Morgunblaðið - 04.11.1999, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ
—Á4 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
„Þá getur skrattinn
komist í prjónana“
ÞAÐ var/er til sú þjóð-
trú að ekki sé gott að
„skilja eftir prjóna með
húlfkláraðri umferð því
að þá getur skrattinn
komist í prjónana".
Flestir brosa eflaust í
kampinn og hugsa með
sér að sem betur fer séu
nú allir hættir að trúa
slíku, ef því hefur þá
nokkurn tíma verið raunverulega
trúað. Þegar farið er að velta
nánar fyrir sér þessari þjóðtrú
tkemur í ljós að í henni er mikill
og forvitnilegur tilgangur. Til að
mynda er hér um greinilega
kennslu að ræða eða innrætingu.
Þ.e.a.s. verið er að kenna að ekki
megi láta frá sér pijónlesið með
hálfkláraðri umferð því að þá
gerist eitthvað slæmt þ.e. skratt-
inn gæti birst og rakið upp lykkj-
urnar.
Eins og flestir vita, sem á annað
borð kunna að prjóna, vilja lykkj-
urnar renna fram af prjóninum sé
prjónlesið lagt til hliðar með hálf-
kláraðri umferð og þar með geta
lykkjurnar raknað upp. Sem sagt
eitthvað slæmt gerist ef þú hagar
vinnu þinni svona og þar sem allt
^slæmt kom frá „skrattanum"
sjálfum var hann gerður að söku-
dólgi og það átti ekki undir nein-
um kringumstæðum að gera hon-
um kleift að athafna sig. Birting
skrattans kemur þarna inn sem
viðvörun við ákveðnu háttalagi
sem þá væntanlega hvetur við-
komandi til að taka þessa lexíu al-
varlega og fara eftir henni. Hér
eru því skýr skilaboð um að klára
skuli hlutina og engan trassaskap,
ellegar hljótist verra af.
Það er ekki ólíklegt að upphaf-
sé það að þegar verið var að
kenna börnum að prjóna hafí
þetta verið til að hræða þau til að
meðtaka þennan lærdóm. Það
hefur ekki verið nóg að segja við
börnin að ef þau Iegðu frá sér
prjónlesið með ókláraðri umferð á
prjónunum gætu lykkjurnar runn-
ið út af og þær raknað upp.
Afleiðingin var ekki nógu kröftug
til að koma í veg fyrir að þau
hlýddu því sem kennt var. Það
var nefnilega ekki ólíklegt að ef
lykkjurnar röknuðu upp kæini
einhver fullorðinn til hjálpar
hvort eð er og málið þar með
leyst. Skrattinn er því hér settur
inn í dæmið sem „grýla“ til að
hræða börnin til ákveð-
innar breytni, sem var
mjög algeng uppeldisað-
ferð.
Onnur svipuð trú
var/er til en þó mildari
við fyrstu sýn og með öðr-
um formerkjum því í
henni er frekar höfðað til
ákveðinna siðferðisþátta
og er hún þar með þró-
aðri en hin fyrri. Hún er sú að:
Sagt var að ills viti væri að skilja
eftir prjóna með hálfkláraðri um-
ferð því það var kallað „að skilja
eftir álfkonu í barnsnauð". Hér er
um sömu kennsluna að ræða en
viðurlögin önnur. Samviskan býð-
ur fáum ef nokkrum upp á að
skilja konu eftir í barnsnauð enda
slíkt á móti Guðs og manna lög-
um. Það sem meira er er að hér
er um að ræða álfkonu og allir
vissu að ef sliku fólki var gert
eitthvað illt var ekki von á góðu.
Hér er því höfðað til samvisku,
hjálpfýsi og samlíðunar með öðr-
um til að framkalla rétta breytni.
Þó ber þessi trú í sér líka, eins og
hin fyrrnefnda trú, ákveðinn
hræðsluáróður því enginn vildi
eiga refsingu álfa yfír sér, en
fyrrnefna trúin um skrattann er
eingöngu beinn hræðsluáróður.
Sem betur fer hafa slíkar uppeld-
isaðferðir verið lagðar af og ef-
laust er fyrstu tilraunina um að
slíkt hafi verið reynt að fínna í
Húsagatilskipun Kristjáns 6.
Danakonungs frá árinu 1746 um
tilhögun uppeldis, menntunar og
trúarlífs á Islandi: „Sá heimsku-
legi vani sem hér og þar skal hafa
verið brúkanlegur í landinu, að
hræða börn með jólasveinum eður
vofum, [skal] aldeilis vera af-
straffaður." Þegar farið er að
rýna í hvers konar þjóðtrú kemur
oft í Ijós að hún hefur haft mikinn
tilgang fyrir það samfélag sem
hún spratt upp í. Munnleg geymd
hefur varðveitt vel ýmsa vitneskju
um þjóðtrú og fært þar með fram
í tímann stöðu ýmissa samfélags-
Iegra menningarfyrirbæra á öðr-
um tímum. Spuni nóvembermán-
aðar býður upp á klassíska húfu
og vettlinga í stíl úr 100Ú Peer
Gynt-ull sem vonandi fær að hlýja
köldum fingrum og eyrum í kuld-
anum framundan. Svo er bara að
muna að lengi lifír í gömlum
glæðum og ekki taka neina
áhættu varðandi álfa og skratta.
Húfa og vettlingar
Hönnun: Alice Berbres
PEER GYNT
Kremað 664/1012: 4 dokkur
Stærð húfa: (barn) dömu
Fitjið upp á prjóna nr. 3 (102)
112 lykkjur. Prjónið 1 umferð
brugðið frá röngu og prjónið (9) 11
prjóna slétt prjón (= rúllukant)
fram og til baka (slétt á réttu
brugðið á röngu). Skiptið yfir á
prjóna nr. 3,5 ög perluprjón. Þeg-
ar perluprjónið mælist (9) 10 sm
Sagt var að ills viti væri að skilja eftir prjóna með hálfkláraðri umferð
því það var kallað „að skilja eftir álfkonu í barnsnauð".
er fellt af í toppinn: 1 kantlykkja *
8 sléttar, 2 brugðnar saman * .
Endurtakið * - * endið á kant-
lykkju. Affellilykkjan prjónast
alltaf slétt á röngu og brugðin á
réttu. Endurtakið affellinguna í 4.
hverri umferð 3 sinnum og á 2.
hverri umferð 5 sinnum = (12) 13
lykkjur eftir á prjóninum. Það
fækkar um 1 lykkju á milli úrtöku
við hverja úrtökuumferð. Prjónið
3 sm slétt prjón yfir síðustu lykkj-
urnar og fellið af. Saumið húfuna
saman að aftan. Eyru: Fitjið upp
(21) 25 lykkjur á prjóna nr. 3,5 og
prjónið 1 umferð brugðið frá
röngu. Prjónið perluprjón (5) 6
sm. Fellið nú af 1 lykkju fyrir inn-
an kantlykkju sitt hvorum megin
= 2 brugðnar saman. Endurtakið
á 4. hverjum prjón 2 sinnum og
svo á 2. hverjum prjón þar til (11)
11 lykkjur eru eftir og að lokum á
hverjum prjón þar til 5 lykkjur
eru eftir. Klippið á þráðinn, dragið
hann í gegnum lykkjurnar, herðið
vel að og gangið vel frá enda.
Prjónið hitt eyrað eins. Saumið
eyrun á húfuna fyrir ofan rúllu-
kantinn, hafið u.þ.b. (7) 8 sm milli-
bil á milli þeirra að aftan. Búið til
snúrur u.þ.b. 25-30 sm langar og
festið í hvort eyra.
Vettlingar:
Stærðir: (6) 8 og 10-12 ára (dömu)
Fitjið upp (36) 40 (40) lykkjur á
sokkaprjóna nr. 3,5 og prjónið 7
umferðir slétt prjón. Prjónið
munstur A 9 umferðir. Haldið
áfram með slétt prjón. ATHUGIÐ
að í 1. umferðinni er aukið út um 1
lykkju á 1. og 3. prjón = (38) 42
(42) lykkjur. Þegar slétta prjónið
mælist (3) 4 (5) sm prjónast munst-
ur C ofan á miðjan vettlinginn =
(19) 21 (21) lykkja og slétt prjón
áfram undir. Takið eftir að þegar
slétta prjónið mælist (6) 7 (8) sm er
merkt fyrir þumli: Prjónið með
öðrum lit (hjálparþræði) (6) 7 (7)
lykkjur fyrir innan 1. lykkjuna á
prjón nr. 3, setjið þessar lykkjur
aftur yfir á prjóninn og prjónið
áfram sem fyrr. Þegar slétta prjón-
ið frá byrjun mælist (14) 16 (18) sm
er fellt af í toppinn: Á prjón nr. 1
og 3 eru fyrstu 3 lykkjurnar prjón-
aðar = 1 slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða, prjónið 1 slétta og
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. A
prjón nr. 2 og 4 eru lykkjurnar 3
prjónaðar í enda prjónsins = 2
lykkjur saman, 1 slétt. Þessi úr-
taka er endurtekin í 3. hverri um-
ferð 3 sinnum enn og svo i hverri
umferð þar til 10 lykkjur eru eftir á
7 7 7 7
V V V V
V V V V
y y X m
perluprjón, endurtekið
A endurtekið
7
V V
V V V
V V V V
V V V
V V.
y V V
V V V V
v V V V V V
V V V V V V V V
V V V V V V
v V V V
V V V
V V
V V V
V V V V
V V V
V V
)L
C = 19 lykkjur og 19 umferðir
I j = slétt á réttu brugðið á
röngu
(Vl = brugðið á réttu slétt á
röngu
= (réttan) Prjónið fyrst aðra
lykkjuna slétta án þess að
fyrri lykkjan fari af prjónin-
um, prjóiúð fyrri lykkjuna
slétta, sleppið báðum lykkj-
unum yfir á hægri prjóninn.
= (réttan) Prjónið aðra
lykkjuna slétta fyrir aftan,
prjónið fyrri lykkjuna slétta,
sleppið báðum Iykkjunum
_____yfír á hægri pijóninn.
P*-^[ = (rangan) Setjið 1 lykkju á
kaðlapijón fyrir framan,
prjónið næstu lykkju
brugðna, pijónið lykkjuna
af kaðlaprjóninum slétta.
[•>^1 = (rangan) Setjið 1 lykkju á
kaðlapijón fyrir aftan,
prjónið 1 slétta, pijónið
lykkjuna af kaðlaprjóninum
brugðna.
hringnum. Klippið á þráðinn, drag-
ið í gegnum lykkjurnar og herðið
vel að, gangið vel frá endanum.
Þumall: Takið hjálparþráðinn úr
og setjið lykkjurnar á sokkaprjóna
nr. 3,5, takið upp 1 lykkju sitt hvor-
um megin. Prjónið slétt prjón (4) 5
(6) sm. Prjónið þá 2 lykkjur saman
út umferðina. Klippið á þráðinn,
dragið í gegnum lykkjurnar, herðið
að og gangið vel frá endanum.
Prjónið vinstri þumalinn eins og
takið eftir að munstur C prjónast á
prjón nr. 3 og 4. Hjálparþráðurinn
fyrir þumalinn er prjónaður í fyrir
innan endalykkjuna á prjón nr. 2.
♦. # -. . .#
Fimmtudags Holtakjúklingur
barbecue íauksósu
w *r ~:
Þ
I
1
I
Ví
t- w y? yrr r y----------1
Fimmtudagskjúklingur
Einn Holtakjúklingur í bitum u.þ.b. 1 ka
• 1/2 bolli tómatsósa • 1/4 bolli vatn • 1/4 bolli puöursykur
• 1 pk. púrrulauksúpa (1 ds sveppasúpa)
Hitið ofninn í 175 °C. Raðið kjúklingabitunum í olíusmurt
eldfast mót. Blandið saman tómatsósu, sykri, vatni og lauk-
súpunni. Hellið hrærunni vel yfir bitana, bakið í 50 mín.
Kryddið örlítið með salti og pipar
__• ■ i iL • ; . * ..... . •„(
! Rétt meðferð á hráu iíjöti
i Fjarlægið umbúðir og gætið þess að blóðvökvi úr kjötinu berist ekki
i í önnur matvæli eða áhöld. Notið hrein áhöld svo sem hnífa og
i skurðarbretti við undirbúning matreiðslunnar. Þrífið vandlega öll
■ áhöld og borð, sem komast í snertingu við hrátt kjötið, áður en farið
i er að vinna með annað hráefni til matargerðar. Sápuþvoið hendur
i eftir að hafa meðhöndlað hrátt kjöt. Hreinlæti er forsenda öruggrar
i matreiðslu á öllu hráu kjöt.
Reykjagarður kf
v
&■♦>«?♦ «£♦ ♦*♦ jtœ
W. ■ W: v: Wr:: > W: '.W :; W ■ ■. .W>: • • -W