Morgunblaðið - 02.10.1999, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 02.10.1999, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 65 !■ . fö l V|iri - ~~SÍ Um flugvöll, háskóla- sjúkrahús og betri borg NÚ ER í gangi mikil umræða um framtíð Reykjavíkurflugvallar og landnotkun svæðisins og sýnist sitt hverjum. Forsvarsmenn samtaka „Betri borgar“ vilja völlinn burt og nýta landið, að því er virðist aðal- lega fyrir íbúabyggð. Þar sem ís- lendingar byggja vönduð hús úr steinsteypu, yrði ekki tjaldað til einnar nætur og ekki aftur snúið, ef af yrði. Aðrir benda á nauðsyn vall- arins fyrir gi-eiðar og hagkvæmar flugsamgöngur, bæði innanlands og að vissu marki við útlönd, auk mikil- vægis vallarins og tengdrar starf- semi fyrir atvinnulíf borgarinnar. Því verður ekki á móti mælt, að þessir þættir eru mikilvægir, bæði fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsins alls. Kvartað er yfir há- vaðamengun vegna flugumferðar og þeirrar hættu, sem yfir vofir, ef flugvél hlekktist á yfir borginni. Eg hef unnið sl. 2% áratug á Landspítalanum og mest á skurð- stofum kvennadeildar á 3. hæð húss- ins, þaðan sem einstaklega góð yfír- sýn er yfir flugvallarsvæðið og auð- velt að fylgjast með umferð um völl- inn. Á þessum ánjm hef ég ekki orð- ið þess var, að kvartað hafi verið undan hávaðamengun vegna flug- véla á Landspítalanum, og tel að hin mikla bifreiðaumferð um aðliggjandi götur og það ónæði og hættur, sem af bifreiðaumferðinni stafa, hafi valdið sjúklingum og starfsfólki mun meira ónæði og áreiti en flugum- ferðin. Auk þessa er starfsfólk og sjúklingar orðið vant hávaðamengun vegna sprenginga, borana og annars hávaða, sem fylgt hefur tíðum niður- brotum og breytingum eldri bygg- inga og nýbyggingum á lóðinni. Á þessu tímabili munu ekki hafa orðið slys á fólki á jörðu niðri vegna flugumferðar um völlinn. Á sama tíma hafa orðið fjölmörg umferðaró- höpp og slys á fólki, sem valdið hafa örorku og jafnvel dauða, á götunum umhverfis spítalann. Þótt ekki sé rétt að gera h'tið úr hættum, sem flugumferð um völlinn getur skapað, tel ég að með viðeig- andi ráðstöfunum sé unnt að halda henni í lágmarki, enda ekki fátítt að litlir flugvellir séu staðsettir inni í borgum erlendis. Flugsamgöngur eru í dag og verða örugglega í fram- tíðinni það ríkur þáttur í samgöngu- kerfinu, að hjá því verður ekki vikist að byggja upp aðstöðu fyrir þá starfsemi, sem hentar vel íbúum borga, sem þurfa að vera í góðu sambandi við umheiminn. Rætt er um að flugvöllurinn sé eins og sár í hjarta höfuðborgarinnar. Ég tel, að eins mætti benda á, að hann skapar olnbogarými og verndar útsýni og er því nokkurs konar lunga og gæti orðið að hjarta fyrir höfuðborgina með aðliggjandi umferðaræðum, sem veiti lífi í borgina. Ég hef áður bent á í blaðagrein nauðsyn þess að byggja nýtt há- skólasjúkrahús utan skarkala mið- borgarinnar. Slíkt sjúkrahús þarf vissa friðsæld, en með greiðum að- komuleiðum og miklu landrými. Unnt þarf að vera að færa í eitt hús starfsemi sem allra flestra sérgreina læknisfræðinnar með tilheyrandi legurými, aðgerða- og rannsóknar- stofum, auk landrýmis fyrir bygg- ingar fyrir tengda starfsemi, svo sem rannsóknir, kennslu auk skrif- stofuhúsnæðis og annarrar aðstöðu fyrir starfsfólk og aðstandendur sjúklinga. Sá húsakostur, sem nú er á Landspítalalóðinni og það land- rými, sem þar er fyrir hendi, býður ekki upp á eðlilega uppbyggingu, þegar til lengri tíma er litið. Nauðsynlegt er að taka tillit til þessa í framtíðarskipulagi höfuð- borgarsvæðisins, og hef ég bent á Vífilsstaði sem heppilegan stað fyrir Landspítala og háskólasjúkrahús framtíðarinnar. Ef starfsemi Land- spítalans flyst af núverandi lóð, skapaðist þar aðstaða fyrir ýmsan rekstur, sem félli að starfsemi flug- vallarins og Umferðamiðstöðvarinn- ar, svo sem hótel auk þess sem hér væri kjörinn staður fyrir ýmsa starfsemi tengda háskólanum, svo sem stúdentagarða. Háskólasjúkra- hús þrifist hins vegar betur í meiri fjarlægð frá miðborginni, þótt land- fræðileg tengsl við háskólann yrðu önnur en nú er. Mikill kostur þess að rasa ekki um ráð fram og ýta burtu flugvellinum í stað íbúðabygginga er, að enginn sér í dag fyrir nauðsyn landrýmis á þessu svæði fyrir starfsemi, sem félli betur að þörfum háskólans og mið- borgarinnar en íbúabyggð, sem nýt- ast mundi tiltölulega fáum. Ekki er heldur séð fyrir um nauðsynlega þróun umferðarmannvirkja með breyttri tækni í framtíðinni. Þótt hin umdeilda Fossvogsbraut út fyrir Öskjuhlíð, með tilheyrandi bifreiða- umferð og mengun, eigi vonandi ekki Skipulagsmál Kannski eiga nú við orð skáldsins Steins Steinars, segir Auðólf- ur Gunnarsson, fyrir munn Hallgríms Péturssonar: „Húsa- meistari ríkisins, ekki meir, ekki meir.“ eftir að verða til, gæti vistvæn raf- braut, með hljóðlausum vögnum, sem hefði sömu legu, átt eftir að þjóna íbúum höfuð- borgarsvæðisins. Vegna skammsýni hafa þegar verið gerð of mörg skipulagsmistök á höf- uðborgarsvæðinu, svo sem þrenging byggðar umhverfis Sjúkrahús Reykjavíkur, sem úti- lokar það nú sem fram- tíðar háskólasjúkrahús og umhverfisslys, eins og bygging grárra steinkumbalda með- fram Kleppsveginum, sem byrgja útsýni það- an yfir „sundin blá“ til Viðeyjar og Esjunnar. Eins og einstakling- ur þarf að geta andað og dregið að sér hreint og óspillt andrúmsloft tii að lifa góðu lífi, þarf borg, sem á að þjóna íbúum sínum vel, að hafa næg opin svæði svo íbúarnir geti notið útivistar og tengsla við náttúruna. Eins og líkaminn þai'fnast starfhæfs hjarta og æðakerfis til að bera nær- ingu, þarf höfuðborg að hafa gott og öruggt samgöngukerfi, sem fellur Auðólfur Gunnarsson vel að umhverfinu, eins og æðakerfi líkamans gerir, svo hún megi þjóna eðlilega íbúum landsins alls og dafna og þróast eðlilega. Ef til vill er nú einmitt rétti tíminn fyr- ir hið opinbera að hætta viðbyggingum, breytingum og öðru klúðri á Landspítala- og Borgarspítalalóðum, en leggja hins vegar í sjóð á núverandi upp- gangstíma og nýta hann til byggingar myndarlegs háskóla- sjúkrahúss á Vífilsstöð- um, þegar harðnar í ári á atvinnu- markaðnum. Kannski eiga nú við orð skáldsins Steins Steinai-s, fyrir munn Hallgtims Péturssonar: „Húsameistari ríkisins, ekki meir, ekki meir“. Höfundur er yfirlæknir, fyrrverandi formaður Náttúruvemdarfélags Suðvesturlands og Stúdentaráðs Háskóla fslands. mi Magnaður kraftur og ósvikin þœgincfi alla leið Sestu i Grand Vitara 2,0L 2.1 79.000 kr. Grand Vitara Exclusive 2,5L, V6 Se ■j'fmM ’ *rJ*#ssz. ■- Alvöru jeppi með hátt og lágt drif, sjálfstæða grind og hagkvæmni í rekstri. Á sérlega ánœgjulegu verði! #SUZUKI SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is Lágmarks beygjuradius SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson. Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðir: Blla- og búvélasalan hf„ Miðási 19, sími 471 2011. Hafnarfjörðut: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sfmi 555 15 50. fsafjörður: Bflagarður ehf.,Grænagarði, slmi 456 30 95. keflavlk: BG bllakringlan, Gröfinnl 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, slmi 482 37 00. Hvammstanga: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 2617.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.