Morgunblaðið - 04.11.1999, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999 55
Helgi Áss sigrar
í Tékklandi
SKAK
Fríbram, Tékklandi
Príbram Rapid 1999
30.-31.10. 1999
HELGINA 30.-31. október 1999
var haldið sterkt atskákmót í Prí-
bram í Tékklandi. Þar voru mættir 5
stórmeistarar og vel á annan tug al-
þjóðlegra meistara. Fyrirkomulagið á
mótinu var þannig að tveir skákmenn
voru saman í liði og réð samanlagður
vinningafjöldi þeiiTa í hvaða sæti þeir
lentu. Tefldar voru 9 umferðir og var
Helgi Ass Grétarsson í liði með al-
þjóðlega meistaranum Michal
Konopka. Þeir urðu efstir á mótinu
með 1414 vinning ásamt stórmeistur-
unum Sergei Movsesian (2.659) og
Jan Smejkal (2.526). Sem fyrsta-
borðsmaður sveitarinnar fékk Helgi
Ass verðlaun fyrir bestan árangur á
því borði, eða 8 vinninga af 9 mögu-
legum. Jafnframt voru valdar bestu
skákir hverrar umferðar og besta
skák mótsins, en það var hægt þar
sem allir keppendur þurftu að skrifa
niður leiki þai' til 5 mínútur voru eftir
af umhugsunartímanum. Helgi Ass
varð þess heiðurs aðnjótandi að fá
verðlaun fyrir bestu skák níundu um-
ferðar og bestu skák mótsins.
Þrátt fyrir allt telur Helgi þó einu
tapskák sína frá mótinu þá áhuga-
verðustu. Andstæðingur hans í þeirri
skák var áðurnefndur Sergei Mov-
sevsian sem er upprunalega Armeni,
en hefur búið í Tékklandi í nokkur
ár. Hann er einu ári yngri en Helgi,
en hefur engu að síður hátt í 2.700
Elo-skákstig. Til gam-
ans má geta þess, að
hann hefur 9 tungumál
á valdi sínu, þó svo að
íslenskan sé ekki þar á
meðal! Eins og jafnan
er um atskákh' urðu
miklar sviptingar í skák
þeirra og mörg mistök
voru gerð sem alla jafn-
an myndu ekki sjást í
venjulegri kappskák.
Engu að síður var tafl-
mennskan fjörleg og
hugmyndarík.
Hvítt: Sergei Movsesi-
an
Svart: Helgi Ass Grét-
arsson
Pi-íbram Rapid, 1999
Spánskur leikur C75
I. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
d6 5. 0-0 Bd7 6. c3 Kge7 7. d4 Rg6
8. Hel Be7 9. Rbd2 h6 10. Rfl Bg5
II. Re3 Bxe3 12. Bxe3 0-0 13. h3
Kh8
Leikið til að undirbúa f7-f5.
14. Rh2
14. Bc2 var betri kostur til að koma í
veg fyrir framrás svarts.
14. ... f5 15. ef Bxf5 16. Rfl Rf4 17.
Bxf4
Nauðsynlegur leikur því annars
hefði d3 reiturinn orðið of góður
stökkpallur fyrir riddarann fyrir ut-
an árásir hans á g2- og h3-punktana.
Peðastaðan sem kemur upp í fram-
haldinu er á margan hátt betri fyrir
hvítan. Hann hefur traustari stjórn á
miðborðinu þar sem líklegra er að
hann geti breytt gangi mála þar að
vild. Helsti kostur svörtu stöðunnar
er sá að f4-peðið heldur hvítum niðri
og skapar hættuleg færi á kóngs-
væng. Staðan er í dýnamísku jafn-
vægi með færum á báða bóga.
17.. .. ef 18. Df3!
Góður leikur sem stöðvar framrás f-
peðsins og hótar um leið að vinna
peð með 19. Bxc6.
18.. .. Hb8!
Góður leikur sem kemur í veg fyrir
að hvítur vogi sér að drepa á c6 því
þá opnast b-línan fyrir hrókinn.
19. Rd2 Dg5 20. Re4 Dg6 21. He2
Ra5 22. Hael b5 23. Bb3
23.. .. b4?
Slæm stöðuleg mistök. Svartur teyg-
ir of mikið úr peðastöðunni með
þessum leik og gefur eftir of mai'ga
hvíta reiti. Eftir 23. ... Rc4 mætti
halda fram með gildum rökum að
svartur standi betur.
24. Rd2!
Einfaldur og markviss
leikur. Hvítur skemmir
ekki peðastöðu sína
með 24. cxb4 heldur
dregur riddarann til
baka og opnar um leið
e-línuna fyrir hrókana.
24. ... bc 25. bc Rxb3
26. ab c5 27. d5!
Hvítur stendur nú ótví-
rætt betur.
27. ... a5 28. Hal Bc2
29. c4?!
29. He6 hefði verið
betra. Með næsta leik
svarts leggur hann
lúmska gildru fyrir
hvítan.
29.... Df6!? 30. Hxa5??
Hvítm- bítur á agnið!
Eftirfarandi leppun er vægast sagt
óvenjuleg! I stað textaleiksins hefði
30. Hael tryggt hvítur frumkvæðið.
30.. .. Bdl! 31. Ha7 Hbe8?
Báðir keppendur voru nú orðnir
tímanaumir, en svartur þó sýnu verr.
Astæða þessa afleiks var að svörtum
yfirsást 33. leik hvíts. Eftir 31. ...
Bxe2 stendur svartur því sem næst
til vinnings þó að tæknilegir örðug-
leikar bíði hans.
32. Hxe8 Bxf3 33.He6!
Hvítur stendur nú síst lakar sökum
sterkra stöðu hrókanna á sjöundu
reitaröðinni.
33. ... Dc3 34. Rxf3 Dxb3 35. Hxd6
Hb8!?
Leggur lævísa gildru fyrir hvítan.
36. Kh2!
En í þetta skiptið féll hvítur ekki í
hana: 36. Hdd7 Ddl+ 37. Kh2 Hbl
og hvítur er óverjandi mát.
36. ... Dxc4 37. Hdd7 Hg8
Nauðsynlegur leikur því að eftir 37.
... Hbl 38.Re5 Dfl verður svartur
mát eftir 39. Rg6+ Kg8 40. Hxg7.
38. Re5 Dfl 39. Rg4?H
Enn eru keppendur að leggja gildr-
ur fyrir hvor annan og loksins er
það sá sem nær að snara þá síðustu
sem ber sigur úr býtum. Betra
hefði verið að taka jafntefli með 39.
Rg6+ Kh7 40. Rf8+ Kh8 41. Rg6+.
Hinsvegar í hita leiksins getur allt
gerst og því ekki að freista gæfunn-
ar?
39. ... h5??
Svartur leggst kylliflatur fyrir
brögðum hvíts. Eins og eftirfarandi
framhald sýnir þá er það svartur
sem stendur til vinnings: 39.... f3! 40.
gf h5 41. Re3. Að öðrum kosti tapar
hvítur riddai'anum bótalaust. 41. ...
Dxf2+ 42. Rg2 h4 43. He7 Dg3+ 44.
Kgl Hb8 45. Hab7 Hxb7 46. Hxb7
c4.
40. Rf6 Dxf2
Aðrir leikir leiða einnig til taps: a)
40. ... f3 41. Hxg7 b) 40. ... Hf8 41.
Hf7!
41. Hxg7H
Svartur er óverjandi mát.
Heimsmeistaramót barna
Dagur Arngrímsson sigraði í ní-
undu umferð og hefur hlotið flesta
vinninga íslensku keppendanna. Da-
víð Kjai'tansson gerði jaftntefli við
Ghonimy Soltan (2.247) og er í
36.-53. sæti í sínum riðli. Harpa Ing-
ólfsdóttir og Guðjón Heiðar Val-
garðsson gerðu einnig jafntefli. Sig-
urður Páll Steindórsson vann sína
skák, en Ingibjörg Edda Birgisdóttir
sat yfir. Staðan eftir níu umferð:
Davíð Kjartansson 4'á
Harpa Ingólfsdóttir 4'Æ v.
Sigurður P. Steindórsson 3Vz v.
Ingibjörg E. Birgisdóttir 3 v.
Guðjón H. Valgarðsson 4 v.
Dagur Arngrímsson 5Vz v.
Skákmót á næstunni
Verulegar breytingar hafa orðið á
mótadagskránni að undanförnu.
Dagskráin hér að neðan hefur verið
uppfærð í samræmi við þær tilkynn-
ingai' sem hafa borist. Þeir sem voru
búnir að skipuleggja þátttöku í mót-
um á næstunni ættu því að kanna
hvort tímasetningar hafi breyst.
4.11. TR. Mánaðarmót.
5.11. Hellir. Atskákmót Hellis.
5.11. SÞV. Atskákm. Isl. Undanrásir.
7.11. Hellir. íslandsmót í netskák.
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss
Grétarsson
Kynnins 03 námskeiö á
Aromatherapy olíum - kjarnaolíum
in
ÍL _
SKIPHOLTS APÓTEK í somvinnu
við Shirley Price Aromolheropy Ltd holdo
kynningu og nómskeið um kjornaolíur.
Fyrirlesori er Belinda Botes, fræðslustjóri
hjó Shirley Price Aromotheropy Ltd, og
fer nómskeiðið from ó ensku.
Fimmtudasinn 4. nóvember nk.
kl. 20.30 til 22.30.
Nómskeiðið er ætloð olmenningi eðo byrjendum i nolkun
ó kjornoolium. Nómskeiðið er holdið ó Hótel Loftleiðum í
Þingsol nr. 7. Þóttlökugjold er kr. 3000. Þóttloko er
miðuð við 30 monns. Vinsomlegost tilkynnið þótttöku í
Skipholts Apóteki eðo i simo 551 7234.
Föstudaginn 5. nóvember nk.
kl. 11 til 17.
Kynning ó kjornoolium í Skipholts Apóteki. Kynningin er
ætluð viðskiptovinum Skipholls Apóteks. Belindo Botes,
fræðslustjóri Shirley Price, mun kynno kjornooliur og
svaro fyrirspurnum viðskiptovino.
20% kynningarafsláttur
SKIPHOLTS APÓTEK Skipholti 50C s. 551 7234
Helena
Rubinstein
Two Way
POWDER CAKE MAKE-UP
Nýr púðurfarði, sem nota
má þurran eða með
rökum svampi. Fljótlegur
í notkun og samlagast
húðinni fullkomlega.
Kynning í dag, fimmtudag, föstudag og laugardag.
LÍTTU VIÐ OG FÁÐU RÁÐGJÖF.
UttvttQ
Glæsilegur kaupauki
fylgir þegar verslað er
Laugavegi 23 H Y G E A
fyrir 4.000 eöa meira. Sími 511 4533 <inyrti»ðruvtr*iun
Reykvíkingar
Munið
borgarstjórnarfundinn
í dag kl. 17.00
sem útvarpað er á
/Vær
M’SMtMKW
Reykjavíkurborg
Skrifstofa borgarstjóra
ÞREKHJÓL - ÆFINGABEKKIR FRÁBÆRT verð
ÞREKHJÓL
með tölvumæli.
Verð aðeins kr. 15.900.
ÞREKHJÓL
með 13 kg kasthjóli
á kr. 19.900
ÞREKHJÓL
magnetic,
Verð aðeins kr. 29.900.
PÚLSMÆLAR
LÆRABANI
MAGAÞJÁLFI
ÞREKPALLAR
TRAMPÓLÍN
HANDLÓÐ
ÆFINGASTÖÐVAR
GEL-HNAKKHLÍFAR
HJÓLABUXUR
5%
staðgreiðsluafsláttur
Upplýsingar um raö-
greiöslur veittar
í versluninni
SPINNING, HJÓL
með 19 kg kasthjóli.
Verð kr. 29.900.
ÆFINGABEKKIR
OG LÓÐ.
Verðfrákr. 18.800.
Ármúla 40.
Símar: 553 5320,
568 8860.
ALVÖRU SPORTVÖRUVERSLUN - ÓTRÚLEGT VÖRUÚRVAL-VARAHLUTA- OG VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
^7M4RK