Morgunblaðið - 19.09.1999, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ
STEFÁN
JASONARSON
Sunnudaginn 19.
september er bóndinn,
félagsmálafrömuðurinn
og íþróttakappinn Stef-
án Jasonarson í Vorsa-
bæ orðinn áttatíu og
fimm ára að aldri. Stef-
án ber aldurinn vel þótt
elli kerling beiti hann
brögðum sínum sem
aðra.
Stefán hefur ævi-
langt setið á föðurleifð
sinni, Vorsabæ í Flóa,
þar sem hann rak bú-
skap um hálfrar aldar
skeið og veitti forstöðu
ungmennafélagi sveitarinnar og bún-
aðarmálum bænda á Suðurlandi af
fádæma dugnaði og
ósérhlífni. Stefán vald-
ist ungur til forystu í
Umf. Samhygð og hefur
þar eflaust valdið mestu
áhugi hans og hæfileik-
ar. Stefán krafðist mik-
ils af öðrum og vildi að
allir legðu hönd á plóg-
inn. Það hversu vel hon-
um varð ágengt við að
fá unga fólkið í sveitinni
til að skipa sér undir
merki félagsins hefur
vafalaust valdið miklu
að allir fundu að hann
krafðist mest af sjálfum
sér og lagðist þyngst á árina þegar
átaka var þörf. Það væri langt mál
Styrktarsjóður
Svavars Guðnasonar
listmálara
og Ástu Eiríksdóttur
Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur
óskar hér með eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum.
Styrkurinn er að upphæð kr. 900.000.- og veitist þegar á
þessu ári þremur ungum, efnilegum myndlistarmönnum.
Eftirfarandi upplýsingar og gögn þurfa að fylgja umsókn-
um: Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang og síman-
úmer, þrjár til fimm ljósmyndir eða litskyggnur af verkum
umsækjanda ásamt ítarlegum náms- og listferli.
Umsóknir merktar Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og
Ástu Eiríksdóttur sendist fyrir 15. október til Listasafns
fslands, P.O. Box 668, 121 Reykjavík.
í dómnefnd sitja:
Ólafur Kvaran, safnstjóri Listasafns fslands, s. 562 1000,
Björg Atla, SÍM, s. 551 7706 og
Halldór Bjöm Runólfsson, LHÍ, s. 551 0131.
að telja fram öll störf Stefáns innan
Bæjarhrepps og utan sem öll voru
mannlífi til heilla og hagsbóta. Því
mátti fremur undrast það að hann
skyldi gefa sér tíma til að reka ágætt
og arðsamt bú, ekki stórt en yfir
meðallagi.
Maður sem hefur jafn víðfeðmt
áhugasvið og Stefán þarf að skipu-
leggja sinn tíma vel og nýta hann til
að koma hlutverkum í verk. Eg var
nágranni hans í tvo áratugi, frá
bamsaldri og sá oft hversu vel hon-
um tókst þar til. Mér er minnisstætt
þegar sást til Stefáns koma akandi á
jeppanum ofan veg, að koma úr
kaupstaðarferð frá Selfossi eða öðr-
um erindum. Stefán ók í hlað, snar-
aðist inn í bæ og var jafnsnemma
kominn út aftur í hversdagsklæðum
og farinn að hamast í einhverju verki
sem þurfti að vinna. Þrátt fyrir
þessa kappsemi við vinnu er Stefán
með öllu laus við þann kvilla sem
heitir stress eða streita. Það var sið-
ur hans í hádeginu að leggja sig litla
stund og lesa Tímann. Eftir andar-
tak breiddi hann blaðið yfir andlitið
og var steinsofnaður. Reis svo upp af
miklu fjöri eftir 5-10 mínútur og var
þá sem nýr maður. Þetta streituleysi
held ég að eigi ekki lítinn þátt í góðri
heilsu hans og léttleika sem lítið hef-
ur látið á sjá.
Stefán lagði mikla áherslu á að
fólk ætti að gefa sér tíma til að líta
upp úr brautstritinu. Hann átti það
til að fara í skemmtiferðir með sitt
fólk, jafnvel um hásláttinn, við furðu
betri bænda sem aldrei litu upp frá
verkunum. Þó var það svo að oftast
var Stefán fyrri til en þeir sömu
menn að ljúka heyskap og öðrum
hefðbundnum búskaparönnum.
En Stefán var ekki einn að verki.
Það var hans happadagur þegar
hann kvæntist Guðfinnu Guðmunds-
dóttur frá Túni og þau settust að í
Vorsabæ. Guðfinna hefur verið hans
stoð og stytta og oft komu búverkin í
hennar hlut í meira mæli þegar
bóndinn var að heiman. Guðfinna er
afskaplega heilsteypt kona sem læt-
ur lítið yfir sér en hefur þess meira
til að bera af manngæsku og hóg-
værð sem eru hennar aðalsmerki.
Fimm börn þeirra eru í mörgu lík
foreldrunum og held ég það megi
teljast meðmæli. Það er leitun á jafn
samrýndum hjónum og Stefáni og
Guðfinnu, og nú þegar ellin sækir að
bæta þau hvort annað upp með sinni
gagnkvæmu hlýju og umhyggju. Og
enn þá halda þau heimili í gamla
bænum í Vorsabæ þar sem þau hafa
búið allan sinn búskap.
Stefán var allra manna kvikastur
og röskvastur til vinnu og áhuga-
maðui’ við hvað sem hann tók sér
fýrir hendur. íþróttamaður góður á
yngri árum og léttstígur hlaupari,
æfður í að stikla á mýrasundum og
móaflákum Flóans. Ungur maður
sigraði hann í víðavangshlaupi á
Landsmóti UMFÍ í Haukadal 1940
og nýlega tók han þátt í árlegu víða-
vangshlaupi Samhygðar, lang elstur
keppenda. Landsmenn minnast þess
þegar hann, áttræður, gekk langleið-
ina hringinn í kringum Island á ári
aldraðra og mættu margir yngri
menn þakka fyrir það atgervi sem
honum er gefið.
Stefán er föðurbróðir minn og þar
sem ég er fæddur og uppalinn á
næsta bæ, Vorsabæjarhóli, voru
samskipti okkar margvísleg í upp-
vexti mínum. Þegar ég fór að full-
orðnast komst sá háttur á að við
Stefán fórum saman á vorin og lag-
færðum girðingar á landamerkjum
jarðanna. Þá var Stefán um fimm-
tugt en ég nálægt tvítugu og þjálfað-
ur þolhlaupari. Stefán var svo hrað-
fær á göngu að ég þurfti jafnan að
hlaupa við fót öðru hvoru til að hafa
við honum. Þannig hefur Stefán jafn-
an verið í starfi og áhugamálum að
fáir hafa gengið hann uppi. Hann er
ræðinn og málglaður og það er aldrei
lognmolla þar sem hann er nærri.
Þessi lifandi áhugi hans á öllu sem
lifir og hrærist og mannlífi horfir til
bóta er bráðsmitandi og skemmtileg-
ur. Hjálpsemi hans er við brugðið og
ekki var hann dýrseldur á vinnu sína
þegar hann var yfirsmiður við íbúð-
arhús foreldra minna er byggt var
árið 1960. Þar unnu margir sveitung-
ar og tóku flestir lítið eða ekki neitt
fyrir vinnu sína nema þakklæti.
Stefán var lengi formaður Búnað-
arsambands Suðurlands og vann þar
stórvirki við að byggja upp nýja til-
raunastöð sambandsins að Stóra-Ár-
móti. Þó varð hann frægastur fyrir
að sigra Jónas Kristjánsson, rit-
stjóra Dagblaðsins, í víðavangs-
hlaupi sem efnt var til sérstaklega
milli þeirra tveggja á landbúnaðar-
sýningu á Selfossi 1978..Stefán kom í
mark löngu á undan Jónasi. Þá var
Jónas 35 ára en Stefán 64 ára og blés
vart úr nös.
Það var ekki meiningin að rekja
hér ævisögu Stefáns. Ævisagan;
Alltaf glaðbeittur, kom út árið 1991.
Þar segir hann frá ævidögum sínum
á hispurslausan hátt. Menn í farar-
broddi, eins og Stefán, hljóta stund-
um andbyr, og lesið hef ég ósann-
gjörn ummæli öfundarmanna hans á
prenti sem ekki áttu við rök að
styðjast. Þess meir dáði ég Stefán
þegar hann á þessum vettvangi lét
ógert að svara fyrir sig þó hann
vissi betur. Slíkt eru drengskapar-
menn. Stefán hefur enda gert meira
af því að líta glaður til framtíðar en
horfa reiður um öxl. Það er efalaust
lykillinn að farsælu lífshlaupi þessa
aldna en síunga heiðursmanns sem
lifað hefur hálfan níunda áratug á
sléttunni grænu og unir glaður við
sitt.
Heill þér, Stefán.
Jón M. Ivarsson.
Dagbók
t wl ^áskólsL
fslands
DAGBÓK HÍ 19.-25. september.
Allt áhugafólk er velkomið á fyrir-
lestra í boði Háskóla íslands. Dag-
bókin er uppfærð reglulega á
heimasíðu Háskólans:
http://www.hi.is
Mánudagur 20. september:
Mánudaginn 20. september flyt-
ur Stefán Snævarr, heimspeking-
ur, fyrirlestur á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki. Fyrir-
lesturinn ber heitið „Sálin í Hrafn-
kötlu. Bókmenntir, túlkanir og efa-
hyggja". Fyrirlesturinn verður
fluttur í stofu 101 í Odda og hefst
kl. 20.00. Allt áhugafólk um heim-
speki er velkomið og er aðgangur
ókeypis.
Miðvikudagur 22. september:
Miðvikudaginn 22. september, kl.
16:15 flytur Axel Hall, Hagfræði-
stofnun, erindi í málstofu viðskipta-
og hagfræðideildar, sem hann nefn-
ir: „Testing a CGE Model“. Mál-
stofur viðskipta- og hagfræðideild-
ar eru haldnar á kaffistofu á 3. hæð
í Odda og eru öllum opnar.
Fimmtudagur 23. september:
Fimmtudaginn 23. september
flytja nemendur í MS-námi í tölv-
unarfræðiskor fyrirlestur um
„Hönnun tölva“.
Fimmtudaginn 23. september
heldur Hólmfríður Þorgeirsdóttir
matvælafræðingur og meistara-
námsstúdent í næringarfræði MS-
fyrirlestur um verkefnið: Fæðu-
framboð á íslandi 1956-1995 og
þróun ofþyngdar og offitu meðal
Tilboð óskast
í Bens 220C eleg., árgerð 1996(7), ekinn 21 þús.
km. Grænsanseraður, sjálfskiptur, ABS bremsur,
fjarstýrð samlæsing, sóllúga, 2xlíknarbelgur,
álfelgur, litað gler, úti hitamælir, rafmagn í rúðum
og loftneti, höfuðpúðar afturí o.fl. Glæsilegur bíll.
UPPLÝSINGAR í SÍMA 896 0747
Fréttagetraun á Netinu
vq>mbl.is
\LLTAf= EITTH\SA£> HÝn~
45-64 ára Reykvíkinga 1975-1994.
Fyrirlesturinn er á vegum mat-
vælafræðiskorar í raunvísindadeild
Háskóla Islands og verður haldinn
í VRII við Hjarðarhaga í stofu 158
kl. 16:15.
Námskeið á vegum Endurmennt-
unarstofnunar HÍ vikuna 20.-25.
sept.:
20. sept. kl. 9.00-16.00. íslenski
þroskalistinn. Kennarar: Einar
Guðmundsson sálfræðingur, for-
stöðumaður Rannsóknastofnunar
uppeldis- og menntamála, og Sig-
urður J. Grétarsson sálfræðingur,
dósent við Háskóla Islands.
22. sept. kl. 8.30-12.30. Að skapa
sérstöðu á markaði (Positioning) -
mótun markaðsstefnu. Kennari:
Þórður Sverrisson rekstrarhag-
fræðingur og ráðgjafi hjá Forskoti.
22.-23. sept. kl. 9:00-17:00 og 24.
sept. kl. 9:00-13:00. Sjálfsmynd,
Veður og færð á Netinu
<f> mbUs
_/KLLTA/= EITTH\SA£> MÝTT
Vagnhöfða 17
■ 112 Reykjavík
3 Sími: 587 2222
h Fax: 587 2223
Gerið verðsamanburð
Jm Tölvupústur: sala@hellusteypa.is