Morgunblaðið - 04.11.1999, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999 6$
FRÉTTIR
Frumvörp vegna Schengen-
samstarfs lögð fram fljótlega
SÓLVEIG Pétursdóttir dóms- og
kirkjumálaráðherra, var í forsæti
fundar í samsettri nefnd dóms- og
innanríkisráðherra Evrópusam-
bandsríkjanna með dómsmálaráð-
herrum Islands og Noregs í Lúxem-
borg í síðustu viku. Var á fundinum
rætt um mál er varða undirbúning að
aðild íslands og Noregs að
Schengen-samkomulaginu en það
kveður á um ferðafrelsi miUi aðildar-
rílqanna og samstarf um landamæra-
eftirlit á ytri landamærum þess
svæðis, sem aðildarríkin mynda. Þá
var á fundinum íjallað um samræm-
ingu á tölvukerfum, sem ætlað er að
nota við landamæravörslu Norður-
landanna og þeirra sem þegar eru í
notkun á Schengen-svæðinu.
í fréttatilkynningu frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu segir að
Norðmenn hafi að mestu lokið nauð-
synlegri lagasetningu er lýtur að
framkvæmd Schengen-samkomu-
lagsins þar í landi. Lagafrumvörp
þar að lútandi verða hins vegar lögð
fram á Alþingi íslendinga á næstu
dögum.
Jafnframt er hafinn undirbúning-
ur að skipulagi landamæragæslu í
samræmi við samkomulagið sem
m.a. kallar á breytingar á flugstöðv-
unum í Keflavík og á Gardemoen í
Noregi, þar sem aðskilja þarf far-
þega frá öðrum Schengen-ríkjum frá
farþegum sem koma frá ríkjum utan
svæðisins. Þá er unnið að gerð tölvu-
hugbúnaðar sem tengist gæslukerfí
Evrópusambandsins, en Norður-
löndin buðu það verk sameiginlega
út.
Fræðslufundur
um geðræn
einkenni hjá
öldruðum
FRÆÐSLUFUNDUR, sá fjórði í
röð Læknafélags Reykjavíkur fyrir
almenning, undir yfirskriftinni
„Heilsufarsvandamál í Reykjavík í
lok tuttugustu aldar“, verður hald-
inn í dag, fímmtudaginn 4. nóvem-
ber kl. 20.30 í húsnæði læknasam-
takanna á 4. hæð, Hlíðasmára 8 í
Kópavogi. Fjallað verður um geð-
ræn einkenni hjá öldruðum. Fyrir-
lesarar eru María Ólafsdóttir heilsu-
gæslulæknir og geðlæknarnir Sig-
urður Páll Pálsson og Ólafur Þór
Ævarsson.
í fréttatilkynningu segir: „Sam-
fara aukinni lífslengd hafa ýmis
heilsufarsvandamál meðal aldraðra
aukist mjög í tíðni. Heilabilun og
þunglyndi aldraðra eru nú meðal
stærstu verkefna heilbrigðisþjón-
ustunnar og valda miklu álagi á að-
standendur. Efla þarf fræðslu meðal
almennings um þessa sjúkdóma t.d.
hvemig ættingjar geti þekkt fyrstu
einkenni heilabilunar og hvenær
meðferðar er þörf á þunglyndi."
Aðgangur er ókeypis og allir
hjartanlega velkomnir.
Aðrir fyrirlestrar verða: 11. nóv-
ember um mengun og lungnasjúk-
dóma, 18. nóvember um tíðahvörf og
breytingaskeið kvenna og að lokum,
25. nóvember, um offitu og leiðir til
megrunar.
Ræða viðbrögð
við veikindum
geðsjúkra barna
FORELDRAFÉLAG geðsjúkra
barna og unglinga boðar til
fræðslufundar fimmtudaginn 4.
nóvember kl. 20.30 í sal B.U.G.L.,
Dalbraut 12.
Þar mun sr. Bragi Skúlason,
sjúkrahúsprestur á Landspítalan-
um, halda fyrirlestur um „Andleg
viðbrögð foreldra við veikindum
geðsjúkra bama“.
Eftir kaffihlé verða almennar
umræður.
Ráðstefna
um atvinnumál
fatlaðra
ÖRYRKJABANDALAG íslands
heldur ráðstefnu um atvinnumál
fatlaðra í Borgartúni 6 föstudaginn
5. nóv. og hefst hún kl. 13 með
ávarpi félagsmálaráðherra.
í fréttatilkynningu segir: „Ráð-
stefnan er ekki sízt haldin til að fá
gleggri yfirsýn varðandi hinar
ýmsu lausnir sem þurfa að vera fyr-
ir hendi í atvinnumálum fatlaðra og
sérstaklega verður fjallað almennt
um gildi vinnunnar í fyrirlestri á
ráðstefnunni.
Fyrir dyrum standa breytingar
varðandi atvinnumál fatlaðra þar
sem væntanleg er yfirfærsla mál-
efna fatlaðra frá ríki til sveitarfé-
laga en þar ráð fyrir því gert þó, að
atvinnumál fatlaðra og hvers konar
úrlausnir þar falli með sérstökum
ákvæðum inn í lög um vinnumark-
aðsaðgerðir.
Framsögumenn koma með einum
eða öðrum hætti að atvinnumálum
fatlaðra og úrræðum þar svo og
verða framsöguerindi frá Samtök-
um atvinnulífsins og Vinnumála-
stofnun og fatlaður einstaklingur
mun segja frá sinni reynslu af at-
vinnuþátttöku.“
A eftir framsöguerindum verða
almennar umræður. Ráðstefnan er
öllum opin.
Sigraðií
keppni þjóna
FORKEPPNIN Ruinart Trophy á
vegum Samtaka íslenskra vínþjóna
og RJC var haldin í Menntaskólan-
um í Kópavogi hinn 31. október.
Alls tóku sex manns þátt frá
Perlunni, Argentínu, Rex og Hótel
Holti.
Keppnin var hörð og spennandi
en á endanum voru það Sævar Már
Sveinsson frá veitingastaðnum
REX, Þorleifur Sveinbjörnsson frá
Perlunni og Stefán Guðjónsson frá
Argentínu sem komust í úrslit. Eft-
ir stranga keppni var það Stefán
Guðjónsson, yfirþjónn á Argentínu
sem sigraði.
Verðlaunaafhending fór fram á
Hótel Holti - Þingholti um kvöldið.
Veitt voru verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin, en allir þátttakendur
hlutu að launum viðurkenningar-
skjal ásamt flösku af Ruinart-
kampavíni.
Ótrúlegt verð á hinum geisivinsælu Hewlett Packard 710 prenturum
1
/
enginn trúir,
aöeins
krónur
12.501
Algengt verð á HP 710C prenturum er 17.900 krónur.
Oll verð eru staðgreiösluverð með viröisaukaskatti. .
( f- f # % |
1 f f I
1 y 1
Þeir fljúga út!
Enda núna á verði sem
Tölvulistinn • Nóatúni 17 • Simi562 0730
Apótehinu Smiðjuvegi, Kópavogi 4. nóv.
Apótehinu í Hiýhaup, Kringlunni, 5. nóv.
Wré 14.M m l&JMB
Brautryðjendur aó
lœgra lyfjaverði
gardeu
dömu-
fafnaður
kl. 10—18,
laugardaga
kl. 10—14.
Þá er E. Finnsson
pizzusósan góður
grunnur á pizzuna þína.
Ljúfur ítalskur keimur
sem stenst væntingar
þeirra kröfuhörðustu
á heimilinu.
&
VOGABÆR
190 Vogar Sími: 424 6525