Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
PÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 51
Útflutningur hrossa
dregst enn saman
Ljóst er að útflutninfflir hrossa frá íslandi
dróst enn saman á síðasta ári. Alls voru
flutt út 1955 hross á árinu eða 886 hross-
um færra en árið 1996 þegar útflutningur
náði hámarki. Ásdís Haraldsdóttir leit á
útflutningstölur og spjallaði við
Huldu G. Geirsdóttur markaðsfulltrúa
Félags hrossabænda.
MEST munar um Þýskalandsmark-
að sem hefur smám saman dregist
saman á síðustu árum, en aðeins
voru 457 hross flutt þangað á síðasta
ári. Til samanburðar má geta þess að
árið 1994, þegar flest hross voru flutt
til Þýskalands, voru þau 1321 talsins.
Flest hross voru flutt til Svíþjóðar
árið 1999 eða 557. Þetta eru nokkuð
færri hross en fóru þangað árið 1998
þrátt fyrir útflutningsbann vegna
hestapestar stóran hluta þess árs.
Nokkrar sveiflur virðast alltaf vera á
milli ára til margra landa þó vissir
markaðir til dæmis á Norðurlöndun-
um og í Bandaríkjunum séu orðnir
nokkuð fastii' í sessi. Þá hefúr út-
flutningur hrossa til Sviss aukist á
síðustu árum.
Hulda G. Geirsdóttir markaðsfull-
trúi Félags hrossabænda sagði þess-
ar tölur um útflutning á árinu 1999 í
samræmi við það sem hún spáði fyrir
í upphafi þess árs. Hún hafi gert ráð
fyrir að flutt yrðu út um 2000 hross.
Hún sagði að ljóst væri að mest mun-
aði um sífellt minnkandi markað fyr-
ir íslensk hross í Þýskalandi. Ymsar
ástæður virðast vera fyrir sam-
drættinum, þar á meðal rannsókn á
tollamálum í tengslum við innflutn-
ing á íslenskum hestum þangað og
einnig vegna áhrifa hrossapestarinn-
ar 1998 og útflutningsbanns sem þá
var sett á íslenska hesta, svo eitthvað
sé nefnt.
Telur hún líklegt að áhrif pestar-
innar á markaðina verði ekki endan-
lega ljós fyrr en að loknu landsmóti
næsta sumar. Við útflutningsbannið
töpuðust markaðir sem erfitt hefur
reynst að ná aftur. Vildi hún í því
sambandi nefna Bretland, en meðan
á útflutningsbanninu stóð, leituðu
Bretar til annarra þjóða um kaup á
íslenskum hestum, eins og reyndar
Þjóðveijar og fleiri gerðu einnig.
Hulda sagðist líta björtum augum
á aðra markaði, til dæmis Svíþjóð.
Einnig væri Finnland að festa sig í
sessi. Þá gengur vel að selja hross til
Danmerkur en 307 hross voru flutt
þangað árið 1999. Hún minnti á að
gera þyrfti ráð fyrir sveiflum í út-
flutningi á hestum eins og öðru og
miðað við þau áföll sem hrossaút-
flutningur hefur orðið fyrir séu þetta
ekki óeðlilegar tölur.
Fjöldi útfluttra hrossa á árunum 1995-1999:
1995 1996 1997 1998 1999
Austurríki 80 87 76 44 23
Belgía 8 1 9 1 0
Kanada 104 73 162 44 17
Sviss 96 118 120 118 147
Þýskaland 1129 1079 882 532 457
Danmörk 401 255 228 268 308
Frakkland 3 3 0 0 2
Finland 16 122 56 41 71
Færeyjar 15 16 11 0 13
Bretland 23 16 25 22 13
Italía 11 27 0 7 3
Luxemburg 3 1 2 1 2
Noregur 138 177 173 160 127
Nýja Sjáland 0 0 4 0 0
Holland 59 55 69 56 60
Grænland 3 5 2 10 4
Svíþjóð 407 647 690 582 557
Slóvenía 0 1 0 0 1
Bandaríkin 117 158 117 108 150
Samtals 2613 2841 2566 1996 1955
Nú geta áhorfendur látið fara vel um sig á sölusýningu í upphitaðri reiðhöll
MorgunblaðiðA'aldimar Kristinsson
Islensk hross bíða þess að vera flutt út á síðasta ári, en þá varð enn sam-
dráttur í útflutningi hrossa.
Nýtt hestatíma-
rit á Netinu
NÝLEGA var sett á fót hestatíma-
ritið Sleipnir á Netinu. Tímaritinu er
ætlað að vera menningartímarit um
íslenska hestinn og bókmenntir
tengdar honum. Ætlunin er að
Sleipnh’ komi út 10 sinnum á ári á ís-
lensku og dönsku fyrst um sinn, en
síðar einnig á ensku og þýsku.
I ritstjómargrein segir meðal
annars að mikill fróðleikur sé til um
íslenska hestamenn frá eldri tímum,
fjöldi þjóðsagna og alls kyns skringi-
legra og skemmtilegra frásagna um
samskipti manns og hests. Margt af
því efni sé þekkt meðal eldri hesta-
manna í landinu, en nú á seinni árum
séu sagnir þessar og fróðleikur hins
vegar ekki orðinn aðgengilegur fyrir
yngri kynslóð hestaunnenda og nán-
ast óþekktur meðal útlendinga. Úr
þessu hyggist Sleipnir bæta.
Þá er einnig fyrirhugað að taka
viðtöl við hestamenn sem ferðuðust
um landið um og upp úr miðbiki 20.
aldarinnar til að gefa lesendum inn-
sýn í ferðamáta þess tíma. Einnig er
ætlunin að fræða lesendur um
hvemig íslenskum hestum vegnar
beggja vegna Atlantshafsins.
Ekki verður Sleipnir fréttablað en
þar verður að finna auk menningar-
legs efnis, upplýsingar, fræðslu og
þjónustu fyrir lesendur. Ritið verður
myndskreytt bæði með Ijósmyndum
og listaverkum eftir íslenska lista-
menn.
í fyrsta tölublaðinu er meðal ann-
ars fjallað um Grím Thomsen og Ijóð
hans, Svein Pálsson, Jón á Þingeyr-
um, Nótt frá Svignaskarði Pál í
Fornahvammi og margt fleira.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður er
Andreas Bergmann og um danska
þýðingu sér Björn Sigurbjömsson.
Sleipni er að finna á slóðinni
www.sleipnir.is.
BURNHAM INTERNATIONAL
VEROBRÉFAFYRIRTÆKI
SÍMI 510 1Í00
VEFTA
ískuvoru r
Útsalan er hafin
Opið laugardag kl. 10-16
Sölusýning á hrossum
í upphitaðri Ölfushöll
SÖLUSÝNING verður haldin í Ölf-
ushöllinni á Ingólfshvoli á sunnu-
daginn og hefst kl. 14.00. Að sögn
Steindórs Guðmundssonar, for-
svarsmanns sýninganna, ætti að
fara vel um áhorfendur því búið er
að koma upp hitakerfi í höllinni. Til
þess er nýtt heitt vatn úr borholu á
staðnum.
Sölusýningarnar í Ölfushöllinni
eru nú farnar að skipa fastan sess
hjá hestamönnum en fram að þessu
hafa þær verið haldnar á laugardög-
um. Nú hefur verið ákveðið að færa
þær yfir á sunnudaga meðal annars
vegna þess að fljótlega fara hesta-
mannafélögin að brydda upp vetrar-
leikum og ýmsum uppákomum sem
yfirleitt ber upp á laugardaga.
Steindór sagði að margir hefðu
haft samband vegna sýningarinnar
á sunnudag, bæði væntanlegir sýn-
endur og áhorfendur. Tekið er við
skráningum í síðasta lagi á laugar-
dagi en hrossunum er skipt í fjóra
flokka: Fjölskyldu- og reiðhesta,
keppnishesta, kynbótahross og ung-
hross. Hann segir að mest hafi selst
af vel töltgengum fjölskylduhestum
og keppnishestum, en einnig ein-
staka kynbótahross. Minnstur hefur
áhuginn verið á unghrossum.
Áhuginn á að koma hrossum á söl-
usýningu í Ölfushöllinni nær langt
út fyrir Suðurland því meðal ann-
ari'a hafi Jóhann Þorsteinsson á
Miðsitju í Skagafirði lýst yfir áhuga
á að koma með nokkur hross. Það
færi þó eftir veðri og færð hvort það
yrði nú um helgina eða eftir hálfan
mánuð.
Áhugi áhorfenda og væntanlegra
kaupenda hefur einnig verið mikill
og sagði Steindór að þegar fæst var
hafi verið um 60 manns, en þegar
flest var voru áhorfendur um 200.
Aðgangur að sýningunum er ókeyp-
is en fjölritaðar sýningarskrár eru
seldar gegn vægu verði.
VEFTA
Hólagarði, sími 557 2010.
A i k i d o
Opnar kynningaræfingar 10. og 12. janúar
kl 20.00 á Engjateigi 1 (Listdansskóli).
Byrjendanámskeið hefjast 17. janúar.
Nánari upplýsingar í símsvara 881 0083
eða á netinu aikikai@herb.is http://here.is/aikikai