Morgunblaðið - 04.11.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Starfsmenn Vegagerðarinnar ljúka hér framkvæmdum við brúna yfir Laxá í Kjós.
Morgunblaðið/Kristinn
Skipt
um brú-
argólf
LOKIÐ hefur verið við að skipta
um brúargólf í brúnni yfír Laxá í
Kjós og sjást starfsmenn Vega-
gerðarinnar hér ganga frá brú-
arendunum.
Gamla timburgólf brúarinnar
var orðið slitið og var því skipt
um timbur í gólfinu, auk þess
sem járnklæðning var lögð til að
verja brúna sliti.
Vinna brúarsmiðanna tók um
vikutíma, enda veður gott og
fátt til að tefja vinnu þeirra.
Víða um land vinna menn nú að
því hörðum höndum að Ijúka
vegaframkvæmdum fyrir vetur-
inn. Unnið er þó lengra fram á
veturinn við slíkar framkvæmdir
en áður var gert og vinnu ekki
hætt fyrr en Vetur konungur
gerir vart við sig.
Góð síldveiði úr stórri
torfu út af Garðskaga
Lungnalæknir fær rannsóknastyrk
70 milljónir króna
til rannsóknar á
astma og ofnæmi
NOKKUR síldarskip fengu afla í
fyrrinótt í Jökultungu, um 60 mílur
norðvestur af Garðskaga, en urðu
að hætta veiðum í gærmorgun
vegna veðurs. Mjög slæmt veður
var á þessum slóðum í fyrrinótt og
brast óveðrið mjög skyndilega á að
sögn skipstjórnarmanna. Skipverji
á Húnaröst SF skarst á handlegg
þegar brot kom á skipið og braut
brúarglugga og þótti mildi að ekki
fór verr. Ekki urðu aðrar skemmd-
ir á skipinu.
Að sögn skipstjórnarmanna er
síldin góð, stór og jöfn og lítið eða
ekkert af smælki. Engin áta er í
sfldinni og vonuðust þeir til að
hægt yrði að vinna hana til mann-
eldis en langt er að fara fyrir sum
skipin. Þannig voru Jóna Eðvalds
SF og Húnaröst SF á leið til
Hornafjarðar í gær, Jóna með rúm
300 tonn en Húnaröst með tæp 400
tonn. Þá var Arney KE á leið til
hafnar í Vestmannaeyjum í gær-
kvöldi með um 280 tonn. Að sögn
AF ÝMSUM verkefnum sem
framundan eru á dagskrá einka-
væðingarnefndar ber hæst fyrir-
hugaða sölu á hlut ríkisins í íslensk-
um aðalverktökum og Stofnfiski. í
næstu viku verða opnuð tilboð í hlut
rfldsins í Islenska menntanetinu.
Guðmundur Ólafsson, starfs-
maður einkavæðingarnefndar, seg-
ir að átta áhugasamir aðilar hafi
lýst áhuga sínum á Islenska
menntanetinu. Til sölu eru allar
eignir svo og reksturinn sjálfur,
sem mestu verðmætin eru fólgin í.
Verðmæti íslenska menntanetsins
Húnaröstin fékk
á sig brotsjö
í vonskuveðri
Óskars Þórhallssonar, skipstjóra,
var töluvert að sjá af sfld á svæð-
inu.
„Þetta var stærsta torfa sem við
höfum séð í haust. Við gátum
kastað á hana tvisvar en urðum
síðan frá að hverfa vegna veðurs.
Vonandi getum við sótt þangað
vestur eftir fljótt aftur en þarna er
mikið veðravíti og sjaldan skaplegt
veður,“ sagði Óskar.
Sfldin
vanaföst
Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur, sagði að vert væri að rifja upp
að á sama tíma í fyrra hefði orðið
vart við sfld á svipuðum slóðum en
að vísu nokkuð dýpra. „I fyrra
fannst hún 1. nóvember svo hún
eru talin geta legið á bilinu 15-40
milljónum króna.
í framhaldi verða boðin út tvö
minni fyrirtæki. Heimild er tfl að
selja um 20% hlut ríkisins í Is-
lensku internetþjónustunni,
INTÍS, sem er metinn á 7-20 millj-
ónir króna, og hlutur ríkisins í
skógræktarstöðinni Barra á Hér-
aði, sem nýlega sameinaðist Skóg-
ræktarstöð Reykjavíkur, verður
boðinn í næstu viku eða þar næstu.
Ríkið á 20% hlut í þessum samein-
uðu fyrirtækjum sem metinn er á
um 10-20 milljónir króna.
virðist vera nokkuð stundvís,"
sagði Jakob.
„I fyrra virtist vera ganga inn á
miðin út af Snæfellsnesi og Faxa-
flóa fram eftir hausti og vonandi
verður sama upp á teningnum nú
þó enginn viti hvað verður. í fyrra
mældum við megnið af stofninum,
sem við höfum verið að mæla, fyrir
vestan í byrjun nóvember og ör-
ugglega verður reynt að mæla síld-
armergðina bæði fyrir austan og
vestan síðar í mánuðinum en við
höfum verið að bíða eftir því að hún
þéttist."
Að sögn Jakobs er ekki hægt að
segja til um framhaldið en hins
vegar virðist sfldin vera vanaföst.
„Þegar sfld tekur upp á því að velja
sér vetursetu er mjög algengt að
hún kemur í þó nokkur ár, saman-
ber hvað hún hefur verið þaulsetin
fyrir austan í mörg ár þar til núna.
Því yrðum við ekki undrandi þó
sfld yrði á þessum slóðum eitthvað
framvegis á þessum árstíma."
Guðmundur segir að samkvæmt
heimildum á fjárlögum megi selja
hlut ríkisins í ýmsum öðrum
smærri fyrirtækjum en fyrir liggur
að hlutur rfldsins í íslenskum aðal-
verktökum og Stofnfiski verði seld-
ur á næstunni.
Ríkið á tæplega 40% hlut í báð-
um fyrirtækjum en fyrir liggur að
ekki verði seldur allur hluturinn í
íslenskum aðalverktökum. Verð-
mæti hlutar ríkisins í íslenskum
aðalverktökum er í heild um 1,5
milljarðar króna en um 60-80 millj-
ónir króna í Stofnfiski.
ÍSLENSKUM lækni, Hákoni Há-
konarsyni, var nýlega veittur um
70 milljón króna rannsóknastyrk-
ur frá hjarta- og lungnadeild
Bandarísku heilbrigðisstofnun-
innar (National Institute of
Health - Heart, Lung and Blood
Institute). Styrkurinn, 1 milljón
bandaríkjadala, er veittur Há-
koni einum til 4 ára til grunn-
rannsókna á astma og ofnæmi.
Hákon, sem er barnalungna-
læknir að mennt, sérmenntaði
sig á lungna- og öndunarfæra-
deild Barnaháskólasjúkrahússins
í Ffladelfíu eftir almennt barna-
læknanám við Háskólaspitalann í
Connecticut. Hann starfaði siðan
sem sérfræðingur og aðstoðar-
prófessor við fyrrnefnd háskóla-
sjúkrahús í Ffladelfíu í þijú ár
áður en hann sneri heim. Hann
starfar nú sem lungnasérfræð-
ingur við barnadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur og sem rannsókna-
læknir hjá íslenskri erfðagrein-
ingu.
Mikil og hörð samkeppni mun
vera um styrki Bandarisku heil-
brigðisstofunarinnar, en um er
að ræða stærstu styrki sem veitt-
ir eru til einstaklinga innan
Bandaríkjanna og þótt víðar væri
leitað.
Rannsóknir Hákons felast í því
að skilgreina meingerð þeirrar
tegundar astma sem tengist of-
næmi og öndunarfærasýkingum.
„Þessi styrkur er veittur mér til
rannsókna á sviði astma og of-
næmis, sérstaklega með tilliti til
orsakaleitar að meingerð astnia,1
segir Hákon.
„Ég er eini styrkþeginn, en
síðan er ég með í fólk í vinnu.
Heilbrigðisstofnunin veitti mér
leyfi til þess að vinna að þessum
styrk að hluta hér heima en
styrknum er stjórnað frá Barna-
háskólasjúkrahúsinu í Ffladelfíu,
en þar eru tveir starfskraftar á
mfnum vegum.“
Óvenjulegt, mun vera að
Bandarfska heilbrigðisstofunin
veiti styrkinn einstaklingi sem
ekki býr í Bandaríkjunum, en
Hákon sneri heim fyrir ári.
„Ég sendi inn umsóknina dag-
inn sem ég flutti heim, en þeir
veittu mér samt styrkinn þótt
ég hefði flust úr landi. Ég stýri
starfinu héðan og flýg út annað
veifið.“
Hákon segist vonast til að
rannsóknirnar komi til með að
varpa Ijósi á það hvaða þættir or-
saki bólgusvörunina sem á sér
stað í öndunarvegi og lungum
astmasjúklinga. Þær upplýsingar
geti sfðan skilað nýjum og betri
meðferðum á þessum algengasta
langvinna sjúkdómi hjá börnum
og ungu fólki.
mmmmwmmmm
...í GSM símann þinn!
Láttu senda þér upplýsingar
um stöðuna
textask'ílaboð ® BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
Ríkið undirbýr sölu á hlut í
Islenskum aðalverktökum
& ^
Atta aðilar lýsa áhuga á Islenska menntanetinu