Morgunblaðið - 19.09.1999, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hilmar Orn Hilmarsson.
Mannsröddin
\ ' «
er besta
hljóðfærið
Kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur eftir
sögu föður hennar Halldórs Laxness, Ung-
frúin og húsið, verður frumsýnd næstkom-
andi föstudag. Dóra Qsk Halldórsdóttir
hitti Hilmar Örn Hilmarsson sem semur
tónlistina í myndinni, en hann er nýkominn
heim eftir langa dvöl erlendis.
HILMAR Örn Hilmarsson
er hógvær maður og
hreykir sér lítt af eigin
verkum. Hann hefur unn-
ið við kvikmyndatónlist um margra
ára skeið og unnið til alþjóðlegra
viðurkenninga á þeim vettvangi og
hlaut Felix-verðlaunin í Berlín fyrir
tónlist sína í mynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Börnum náttúrunn-
ar.
„Eg er búinn að vera í fimm ára
útlegð í Danmörku og síðustu árin
hef ég verið virkilega Islandsþurfi.
Eg er búinn að vita lengi af mynd
Guðnýjar og hef þekkt sögu Hall-
dórs frá bamæsku og tel það stór-
kostlegt að fá möguleika á að vinna
að myndinni með þessu einstaka
fólki.“
- Hverjur eru megináherslurnar í
tónlistinni í myndinni?
„Frá upphafi ákvað ég að tónlist-
in yrði mikið byggð upp á rödd
Ragnhildar Gísladóttir. Rannveig
sem Ragnhildur leikur er ákveðin
þungamiðja sögunnar, sú sem er
fegurst, mest og best, og sem per-
sóna rúmar Rannveig allan tilfinn-
ingaskalann. Þegar maður er að
finna sér hljóðfæri til að vinna með
þá er kannski ekkert betra hljóð-
færi til en mannsröddin. Eg tel að
rödd Ragnhildar henti myndinni al-
veg frábærlega, enda hefur hún
eina þá stórkostlegustu rödd sem
hægt er að hugsa sér.“
Stórkostlegur efniviður
- Hvernig er að vinna með
mannsröddina sem aðalhljóðfæri?
„Eg er mjög heppinn, því við
Ragga gerðum plötu saman árið
1992 sem heitir Rombigy og ég
þekki því flesta þætti hennar radd-
ar og lít á mig sem ákveðinn sér-
fræðing í hennar rödd og hefði ekki
treyst mér til að vinna þetta með
neinni annarri söngkonu. Ragnhild-
ur er menntaður tónlistarkennari
og með klassískan bakgrunn en ég
kem frekar úr öðrum áttum og ber
virðingu, nánast óttablandna virð-
ingu, fyrir hennar bakgrunni. En í
samvinnu okkar höfum við mjög
gaman af að sprengja upp landa-
mæri og kanna eitthvað nýtt og fara
út fyrir þessa hefðbundnu hluti.
Síðan er auðvitað sérstakt við
þessa mynd að hún er byggð á sögu
Halldórs Laxness, sem er sjálfur
kannski klassískasti höfundur okk-
ar Islendinga á sama tíma og hann
er einnig mikill byltingarmaður,
maður sem alltaf er að brjóta upp
hefðirnar og gera eitthvað nýtt og
öðruvísi. Þess vegna tel ég að sam-
vinna okkar Röggu endurspegli á
vissan hátt andann í verki Lax-
ness.“
Hilmar segist hafa nálgast gerð
tónlistarinnar við Ungfrúna og hús-
ið með meiri auðmýkt en oft áður.
„Guðný var búin að hugsa út
ákveðna hluti og ég kem inn sem
gestur að mörgu leyti. Lag eftir Jón
Asgeirsson var henni mjög hugleik-
ið og ég vildi ekki hreyfa við því. Við
tókum eitt stef eftir Jón
sem gengur í gegnum
myndina og ég vona að
ég hafi ekki farið alltof
illa með það. Svo er í
myndinni lagið Eg elska
þig enn eftir Magnús Ei-
ríksson sem Guðný held-
ur mikið upp á. Þetta lag
Magnúsar syngur sig inn í hjörtu
þeirra sem heyra það og ég er ekki
þess umkominn að semja aðra eins
snilld svo ég tók því fagnandi að
setja það í samhengi við tónlistina í
myndinni."
-Hógvær framar öllu?
„I þessari mynd stend ég á öxlun-
um á risum. Ég veit að það eru
ákveðnir hlutir sem ég get gert vel,
en ég átta mig einnig á mínum tak-
mörkunum og í svona mynd vinn ég
sem einn liður af stórri heild, heild
sem hefur verið að þróast í sex ár,
eða jafnvel miklu lengur. Allt frá
því að Laxness skrifaði söguna. Ég
get því ekki annað en þakkað að fá
að vera hluti af þessari stóru sögu.“
Merkingarþrungin þögn
Hilmar Orn er einnig að semja
tónlistina við mynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Engla alheimsins.
„Það er alltaf gaman að vinna með
Friðriki og Einari Má enda erum
við gamalt þríeyki og höfum þekkst
í mörg ár.“
-Þar er væntanlega allt önnur
nálgun í tónlistinni en í Ungfrúnni
oghúsinu?
„Já, algjörlega. I Englum al-
heimsins er verið að fást við skáld-
skap um leið og veruleika sem við
höfum allir tengst. Myndin er á
ákveðinn hátt uppgjör
við fortíð okkar allra.“
Hilmar hikar aðeins og
segir síðan að í Englun-
um sé ákveðinn rammi
dægurtónlistar. „Lög
sem bæði tengjast þessu
tímabili og henta þessum
kringumstæðum. Tón-
listin er að sumu leyti tilvísun í
skáldsöguna sjálfa, sem er ákveðið
meistaraverk, og einnig í persónu
sem er bæði skálduð og raunveru-
leg. Maður kemst ekki hjá því að
upplifa einhverja ákveðna tónlist við
þá persónu.“
- Er valið á þeirri tónlist unnið í
samráði við Friðrik og Einar Má
eða hefurðu þar frjálsar hendur?
„Það sem við Friðrik höfum gert
myndi líklega flokkast undir eins
konar hugsanaflutning. Við höfum
verið vinir í 26 ár og okkar besta
vinna á sér stað þegar við sitjum og
dæsum og umlum, en samt vitum
við nákvæmlega um hvað málið
snýst.“
- Nú hefurðu unnið mikið í Dan-
mörku og við erlendar myndir. Er
það öðruvísi en að vera hérna heima
og vinna með fólki sem þú þekkir?
„Ég hef kannski kynnst þremur
manneskjum í vinnu minni úti sem
ég get borið saman við það fólk sem
ég þekki hérna heima, en svo eru
aðrir sem ég hef unnið með í gegn-
um nefndir. Það er mjög skilmerki-
leg leið, engar efasemdir og ekkert
vesen. En ég kann því bara miklu
betur að sökkva mér ofan í kjarna
verksins og að skipulagið víki fyrir
tilfinningunum."
- Vilt þú nálgast hlutina með
hjartanu frekar en höfðinu?
„Ég held að hjartað vinni alltaf
þegar til lengri tíma er litið. Maður
getur skipulagt hlutina vel og reikn-
að eitthvað út og tekið meðalstuðla
en hjartað hefur yfirleitt alltaf rétt
fyrir sér. Það finnst mér líka gaman
við þessar tvær íslensku myndir að
hjartað er meginþemað í báðum. Og
þá á maður ekki að láta sér detta í
hug að fara að skipuleggja það eða
reikna eitthvað út heldur hlusta á
það sem hjartað segir manni.“
Finnskur feminískur tryllir
Ekki er tónlistarsköpun Hilmars
fyrir kvikmyndir upptalin hér að of-
an því hann er einnig um þessar
mundir að semja tónlist við finnsku
myndina Landafræði óttans eftir
Auli Mantila, sem gerði myndina
The Collector sem hlaut fjölda verð-
launa. „Þetta er feminískur tryllir
sem er ekkert miðjumoð heldur tek-
ur þemað til ystu marka. Myndin
verður sýnd á Berlínarhátíðinni
næstu og ég á von á því að hún mjög
góðar viðtökur, enda frábær mynd.
Auli hefur verið hérna á Islandi því
hún vann sem aðstoðarkona Asdísar
Thoroddsen við gerð Draumadísa."
-En segðu mér nú eitthvað frá
veru þinni í Danmörku og ástæðu
Islandsþorstans sem var farinn að
hrjá þig undir lokin.
„Ég held að Danir séu frá annarri
plánetu. Þetta er besta fólk en það
er eitthvað sem ekki gengur upp.
Þegar maður sér fólk ganga út með
naglaklippur að snyrta limgerði veit
maður að eitthvað er að. Allt er
mjög skipulagt og fylgir öðrum lög-
málum en henta mér.“
- Nú hafa Danirnir orð á sér fyrir
að vera stöðugt að „hygge sig“ og
slappa af.
„Já, en ég held að þessi huggu-
legheit séu hálförvæntingarfull. Það
er verið að reyna að upplifa ein-
hverja gleði sem er ekki til, og ég
held að þjóðin sé fangi þessarar
mýtu um huggulegheitin. Ég fékk
ákveðna hugljómun þegar ég sat í
matarboði hjá dönsku vinafólki
mínu og búið var að bera fram
sautján rétta máltíð. Börnin sátu
ýmist við tölvurnar þrjár á heimil-
inu eða við sjónvarpstækið og þegar
gestgjafinn spurði hvort við hefðum
það ekki huggulegt sló þögn á hóp-
inn og allir horfðu á hann. Þá skildi
ég hvað klukkan sló og vissi að það
var kominn tími til að fara heim.“
Stutt
Dixie Chicks
vinsælust
DIXIE Chicks hélt efsta sæti
bandaríska breiðskífulistans aðra
vikuna í röð á meðan Backstreet
Boys náðu öðru sætinu af ung-
lingastjörnunni Christinu
Aguilera. „Fly“ með kántrýsveit-
inni Dixie Chicks seldist í 204 þús-
und eintökum í vikunni og hefur
nú selst í 545 þúsund eintökum
frá því hún kom út. „Millenium“
með Backstreet Boys seldist í 182
þúsund eintökum sautjándu vik-
una á lista og er heildarsalan
komin í 5,7 miHjónir. Breiðskífa
Aguilera seldist í 173 þúsund ein-
tökum og hefur selst í 644 þúsund
eintökum frá því hún kom út.
í fjórða sæti var Santana með
„Supernatural" og öllum að óvör-
um hefur þessi aldni snillingur
náð að selja 1,2 milljónir eintaka
frá því breiðskífan kom út. Aðrar
sveitir á lista eru Kid Rock með
„Devil Without a Cause“, Britney
Spears með „...Baby One More
Time“, Limp Bizkit’s með „Signi-
ficant Other“, Ricky Martin með
samnefnda breiðskífu og Juvenile
með „400 Degreez“. Eina nýja
breiðskífan meðal 100 efstu var
„Chamber Music“ með þung-
arokkssveitinni Caol Chamber.
Chris Corn-
ell með
sólóskífu
„ÉG ER maðurinn með nafnið á
stuttermabolunum," kynnti Chris
Comell sig nýverið á tónleikum sem
ætlað var að kynna fyrstu sólóskífu
þessa iyrrverandi söngvara Sound-
garden. Breiðskífan nefnist
Euphoria Morning og kemur út 21.
september. Með Comell á plötunni,
sem þykir rólegri og melódískari en
lög úr smiðju Soundgarden, em gít-
arleikarinn Alain Johannes og
hljómborðsleikarinn Natasha
Shneider úr rokksveitinni Eleven frá
Los Angeles, trommuleikarinn Greg
Upchurch og bassaleikarinn Ric
Markman.
Manson í föt
forsetans
AÐDÁENDUR rokkarans Mari-
lyns Mansons segja umdeilt mynd-
band hans við lagið „Coma
White“, þar sem morðið á John F.
Kennedy Bandaríkjaforseta er
sett á svið, „listræna tjáningu“
sem eigi rétt á
sér. Margir, sem
er umhugað um
að halda minn-
ingu forsetans á
lofti, hafa gagn-
rýnt myndband-
ið harðlega og
sagt það sýna
virðingarleysi
og lélegan
smekk. Mynd-
bandið var tekið
í Los Angeles í febrúar og frum-
sýnt á MTV-sjónvarpsstöðinni á
mánudag. Það sýnir Manson í
jakkafötum í bflalest svipaðri
þeirri sem John F. Kennedy ferð-
aðist með þegar hann var skotinn
í Dallas 22. nóvember árið 1963.
Leikkonan Rose McGowan,
unnusta Mansons, er við hlið hans
í bleikum fotum eins og forseta-
frúin Jacqueline Kennedy um-
ræddan dag. Manson virðist vera
skotinn þegar höfuð hans kastast
aftur og örvæntingarfull viðbrögð
McGowans rilja upp viðbrögð for-
setafrúarinnar þegar eiginmaður
hennar var skotinn þar sem hann
sat við hlið hennar.
Nýjar vörur
# n
B I
| #' ,
K ■*> i^ ^ /
Wámíá
JUST D O I T .
NIKE BUÐIN
Laugavegi 6
Ragnhildur Gísladóttir leikur Rannveigu, en hér er hún með dönsku
Ieikkonunni Ghita Norby sem leikur frú Kristensen.
Ég held að
hjartað vinni
alltaf þegar
til lengri tíma
er litið