Morgunblaðið - 04.11.1999, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Vísir að hönn-
unarsafni
MYNÐLIST
Garðatorg 7, Garðabæ
ISLENZK HÖNNUN 1950-
1970
HÖNNUNARSAFN ÍS-
LANDS
Opið alla daga frá 14-18. Til 15. nd-
vember. Aðgangur ókeypis. Sýn-
ingarskrá 500 krónur.
ÞAÐ telst drjúgur viðburður að
stofnað hefur verið til Hönnunar-
safns og kannski enn meiri að það
skuli staðsett í Garðabæ, einu út-
hverfa borgarinnar. En staðsetning
safna, og að gefnu tilefni einnig
listaskóla, er ekki höfuðatriðið, öllu
frekar viðgangur starfseminnar
innan veggja þeirra, jafnframt sú
virkt sem borin er að þeim á hverj-
um stað. Hvorki stærð né staðsetn-
ing getur komið í staðinn fyrir
brennandi áhuga og rennandi blóð,
sem eiga að vera grunneiningar og
meginásar slíkra stofnana.
Fyrst í stað mun safnið vera deild
í Þjóðminjasafni Islands, í raun er
það ennþá einungis til á pappírnum
og þannig kannski full snemmt að
fagna. Reynslan segir okkur, að
skrifræði, fundahöld og framtíðar-
ályktanir séu lengstum þau föng í
grunn og burðargrind slíkra bygg-
inga á landi hér sem helst vilja
prýða þær. A sama tíma hafa al-
mennir bóknámsskólar og íþrótta-
mannvirki þotið upp eins og spútn-
ikar í öllum landsfjórðungunum.
Fullmargt mætir afgangi er for-
gang hefur í grónum menningar-
löndum sem undirstaða og burðarás
lifandi þjóðfélagsheildar, jafnvel
svo álykta mætti að metnaðurinn og
hugsjónirnar séu meira á yfirborð-
inu og í skónum en höfðinu. Hið
mikilvægasta gerist iðulega síðast,
sem er að bretta upp ermamar og
hefjast handa, láta verkin sýna
merkin. Minni enn einu sinni á, að
ein nafnkenndasta myndlistaraka-
demía á Norðurlöndum um langt
skeið var lengstum í fjórum her-
bergjum, sem rúmuðu u.þ.b. 12-15
Stdll eftir Gunnar Magnússon, 1961, og veggteppi
eftir Júlionu Sveinsddttur, 1957.
nemendur hvert, og var þar þröng á
þingi, og sú hefur sett stórlega ofan
við margfalda stækkun og innrás
skólafræðinga, bendiprika og fund-
arhaldafíkla. Ennfremur að Bau-
haus í Dessau var ekki í ýkjastórri
byggingu, en þar rann blóðið og
þaðan komu hugmyndimar.
I tilefni stofnunar safnsins hefur
á Garðatorgi 7, í nýbyggingu í mið-
bæ Garðabæjar, verið efnt til kynn-
ingar á sýnishomi listhönnunar
tímabilið 1950-70. Þetta mun ekki
vera framtíðarhúsnæði, einungis
um einn og nokkuð hráan sal að
ræða, hins vegar er meira en greini-
Frá kynningarsýningu Hönnunarsafns Islands.
legt, eins og allir innvígðir vita, að
ómæld þörf er á slíku safni. Sýning-
in undirstrikar það líka svo ekld
verður um villst, og opnar vonandi
augu margra fyrir vægi innlendrar
hönnunar.
Hefði safnið verið stofnað á lýð-
veldisári og meðan við voram rík-
asta þjóð Evrópu, rækilega hlúð að
listmennt, hönnun og listiðnaði, þ.e.
sjónmenntum, að hætti fyrrum
herraþjóðar
okkar, ekki síst
innan almenna
menntakerfisins,
væri ekki óraun-
verulegt að ætla
að arður af út-
flutningi skilaði
hagnaði nokk-
urra álvera í dag.
Og það sem
meira er um
vert, án nokkur-
rar mengunar og
hemaðar __ gegn
landinu. Arlegur
útflutningur
Dana á listiðnaði
og hönnun mun
skila meiri arði
en allar þjóðartekjur okkar.
í þessu skrifi er naumast þörf á
að telja upp einstaka gripi frá þess-
ari fallegu sýninu, um margt hefur
verið fjallað áður og svo sætir sjálf
stofnun safnsins mestum tíðindum.
En því ekki að nefna safnið einfald-
lega Listiðnaðarsafn íslands og láta
það spanna breitt svið líkt og
Kunstindrastimuseet í Kaup-
mannahöfn, sem er fágætlega gott
safn sem batnar með hverju ári sem
líður, þótt ekki sé það ýkja stórt. I
öllu falli ekki við hliðina á Victoria
og Aibert-safninu í Lundúnum eða
Kunstgewerbemuseum í Berlín,
sem bæði era mikil um sig og mikil-
fengleg, næsta auðvelt að gleyma
sér í sölum þeirra heilu dagana. Hér
má auðvitað einnig nefna Musée des
Arts Decorativs í París með sína
50.000 hluti. Það hefur verið í upp-
stokkun og endurskipulagningu, en
hefur þó verið opnað að hluta og er
undursamlegt. Að minni hyggju
felst nokkur hætta á einangrun og
stöðlun með því að tengja safnið
nafninu hönnun, þótt óumdeilan-
Tvíburar, leirvasar eftir Ragn-
ar Kjartansson.
US1ASJ0ÐUR
PENNANS
Auglýsing um umsóknir
úr sjóðnum áríð 1999
Styrkir úr Listasjóði Pennans verða veittir í áttunda sinn
um nk. áramót. Umsóknir þurfa að berast stjórn
Lsjóðsins fyrir 11. desember 1999.
Sérstök umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins fást
í verslunum og á skrifstofu Pennans.
.
CM3>-
Hallarmúla 4,
pósthólf 8280, 128 Reykjavík,
sími 540 2000, fáx 568 0411.
lega sé hönnun yfirmáta víðtækt
hugtak. Meinbugurinn er þó sá, að
sé meiningin að sinna öllum grein-
um hönnunar yrði safnið annað
tveggja lítið tölvugagna- og fræða-
setur með fáum munum eða mjög
stórt safn hvers konar hluta, sem
lítið bæjarfélag gæti naumast ráðið
við. En hvaða leið sem valin verður
mun vænlegast að ganga út frá
nálguninni og notalegheitunum, svo
gestir geti átt þar
ánægjulega stund,
fari þaðan í góðu
skapi og sjái
ástæðu til að snúa
þangað aftur og
aftur.
Tölvur era orðn-
ar þýðingarmikill
þáttur í uppbygg-
ingu nútímalista-
safna, vel að
merkja til útskýr-
ingar um sögu og
vinnuferli þess
sem tál sýnis er, en
geta aldrei komið í
stað milliliða-
lausrar sjón-
reynslu eins og ör-
tölvufræðingar bentu á í upphafi
tölvualdar. Þeir hafa reynst sann-
spáir, sömuleiðis um stóraukna að-
sókn á söfn. Þá er rétt að vísa til
þess hve nútíma hönnun fer iðulega
vel í gömlum húsakynnum, en hætt-
ir um leið til að missa marks í sér-
hönnuðum og mjög nútímalegum
byggingum, sem draga athyglina
frá sýningarmununum, eru jafnvel í
samkeppni við þá. Á líkan hátt og
byggð hafa verið hús með ofhlæði af
tilgangslausu skreyti, t.d. á rókókó-
tímabilinu, hafa verið byggð hús í
nútímanum sem era einfaldlega of-
hönnuð og steingeld. Einhver yfir-
þyrmandi tómleikatilfinning fylgir
manni lengi eftir að hafa skoðað
sýningar í slíkum húsum, hve glæsi-
legt ytri sem innri byrði bygging-
anna annars er og hversu merkileg-
ir hlutimir.
Marga gryfjuna ber þannig að
varast, en hvaða leið sem valin verð-
ur fylgja safninu heilar óskir, að það
megi lifa, vaxa og dafna.
Bragi Ásgeirsson