Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kristnihátíð á Þingvöllum
Skipulag hátíðarsvæðis
Öxarárfoss
Furulundur
Efrivellir Aðalsvið
Símanna
^Veitingar (VIF
Neðri
vellir
Hestagj
pallurQ
——LögréttA
Þipigfuodur1''
^■'"c'ýQxarárhólmi
bekkur
Valhöll
Veitinga-
og sölutjöld
Snyrtingar.
Varðstofár**^*^^
neyðamnóttaka
: j Sfarfsmannaaðstaða
Snyrtingar
Skátar
ISnyrtingar.
Þingvallabær
upplýsingE^S^*...—-—r.Vj-1.-;'
. u|iA /i astjómstöð framkvæmdanefndar
í' u Stjórnstöð lögreglu
T) Þyrlupallur
Varanlegir göngustígar
Göngumottur
Göngupallar (sem verða teknir niður síðar)
Landsvirkjun bauð fulltrúum frá
Norsk Hydro hingað til lands
Kynna sér skýrslu
um umhverfísmat
Flj ótsdalsvirkjunar
TVEIR Norðmenn frá íyrirtækinu
Norsk Hydro eru staddir hér á landi
í boði Landsvirkjunar til þess að
kynna sér skýrslu fyrirtækisins um
umhverfisáhrif vegna Fljótsdals-
virkjunar.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að
Norðmönnunum hafi verið boðið
hingað til lands í kjölfar ummæla
Eivind Reitens, forstjóramálmdeild-
ar Norsk Hydro, milli jóla og nýárs
þess efnis að þeir myndu skoða og
kynna sér umhverfismál virkjunar-
innar á sjálfstæðan hátt, eins og alla
aðra þætti áður en þeir tækju
ákvörðun um byggingu álvers.
Þorsteinn sagði að annars vegar
væri um að ræða sérfræðing í um-
hverfisdeild Hydro Aluminium og
hins vegar sjálfstætt starfandi ráð-
gjafa á þessu sviði umhverfismála,
sem hefði unnið fyrir Norsk Hydro
og fleiri aðila. Þeir hefðu farið yfir
skýrsluna með höfundum hennar og
Helga Bjamasyni, yfirmanni um-
hverfisdeildar Landsvirkjunar, sem
hefði haft yfirumsjón með gerð
skýrslunnar. Landsvirkjun hefði
einnig haft milligöngu um að koma
Norðmönnunum í samband við þá
aðila sem hefðu haft skýrsluna til
umfjöllunar á undanförnum vikum
og komið að gerð hennar, en þar
væri um að ræða stofnanir í um-
hverfismálum eins og umhverfisráð-
uneytið, Náttúruvernd ríkisins,
Náttúrufræðistofnun og fleiri aðila.
Fái milliliðalausan aðgang
Þorsteinn sagði að Norðmennimir
myndu einnig verða hér í dag til þess
að kynna sér málin. Með þessu boði
til Norsk Hydro vildi Landsvirkjun
stuðla að því að norska fyrirtækið
fengi milliliðalausan aðgang að þess-
um gögnum og vera þeim innan
handar um að afla sér upplýsinga í
þessum efnum eins og norska fyrir-
tækið teldi þörf á.
Nám í kínverskum nálastunsum
OS srasalækninsum
Skóli hinna fjögurra árstíöa býður nú upp á viðurkennt nám í
kínverskum nálastungum og grasalækningum.
Námið stendur yfir í 18 mánuði og hefst í lok janúar 2000.
Kennt verður eina „intensíva" helgi í mánuði og er námið sérstaklega
hannað fyrir nemendur, sem viija vinna með náminu og fyrir fólk sem
sækir námið utan af landi.
Námið er sett upp í áföngum, þannig að nemendur geta valið um að
taka einstök fög eða allt námið í heild.
Kennt verður meðal annars:
• Hugmyndafræðin um Yin og Yang
• Uppbygging líkamans,- starfsemi, þróun, samspil og ójafnvægi
• Uppruni sjúkdóma
• Kínversk sjúkdómafræði
• Kínversk sjúkdómsgreining, þar á meðal hlustun og
greining á þinum 12 púlsum
• Staðsetning og kynning á hinum mismunandi tegundum nálastungupunkta
• Hinar sérstöku Meridian æðar
• Stofnar og greinar (Stems and Branches)
- kínversk stjömuspeki í lækningum
• Meðferðartækni þ.e. notkun nála og moxa
• Grasafræði
• Gerð jurtalyfja, krema, áburðar o.þ.h.
• Grasalyfjaffæði og -meðferð
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans, Klappastíg 25-27,
101 Reykjavík. Sími/fax: 552 5759.
Heimasíða: http://www.islandia.is/-kinv-laekningar
netfang: kinv-laekningar@islandia.is
Undirbúningur Kristnihátíðar á Þingvöllum í fullum gangi
Þrjár brýr til bráða-
birgða yfir Oxará
ÞRJÁR göngubrýr verða lagðar til
bráðabirgða yfir Öxará vegna
Kristnihátíðar á Þingvöllum í sumar
og göngupallar lagðir um hluta
svæðisins sem einnig verða teknir
niður að hátíð lokinni. Vegagerð rík-
isins hefur boðið þessar fram-
kvæmdir út en auk þess verða lagðir
varanlegir göngustígar um svæðið.
Engin bílaumferð verður leyfð um
hátíðarsvæðið.
Að sögn Jóhannesar Þórðarsonar
arkitekts hjá Gámu/Kím, ráðgjafa
Framkvæmdasýslu ríkisins um
skipulag á hátíðarsvæðinu, verða
fjögur hlið inn á svæðið. Eitt við
Hakið efst við Almannagjá, þar sem
áður var ekið niður gjána, annað of-
an við Öxarárfoss, þriðja á göngu-
leiðinni frá Leirunum og Tæpastíg
skammt frá þjónustumiðstöðinni og
það fjórða á Leirunum. Sagði hann
að engin bílaumferð yrði leyfð um
hátíðarsvæðið. „Menn brenndu sig á
því að leyfa bílaumferð um svæðið á
þjóðhátíðinni 1994,“ sagði hann.
Ráðgert er að langferðabílar komi að
Hakinu og leggi þar en einkabílar,
sem koma Mosfellsheiði leggi á bíl-
astæði sem gert verður við Brúsa-
staði og að umferð sem kemur af
Suðurlandi leggi við Tæpastíg næst
Þjónustumiðstöðinni og á Leirunum.
„Allar brýr sem lagðar verða eru
til bráðabirgða," sagði Jóhannes.
Ein þeirra verður á neðri völlunum
neðan við brúna yfir Öxará, sem er í
Almannagjá. Hinar verða fi-aman við
Öxarárfoss en þar verða einnig reist-
ar tröppur niður í gjána, sem verða
teknar niður að loknum hátíðarhöld-
um. Á gönguleiðinni frá Öxarárfossi
að Furalundi verða reistir bráðabir-
gðapallar sem teknir verða niður en
hugsanlega verður eitthvað af þeim
skilið eftir í Stekkjargjá. „Það er
töluverð áníðsla þarna í dag og er
það hugmynd Þingvallanefndar að
þarna verði framtíðargöngustígur,"
sagði Jóhannes.
Sl. sumar var gengið frá varanleg-
um hlöðnum göngustíg úr hraunhell-
um á þeirri leið sem merkt er göng-
upallur við Furalund og sagði
Jóhannes að stígurinn yrði breikkað-
ur með timbri, sem síðan verður fjar-
lægt að lokinni hátíð.
Útrúllanlegt plastefni
leigt frá Bretlandi
Innan hátíðarsvæðisins verða auk
þess lagðar aðalgönguleiðir, sem ein-
göngu verða í notkun á meðan á há-
tíðinni stendur. „Hugmyndin er sú
að leigja frá Bretlandi útrúllanlegt
plastefni eins og notað hefur verið á
rokktónleikum og á fótboltavelli.
Þetta era plastmottur sem fingrast
saman og era hælaðar niður á jöðr-
unum. Motturnar verða lagðar þar
sem því verður við komið miðað við
landslag á megin gönguleiðum innan
svæðisins til að draga úr áníðslu,"
sagði hann.
Formaður samræmingarnefndar vegna virkjana-
og álversframkvæmda á Reyðarfírði
Undirbúningsvinna geng-
ur samkvæmt áætlun
ÞÓRÐUR Friðjónsson, formaður
samræmingarnefndar vegna virkj-
ana- og álversframkvæmda á Reyð-
arfirði, segir að undirbúningsvinna
vegna framkvæmdanna gangi sam-
kvæmt áætlun og tímaáætlun í þeim
efnum standist í öllum aðalatriðum.
Þeir hafi sett sér það markmið að
vera komnir með þau gögn sem á
þyrfti að halda til endanlegrar
ákvarðanatöku með vorinu og þau
tímamörk ættu að nást.
Samræmingarnefndin hefur það
verkefni með höndum að hafa yfir-
umsjón með samningagerð og öðra
sem tengist virkjanaframkvæmdum
og byggingu álvers á Reyðarfirði.
Þórður sagði að þeir samningar sem
liggja hefðu átt fyrir í drögum um
áramót væra meira og minna til sem
vinnuskjöl á ýmsum stigum í hveiju
efni fyrir sig. „Verkið er auðvitað
mislangt á veg komið en í öllum aðal-
atriðum eram við á áætlun.“
Hann sagði að það hefði aldrei ver-
ið gert ráð fyrir því að samningarnir
yrðu tilbúnir um áramót heldur væri
beinlínins tekið fram í viljayfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar, Lands-
virkjunar og Norsk Hydro um virkj-
anaframkvæmdir og byggingu
álversins að gert væri ráð fyrir því
að drög lægju fyrir á þeim tíma-
punkti. í viljayfirlýsingunni væri síð-
an gert ráð fyrir að lokadrög yfir-
litssamningsins lægju fyrir í
marsmánuði og að allir endar yrðu
síðan hnýttir saman á vori komanda,
ef mönnum litist þá enn þannig á
verkefnið að fysilegt væri að ráðast í
það.
Vinna í fullum gangi
„Málið er í sínum eðlilega vinnslu-
arvegi og ekkert óvænt hefur komið
upp sem hefur raskað þeim tíma- og
vinnuferli sem settur var,“ sagði
Þórður ennfremur.
Erlendur Magnússon, stjórnar-
formaður Hæfis, sem er félag til
undirbúnings stofnunar félags um
byggingu álvers, en aðild að því eiga
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn,
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins,
Alþýðubankinn, íslandsbanki,
Landsbanki Islands og Þróunarfé-
lagið, sagði að vinna í þessum efnum
væri í fullum gangi, þó ekki væri
búið að stofna félagið, enda væri það
bara eitt af mörgum verkum sem
þyrfti að sinna í þessum efnum. Inni-
haldið væri kannski mikilvægara en
umbúðirnar. Hann teldi þó að ekki
væri langt í að farið yrði í það verk,
þó ekki væri búið að festa neinn tíma
ennþá í þeim efnum.
„Við höfum viljað taka ýmis efnis-
leg atriði og vinna úr þeim og auð-
vitað taka öll svona verkefni marga
mánuði og stundum ár og þarna er
bara einn áfangi af mörgum,“ sagði
Erlendur ennfremur.