Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 50

Morgunblaðið - 19.09.1999, Side 50
50 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA í DAG Hann orkti kjark í þjóðina Hannes Hafstein var fyrsti íslenzki ráð- herrann, heimastjórnaráríð 1904. Stefán Friðbjarnarson seglr hann hafa orkt kjark í þjóðina og sungið trúar- traust í brjóst hennar. PAÐ var hvorki fjölmennið né ríkidæmið á höfuðborgarsvæð- inu á morgni 20. aldarinnar, sem senn kveður. Reykvíkingar vóru innan við sex þúsund talsins árið 1901. Það var nú allt og sumt. Hafnílrðingar náðu ekki fjórum hundruðum. Og þar sem Garða-, Kópavogs- Mosfells- og Seltjam- ameskaupstaðir skarta nú fögr- um byggðahverfum var ekkert þéttbýli. Landsmenn allir vóru aðeins 77.290 talsins, 36.621 karlmaður og 40.669 konur. Landsmenn vóm m.ö.o. færri en íbúar í „landnámi“ Ingólfs Am- arsonar einu saman í dag. En það var þor og þróttur með vakn- andi þjóð, þrátt fyr- ir fámennið; þor og þróttur sem leiddu til stórra sigra í sjálfstæðisbarátt- unni: heimastjóm 1904, fullveldi 1918, lýðveldi 1944. Síðari helmingur aldarinn- ar tjaldar einnig sm- um stóm sigmm. I ljdsi þeirrar stað- reyndar að „föður- land vort hálft er hafið“ vóm útfærsl- ur fiskveiðilögsög- unnar í 4 mílur árið 1952, í 12 mflur 1958, í 50 mflur 1972 og loks í 200 mflur 1975 mikilvægir áfangar í baráttunni fyrir efnahagslegu sjálfstæði ís- lenzkrar þjóðar. Arið 1904 var mikið sigurár í íslands sögu. Miklu merkilegra ár en menn í dag gera sér í fljótu bragði grein fyrir. Þá var þingræði í landinu fest í sessi. Þá fengum við heimastjóm í sér- málum okkar og stjómarráð (ráðuneyti) í höfuðborginni, Reykjavík. Fyrsti íslenzki ráð- herrann var stjómmálamaður- inn og skáldið Hannes Hafstein. Hann settist á valdastól 1. febrú- ar árið 1904, fyrir 95 árum. Það er ekki lengra síðan að Islend- ingar stigu þetta stóra skref inn í nútímann - í átt til fullveldis. „Ég vil stuðla að því,“ sagði ráð- herrann árið 1904, „að allir kraftar leggist á eitt um að hag- nýta stjómarbótina sem bezt.“ Það fór vel á því að skáldið, sem orkti áræði og framtak í þjóðina, leiddi hana inn í 20. öld- ina - öld fullveldis og framfara. Skáldið sem sagði við þjóð sína á erfiðum tímum: „Þótt þjaki böl með þungum hramm, þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt fram“! I aldamótaljóði skáldsins horfir hann fram á veginn og segir: Fyrsti ráðherra landsins, skáldið Hannes Hafstein. Sú kemur tíð, er sárin foldar gróa, sveitirnar fyllast, akrar hylja móa, brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa, menningin vex í lundum nýrra skóga. Sé ég í anda knörr og vagna knúða krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða, stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða, stjómfrjálsa þjóð, með verzlun eigin búða. Fyrsti íslenzki ráðherrann, skáldið Hannes Hafstein, orkti ekki aðeins áræði, framtak og lqark í þjóðina á morgni 20. ald- arinnar. Hann söng ekki síður trúar- traust í brjóst henn- ar. Ákall til höf- uðsmiðs himins og jarðar er víða að finna í Ijóðum hans. Kvæðið, sem fyrr er vitnað tfl, hófst á þessum orðum: Drottinn, sem veitti frægð og heill til foma, farsæld og manndáð, vek oss endurboma! Is- landsvísur hans lýsa sterkum tilfinning- um tfl fósturjarðar- innar og bjargfastri trú á framsækni þjóðarinnar. Þar segir m.a.: Hjálpi Drottinn lýð að læra - líf sem hæfir frjálsri sveit. Þær enda á þessu ávarpi til fóst- urjarðarinnar: I þér kraftar bundnir bíða barna þinna, fljóðs og hals. Hvert þitt býli um byggðir víða blessi Drottinn, faðir alls. Tómas Guðmundsson borgar- skáld segir í inngangsorðum bókarinnar Ljóð og laust mál eftir Hannes Hafstein að innsti kjaminn í lífsskoðun skáldsins felist í þessum ljóðlínum hans: Sólkerfin sindrast sem neistar frá siung- um steðja þínum, og þó eru þínir vegir ei þráhuldir anda mínum. Sé ég í sólþokuhilling, hve sorgin og gleðin mætast, og óljóst órar mig fyrir, að andans von muni rætast. Sólunni meiri er sálin, og sálnanna faðir ertþú. Sálimar saman þú leiðir um sóifegri, leiftrandi brú, brú frá lífi til lífs, til lífs, sem ei mannvit- ið skilur, lífs sem þú áttir frá eilífð, en ennþá dauðinn oss hylur... HUGSKOT Í*>SV» VELVAKMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Betri læknisþj ónustu ÞEGAR ég hef þurft að hringja til að panta tíma hjá mínum heimilislækni á heilsugæslustöð sem er stutt heiman frá mér skal það ekki bregðast að eng- inn tími er laus fyrr en þremur tíl fjórum dögum seinna. Ég spurði hvað ég ætti að gera þvi ég væri lasin og slæmt að þurfa að bíða svo lengi. Svarið var það að mér var bent á læknavaktina. Hún er nú ekki á góðum stað fyrir mig. Ég þarf þrjá strætis- vagna til að komast þang- að og það er líka mikið dýrara. Því ekki að nýta heilsugæslustöðvarnar betur og hafa þar á kvöldin og um helgar lækni á vakt? Þetta getur haft slæmar afleiðingar ef fólk þarf að bíða svona lengi eftir að komast til læknis. Ég treysti mér ekki sárlasin til að þvælast í sex strætis- vögnum í kulda og trekki fram og til bakaýil að kom- ast til læknis. Ég skora á yfirvöld að laga þetta ófremdarástand og gera öllum fært að komast til læknis með góðu móti en það sé ekki forréttindi bfl- eigenda að komast þangað. Sjúklingur. íslenskt nafn á sjónvarpsstöð VERIÐ er að opna nýja ís- lenska sjónvarpsstöð á næstunni og skilst manni að hún eigi að heita Pop Tv. Vil ég beina þeim til- mælum til forráðamanna stöðvarinnar að endur- skoða nafngift stöðvarinn- ar. Finnst mér ekki hægt að hafa nafn stöðvarinnar á lélegri ensku því í ís- lensku eru til ágætis orð til að nota bæði yfir tónlist og sjónvarp. Ég skora á for- ráðamenn stöðvarinnar að efna til samkeppni um að finna gott íslenskt nafn á stöðina. 200462-5219. Hringja í Margréti EIGANDI UY-168 er vin- samlegast beðinn um að hringja í Margréti í síma 896 3178 þar sem hún hef- ur ekki náð sambandi við hann. Dýrahald Lína er týnd LÍNA er brúnbröndótt 5 mánaða læða sem týndist frá Birkihlíð 46, Reykja- vík, að kvöldi 15. septem- ber. Hún er merkt með merkispjaldi og rauðri hálsól. Hún er mjög mann- elsk og gæti hafa leitað inn í bílskúra eða geymslur. Þeir sem hafa orðið henn-- ar varir hafi samband í síma 568 6869. Kettlingur fæst gefins FALLEGUR 3ja mánaða kettlingur fæst gefins. Kassavanur og nýspraut- aður. Upplýsingar í síma 588 6613. Tapað/fundið Gullarmband týndist GULLARMBAND týndist í síðustu viku. Skilvís finn- andi vinsamlegast hringi í síma 898 5449 eða 561 6559. Fundarlaun. COSPER Það er allt í lagi með Möggn frænku, ég heyri hana blóta og ragna eins og venjulega. HOGNI HREKKVISI SecjfycJrrj facuxZL cu5 sé. fao/ctctgcjr. '• Víkverji skrifar... Bamiimyitilalökur I 1 5% afslóttur í september Nethyl 2 * S. 587 8044 j Stór hópur barna hóf skólagöngu í haust, eins og árlega gerist. Víkveiji heyrði smellna sögu úr ein- um nýju bekkjanna: Eins og öll önnur börn á undan þeim þurfa þau að læra stafrófið og tfltekinn kenn- ari - og eflaust einhverjir fleiri - komst að því að ágæt leið til þess er að láta bekkjarsystkinin raða sér í stafrófsröð oft á dag. En þetta orð, stafrófsröð, er tungubrjótur í munni lítilla bama og þess vegna er bíó- myndin Star Wars eins og hvalreki á fjörur fátæks manns. Hvemig má það vera? Jú, bömin segjast nefni- lega fara í starwarsröð! xxx Það gerist sem betur fer ekki oft að dómarar mæti til íþrótta- kappleiks í þannig ástandi að þeir séu ekki hæfir tfl starfa. Því brá for- ráðamönnum íraelska knattspymu- liðsins Hapoel Haifa í brún þegar þeir mættu á flugvöllinn í Tel Aviv á miðvikudagskvöldið til að taka á móti rússneskum dómurum sem áttu að dæma Evrópuleik gegn Club Bmgge frá Belgíu kvöldið eft- ir. Dómaramir fjórir voru nefnilega allir dmkknir við komuna til lands- ins. Talsmaður Hapoel sagði þá m.a. annars hafa gert tilraun til að kjassa kvenlögregluþjón á flugvell- inum og þeir tóku sig einnig til og buðu upp á söng- og dansatriði á sama stað. Forráðamenn félagsins flýttu sér þá með þá í burtu, til að forðast frekari vandræði. Haldið var á veitingastað í Tel Aviv þar sem þeir heimtuðu meira áfengi, skv. fréttum, en fulltrúi Hapoel kom í veg fyrir að þeir fengju meira að drekka. Svo ágengir vora þeir hins vegar við þjónustustúlkumar að eigandi veitingahússins varð að láta karlmenn taka við og sjá um að þjóna Rússunum til borðs. Leikurinn fór, þrátt fyrir allt, fram á tilsettum tíma daginn eftir, en Knattspymusamband Evrópu, UEFA, fékk dómara frá Rúmeníu á síðustu stundu, í stað þeirra rúss- nesku. Fregnir herma að Rússarnir fjórir verði jafnvel settir í lífstíðar- bann frá dómgæslu. xxx Yikuritið Newsweek birtir í viku hverri ummæli eða setningar sem þykja skondnar eða athyglis- verðar að einhverju leyti. í nýjasta heftinu er meðal annars að finna eftirfarandi setningu: „Sleppið við Englendingana og njótið áreitis- lausrar ferðar til Bandaríkjanna.“ Og þama er, skv. blaðinu, vitnað í auglýsingu frá Flugleiðum, sem væntanlega hefur birst í Skotlandi, um flug þaðan til Bandaríkjanna, með viðkomu í Keflavík, í stað þess að fljúga frá Skotlandi með viðkomu í Englandi. Yíkverji getur ekki að því gert að honum finnst heldur hjákát- legt hve mörgum íþróttaáhuga- manninnum, m.a. forráðamönnum sumra félaga, er bersýnilega illa við hve mikið hefur verið fjallað um karlalið KR í knattspyrnu í fjöl- miðlum í sumar. Fjölmiðlar, þar á meðal Morgunblaðið, hafa einnig verið gagnrýndir fyrir hvernig þeir hafa fjallað um önnur lið. Þeir em ekki taldir hafa fjallað nógu „vel“ um þau miðað við KR. Rétt er að mikið hefur verið fjall- að um Islandsmeistaratign KR í knattspyrnu karla, enda er það auðvitað mikil frétt þegar þetta stærsta íþróttafélag landsins fagn- ar loks sigri á þessum vettvangi eftir 31 árs bið. Morgunblaðið fjall- aði á mörgum blaðsíðum um meist- aratign KR síðastliðinn þriðjudag, en hafa verður í huga að þetta er ekki í fyrsta skipti sem mikið er fjallað um Islandsmeistara í þessari vinsælustu íþróttagrein heimsins. Hið sama var upp á teningnum þeg- ar Vestmannaeyingar urðu meist- arar, bæði haustið 1997 og í fyrra, og a.m.k. stundum þegar Ákumes- ingar fögnuðu sigri fimm sinnum í röð, 1992 til 1996. Dálksentímetr- arnir voru ömgglega ekki nákvæm- lega jafn margir, en ítarlegar frá- sagnir birtust þá í Morgunblaðinu og viðtöl vom tekin við leikmenn, þjálfara og forystumenn meistara- liðsins. Greinar þessar voru birtar á íþróttasíðum blaðsins, eins og gefur að skilja, en umfjöllun var einnig nokkur í sunnudagsblaðinu - t.d. um Vestmannaeyinga 1997 og Ak- urnesingana árið þar á undan. Víkverji minnist þess ekki að kvartað hafi verið undan mikilli umfjöllun, þegar til dæmis Akur- nesingar eða Vestmannaeyingar áttu í hlut. Hvað þá árin sem Valur og Fram áttu bestu lið landsins, eða þegar Víkingar (1991) og KA-menn (1989) urðu íslandsmeistarar. En nú, þegar KR-ingar eru bestir, virðast margir ekki geta unnt þeim þess að hljóta alla þá athygli sem raun ber vitni. Víkverji er ekki KR- ingur, en honum ofbýður það sem hann vill kalla öfund í garð Vestur- bæjarfélagsins. KR-ingar eru best- ir í sumar, og eiga umfjöllunina skilið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.