Morgunblaðið - 19.09.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 37
SKOÐUN
Ef takast á að fjölga
íbúum á Eyjafjarðar-
svæðinu er það frum-
forsenda að góð sam-
staða náist um mark-
mið, segir Benedikt
Björnsson. Þá er einnig
hægt að fylgja málum
betur eftir.
vanda vel til verka við gerð mann-
virkja. Mannvirki standa lengur en
áður var. Þó er það svo að sumar
byggingar eru börn síns tíma og eiga
sér skemmri aldur en aðrar. Engu
að síður getur reynst nauðsynlegt að
stuðla að ýmsum nútímalegum fram-
kvæmdum. Með því að skoða bygg-
ingar síðustu áratuga má að nokkru
lesa atvinnusögu þjóðarinnar. Varla
verður það harmað að stórbyggingar
voru reistar á Akureyri, Hjalteyri,
Siglufirði og víðar fyrr á öldinni,
enda þótt menn greini nú á um útlit
þeirra og nýtingu.
Telja verður að þorri íbúa á Eyja-
fjarðarsvæðinu óski eftir framförum
á öllum sviðum og geri ráð fyrir auk-
inni velsæld og bættum hag. Frá
þessu virðast þó vera nokkrar undan-
tekningar meðal manna, þar sem ber
á tilhneigingu þeirra til þess að snúa
hjóli tímans í öfuga átt. Þess gætir í
tengslum við afstöðu til nútíma at-
vinnuþróunar. I frumvinnslugreinum,
þ.e. í landbúnaði, fiskveiðum og -
vinnslu, fækkar störfum óðfluga.
Eignarkvótakerfið takmarkar einnig
eða útilokar alla nýliðun innan þeirra
greina nema e.t.v. á löngum tíma.
Nauðsynlegt er að reyna að sneiða
framhjá slíkum ófögnuði í nýjum at-
vinnurekstri og smeygja af sér fjötri
fortíðar.
Ný störf og atvinnugreinar þurfa
að koma til. Breiddin þarf að vera
sem mest, þess vegna hefur Sam-
vinnunefnd um svæðisskipulag Eyja-
fjarðar lagt til að öll svið atvinnulífs
verði skoðuð m.t.t. aukinnar sóknar.
Eitt umdeildasta atriðið varðandi
stefnumörkun samvinnunefndarinnar
í atvinnumálum er lagning raflína að
stóriðjusvæðinu við Dysnes. Ef sveit>
arfélög, sem aðild eiga að svæðis-
skipulagi Eyjafjarðar, taka afstöðu
sem felur í sér kröfu um að raflínur
skuli að mestu grafnar í jörð, þar sem
þær liggja í gegnum sveitarfélagið,
skapast vandi. Vegna kostnaðarauka
við raforkuflutning, sem af þessu leið-
ir, er tillaga um stóriðju að líkindum
orðin óarðbær. Með þessu gæti málið
aftur lent á upphafsreit og tiltekið at>
riði í staðfestu aðalskipulagi ná-
grannasveitarfélags yrði nánast skop-
legt. Abyrgð sveitarstjórnarmanna er
því mikil og er vonandi að þeir geri
sér fulla grein fyrir því. Ef svo færi
að stóriðjukostir teldust ekki raun-
hæfir, séð frá ýmsum hliðum þess
máls, verður engin slík raflína lögð.
Stefnan er eingöngu sú að hér verði
tiltækir möguleikar fyrir hendi, ef
álitlegt tilboð gefst á fyrsta áratug
nýrrar aldar.
Nokkuð almenn samstaða hefur
náðst um önnur helstu mál sem fram
koma í tillögu samvinnunefndarinnar
þegar frá er talinn nýr sorpurðunar-
staður sem nokkuð skiptar skoðanir
eni um. Nú á dögum er gert ráð fyrir
að urðunarstaðir séu sómasamlegir
og lagður sé metnaður í vandaða
framkvæmd að öllu leyti. Sumh- telja
þó að sorpbrennsla sé betri kostur.
Eins og staða mála er nú hafði verið
gert ráð fyrir að frumathugun færi
fram á tilteknu svæði í landi Syðri-
Bakka í Arnarneshreppi. Sveitar-
stjórn hefur nú hafnað þessari tillögu.
Það er því mjög mikilvægt að finna
annan valkost sem tekinn verði til at-
hugunar.
Ef takast á að fjölga íbúum á Eyja-
fjarðarsvæðinu er það frumforsenda
að góð samstaða náist um markmið.
Þá er einnig hægt að fylgja málum
betur eftir. Samræmdur undirbún-
ingur sveitarstjóma á svæðinu varð-
andi landnotkun og margt annað mun
án vafa skila mun meiri árangri held-
ur en sérálit sem stefna í margar átt-
ir.
Megi náttúrufegurð og framfarir
einkenna Eyjafjarðarsvæðið um
ókomna tíð.
Höfundur er arkitekt.
barnaskórnir
eru komnir
SMÁSKÓR
Sérverslun m/barnaskó
í bláu húsi við Fákafen,
sími 568 3919.
mbl.is
FRUMSYNING: OVISSAN
s?4:u. j.A'í. m-j»WKkmÆ%
Mynd sem allir verða að sjá
Á.Þ. RÚV
www.sony.com
Talin besta John Sayles (Lone Star) myndin til þessa. Var kynnt á nýafstaðinni Kvikmyndahátíð og hlaut frábærar
viðtökur. Titillagið, Lift Me Up er sungið af Bruce Springsteen.
Aðalhlutverk: Mary Elizabeth Mastrantonio (The Color of Money, The Abyss), David Stratnairn
(River Wild, Dolores Claiborne) og Kris Kristoferson (Lone Star, Payback).