Morgunblaðið - 10.11.1999, Síða 29

Morgunblaðið - 10.11.1999, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 29 Menning og náttúra í sveitum landsins Morgunblarlið/Golli Þórunn Sigurðardóttír og Garðar Jónsson undirrita samstarfssamn- inginn undir vökulu auga borgarstjórans, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Víólukonsert Hafliða Hallgrímssonar fær góða dóma Einleiks- þátturinn snilld arlega saminn KYNNT var um helgina samstarfs- verkefni Reykjavíkur menningar- borgar Evrópu 2000 og 28 sveitar- félaga og stofnana víðsvegar um landið. Borgarstjóri Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagð- ist við það tækifæri vona að sam- vinnan væri vísir að öflugu sam- starfi sveitarfélaga á sviði menningarmála. Verkefnin 30 eru unnin undir yf- irskrift menningarársins, Menning og náttúra, og einkennir mikil fjöl- breytni verkefnin, enda leita flest sveitarfélaganna fanga í sinni heimabyggð. Samstarfsverkefnin verða kynnt á heimasíðu Menning- arborgarinnar sem fær um 1000 heimsóknir á dag, flestar erlendis frá, og bjóðast því góðir landkynn- ingarmöguleikar. Hafgiían í Grindavíkurhöfn Grindvíkingar munu hefja menn- ingardagskrá sína á sjómannadag- inn með frumflutningi Hafgúanna eftir Atla Heimi Sveinsson. Verkið er gjömingur fyrir fyrir togara, mótorbáta, þokulúðra, eimpípur, olíutunnur og slipphljóðfæri. Einnig verður sýning á útilista- verkum ungmenna í Grindavík og tónminjasýning til heiðurs staðar- tónskáldinu, Sigvalda Kaldalóns. Þá verður Spuni, röð raf- og djass- tónleika haldin í Illahrauni um- hverfís Bláa lónið, auk þess sem fjöllistaverkið Námur verður sýnt í Eldborg. En verkið er unnið með þátttöku 36 alþjóðlegra listamanna sem frá 1987 hafa smíðað verk er stikla á tólf öldum Islandssögunnar og glímunni við óblíða náttúru landsins. Víkingaöld í Dalasýslu Eiríksstaðanefnd og Dalasýsla standa fyrir hátíð Leifs heppna á Eiríksstöðum í Haukadal. En í Dalasýslu verður menningarárið helgað landafundum Leifs Eiríks- sonar sem og landnámi Eiríks rauða á Grænlandi. Nú rís á Eiríks- stöðum, líklegum fæðingarstað Leifs heppna, skáli Eiríks rauða sem er eftirmynd víkingaskála sem þar stóð á 9. öld. En bæjarrústirnar hafi verið vandlega rannsakaðar og hefur vinna staðið yfir í um fjögur ár. Hluti hátíðarhalda þeirra Dala- manna fer síðan fram í Búðardal þar sem verður opnuð sýning um Laxdælu og landafundina, auk þess sem kvenskörungunum Þjóðhildi, konu Eiríks rauða, Auði djúpúðgu og Guðrúnu Ósvífursdóttur verða gerð skil. Þá sýna norrænir og grænlensk- ir handverksmenn og víkingar verklag forfeðranna. Leiksýningar sem tengjast Leifi og öðrum sögu- hetjum Dalanna verða haldnar, auk þess sem boðið verður upp á lifandi tónlistarflutning. Rekaviður og raftónlist Á Akranesi tekur menningarárið mið af því að á Akranesi var einn fyrsti vísir að sjávarþorpi á Islandi. Listamenn vinna af því tilefni að verkum samkvæmt þemanu Sjáv- arlist; veiðar, vinnsla og samfélag, og verður verkum og viðburðum valinn staður meðfram ströndum bæjarins. Utilistaverkin eru unnin af níu listamönnum sem allir eiga það sameiginlegt að hafa einhvern tím- ann búið á Akranesi. Verkin eru fyrst og fremst unnin úr náttúru- legum efnum, s.s. torfi, rekaviði, grjóti og brotajámi og verður kom- ið fyrir göngustíg milli verkanna, þar sem getur að líta „ljóða-“ og „sögustólpa“. Kópavogsbúar standa fyrir raf- og tölvutónlistarhátíð, sem haldin verður til að vekja fólk til umhugs- unar um áhrif tækniframfara á tónlist, sköpun og flutning. Samhliða tónlistarhátíðinni verð- ur síðan haldin ráðstefna um raf- og tölvutónlist með fyrirlestrum og sýningum. En þekkt tónskáld og fræðimenn verða fengnir til fyrir- lestrarhalds. Alls verða haldnir 11 tónleikar undir þemanu fortíð, nú- tíð og framtíð raf- og tölvutónlistar, jafnframt því sem boðið verður upp á minni uppákomur eins og inn- setningar og bíósýningar tengdar raf- og tölvutónlist. Hnattlæg sýning frá Seyðisfirði Verkefni Seyðisfjarðarbúa, Karl- inn í tunglinu - börnin á jörðinni, er ætlað öllum börnum heimsins. En markmið verkefnisins er að ná til barna allra landa og útbúa úr fram- lögum þeirra heildstæða sýningu sem sýnd verði um allan heim. Áætlað er að verkefnið standi yfir í 8-20 ár, en sýningin mun að upp- lagi samanstanda af þrívíðum verk- um barnanna. Hólmavíkurhreppur mun síðan standa fyrir galdrasýningu, en frá upphafí íslandsbyggðar hefur galdraorð farið af Strandamönnum. En ætlunin er að sýna íslensk galdramál á skilmerkan hátt og gefa um leið nokkra hugmynd um sérkenni Islands miðað við galdra- fárið á meginlandi Evrópu. Margvísleg tækni verður notuð til að miðla sögunni og má þar nefna myndræna uppsetningu á einstökum atburðum, kvöldvökur og leikþættir. Söguleg yfirlitssýn- ing um galdra og galdramenn 17. aldar verður síðan opnuð í Hólma- vík á Jónsmessunótt árið 2000. VIÓLUKONSERT Hafliða Hall- grímssonar, Ombra, fær lofsam- lega dóma í breskum dagblöðum en verkið var fi'umflutt í Skotlandi um liðna helgi. Lék Kammersveit Skotlands konsertinn í þrígang, í St. Andrews, Edin- borg og Glasgow, undir stjórn Finnans Mikkos Franck. Ein- leikari var Norð- maðurinn Lars- Anders Tomter. „Verkið er skrifað fyrir strengi sem hafa sig satt best að_ segja lítt í frammi. Á liinn bóginn er ein- leiksþátturinn svo spennandi, snilldar- lega saminn og svip- mikill, að það hlýtur að vera umbun í sjálfu sér fyrir hljómsveitina að mynda aðeins réttu hljóðin í bakgrunninum," segir Gerald Larner í The Times. Hann ber einnig lof á einleikar- ann, Tomter, sem sé hljómmikill, teknískur og litríkur í leik sínum og „ekki veitti af f þessu verki, sem setur einleikarann í hlutverk sagnaþulsins, sem bunar úr sér hetjusögum og ævintýrum um ást- ina án þess að glata athygli áheyrandans eitt augnablik." Gagnrýnandi The Scotsman, Stephen Johnson, hrífst einnig af verkinu - segir það vel skrifað fyrir víóluna. „Þetta er ekki út- hverft verk en hrífur mann með hárbeittum hætti." Johnson eys Tomter einnig lofi. „Ef víóluleikarar á borð við norska virtúósinn Lars-Anders Tomter halda áfram að koma fram á sjónarsviðið, mun víólu- spaug heyra sögunni til. Víólunni hefur löngum verið lýst sem Oskubusku strengjadeildarinnar, eða jafnvel ótótlegu, óskilgetnu afkvæmi fiðlu og sellós - undan- komuleið hins mis- heppnaða fiðluleikara. En þegar maður heyr- ir Tomter flytja Ombru Hafliða Hall- grímssonar verður manni ljóst hvflík ljóð- ræna og kraftur býr í hljóðfærinu." Enn einn aðdáandi Ombru, Conrad Wil- son, ritar dóm í The Herald. Segir hann verkið búa yfir tærri tjáningu, líkt og títt sé um verk norrænna tónskálda. „Grunnurinn er afgerandi, strengjaáferðin vönduð, andstæðurnar, hratt og hægt, augljóst og órætt, hvasst og oddlaust, voru fallega mótaðar án þess að tilfinningar væru bældar.“ Mikko Franck fær ekki eins góðar kveðjur frá gagnrýnendun- um. Þeir eru ekki sérlega hrifnir af honum, hvorki stfl né áherslum. Segja hann í besta falli hafa verið mistækan og finna sérstaklega að stöðugu stappi hans á pallinum. Það sé ógeðfelldur ávani hjá stjórnendum. Opiö alla daga Mikið úrval af fatnaði fyrir stelpur 5-13 ára 108 Reykjavfk Faxafeni 8 Rýmum fyrir jóla- og áramótafatnaði 30 - 70% afsláttur 10% afsláttur af nýjum vörum (Formula 1, 56 Formula 1,2,3 & 4! Eg get sagt þér ótrúlegar sögur -1- Hreinlætis- tækja da ar Salerni Með lokuðum fæti og setu 15.990 kr. HUSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Hafliði Hallgrfmsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.