Morgunblaðið - 19.09.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 31
Svo mikil var sparsemin að ég
nýtti reiknirúllurta báðum meg-
in. íslensk peysuhönnun á
framtíð fyrir sér en það þarf
að finna henni farveg. Á ís-
landi er rík hefð fyrir því að
prjóna flíkur til sængurgjafa.
léttara íyrir mig að hætta þegar ég
vissi að kennslunni yrði haldið
áfram í Flensborgarskóla."
Framundan er svo hannyrðasýn-
ing í Kaupmannahöfn í vetur í sam-
starfi við hannyrðaverslunina
Sommerfuglen í Danmörku, og
hefur íslenskum hönnuðum og
hannyrðafólki verið boðin þátttaka
í sýningunni.
Tuttugu og tvö tonn á ári
Þótt íslenska kvenþjóðin sé önn-
un kafin frá morgni til kvölds hefur
áhugi hennar á prjónaskap ekkert
minnkað að sögn Auðar.
„Kunnátta og verklagni hefur
alltaf búið með þjóðinni, auk þess
sem það hefur ætíð verið borin
virðing fyrir þeirri iðju að prjóna
flíkur. Fólki finnst gaman að skapa
og gera eitthvað nýtt og þótt það
sé störfum hlaðið finnur það sér
tíma til að prjóna. Það er líka slak-
andi og gott að stunda prjónaskap.
Hann er gefandi og hægt að við-
hafa hann nánast hvar sem er, til
dæmis í sumarbústaðnum eða fyrir
framan sjónvarpið.
Það er líka viss umhyggja fólgin
í því að pijóna flíkur á aðra. Sá
sem prjónar velur lit, mynstur og
snið, gefur af sjálfum sér og sendir
skýr skilaboð til þess sem peysuna
á að fá.
Á íslandi er rík hefð fyrir því að
prjóna flíkur til sængurgjafa og
mæður prjóna gjaman skólapeys-
ur á börn sín. Þær eru stoltar af
því að láta börn sín hefja skóla-
gönguna í nýjum, heimaprjónuðum
peysum. En það er með prjóna-
skapinn eins og annað í lífi konunn-
ar, hún setur sjálfa sig í aftasta
sæti. Prjónar fyrst á börnin, síðan
á eiginmanninn og loks á sjálfa
sig!“
Utivist landsmanna hefur aukist
hin síðari ár og Auður er spurð
hvort hún haldi að peysurnar muni
sækja á í framtíðinni?
„Eg veit að prjónaskapur er að
aukast sem má ef til vill rekja til
þess að gróft gam er að komast í
tísku og ég held að alla langi til að
eiga að minnsta kosti eina útprjón-
aða útivistarpeysu."
Góð sala segir þó margt um
áhuga landsmanna á hlýjum flík-
um. „Eg er mjög ánægð með söl-
una og hún er mun meiri en víða
annars staðar sé miðað við höfða-
tölu. Við seljum núna 22 tonn af
gami á ári.“
Innsæið hjálpar
íslendingar fylgjast vel með
tískunni og Auður segist vera með
kröfuharða viðskiptavini hvað það
snerti. „Það er því mjög mikilvægt
að vera á réttum tíma með lit og
snið. Ég fer tvisvar á ári til Noregs
og vinn með framleiðendum Sand-
nesgarns. Þá er spáð í tísku-
strauma, liti og snið. Þrisvar tO
fjóram sinnum á ári fer ég svo með
markaðsstjórum á sýningar til
Frakklands og Ítalíu og sé þá
hvernig tískan mun verða næstu
tvö árin. Það er mikið atriði að
fylgjast með og vera með rétt gam
og liti á hverjum tíma.“
Auður segir að mesta vinnan
liggi í útgáfu prjónablaðsins. „Tími
minn fer helst í að viða að mér efni.
Ég reyni að finna hvar hjartað
slær, hvað það er sem koma skal.
Maður verður að hafa nefið iyrir
tískunni og þá er það helst innsæið
sem hjálpar.“
Auður segir að reynsla hennar
sem kennari eigi eflaust sinn þátt í
góðu gengi fyrirtækisins. „En auk
hennar þarf sjálfsagt að vera gott
samspil milli faglegrar þekkingar
og viðskiptavits til að fyrirtæki
sem þetta geti gengið.
En það má með sanni segja að
hinum félagslega þætti sem ég
nefndi í upphafi hafi verið svalað,
því á ferðum mínum bæði innan-
lands og utan hitti ég margt fólk.
Ég á góð samskipti við það og allir
dagar era gleðidagar."
Innréttingar
Baðinnréttingar
og hreinlætistæki
Fyrir stærstu
sem smæstu
baðherbergi.
Manud.-föstud. 9-18
Laugard. 10-14
Sídumúla 34
Vi& Fellsmúla
Sími 588 7332
Fax 588 7335
rérslunin.is
http://www.
Mánudaginn 20. september n.k. stendur Nýherji
fyrir einstökum fyrirlestri á Grand Hótel.
Þar mun Dr. Frank Soltis, einn af aðalhönnuöum IBM
veita gestum innsýn í framtíð upplýsinga-
tækninnar á komandi öld.
Dr. Frank Soltis
Fyrirlestur hjá Dr. Soltis þykir ávallt mikill fengur því hann hefur um
árabil verið mjög áberandi í hinum ört vaxandi tölvuheimi.
Áhrifa hans hefur gætt mjög í þróun vél- og hugbúnaðar
sem og í almennri stefnumörkun IBM. Hann hefur hlotið
margvíslegar viöurkenningar fyrir störf sín og á yfir 25
einkaleyfi á hlutum tengdum tölvutækni. Undanfarin ár
hefur Dr. Soltis tekið þátt í hönnun PowerPC
örgjörvans (64 bita RISC) ásamt þvi að leiða
notkun þess örgjörva hjá IBM.
Fyrirlesturinn, sem fer fram á ensku,
stendur frá 8:30-10:00. Aðgangur er ókeypis.
Léttar veitingar í boði Nýherja. Vinsamlegast
tilkynnið þáttöku með rafpósti á netfang:
omar@nyherji.is eða i síma 569 7700.
Business
Partner
NYHERJI
SkaftahliO 24 • Simi 569 7700
Slóö: http://www.nyherji.is
Morgunverðarfundur um