Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 11 FRÉTTIR Doktor í áhættugreiningu Formaður Landssambands lögreglumanna er ósáttur við launaleiðréttinguna „Kannski tímabært að óska eftir verkfallsrétti“ LÖGREGLUMENN telja að laun þeirra þurfi að hækka um meira en 8%, þar sem staða stéttarinnar sé þegar mjög bágborin og erfitt að fá menntaða lögreglumenn til starfa. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Jónas Magn- ússon, formann Landssambands lögreglumanna. „Það er mikil óánægja í stéttinni núna vegna hinna lágu grunn- launa,“ sagði Jónas. „Það er mjög erfitt að fá menn til starfa og tölu- verð hreyfing er á mönnum, því það bjóðast betri kjör úti á hinum almenna vinnumarkaði fyrir þægi- legri vinnutíma." Fyrr í vikunni úrskurðaði nefnd, sem skipuð var tveimur frá fjár- málaráðuneyti, tveimur frá Lands- sambandi lögreglumanna og einum frá ríkissáttasemjara, að leiðrétta þyrfti laun lögreglumanna, þar sem þau hefðu dregist aftur úr launaþróun annarra opinberra starfsmanna. Það var niðurstaða nefndarinnar hækka laun lögreglu- manna um 8% og er sú hækkun afturvirk að hluta til janúarmánað- ar 1998. Jónas sagði að fulltrúar lögreglumanna í nefndinni hefðu verið þeirrar skoðunar að lög- reglumenn hefðu dregist meira aftur úr öðrum stéttum en sem næmi þessum 8 prósentum og því væru menn ekki sáttir við leiðrétt- inguna. „Það er kannski orðið tímabært að skila aftur því samkomulagi sem við fengum út á afnám verk- fallsréttarins og óska eftir því við Alþingi að það veiti okkur fullan og óskertan verkfallsrétt. Þá erum við komin með svipuð þvingunar- úrræði og aðrar stéttir." Jónas sagði að lögreglan væri í auknum mæli að ráða ófaglært fólk í störf lögreglumanna og sagð- ist hann ósáttur við þá þróun. Æ fleiri lögreglumenn án sér- menntunar Hann sagði að fyrir nokkrum ár- um hefði fólk án lögreglumenntun- ar aðeins verið fengið í sumar- afleysingar en að í vetur væru um 8 til 10% af heildarfjölda lögreglu- manna án menntunar frá Lög- regluskólanum. Jónas vildi ekki segja hvað hann teldi að hækka þyrfti grunnlaunin mikið til að þau yrðu viðunandi. „Það er ljóst að gera þarf starfið meira aðlaðandi og þó við myndum hækka byrjunarlaun um 100% myndi það varla duga til.“ • Stefán Einarsson efnaverkfræð- ingur varði doktorsritgerð sína: „Vulnerability and Risk analysis of Complex Ind- ustrial Systems: A New App- roach and Discussion of Main Problem Areas við Natirn- vitenskaplig Teknisk Uni- versitet (NTNU) í Þrándheimi 20. des. síðastliðinn. Ritgerðin er á sviði áhættu- greiningar og fjallar í meginatriðum um þróun nýrrar aðferðar í áhættu- greiningu (vulnerability analysis) og beitingu hennar við rannsókn á áhættu í íslensku íyrirtæki. Ritgerðin er í 3 meginköflum: 1. kafli er inngangur og meginnið- urstöður úr fjórum rannsóknarvið- fangsefnum, auk fyrirtækjarann- sóknar. 2. kafli fjallar um 4 vísindaritgerð- ir sem hafa verið birtar í tengslum við ritgerðina. 3. kafli er um framkvæmd og nið- urstöður fyrirtækjarannsóknar í Landsvirkjun. Leiðbeinendur voru prófessor Marvin Rausand við NTNU og pró- fessor Ragnar Sigbjörnsson við Há- skóla íslands. Andmælendur voru prófessor Bo Bergmann við háskólann í Linköp- ing í Svíþjóð, prófessor Terje Aven við háskólann í Stavanger í Noregi og prófessor Jan Hovden við NTNU í Þrándheimi. Vegna rannsókna sinna hefur Stefán notið styrkja eða stuðnings í formi kostnaðarþátttöku frá Institut for Produksjons- og kvalitetsteknikk við NTNU í Noregi, frá Trygginga- félaginu Vesta í Noregi, frá Aflfræð- istofu Verkfræðistofnunar Háskóla Islands og Vísindasjóði. Þá hefur NorFA stutt nokkrar rannsóknar- ferðir í tengslum við verkefnið. Auk þess hefur ferðasjóður doktorsstú- denta við NTNU, NTH-fond svo og NIVA, norræni vinnuverndarhá- skólinn, styrktverkefnið. Stefán er fæddur í Reykjavík 19. ágúst 1949. Foreldrar hans eru Ein- ar Einarsson rafvélavirki og Ólöf Stefánsdóttir húsmóðir, Sævarlandi 4, Reykjavík. Stefán lauk stúdentsprófi frá MR 1969. Hann lauk prófi í efnaverk- fræði frá Tækniháskólanum í Berlín 1975. Stefán hefur unnið víða, þó lengst af við kennslu, t.a.m. við Menntaskólann við Hamrahlíð. - staðalbúnaður í nýjum Scénic. Nýr Renault Scénic kostar frá 1.718.000 kr. Gijótháis 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 Aksturstölvan í nýjum Scénic gefur góða yfirsýn yfir lykiltölur í akstrinum; t.d. fjölda lítra á bensíntanki, meðalbensíneyðslu m.v. aksturslag, meðaleyðslu frá síðustu áfyllingu, meðalhraða, hversu langt má aka m.v. bensín á tanki og margt fleira. Aksturstölvan er ómetanleg hjálp sem sparar bensín og auðveldar þér aksturinn. Komdu og skoðaðu nýjan Scénic. RENAULT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.