Morgunblaðið - 10.11.1999, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Thatcher
fjarri
Lundúnum. Reuters.
VIÐ endurfundi fyrrverandi leið-
toga Bandaríkjanna, Sovétríkjanna
og Þýzkalands í Berlín í tilefni af
því að áratugur er liðinn frá því að
Berlínarmúrinn féll, þótti sumum
áberandi að eina manneskju vant-
aði í hópinn sem hafði talsvert að
segja um gang heimsmálanna á
lokaspretti kalda stríðsins: Marg-
aret Thatcher, þáverandi forsætis-
ráðherra Bretlands.
„Þess var aldrei farið formlega á
leit við okkur að taka þátt í hátíðar-
höldunum í Berlín,“ sagði talsmað-
ur Thatcher, þegar Reuters innti
eftir þessu. „Hún lætur sér fátt um
slíka hluti finnast,“ sagði hann.
Skipuleggjendur hátíðarhald-
anna halda öðru fram. „Við spurð-
um hana þráfaldlega hvort hún
vildi taka þátt, sem áhrifamikill
stjórnmálaleiðtogi á alþjóðavett-
vangi þessa tíma. En hún sagði allt-
af nei,“ hefur Lundúnablaðið Times
eftir talsmanni Axel Springer-út-
gáfufyrirtækisins, sem hafði um-
sjón með hátíðardagskrá gærk-
völdsins.
Thatcher barónessa mun þess í
stað halda til Prag í næstu viku og
taka þar þátt í minningardagskrá í
tilefni af því að 10 ár verða liðin frá
endalokum kommúnismans í
Tékklandi.
ERLENT
Clinton lagði út af falli Berlínarmúrsins í ræðu um utanríkismál
Varaði við
einangrunar-
hyggju
Washington. Reuters.
Berlínarbúar rifja upp hátíðarstemmningu aðfaranætur 10. nóvember 1989
Um 100.000
manns í gleðskap
á „dauðasvæðinu“
Berlín. AP, Reuters, AFP.
ÞESS var minnzt með margvís-
1‘egum hætti víðs vegar um
Þýzkaland í gær, að réttur ára-
tugur var liðinn frá kvöldinu sem
breytti heiminum; þegar Berlín-
armúrinn féll án þess að nokkur
hefði átt von á því, og fólk frá
austri og vestri sem kalda stríðið
hafði aðskilið í áratugi féllst í
arma í mikilli hátíðarstemmningn
á götum Vestur-Berlínar.
Þótt 9. nóvember sé ekki al-
mennur frídagur í Þýzkalandi
var búizt við því að allt að
100.000 manns myndu taka þátt í
gleðskap í höfuðborginni til að
minnast þessara sögidegu tíma-
móta. Sett voru upp svið fyrir
skemmtiatriði á mörgum stöðum
þar sem áður var „dauðasvæðið“
svokallaða, sem aðskildi borgar-
hlutana. Hátt á annað hundrað
manns, sem reyndi að flýja Aust-
ur-Þýzkaland, var skotið til bana
við múrinn og annars staðar á
landamærum Austur- og Vestur-
Þýzkalands, en á „dauðasvæðinu“
fyrrverandi í Berlín, þar sem
gaddavír, jarðsprengjur, varð-
turnar og sjálfvirkar vélbyssur
stóðu áður, er nú ýmist autt
svæði mitt í borginni eða nýbygg-
ingar að rísa.
Skiptingin ekki yfirunnin
Við skipulagningu hátiðahaid-
anna að þessu sinni var ekki sízt
hugsað til þess að reyna að efla
samhug og einingu milli íbúa
austur- og vesturhluta landsins,
en á slíkri einingu hefur ekki
mikið borið frá því á fagnaðar-
nóttinni miklu, aðfaranótt 10.
nóvember 1989.
Hin opinbera hátíðardagskrá
hófst með guðsþjónustu í Maríu-
kirkjunni í hinni gömlu miðborg
Berlínar, sem tilheyrði Austur-
Berlín, og athöfn í ráðhúsinu sem
þar er einnig. Meðal boðsgesta í
ráðhúsinu voru þau 85 börn, sem
fæddust í Berlín einmitt þennan
dag árið 1989.
„I nokkur augnablik var Berlín
miðpunktur heimsins," sagði
Eberhard Diepgen borgarstjóri í
ávarpi í ráðhúsinu. Hann rifjaði
upp hvernig yfir sig glaðir Aust-
ur-Berlínarbúar streymdu yfir
múrinn og voru boðnir velkomnir
af íbúum vesturhlutans. „Þessar
gleðimyndir ættum við að geyma
í minni okkar, sem grundvöll fyr-
ir framtíðina," sagði hann.
En í gær minnti hins vegar eitt
og annað einnig á, að ýmislegt
skilur Austur- og Vestur-
Þjóðveija enn að. Nýjustu tölurn-
ar yfir atvinnuleysi í landinu voru
birtar í gær og sýndu að ástandið
á vinnumarkaðnum batnaði lítil-
lega í Iiðnum mánuði í vestur-
hluta landsins, mælist nú 8,2%, en
í austurhlutanum versnaði at-
vinnuleysishlutfallið í 16,9%.
Forystumenn stjórnarandstöð-
unnar gripu þessar tölur á lofti
til að draga í efa að ríkisstjórnin
væri að gera það sem hún gæti til
að bæta lífskjör Austur-Þjóð-
verja. Gerhard Schröder kanzlari
viðurkenndi í þinginu að mikið
verk væri enn óunnið á þessum
vettvangi. „En við vitum að með
því að leggjast allir á eitt getum
við þetta,“ sagði hann.
Kanzlarinn átti að halda aðra
ræðu í gærkvöldi á einu hinna
fimm sviða á „dauðasvæðinu"
fyrrverandi, þar sem aðal-
hátíðahöldin fóru fram. Á dag-
skránni voru tónleikar fjöl-
margra tónlistarmanna, af öilum
stærðum og gerðum. Hinn
heimskunni sellóleikari Mstislav
Rostropovich hugðist endurtaka
leikinn frá því fyrir tíu árum,
þegar hann hélt útitónleika við
múrinn rétt eftir að hann féll.
Áformað var að dagskrá næt-
urinnar næði hámarki þegar
fjögurra kílómetra löng leið, ná-
kvæmlega þar sem múrinn lá áð-
ur, þar á meðal eftir Branden-
borgarhliðinu endilöngu, er lýst
upp með magnesiumblysum.
Skálað í freyðivíni við Brandenburgarhliðið í gærmorgun.
AP
Fimmmenningarnir, sem auk Gerhards Schröders kanzlara fluttu
ávörp á hátiðarsamkomu í Ríkisþinghúsinu í Berlín í gær. F.h.; Hel-
mut Kohl, fv. kanzlari, Mikhaíl Gorbatsjov, fv. Sovétleiðtogi, Wolfg-
ang Thierse, forseti þýzka þingsins, George Bush, fv. forseti Banda-
ríkjanna, og Joachim Gauck, sem hefur umsjón með skjölum a-þýzku
öryggislögreglunnar fyrrv., Stasi, en hann ásamt Thierse voru fyrir
10 árum meðal þeirra a-þýzku andófsmanna sem hrundu múrnum.
Feikileg flugeldasýning átti að
fylgja í kjölfarið.
Það er fieira en hin gleðilega
minning um fall múrsins sem í
þýzkri sögu tengist dagsetning-
unni 9. nóvember. Schröder
kanzlari rifjaði upp í þingræðu
sinni í gær, að þennan dag fyrir
61 ári hefðu gyðingaofsóknir
nazista færzt á nýtt stig, á
„Kristalsnóttinni" svokölluðu,
sem svo er nefnd vegna glersins
sem brotið var í stórum stíl þegar
brúnstakkar eyðilögðu verzlanir
gyðinga og guðshús þeirra í
mörgum borgum Þýzkalands.
Auk þess var hinn 9. nóvember
1923 endir bundinn á svokallaða
„Bjórkjallaruppreisn" Adolfs
Hitlers og nokkurra bandamanna
hans, og 9. nóvember 1918 afsal-
aði Vilhjálmur II. Þýzkalands-
keisari sér völdum, en sá atburð-
ur markaði í raun endalok
heimsstyrjaldarinnar fyrri.
Vegna þess hve þessi dagsetn-
ing er hlaðin sögulegum minning-
um valdi Helmut Kohl, „kanzlari
sameiningarinnar", vísvitandi að
forðast að sameining þýzku ríkj-
anna árið 1990 yrði að veruleika í
nóvember. Hann er sagður hafa
valið 3. október sem dag samein-
ingarinnar - og þjóðhátíðardag
eftirleiðis - eftir að veðurfræð-
ingar höfðu bent á að samkvæmt
veðursögulegum gögnum væri
þetta sá októberdagur sem helzt
mætti reikna með því að vel viðr-
aði.
Bill Clinton flytur ræðu sína í Georgetown-háskóla.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, minntist þess í fyrrakvöld, að
tíu ár eru liðin frá falli Berlínar-
múrsins og sagði, að Bandaríkin
yrðu ávallt að axla sína ábyrgð í al-
þjóðamálum.
Clinton nefndi ekki þingið á nafn
í ræðu sinni en ekki fór á milli mála,
að hann beindi spjótum sínum fyrst
og fremst að því, sem hann hefur
kallað „hina nýju einangrunar-
hyggju" í Repúblikanaflokknum.
Gerði hann það ekki síst með því
að lofa þá utanríkisstefnu, sem báð-
ir flokkar stóðu að í tíð fyrrverandi
forseta, allt frá Harry Truman til
George Bush. Sagði hann, að ávöxt-
ur hennar hefði verið hrun komm-
únismans og fall Berlínarmúrsins.
Undarleg hlutfóll
„Við skulum ekki gleyma þætti
okkar Bandaríkjamanna í sigri
frelsisins í Evrópu og við skulum
taka þátt í að ljúka verkinu, sjá lýð-
ræði, frelsi og frið ríkja í allri álf-
unni í fyrsta sinn.
Eg er viss um, að flestir Banda-
ríkjamenn eru mér sammála um
þetta en þó ekki allir. Hlutföllin eru
hins vegar öfug í þeirri stofnun,
sem mestu ræður, svo undarlegt
sem það er,“ sagði Clinton og hlógu
þá margir utanríkismálasérfræð-
ingarnir í áheyrendahópnum.
Clinton, sem sakaði repúblikana
um einangrunarhyggju er þeir
felldu samninginn um bann við til-
raunum með kjarnorkuvopn, sagði,
að ekki væru allar fréttir af þinginu
slæmar að þessu leyti. Það hefði
samþykkt aukna aðstoða við erlend
ríki en ætti þó eftir að reka af sér
það slyðruorð, sem væri skuld
Bandaríkjanna við Sameinuðu
þjóðirnar.
Clinton vék einnig að Rússlandi,
Balkanskaga, Eyjahafi og Miðaust-
urlöndum og sagði, að þar biðu
mikil og erfið verkefni.