Morgunblaðið - 10.11.1999, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Karlmaður sýknaður af ákæru um ölvunarakstur
Hafði sætaskipti við
konuna á bílastæðinu
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur sýknað karlmann sem
ákærður var síðastliðið sumar fyrir
ölvunarakstur.
Málsatvik eru þau að bifreið er
ekið að lögreglustöðinni á Akureyri
skömmu eftir hádegi á sunnudegi
og kom maðurinn, sem var á ferð
með sambýliskonu sinni og ungu
barni, inn á stöðina og óskaði eftir
að blása í öndunarsýnamæli. I kjöl-
far niðurstöðu mælingarinnar var
hann handtekinn og gefíð að sök að
hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum
áfengis.
Konan vildi
ekki keyra
Skýrði maðurinn svo frá íyrir
dómi að sambýliskona sín hefði ek-
ið bifreiðinni en hann setið í aftur-
sætinu ásamt barni þeirra, sem var
mjög órólegt. Konan hefði því ekki
viljað aka bifreiðinni til Reykjavík-
ur, þangað sem för var heitið, og
því orðið úr að koma við á lögreglu-
stöð til að kanna hvort hann væri
hæfur til að aka bifreiðinni. Þegar
á lögreglustöðina var komið hefðu
þau skipt um sæti, sambýliskonan
sest hjá barninu í aftursætið en
maðurinn í ökumannssætið, en þó
þannig að bíldyrnar voru opnar og
fætur hans stóðu út úr bílnum.
Ekki hefði öðrum sætum verið til
að dreifa í bílnum þar sem farþega-
sætið við hlið ökumannssætis hefði
verið framarlega vegna barnabíl-
stóls.
Lögreglumaður bar
að maðurinn hefði ekið
Sambýliskonan lýsti atvikum
einnig á sama veg, sagði manninn
hafa verið að sækja ökuskírteini
sitt er hann settist í framsæti bif-
reiðarinnar og eins hefðu þau verið
að ræða hvort nauðsynlegt væri að
athuga aksturshæfni hans. Tók
hún fram að bílstjóradyrunum
hefði aldrei verið lokað.
Lögreglumaður sem bar vitni fyr-
ir dómi bar að maðurinn hefði ekið
bifreiðinni er hún kom inn á bíla-
stæði við lögreglustöðina og kona
setið í aftursæti hennar. Þá sagðist
hann hafa rætt við sambýliskonuna,
sem hefði tjáð sér að maðurinn
hefði ekið bifreiðinni. Það segir kon-
an vera rangt, slík spuming hafi
ekki verið borin fram fyrr en við
skýrslutöku.
I dómi Héraðsdóms Norðurlands
eystra þykir framburður mannsins
og sambýliskonu hans trúverðugur
sem og skýringar þeirra á sæta-
skiptum í bílastæðinu. Þrátt fyrir
framburð lögreglumannsins þykir
því óvarlegt að telja sannað að mað-
urinn hafí gerst sekur um ölvun-
arakstur og hann því sýknaður af
öllum kröfum ákæruvalds.
JÓLABLAÐAUKI
Jólamatur,
gjafir og föndur
Auglýsendur athugið!
Bókið auglýsingar í tíma þar sem uppselt hefur verið f
jólablaðauka fyrri ára.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 föstudaginn
12. nóvember.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýslngadeild í síma 5691111.
mnrgtwMaMfo
AUGLÝSINGADEILD
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Aukin umsvif hjá Straumrás á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Starfsmönnum fjölgað
STRAUMRÁS hf. á Akureyri hef-
ur tekið að sér sölu og þjónustu á
öllum véla- og raftæknivörum
Fálkans í Reykjavík. Má þar
nefna Telemecanique rafmagns-
vörur frá Schneider Electric,
Sachs kúplingar og höggdeyfa
og Vent Axia viftur. Með þessu
er verslunin að auka þjónustuna
og vöruúrvalið til þess að mæta
betur kröfum viðskiptavina
sinna. Aðrar vörur sem fyrirtæk-
ið hefur verið með verða áfram
til sölu. Vegna aukinna umsvifa
hefur Straumrás bætt við sig
tveimur nýjum starfsmönnum.
Eins og nafn verslunarinnar
gefur til kynna, selur Straumrás
m.a. vörur sem eitthvað streymir
um, eins og olía, vatn, loft eða
rafmagn, og tengdan búnað,
loka, tengi, rofa, svo og legur og
pakkdósir, verkfæri og margt
fleira.
Á myndinni er Halldór Gests-
son yfirverkstjóri á vélaverk-
stæði Samherja hf. að skoða nýja
hnappaefnið frá Telemecanique,
ásamt starfsmönnum Straumrás-
ar, þeim Rúnari Steingrímssyni
og Guðna Hermannssyni verslun-
arstjóra.
Skipulag og uppbygging miðborga
Verslunarmið-
stöð í samkeppni
við miðbæinn
SKIPULAG og uppbygging mið-
borga var til umræðu á fundi sem
skipulagsdeild Akureyrarbæjar
efndi til um liðna helgi en framsögu-
menn voru þeir Richard Abrams og
James Morrisey, ráðgjafar Reykja-
víkurborgar um þróunaráætlun
miðborgarinnar. Þá var gerð grein
fyrir þróunaráætlun fyrir miðborg
Reykjavikur.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, sagði að
um áhugaverðan fund hefði verið að
ræða og nauðsynlegan í þeirri um-
ræðu sem nú væri að hefjast um
endurskipulag miðbæjarins á Akur-
eyri. í sjálfu sér skipti stærð sveit-
arfélaganna ekki höfuðmáli, mikil-
vægt væri hverju byggðarlagi að
hafa virkan og lifandi miðbæ. Varð-
andi uppbyggingu miðbæja ættu
menn að hafa langtímamarkmið í
huga. Nauðsynlegt væri að skil-
greina hlutverk miðbæjarstarfsemi
og gera greiningu á því húsnæði
sem þar er fyrir hendi. Miklar um-
ræður urðu á fundinum um fyrir-
hugaða verslunarmiðstöð á Gler-
áreyrum og hvaða afleiðingar hún
hefði á starfsemi í miðbænum. Sig-
urður sagði að um hana væri þegar
búið að taka ákvörðun sem ekki yrði
breytt.
Mun dofna yfir miðbænum
Halldór Jóhannsson landslags-
arkitekt sagðist hlynntur því að
reist yrði stór verslunarmiðstöð í
bænum en hann hefði efasemdir um
staðsetninguna. Augljóslega myndi
dofna mjög yfir miðbænum í kjölfar
þess að verslunarmiðstöðin risi á
Gleráreyrum, hún væri of langt frá
gamla miðbænum til að ná við hann
tengslum og yrði þannig í mikilli
samkeppni við hann. Hann hefði
kosið að betur hefði verið farið í
málið og staðsetning á Akureyrar-
veili eða sunnan miðbæjarins skoð-
uð ofan í kjölinn.
Halldór nefndi einnig að bæjar-
yfirvöld væru að liðka tH með flutn-
ing fyrirtækis í tengslum við bygg-
ingu verslunarmiðstöðvarinnar, en
sú ákvörðun hefði eflaust verið tek-
in án þess að skoða hver áhrif mið-
stöðin hefði á miðbæjarstarfsem-
ina. Ekki væri ólíklegt að þau yrðu
á þann veg að verðmæti eigna í
miðbænum rýrnaði. Á þann hátt
væru bæjaryfirvöld að mismuna
mönnum.
-------------
Ljóðakvöld
tileinkað
Matthíasi
LJÓÐAKVÖLD sem verður á Sig-
urhæðum - Húsi skáldsins í kvöld,
verður helgað Matthíasi Jochums-
syni, en á morgun eru liðin 164 ár
frá fæðingu hans. Dagskráin er í
höndum Erlings Sigurðarssonar
forstöðumanns hússins.
Til viðbótai- verður stuttlega
kynntur kveðskapur þeirra Akur-
eyrarskálda sem gerðu garðinn
frægan á þessari öld, en hafa verið
kölluð burt, þ.e. þeirra Páls J. Ár-
dal, Daviðs Stefánssonar, Guð-
mundar Frímann, Heiðreks Guð-
mundssonar, Braga Sigurjónssonar,
Kristjáns frá Djúpalæk og Rós-
bergs G. Snædal. Áuk þess verður
mönnum gefinn kostur á að fylgjast
með því hvemig haustið hefur boð-
að komu sína í íslenskum ljóðheimi
um árin. Sýning á ljóðum fyrr-
nefndra skálda er á Sigurhæðum.