Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 6
NONNI OG MANNI
6 D LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
--------------------------—------------------------------------------MORGUNBLAÐIÐ
korta/W^ __________________________
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
UPPRIFJUN -
Kristín skoðar gamlar jóiamyndir ásamt Grétu Rut og Heimi.
Ljósmynd/Sissa
JÓLAKORTIÐ 1997 - Gréta Rut og Heimir ásamt Pílu og
Perlu.
Ljósmynd/Sissa
JÓLAKORTIÐ 1998 - Pétur Pan og Skellibjalla í Gamla
kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík.
Jólakveðia frá Pétri Pan
ið sjálf erum ekkert
sérstaklega dugleg við að
taka myndir og því höfum við
látið Sissu Ijósmyndara um að
taka myndir af krökkunum okkar í
kringum jólin eða allt frá því yngra
barnið okkar, Heimir, fæddist," segir Kristín
Heimisdóttir tannlæknir en hún og
eiginmaður hennar, Bjarni Elvar Pjetursson
tannlæknir, eiga tvö fjörmikil börn, þau
Grétu Rut fimm ára og Heimi fjögurra ára.
Kristín segist leggja mikla áherslu á að
senda vinum og vandamönnum myndir af
börnunum um jólin og komið hefur fyrir að
heimilishundarnir, Perla og Píla, hafi fengið
að vera með. „Fólk á að senda myndir af
krökkunum sínum eða einhverju öðru því
tengt. Mér finnst það miklu skemmtilegra en
að fá hefðbundin jólakort," segir Kristín og
nefnir að hún hafi fengið ófáar jólamyndir í
gegnum tíðina af hundum vina sinna. „Og
einu sinni fengum við jólakort frá barnlausu
vinafólki okkar sem lét fylgja með mynd af
nýja bílnum sínum,“ segir Kristín og hlær.
Þegar blaðamaður kíkir í fjölskyldualbúm
Kristínar og Bjarna kemur í Ijós að
jólamyndirnar af börnunum í gegnum árin eru
langt frá því að vera hefðbundnar. Þar gefur til
dæmis að líta nærmyndir af börnunum þar
sem hálft andlitið er falið á bak við hvíta plötu,
skemmtilega útimynd af börnunum undir
gullregninu í garðinum ásamt
heimilishundunum tveimur og loks
ævintýralega mynd þar sem börnin hafa
fengið að bregða sér í hlutverk Péturs Pan og
Skellibjöllu, persóna úr ævintýrinu um Pétur
Pan. Sú mynd var tekin fyrir jólin í fyrra og
segir Kristín að hún og Sissa Ijósmyndari hafi
ákveðið umgjörð myndarinnar í sameiningu.
„Eg hafði séð búningana úr ævintýri Péturs
Pan í Disney-verslun í París fyrr um haustið og
og Skellibjöllu
þegar við ákváðum að hafa þau í þessum
búningum hringdi ég í verslunina í París og
bað þá um að senda mér fötin. Þeir gátu það
ekki en gáfu mér símanúmerið í Disney-
versluninni í London og þaðan fékk ég svo
fötin send,“ segir Kristín.
Morgunstund yfir kortunum
Kristín segir að krökkunum hafi ekki þótt
leiðinlegra að fá að klæðast búningi Péturs
Pan og Skellibjöllu enda sé ævintýrið í miklu
uppáhaldi á heimilinu. „Þau tilkynntu mér
það til dæmis um daginn að þau vildu ekki
verða fullorðin," segir Kristín og hlær. En
hvað sem því líður tókst myndatakan vel og
ekki dró umhverfið úr ævintýraljóma
Ijósmyndarinnar af þeim systkinum því
myndatakan fór fram í Gamla kirkjugarðinum
við Suðurgötu í Reykjavík. „Við þurftum að
bíða í nokkra daga eftir að hægt væri að taka
myndina því Sissa vildi hafa ákveðin
birtuskilyrði en þegar kom að tökunni gekk
þetta mjög vel og henni var lokið á tæpum
klukkutíma."
Kristín telur mikilvægt að gefa sér nægan
tíma til að undirbúa og skrifa á jólakortin og
bendir auk þess á að þau reyni jafnan að búa
til jólakortin sjálf úr þykkum pappa og ýmsu
skrauti. „Að þessu sinni eru krakkarnir orðnir
það stórir að þeir eru farnir að geta skreytt
kortin sjálf og teikna á þau alls kyns myndir
með litríkum glimmerpennum," segir Kristín
og bætir við að börnin séu farin að læðast úr
rúmi snemma á morgnana til þess að teikna á
kortin enda ekki vanþörf á þar sem um 120 1
vinir og vandamenn megi eiga von á
jólakortum frá þeim að þessu sinni. Hvernig
svo jólamyndirnar líta út verður bara að koma
í Ijós þegar kortin eru opnuð á aðfangadag
jóla.
liil
LIS FASAFN ÍSIANDS
Fr/kirkjuvcgi 7 • Simi 562 1000
Opid alla daga nema niánudaga kl. 1 1 - 17
• ^
í Urval glæsilegra
listaverkabóka
Eru Ásgrímur, Kjarval, Þorvaldur, Gunnlaugur
Scheving, Helgi Þorgils eða abstraktmennirnir
þínir menn? Bækur um list þeirra, á íslensku
og ensku, færðu í Listasafni íslands.
Fallegt og tært kristalsglas
meö 24 karata gullskreytingu.
Glasið er gjöf við öll taekifæri
-brúðkaup, afmæli, skírn,
útskriftargjöf, jólagjöf, ofl.
Tilboðsverð:
2 stk. I kassa kr:3.500,-
m
kKRISTALL
S úrefnis vör ur
Karin Herzog
Oxygen face
jSkS/SSttmmr
Skáldskapur
með smáköku-
bakstrinum
BÓKAÞJÓÐIN stendur sjald-
an eins áþreifanlega undir
nafni og í jólamánuðinum.
Þá fara ekki einungis upp-
skriftabækur á loft, heldur
svigna bókahillur verslana
undan nýjum eintökum,
bindum og kápum sem
óþreyjufullir lesendur þyrpast
að eins og býflugur að hun-
angi.
Síðustu daga desember-
mánaðar þykir mörgum
ómissandi að leggjast upp í
sófa með hríðina á gluggun-
um og opna nýja bók og
sindrandi konfektkassa. Að-
ventan er ekki síðri tími til
lesturs og hafa ýmsir það
fyrir reglu að festa kaup á
spennandi bók í byrjun jóla-
föstu til þess að glugga í
milli þess sem hrært er í
kökur.
Jólablaðauki Morgun-
blaðsins er í ár kryddaður
með brotum úr íslenskum
skáldverkum þar sem jól
koma við sögu með einum
eða öðrum hætti. Gleðileg
bókajól!