa VISA
Vegna frábærra viðtaka er tilboðið framlengt til
30. september. Tryggðu þér fast leikhússæti á
lágmarksverði. Veldu fjórar kvöldsýningar og tvær
hádegissýningar. Að auki færðu tvær gómsætar
máltíðir í hádegisleikhúsinu og 20% afslátt af allri
starfsemi í húsinu.
IÐNÓ - sími 5 30 30 30 - fax 5 30 30 31
netfang idno@idno.is - veffang www.idno.is
; *
mrmm ■
Íf)HÓ