Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 28
28 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
r
UTSENDINGAR á dagskrá á
annarri sjónvarpsrás til við-
bótar þeirri sem fyrir er eru
nú til alvarlegrar skoðunar
hjá Ríkisútvarpinu og vonast
Markús Orn Antonsson útvarps-
stjóri til þess að hægt verði að ráð-
ast í hana á afmælisári Ríkisút-
varpsins á næsta ári þegar það
verður sjötugt.
I 16. grein útvarpslaga segir að
Ríkisútvarpið skuli senda út tii alls
landsins og næstu miða tvær hljóð-
varpsdagskrár og minnst eina sjón-
varpsdagskrá árið um kring. Jafn-
framt er Ríkisútvarpinu heimilað
samkvæmt sömu grein að senda út
fleiri dagskrár hljóðvarps og sjón-
varps í lengri eða skemmri tíma til
alls landsins eða hluta þess sam-
Icvæmt ákvörðun útvarpsstjóra og
útvarpsráðs.
Áhersla á að þjóna
landsmönnum öllum
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri segir aðspurður augljóst að
Ríkisútvarpinu sé mjög þröngur
stakkur skorinn með því að vera að-
eins með eina dagskrárrás fyrir
sjónvarpsefni. Líta verði til þess að
það hafi verið mikið átak að koma
sjónvarpi út um allt land og miklu
meiri kröfur um þjónustustig í þeim
efnum væru gerðar til sjónvarps
Ríkisútvarpsins heldur en gert væri
til annarra stöðva. Aherslan hefði
Beinar útsendingar frá íþróttaviðburðum
hér á landi og erlendis eru fastur liður á
dagskrá sjónvarpsins en verða oft til þess
að hnika þarf til föstum liðum á dagskránni
við mismunandi undirtektir áhorfenda eftir
því hvort þeir eru íþróttaáhugamenn eða
ekki. Nú kann að hilla undir breytingar í
þessum efnum með annarri sjónvarpsrás
Ríkisútvarpsins.
verið lögð á að þjóna landsmönnum
öllum og sjónvarpið hefði náð til
hærra hlutfalls þjóðarinnar heldur
en dæmi væru þekkt um annars
staðar meðal Evrópuþjóða.
„Hvað sem því líður eru breyttir
tímar og við verðum þess áþreifan-
lega vör að það er mjög mikið óhag-
ræði fyrir okkur varðandi það dag-
skrárframboð sem nútímasjón-
varpsstöð þarf að geta boðið upp á
að hafa aðeins eina rás og eiga að
koma öllum efnisflokkum fyrir þar á
góðum áhorfstíma svo að allir séu
sæmilega sáttir. Þar af leiðandi tel
ég að það sé mjög brýnt fyrir okkur
að gera ráðstafanir til þess að fá
aðra útsendingarrás og auka þar
með möguleika okkar til að þjóna
sjónvarpsáhorfendum," sagði Mark-
ús.
Hann sagði að í gegnum tíðina
hefði það staðið í mönnum að ráðast
í aðra útsendingarrás vegna þeirrar
áherslu sem lögð hefði verið á að ná
til landsins alls. Litið hefði verið á
Ríkisútvarpið sem þjón-
ustutæki í þágu allra
landsmanna og hug-
myndinni um aðra rás
þokað til hliðar í gegnum
tíðina vegna þe.ss að ekki
væri hægt að ná til allra lands-
manna í fyrstu atrennu. Augljóst
mál væri að Ríkisútvarpið hefði
ekki haft fjárhagslegt bolmagn til
að skapa skilyrði á svipstundu fyrir
því að 99% þjóðarinnar næðu
annarri rás. Uppbygging annarrar
rásar yrði því fyrst að eiga sér stað
á þéttbýlissvæðunum á suðvestur-
horninu, en síðan yrði fljótlega
hægt að fikra sig út um landið. í því
sambandi mætti rifja upp að Rás 2
og sjónvarpið á sínum tíma hefðu
átt sína frumbemsku á þéttbýlis-
svæðunum og síðan hefði dreifing-
arkerfið verið byggt upp í framhald-
inu.
„Ég tel alveg tvímæla-
laust, ef tæknileg skilyrði
eru til staðar og þessi
framkvæmd verði innan
viðráðanlegra marka
fjárhagslega, að það eigi
að ráðast í hana þó svo að við getum
ekki lofað öllum landsmönnum að
njóta þeirrar dagskrár þegar í upp-
hafí. Þetta er það brýnt viðfangsefni
fyrir nútímafjölmiðil að fá aðra út-
sendingarrás að við getum ekki lát-
ið ströngustu byggðasjónarmið
aftra okkur,“ sagði Markús.
Hann sagði aðspurður að það
væri verið að skoða möguleikana í
þessum efnum nú. Það væri verið að
gera úttekt á því hvaða breytingar
þyrftu að eiga sér stað vegna nýrrar
rásar. Sjónvarpið væri með aðra
VHF-rás á höfuðborgarsvæðinu og
gæti notað hana til útsendingar á
dagskrá á því svæði. Reyndar hefði
það tíðnisvið áhrif víðar og ef styrk-
urinn yrði aukinn myndi það kalla á
breytingar á sendakerfinu í nokk-
urri fjarlægð frá höfuðborgarsvæð-
inu, en það ætti ekki að vera óyfir-
stíganlegt. „Þessi rás er til staðar.
Ríkisútvarpið hefur haft afnot af
henni undanfarna áratugi til að fylla
upp í holur sem við köllum svo í
móttökunni hér á höfuðborgarsvæð-
inu. Hana er hægt að nota í þessu
skyni og að því ber tvímælalaust að
stefna. Tæknimenn okkar eru að
gera þessar athuganir núna,“ sagði
Markús.
Aðspurður hvort menn hefðu fyr-
ir sér einhverja tímaáætlun í þess-
um efnum sagði Markús erfitt að
fullyrða um hvenær af þessu yrði.
„Ég vildi nú mjög gjarnan sjá svona
tímamót verða í sjónvarpsútsend-
ingum Ríkisútvarpsins á afmælisár-
inu, þ.e.a.s. á næsta ári þegar stofn-
unin verður sjötug,“ sagði Markús
að lokum.
Mikilvægt að tileinka
sér nýja tækni jafnóðum
Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra segir að vafalaust sé það fyrst
og fremst tæknin og kostnaðurinn
við að byggja upp dreifikerfi sem
nái til landsins alls, sem standi í
vegi fyrir því að Ríkisútvarpið hafi
ráðist í útsendingu annarrar sjón-
varpsrásar. Tækniþróun í þessum
efnum sem öðmm sé mjög ör og það
sé mikilvægt að tileinka sér hina
nýju tækni jafnóðum og hún komi
fram. „Ég hef beint því til Ríkisút-
varpsins að kanna hvort ekki sé
hægt að hefja hér sendingar um
gervitungl. Ég hef ekki fengið svar
við því bréfi frá Ríkisút-
varpinu, en mér er sagt
að þeir séu að athuga
kosti í þeim efnum. Ég
tel að það séu raunhæfar
forsendur fyrir því að
hefja útsendingar á íslensku efni
um gervitungl og það eigi að kanna
möguleikana í þeim efnum til hlít-
ar,“ sagði Bjöm.
Hann sagði einnig að í frumvarpi
til nýrra útvarpslaga sem hann
hefði flutt á síðastliðnum vetri væri
gert ráð fyrir að farið yrði að huga
að stafrænu útvarpi og sjónvarpi
hér á landi. „Það er alveg augljóst
að kröfumar til Ríkissjónvarpsins í
þessum efnum em að breytast. Það
er ekki eins mikið mál og það var
áður að senda út á fleiri en einni
rás,“ sagði Björn.
Aðspurður hvort hann teldi æski-
legt að Ríkisútvarpið sjónvarpaði á
fleiri en einni rás sagði Bjöm að það
væri skylda Ríkisútvarpsins að ná
til landsins alls og það yrði að skoða
hvaða kostnaður fylgdi slíkri rás.
Þetta væri fjárhagslegt dæmi og
tæknilegt úrlausnarefni. Tækninni
fleygði fram í þessum efnum. Nú
væri til dæmis hægt að ná í sjón-
varpsdagskrár með tölvum. Að hans
mati tengist þetta umræðu um þær
tæknilegu breytingar sem eru að
verða á þessu umhverfi. Hann hafi
ítrekað sagt að það þyrfti að styrkja
forsendur Ríkisútvarpsins til að
vera virkur þátttakandi í þessari
þróun. Hins vegar væru öllum
skorður settar í fjárhagslegum efn-
um og það væri spuming hvort nýta
mætti það fjármagn sem væri til
umráða með öðmm hætti en nú er
gert. Ríkisútvarpið hefði
líka þá sérstöðu að það
mætti hafa tekjur af aug-
lýsingum auk afnota-
gjaldanna og hugsanlega
mætti fjármagna fleiri
rásir með meiri tekjum af auglýs-
ingum. „Eins og ég hef margsinnis
sagt tel ég að tæknilegt umhverfi,
samkeppni og fjárhagsleg atriði
kalli á að menn veiti Ríkisútvarpinu
sambærilegt svigrúm í rekstri og
keppinautarnir hafa,“ sagði Bjöm
Bjamason menntamálaráðherra
ennfremur.
Bjami Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins, sagði í
Erfitt að gera
öllu efni skil á
einni rás
Rásin yrði að
standa undir
rekstrinum