Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 23 ERLENT Atök kristinna og múslíma í Indónesíu Mótmæla „slátruninni á Kryddeyjum“ Jakarta. AP, AFP. HUNDRUÐ námsmanna sem játa íslam komu í gaer saman úti á göt- um í höfuðborg Indónesíu, Jakarta, og mótmæltu því sem þeir kölluðu „slátruninni á Kryddeyjum". Tilefni mótmælanna eru vígaferli kristinna og múslíma á eyjunum sem hafa færst mjög í aukana á síðustu dög- um. Fréttir hafa borist um að allt að 2.000 múslímar hafi látist í átök- um trúarhópanna á eyjunni Halma- hera síðan 27. desember en yfir- maður lögreglu á eyjunni hefur neitað þessum fregnum. Mótmæl- endur hótuðu því að fjöldamorð á múslímum á Kryddeyjum gæti haft í för með sér fjöldamorð á kristnum annars staðar í ríkinu. Þeir gagn- rýndu einnig varaforeta landsins, Megawati Sukarnoputri, fyrir að hafa ekki megnað að stöðva átökin. Forseti landsins, Abdurrahman Wahid, fól henni að binda enda á innanlandsófrið sem geisað hefur víða um Indónesíu að undanförnu og var verkefni hennar meðal ann- ars að stöðva mannvígin á Krydd- eyjum. Páfí hvetur til sátta A miðvikudag hvatti Jóhannes Páll páfi II. kristna á Kryddeyjum til að semja frið við múslíma. „Megi boðskapurinn frá Betlehem endur- óma kröftuglega á stöðum þar sem hörmungar og stríð geisa, einkum á Kryddeyjum," sagði páfi við hóp pílagríma í Vatíkaninu. Stjórnvöld f íran hafa einnig látið í ljós áhyggjur vegna ástandsins á eyjunum. Talsmaður utanríkisráðu- neytisins þar í landi sagði á mið- vikudag að Iran vænti þess að ríkis- stjórnin gerði allt sem í hennar valdi stæði til að stöðva átökin. Hert öryggisgæsla Ráðherra öryggismála í Indónes- íu, Wiranto hershöfðingi, hét því í gær að eyjarnar yrðu einangraðar til að koma í veg fyrir að frásagnir um fjöldamorð þar, sem oftar en ekki væru orðum auknar, næðu að spilla friði annars staðar í ríkinu. Her landsins hefur tilkynnt um að öryggisgæsla hafi verið hert veru- lega á eyjunum og að hermönnum þar hafi verið fjölgað. Hafin hefur verið skipuleg leit að vopnum á eyj- unum og fjöldasamkomur hafa ver- ið bannaðar. Eftirlit með vegabréf- um hefur verið eflt með það að markmiði að koma í veg fyrir að að- komufólk geti safnast saman í þorp- um og bæjum. Atökin á Kryddeyj- um hófust í janúar á síðasta ári og hafa að minnsta kosti 1.100 manns látið lífið í þeim, 2.300 særst og fjöldi heimila og annarra bygginga verið lagður í rúst. Eftirmál flugránsins á Indlandi Fangarnir fóru til Pakistans Karachi. AP. ÞRIR fangar, sem Indlandsstjórn lét lausa að kröfu mannanna er rændu þotu indverska flugfélags- ins og með henni 178 farþegum og ellefu manna áhöfn, fóru frá Afgan- istan til Pakistans, að því er einn þeirra greindi frá í gær. Síðast sást til flugræningjanna, sem voru fimm, er þeir settu fang- ana, sem leystir höfðu verið úr haldi, út á leiðinni frá borginni Kandahar í Afganistan, þar sem flugráninu lauk, til Pakistans, sagði pakistanski presturinn Maul- ana Maood Azhar, einn fanganna sem látinn var laus. Azhar greindi frá þessu á blaða- mannafundi í gær og var það í fyrsta sinn sem fregnir bárust af því hvað gerðist eftir að ræningj- arnir, fangarnir þrír, sem þeir höfðu fengið leysta úr haldi, og einn meðlimur herstjórnar Taleb- ana í Afganistan, sem ræningjarnir héldu sem gísl, héldu akandi frá flugvellinum í Kandahar á gam- lársdag. Azhar, sem hafði setið í indversku fangelsi síðan 1994, sagði að ræningjarnir hefðu grátið, faðmað sig og sagt: „Við gerðum þetta fyrir málstað Islams.“ Þeir hefðu einnig sagt við sig: „Þú þekkir okkur ekki. Við höfum aldrei hist. Við erum frá Indlandi og við berum virðingu fyrir þér en við getum ekki tekið af okkur grímurnar.“ Ekki er vitað hvar nákvæmlega hinir fangarnir tveir, sem leystir voru úr haldi, eru niðurkomnir, en Azar sagði að þeir hefðu allir þrír farið frá Afganistan til Pakistans. Þá mun gíslinn, sem ræningjarnir tóku til að tryggja að þeir kæmust heilu og höldnu frá flugvellinum, einnig hafa verið látinn laus. Indverjar og Pakistanar hafa sakað hvorir aðra um aðild að flugráninu, en harðar deilur hafa staðið milli ríkjanna vegna Kasmír- héraðs og tvær styrjaldir verið háðar vegna þess. Gjörgæsludeildir fullar vegna flensu London. The Daily Telegraph. AÐEINS ellefu af 1.500 rúmum á gjörgæsludeildum á Englandi voru laus sl. þriðjudag í kjölfar flensufaraldurs er varð til þess að mikill fjöldi fólks lagðist inn vegna alvarlegra fylgikvilla. Margar milljónir manna hafa orðið fyrir barðinu á flensunni, og áætlaði eitt lyfjafyrirtæki að tala þeirra væri allt að átta milljónum. Meðal þeirra fylgikvilla sem hafa lagt fólk í rúmið og inn á sjúkrahús eru lungnabólgusýking og bráðaberkjukvef, og urðu allir aldurshópar jafnt fyrir barðinu á þessum kvillum. Þegar ástandið var verst á þriðjudaginn voru öll rúm á öllum gjörgæsludeildum landsins upp- tekin. ilflf Nýi tölvu- & ■ ■■ V viðskiptaskólinn ó------------------------------------- Hólshrauní 2 - 220 HafnarfirOI - Síml: 555 4980 - Fax: 555 4981 Hlíðasmára 9- 200 Kópavog! - Slml: 544 4500 - Fax: 544 4501 Töivupóstfang: skoli@ntv.is > Heimaslða: www.ntv.is Upplýsingrtr og innritun í simura 555 4980 og 544 4500 5 fyrrverandi neniendur úr forritun og kerfisfr<eði eigct |jctd sctnunerkt að verct kontnir í vinnu hjct hugbúnoðctrfyiirtcTe kinu Forritun/AKS. „Þad er engín tilviljun að við hðfum ráöið til okkar fimm nemendur frá NTV. Þetta er alit fðlk sem hefur staðíst þær kröfur sem við gerum til starfsfólks okkar. Námið hjá NTV er góður undirbúningur fyrir fólk sem hyggst starfa við forritun og kerfisfræöi i framtíöínní." segir Siguröur Bergsveinsson markaösstjórí hjá Forrítun/AKS. Örfá sæti laus á námskeiðum sem eru að byrja í næstu viku. vm/ Vi*a & Euro i • Útv«£Um j ■ ttmHmmnctUn j fifjbe I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.