Morgunblaðið - 28.09.1999, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Fyrirtæki, m.a. í eigu Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankinn hf., f]árfesta í sólarorkuiðnaði
Vöxtur í sólarorku-
Yfirmaður Daimler-
Chrysler vestan-
hafs hættir
Stuttgart. Reuters.
nýtingu 20% á ári
ALLIED Efa hf., sem er í 40% eigu
Eignarhaldsfélagsins Alþýðubank-
inn hf., hefur ásamt bandarískum
fjárfestingarsjóði og Alþjóðafjárfest-
ingasamlagi Efa, keypt 48% hluta-
fjár í norska fyrirtækinu Renewable
Energy Company. Norska félagið er
móðurfélag nokkurra fyrirtækja sem
hafa sérhæft sig í framleiðslu á sól-
arsellum og kerfum til að framleiða
raforku úr sólarorku. Hákon Björns-
son hjá Eignarhaldsfélaginu Alþýðu-
bankinn hf. segir mikinn vöxt hafa
orðið í nýtingu á sólarorku undanfar-
in 15 ár, eða að meðaltali 20% á ári.
Alþjóðafjárfestingarsamlag Efa er
fjárfestingarsjóður sem rekinn er
með samlagsformi og hefur þann til-
gang að fjárfesta í erlendum fyrir-
tækjum. Að sögn Hákons er þetta
fyrsta fjárfestingarverkefni sam-
lagsins. Allied Efa hf. hefui- auk fjár-
festingarinnar í Renewable Energy
Company, fjárfest í norska fyrirtæk-
inu Promeks ASA sem nú vinnur að
byggingu tilraunaverksmiðju fyrir
kísilduft á Reykjanesi og í norska
fyrirtækinu SiNor AS sem framleið-
ir einkristalla úr kísilmálmi sem not-
aðir eru í kísilfiögur í tölvuiðnaði.
Allied Efa er í 40% eigu Eignar-
haldsfélagsins Alþýðubankinn en
60% hlutur er í eigu Allied Reso-
urcve Corporation sem átt hefur
samstarf við bandaríska fjárfesting-
arsjóðinn Safeguard International
Fund, sem einnig kemur að fjárfest-
ingunni í Renewable Energy
Company.
Stefnt er að skráningu
innan tveggja ára
Stefnt er að skráningu Renewable
Energy Company á markað innan
tveggja ára, annaðhvort í Noregi eða
í Bandaríkjunum. Spáð er áfram-
haldandi vexti á sviði nýtingu sólar-
orku og að á næstu öld verði sólar-
orkan orðin á meðal mikilvægustu
orkugjafa á jörðinni, að sögn Há-
kons. Sólarsellur eru framleiddar úr
mjög hreinum kísilmálmi og með
fjárfestingunni hafa ofangreindir
fjárfestar öðlast aðgang að þróaðri
tækni til að vinna hátækniafurðir úr
kísilmálmi, að sögn Hákons. Stærsti
markaðurinn er í þróunarlöndunum
þar sem mikill vöxtur er í rafvæð-
ingu heimila, skóla, opinberra stofn-
ana og verslunarmarkaða með hjálp
sólarorku.
Hákon segir markmið Allied Efa
hf. að fjárfesta í orkufrekum iðnaði á
íslandi. „Til að ná þeim markmiðum
hefur athygli Allied Efa beinst að því
að fjárfesta í erlendum fyrirtækjum
sem vinna á þessu sviði. Menn sjá
fyrir sér að hægt verði að flytja
þessa tækni og starfsemi hingað
heim þar sem fyrirtækin eru að vaxa
og bæta við sig framleiðslueining-
um,“ segir Hákon.
DAIMLERChrysler hefur staðfest
að Thomas Stallkamp, yfirmaður
bíladeildar fyrirtækisins í Norður-
Ameríku, muni láta af störfum í
árslok og að stjórnarmönnum verði
fækkað í 14 úr 17.
Við starfi Stallkamps tekur
Kanadamaður, James Holden, sem
hefur starfað hjá Chrysler
í tæp 20 ár. Holden verður einnig
yfirmaður Chrysler-Plymouth-
Jeep-Dodge deildarinnar, einnar af
þremur nýstofnuðum bfladeildum.
Bréf í DaimlerChrysler hafa
lækkað um 3,13% í 64,68 evrur síð-
an umtal um fyrirhugaðar breyt-
ingar hófst. I Bandaríkjunum hafa
bréf í fyrirtækinu lækkað um 3,81
dollar í 66,375 dollara, lægsta verð
frá upphafi, vegna tillögu Lehman
Brothers til fjárfesta að kaupi bréf
í Ford Motor Co. fremur en Daiml-
er-Chrysler.
Evrópsk risakaup-
höll fyrirhug'uð
London. Reuters.
Valkortshafar Islandsbanka
Sótt um yfírdráttar-
heimild á Netinu
HANDHAFAR Valkorta frá ís-
landsbanka geta nú sótt um yfir-
dráttarheimild, eða hækkun henn-
ar, í gegnum heimasíðu bankans á
Netinu. Að sögn Sigurveigar Jóns-
dóttur, upplýsingafulltrúa Islands-
banka hf., getur yfirdráttarheimild
numið allt að 600.000 krónum, en þó
ekki meira en sem nemur þreföld-
um mánaðarlaunum.
Ekki er þörf á ábyrgðarmönnum
eða tryggingarvíxli til að fá yfir-
dráttarheimildina, en þess í stað
miðar bankinn við fjárhagslega
stöðu viðskiptavinarins. „Það er bú-
ið að meta Valkortshafa áður og
ganga úr skugga um að þetta séu
skilvísir viðskiptavinir," segir Sig-
urveig.
Hún segir að þessi þjónusta sé ný
af nálinni, en áður hafi viðskiptavin-
ir þurft að sækja um yfirdráttar-
heimild af Valkorti með því að
hringja eða koma sjálfir í útibúið.
SEX evrópsk verðbréfaþing hafa
sagst ætla að koma á fót „raunveru-
legri“ samevrópskri kauphöll með
tölvusambandi í nóvember 2000. Það
er fyrr en búizt hefur verið við, en
viðskiptin verða ekki sameinuð í einni
miðstöð eins og upphaflega stóð til.
„Til þessa hafa verðbréfasalar
orðið að vera í sambandi við átta
kauphallir," sagði aðalbankastjóri
Deutsche Börse, Werner Seifert.
„Nú verður aðeins einn rafrænn
tengill og einn raunverulega sameig-
inlegur úrvalsverðbréfamarkaður,“
sagði hann.
Seifert og sjö forstjórar annarra
kauphalla létu í ljós ánægju með
samkomulagið eftir sameiginlegan
fund í Brussel.
í gildi verða sameiginlegar leik-
reglur og viðskipti með hlutabréf
þvert yfir landamæri verða auðveld-
ari. Verzlað verður með um 600 evr-
ópsk úrvalsbréf, helmingi fleiri en
upphaflega var ráðgert.
Kauphöllin í London og Deutsche
Börse skýrðu frá bandalagi um að
koma á fót sameiginlegri rafrænni
miðstöð viðskipta með úrvalsbréf í
júlí í fyrra.
I maí á þessu ári ákváðu sex aðrar
kauphallir að taka þátt í samstarfinu
- kauphallimar í Madríd, Mflanó,
Amsterdam, Brussel, París, og
Zurich.
Bandalagið hefur sætt harðri
gagnrýni fyrir seinagang á sama
tíma og auknar líkur eru á sam-
keppni frá öðrum miðstöðvum tölvu-
viðskipta.
Morgunverðarfundur á Hótel Sögu
Miðvikudaginn 29. september 1999, kl. 8:00 - 9:30
HINDRANIR
VIÐ NÝSKÖPUNARSTARF
FYRIRTÆKJA
• Hver eru áhrif skatta á nýsköpun í fyrirtækjum?
• Skapar fjármagnsmarkaðurinn einhveijar hindranir gegn nýsköpun?
• Hafa takmarkanir á erlendum fjárfestingum á íslandi áhrif á nýsköpun?
• Hver eru áhrif eftirlitsiðnaðarins á nýsköpun?
• Eru viðhorf og þjónusta opinberra aðila hindrun gegn nýsköpun?
FRAMSÖGUMENN: ______________________________________________________
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri
Guðfinna Bjamadóttir, rektor Viðskiptaháskólans
FUNDARSTJÓRI:
Úlfar Steindórsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs
Að loknum framsöguerindum geta fundarmenn komið á framfæri fyrirspumum eða
komið með athugasemdir.
Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.500,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100 eða
bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti mottaka@chamber.is. VERSLUNARRAÐ ISLANDS
Áhrif Bandaríkjamanna í stjórn
DaimlerChrysler minnka við brey-
ingarnar. Bandaríkjamenn eiga nú
sjö fulltrúa í 17 manna stjórn fyr-
irtækisins, eða um 41% atkvæð-
anna.
Meiri þýzk áhrif
Breytingarnar koma í kjölfar
frétta um vaxandi hugmyndafræði-
legan ágreining íhaldsmannsins
Stallkamps og yfirmanns hans í
Þýskalandi, Jurgens Schrempp.
Talið er að Stallkamp hafi viljað
hægfara samruna hinna bandarísku
og þýzku þátta starfsemi fyrirtæk-
isins, sem er fimmti mesti bflafram-
leiðandi heims.
Schrempp vildi hins vegar skjót-
an, hnökralausn samruna. Hingað
til hefur hann verið tflbúinn að
grípa til harkalegra til að fá mark-
miðum sínum framgengt.
Bókaversl-
anir semja
við Heild-
verslun
Pennans
FJÓRAR bókaverslanir utan
höfuðborgarsvæðisins hafa
undirritað samstarfssamning
við Heildverslun Pennans.
Bókaverslanirnar eru Bókabúð
Andrésar Níelssonar á Akra-
nesi, Bókhlaðan Isafirði, Bóka-
búðin Heiðavegi Vestmanna-
eyjum og Bókabúð Keflavíkur.
Samningurinn felur í sér að
bókaverslanirnar fá beinan að-
gang að vörudreifingarmiðstöð
Heildverslunar Pennans.
Avinningur verslananna er
einkum minna og einfaldara
lagerhald, tímasparnaður
vegna innkaupa, hnitmiðaðra
vöruval og hagkvæmari inn-
kaup, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Auk þess
mun Heildverslun Pennans að-
stoða verslanirnar við fram-
setningu á vörum.
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið úrval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
NÁMSKEIÐ
£
£
Tölvu- og
verkfræðiþjónustan
Grensésvegi »6
pöntunarsf m i