Morgunblaðið - 04.11.1999, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Dómur þjóðarínnar er fallinn:
Við viljum Dorrit
skoðanakönnun DV sýnir mikinn meirihluta þjóðarínnar. rúm 78%. styðja Dorrit Moussaieff til heiðurssætis á Bessastöðum
\U" ^ <fr 'L
Þér getið hætt þróunarstarfinu hr. forseti, þjóðin er búin að taka af yður ómakið.
Magnús Jónsson veðurstofustjóri um miðlun veðurfrétta
Nýjar leiðir en sjón-
varpið enn mikilvægt
VEÐURFRÉTTUM er nú miðlað
með ýmsum öðrum leiðum en í út-
varpi og sjónvarpi og birtist spá
Veðurstofu Islands jafnóðum og
hún er gerð, bæði á textavarpinu og
heimasíðu veðurstofunnar á Net-
inu.
Magnús Jónsson veðurstofustjóri
segir í grein í Morgunblaðinu á
þriðjudag að þar sem ný miðlunar-
tækni ryðji sér nú ört til rúms og
menn geti sótt upplýsingar þegar
þeim henti sjálfum, hyggist Veður-
stofan endurskoða framleiðslu sína
og miðlun. Magnús sagði í samtali
við Morgunblaðið að hægt sé að sjá
ýmsa þróun í miðlun veðurfrétta er-
lendis, víða séu sérstakar upplýs-
ingaútvarpsrásir þar sem fjallað sé
um veður, umferð og fleira sem
æskilegt sé að koma á framfæri
samstundis. Hann bendir einnig á
að ein mest sótta síðan á textavarp-
inu hér sé veðursíðan og að veður-
spáin sé líka mikið skoðuð á heima-
síðu Veðurstofunnar.
Mikilvægi veðurfrétta í sjón-
varpi enn töluvert
Þó bendir hann á að á Netsíðunni
og textavarpinu séu fyrst og fremst
textaupplýsingar en styrkur sjón-
varpsins sé að geta miðlað hlutum
myndrænt og skýrustu veðurfrétt-
imai' séu í sjónvarpinu. A meðan
tölvan, sjónvarpið og síminn séu
ekki runnin saman í einn miðil sé
mikilvægi veðurfrétta í sjónvarpi
enn töluvert.
Hann segir veðurfregnir í sjón-
varpi auk þess hafa mikið fræðslu-
gildi og eftir að sjónvarpið hafi far-
ið að sýna veðurfréttir hafi þekking
fólks á veðri aukist til muna. Að-
spurður segir hann ekki leika vafa
á því að veðurfréttir hér á landi séu
ítarlegri og fræðilegri en annars
staðar og finnst þeim á Veðurstof-
unni mikilvægt að fræða fólk vel
um veðrið. Aðstæður á íslandi séu
líka sérstakar, hér sé vindurinn
höfuðatriði í sambandi við veður og
á veturna skipti vindhraði miklu
meira máli en hitastig, þess vegna
sé svo miklum tíma eytt í umfjöllun
um hæðir og lægðir, svo dæmi sé
nefnt.
Tímasetning veðurfrétta sjón-
varpsstöðvanna gagnrýnd
Magnús gagnrýnir einnig Sjón-
varpið og Stöð 2 fyrir að hafa aðal
veðurfréttatíma sína á meðan aðal-
fréttatími hinnar stöðvarinnar
stendur yfn og því sé ekki hægt að
horfa á veðurfréttimar án þess að
sleppa hluta af öðram hvorum
fréttatímanum.
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins, kvaðst
í samtali við Morgunblaðið ekki
hafa neitt um gagnrýni Magnúsar
að segja; hann hafi vitaskuld mik-
inn metnað fyi'ir hönd Veðurstof-
unnar og vilji að sjálfsögðu vera á
besta áhorfstíma, en bendir á að
dagskrá Sjónvarpsins verði að
skoða í heild.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, að-
stoðarfréttastjóri Stöðvar 2, segir í
samtali við Morgunblaðið að hann
skilji áhyggjur Magnúsai’ að vissu
leyti, enda skipti veðrið miklu máli
hér á Islandi og fréttir af því geti
jafnvel verið lífsspursmál. Honum
finnst sjálfsagt að fréttastofurnar
veiti veðurfréttunum viðhlítandi
sess og telur að þeir sem vilji horfa
á veðurfréttir eigi auðvelt með að
bera sig eftir þeim á hvorri frétta-
stofunni sem er. Hann telur Stöð 2
sinna veðurfréttum með viðunandi
hætti, ekki hafí komið til tals að
breyta veðurfréttatímanum en seg-
ist hins vegar tilbúinn í alla góða
samvinnu við veðurstofuna.
Fyrirlestur um tölvunotkun unglinga
Kynjamunur
mikill
Idag klukkan 17 verð-
ur haldinn opinber
fyrirlestur á vegum
Rannsóknastofu í
kvennafræðum í stofu
101 í Odda. Þar flytur
Sólveig Jakobsdóttir fyr-
irlesturinn; A „uppleið“
með upplýsingatækni:
Eru stelpur og strákar
samferða á þeirri leið?
Hvaða niðurstöðu skyldi
Sólveig hafa komist að
eftir að hafa skoðað þetta
mal?
„Ég gerði rannsókn í níu
grunnskólum og einum
framhaldsskóla til þess
að skoða hvort fram
kæmi kynjamunur í
færni og viðhorfum sem
tengdust tölvum og upp-
lýsingatækni. Ég safnaði
einnig gögnum um ýmsa
sem skýrt gætu mun
Sólveig Jakobsdóttir
þætti
ef kæmi
fram eða ekki. I ljós kom mikill
kynjamunur í sjálfmetinni færni,
sem fór reyndar eftir aldri. Hjá
yngstu börnunum í fimmta til
sjötta bekk var lítill sem enginn
munur á hvað nemendur töldu
sig kunna, en á unglinga- og
framhaldsskólastigi breytist
þetta, þá fóru strákarnir fram úr
stelpunum á þessu sviði. I við-
horfum þegar á heildina er litið
kemur kynjamunur líka fram,
sérstaklega hvað varðar sjálfs-
traust. Stelpur eru yfirleitt
ósammála því að þær séu klárar
að nota tölvur en strákar eru
sammála þeirri fullyrðingu. Ef
litið er á tölvunotkun utan skóla
sést að strákar eru í miklum
minnihluta þeirra sem nota tölv-
ur lítið sem ekkert en í miklum
meirihluta af þeim sem nota tölv-
ur mikið eða mjög mikið.“
- Hverjar eru ástæður fyr-
ir því að við sjáum svona kynja-
rnun ífærni, notkun og viðhorfum ?
„Ég safnaði gögnum sem gætu
skýrt þennan mun sem tengdust
tölvunotkun utan skóla, nemend-
unum sjálfum, svo sem aldri
þeirra, reynslu, námsgetu, að-
gangi að tölvum heima og í skóla,
félagslegum þáttum, hugbúnaði
og námsefni og hvernig tölvur
væru nýttar innan og utan skóla.
Það sem virtist tengjast
færnimuninum mest var fjöldi
forritategunda, sem notaður var
heima, sem var mun hærri hjá
strákum en stelpum. Einnig til-
greindu strákar sig mun oftar
sem aðalnotanda heima fyrir og
um tvöfalt fleiri piltar en stúlkur
era með tölvur í sínu eigin her-
bergi. Þá eru fleiri strákaheimili
með nettengingu. Það er hins
vegar í raun mun jafnari notkun
kynjanna á tölvum í skólum, en
sú notkun er hins vegar mun
minni en heimanotkun. Skólinn
gegnir eigi að síður mjög mikil-
vægu hlutverki í að reyna að
jafna þennan að-
stöðumun kynjanna.
T.d. er hærra hlutfall
stúlkna en pilta sem
hafa notað tölvur síð-
ast í skólanum og þá
mun oftar í tengslum
við nám. I gangi er mikið átak til
þess að bæta og auka tölvunotk-
un í skólum og þyrfti þá að hafa
jafnréttismálin í huga svo að
notkun innan skólanna stuðli að
því að draga úr kynjamun í færni
og viðhorfum fremur en auka
hann.“
-Hvernig er ástandið í þess-
um efnum ínágrannalöndunum?
„Ég er nýkomin af ráðstefnu í
► Sélveig Jakobsdóttir fæddist í
Reykjavík 26.11. 1958. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1978. Árið 1983
lauk hún BS-prófi í jarðfræði frá
Háskóla íslands svo og kennslu-
réttindum. M.Ed. prófi lauk hún
1989 frá Minnesotaháskóla í
fræðum sem lýtur að tölvunotk-
un í skólastarfi. Doktorsprófi
lauk Sólveig 1996 á sama sviði.
Hún er nú lektor við Kennarahá-
skóla Islands þar sem hún hefur
umsjón með tölvu- og upplýs-
ingatæknibraut innan framhalds-
deildar. Sólveig er gift Jóni Jó-
hannesi Jónssyni, lækni við
Landspitalann, og eiga þau þrjú
börn.
Strákar nota
tölvur meira
heima
Ósló - Damer og data, sem hald-
in hefur verið í nokkur ár á veg-
um norska menntamálaráðu-
neytisins. Þar virðast menn
komnir skrefi lengra en við að
því leyti að menn gera sér grein
fyrir að kynjamunur í tölvunotk-
un sé víða vandamál og eru farn-
ir að prófa ýmsar leiðir til þess
að leiðrétta þennan mun á milli
kynjanna. Sem dæmi má nefna
verkefni í einum grunnskóla þar
sem sérstök jafnréttisáætlun í
upplýsingatækni hefur verið í
gangi með góðum árangri í nokk-
ur ár. Þar er t.d. lögð áhersla á
að hluti af kennslu í upplýsinga-
tækni fari fram í kynskiptum
hópum. Haldin eru sérstök
stelpu- og mæðrakvöld í tölvu-
notkun í skólanum. Lögð er
áhersla á tölvusamskipti af ýms-
um toga og skapandi vinnu. Svo
má nefna tækniháskólann í
Þrándheimi, en þar höfðu menn
miklar áhyggjur þegar hlutfall
kvenna í tölvunarfræðideild var
komið niður í 8%. Með sérstöku
átaki tókst mönnum að koma
þeirri tölu upp í 36% á skömmum
tíma. Margir hér á landi hafa
áhuga á að halda sambærilega
ráðstefnu og Damer og data, og
koma af stað svipuðum rann-
sóknar- og þróunar-
verkefnum og ég gat
um hér á undan. Nýj-
ar námsskrár kalla á
aukna og bætta notk-
un upplýsingatækni í
námi og kennslu og
skólar eru nú í óðaönn að vinna
að gerð nýrra skólanámskráa.
Mikilvægt er að þeir geri sér
grein fyrir að huga verður að
jafnréttismálum og reyna t.d. að
tryggja að stelpur velji sig ekki
frá valgreinum á sviði upplýs-
ingatækni og að þær verði ekki
síður færar en strákar að nýta
sér tæknina sér og öðrum til
hagsbóta.“