Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 18
18 D LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
vaktir dagana fyrir jól kalla líka á
skipulegan undirbúning - það eru
gömul sannindi og ný að maður
bjargar ekki heiminum á aðfanga-
dagsmorgun.“
Kertaljós og
öðruvísi fréttir
Eitt er að vinna fram eftir á að-
ventu, annað að vinna á sjálfum jól-
unum. Jóhanna Vigdís kippir sér þó
ekki upp við það, enda ýmsu vön.
„Eðli vaktavinnu er einfaldlega
þannig að stundum er maður
heppinn og stundum ekki.“ Reynd-
ar eru áhöld um hvort heppninni
hefur verið fyrir að fara í vakta-
mynstri Jóhönnu Vigdísar, því öll
árin sín hjá RÚV hefur hún verið á
vakt annaðhvort um jól eða ára-
mót.
„Flestir fréttamennirnir lenda
reyndar í því að taka aðra hvora
vaktina, það er aðeins einn á ári
sem sleppur, en af einhverjum or-
sökum hefur þessi eini aldrei verið
ég,“ segir hún hlæjandi. Og ofan í
kaupið er nú Ijóst að þetta árið
lendir hún á tvöfaldri hátíðarvakt.
„Já, einu sinni á tveggja mánaða
fresti kemur það í hlut hvers okkar
að vinna tvær helgar í röð með fríi
fjóra virka daga á milli. I ár fæ ég
slíkan pakka einmitt um jólin, vinn
aðfangadag, jóladag og annan í jól-
um og svo aftur gamlársdag, ný-
ársdag og annan í nýári.“
Það hlýtur að teljast heppilegt í
þessu tilfelli að Jóhönnu Vigdísi
þykir vænt um fréttastofu Sjón-
varps og hún kvíðir því hreint ekki
að eyða þar lunganum úr jólunum.
„Fréttirnar hafa, eins og alltaf, al-
gjöran forgang en inn á milli reyn-
um við að skapa notalega stemmn-
ingu á vinnustaðnum. Við kveikjum
á kertum, gæðum okkur á smákök-
um og horfum hlýlega á jólatréð í
mötuneyti Sjónvarpsins. Ég vinn
líka með skemmtilegu fólki og þykir
í stuttu máli sagt alveg rosalega
gaman í vinnunni,“ segir hún með
einlægri áherslu.
„Svo eru fréttirnar um jólin líka
öðruvísi en aðra daga og góð til-
breyting. Við fjöllum um kirkjusókn
um land allt, færð, umferð kringum
kirkjugarða, jólahald um víða veröld
og spjöllum við sjómenn og aðra
sem eru að heiman um jólin. Þetta
eru fyrst og fremst fréttir um fólk,
þótt auðvitað geti óvæntir atburðir
gerst á jólavaktinni eins og á öðr-
um tímum."
Allir fái óskir
sinar uppfylltar
Aðfangadagur er mikið tilhlökk-
unarefni á heimili Jóhönnu Vigdís-
ar. Þá er eldaður kalkúnn með
góðri fyllingu, jólalögin hljóma og
ilmur af steiktu rauðkáli fyllir húsið.
„Á hátíðarborðinu er meðlæti af
ýmsum toga - í raun allt sem hver
og einn kýs. Ef dóttir mín vill til
dæmis béarnaise-sósu með steik-
inni fær hún béarnaise-sósu, og
svo framvegis. Þannig finnst mér
nefnilega að jólin eigi að vera; að
allir fái óskir sínar uppfylltar," segir
Jóhanna Vigdís.
Á aðfangadag og gamlársdag eru
fréttir sendar út klukkan 13 en aðra
daga á hefðbundnum tíma, kl. 19.
„Stórfjölskyldan sýnir þessari helgi-
dagavinnu mikinn skilning, en okkur
hefur þó aldrei þótt ástæða til þess
að færa jólahald til vegna þessa. Ef
vaktir ber upp á fjölskylduboð þá
sendi ég einfaldlega manninn og
börnin á undan og mæti sjálf seint.
Auðvitað er leiðinlegt þegar sam-
verustundir með fjölskyldunni á
hátíðisdögum skerðast, en það jafn-
ast út á frívöktum seinna. Kannski
jafnvel strax um næstu páska,“ seg-
ir hún vongóð og brosir.
„Rösti“
(kartöfluréttur)
____________800 g kartöflur________
____________2 msk. smjör__________
____________'h tsk. salt__________
_______________pipar____________
_______________múskat_____________
__________200 g rifinn ostur______
100 g gráðostur
Sjóðið kartöflurnar og kælið. í
þennan rétt er mjög gott að nota
afganginn frá kvöldinu áður. Rífið
kartöflurnar á rifjárni (ekki í mat-
vinnsluvél). Bræðið smjörið á
pönnu, setjið rifnar kartöflurnar út í
og steikið í stutta stund. Kryddið
með salti, pipar og múskati.
Blandið rifnum osti saman við
kartöflurnar á pönnunni og mótið
eins og þykka pönnuköku. Steikið í
nokkrar mínútur og snúið þá
„pönnukökunni“ við. Það getur
reynst „snúið" að snúa henni en mér
hefur reynst best að nota lokið af
pönnunni sem hjálpartæki, þ.e.a.s.
renna kartöflunum á lokið og setja
svo pönnuna á hvolf yfir.
-Tiiiii
ISLENSKA OPERAN
La voix humaine - Mannsröddin
Francis Poulenc - Jean Cocteau
Síðustu sýningar 1. des og 8. des. kl. 12.15.
Óperutónleikar 14. des. kl. 20.30
Emma Bell, sópran
Finnur Bjarnason, tenór
Ólafur Kjartan Sigurðarson, baritón
Gerrit Schuil, píanó
Nýársdansleikur
Hinn árlegi nýársdansleikur á Broadway 1. janúar.
Hljómsveit og kór íslensku óperunnar ásamt
einsöngvurum.
The rape of Lucretia
ópera eftir Benjamin Britten
frumsýnd 4. febrúar 2000
Munið gjafakort íslensku óperunnar.
Sími í miðasölu 551 1475.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Getur líka verio gaman
að vinna á jólunum
JÓHANNA VIGDÍS - „Maður bjargar ekki heiminum á aðfangadags-
morgun. “
Sejjjos mÁs að þeir starþmrurv LjósuokoMuðU
mrur sem storuids iwktir imvjóLUv síov L
alUérstakrL stöðcr. Þeyar jjöUlylAukótíðirv
HÁUjart eru/jreir wveð jróttalestrL, kj/Hruruj-
umu eðí v (cueðjuiestrL stoddir ói nrer öLLmv
UeÁMtiluMr Laruisim nruta/ sírur eiqin. tíuoð
skyLdL verða, uMvjóLokaíd jerso/jóLks?
g á svo miklu fjölskyldu-
láni að fagna að mitt
fólk hefur aldrei
kvartað vegna vinnu
minnar á hátíðisdögum,"
segir Jóhanna Vigdís Hjalta-
dóttir, fréttamaður hjá Ríkissjón-
varpinu til fimm ára. Hinir umburð-
arlyndu fjölskyldumeðlimir eru eig-
inmaðurinn Guðmundur Magnús-
son og dóttirin Guðrún Edda, 16
ára, auk sonarins Hjalta Geirs sem
er eins árs og mun nú í fyrsta sinn
taka fullan þátt í kalkúnaveislunni á
aðfangadagskvöld.
„Lykilatriði í mínum huga er að
njóta jólaundirbúningsins með sínu
fólki og sinna innkaupum og öðru
umstangi tímanlega," segir Jó-
hanna Vigdís sem er að eigin sögn
mikið jólabarn og varðveitir marga
notalega aðventusiði. „Við
mæðgurnar tökum til dæmis nokk-
ur kvöld í að handskrifa jólakort til
vina og vandamanna innan lands
og utan. Þetta eru ein 150 kort og
talsverð vinna því allir fá dálitlar
fréttir til viðbótar við jólaóskirnar og
engin tvö kort eru eins. Svo fer ég
gjarnan á kaffihús, kaupi gjafir í ró-
legheitum og skreyti jólatréð allt að
viku fyrir aðfangadag. Ef maður
hefur gaman af jólaundirbúningn-
um eins og ég er um að gera að
dreifa honum á svolítið langan tíma
svo maður keyri sig ekki út og sofni
í kirkjunni á aðfangadag, eins og
kom einu sinni fyrir mig,“ viður-
kennir hún og kímir. „Langar frétta-
Ljóítmkqy^^