Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Lóða- og byggingamál til umræðu
í bæjarráði Akureyrar
Ahugi á að reisa
hótel og verslun-
arhús í miðbænum
TÖLUVERÐUR áhugi virðist á því
að byggja í miðbæ Akureyrar. Á
fundi bæjarráðs í gær voru teknar
fyrir lóðaumsóknir frá þremur aðil-
um, þar af tveimur rekstraraðilum
hótela, Flugleiðahótelum og Lykil-
hótelum. Bæjarráð tók ekki af-
stöðu til umsóknanna og er málið í
höndum Kristjáns Þórs Júlíusson-
ar bæjarstjóra.
Flugleiðahótel sækja um lóð
undir hótelstarfsemi í miðbæ Akur-
eyrar. Ekki náðist í Kára Kárason,
framkvæmdastjóra Flugleiðahót-
ela, í gær en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er horft til svæðis-
ins austan Glerárgötu og sunnan
Strandgötu, eða á svæðinu þar sem
World Class er til húsa.
Ragnar Sverrisson, kaupmaður í
JMJ, og Jón M. Jónsson, sem eiga
húseignina á Gránufélagsgötu 4,
sækja um byggingarlóðina Gránu-
félagsgötu 6, þar sem Heilbrigðis-
eftirlit Norðurlands eystra er til
húsa en lóðin er á horni Geislagötu
og Gránufélagsgötu. Um þá lóð
sækir Lykilhótel einnig en fyrir-
tækið rekur Hótel Norðurland á
Geislagötu 7, á næstu lóð sunnan
við Gránufélagsgötu 6.
Samkvæmt skipulagi á hús Heil-
brigðiseftirlitsins að víkja af lóð-
inni á horninu. Árni Ólafsson,
skipulagsstjóri Akureyrarbæjar,
sagði að gert væri ráð fyrir því að
þarna yrði hægt að byggja hús sem
yrði samfelld bygging frá Hótel
Norðurlandi, fyrir hornið og að
Gránufélagsgötu 4. Árni sagði að
miðað við fyrirliggjandi skipulag
gæti þarna risið þriggja hæða
bygging. „Það er því hægt að auka
nýtinguna á þessu horni þó nokkuð
mikið og jafnframt er hægt að
breyta gatnamótunum og gera þau
eins og þau eiga að vera í framtíð-
inni,“ sagði Árni.
Ragnar Sverrisson og Jón M.
stefna að því að byggja samtals um
1.000 fermetra verslunarhús á
þremur hæðum á lóðinni og tengja
það við Gránufélagsgötu 4. „Hug-
myndin er að vera með sex sér-
verslanir á fyrstu tveimur hæðun-
um,“ sagði Ragnar. Ekki náðist í
Jón Ragnarsson hjá Lykilhótelum.
Ýmsir möguleikar
í miðbænum
Skipulagsstjóri sagði aðspurður
að vissulega væru ýmsir möguleik-
ar í miðbænum fyrir hótelstarfsemi
en það færi þó alveg eftir því
hversu stórt það ætti að vera.
Hann sagði mögulegt að byggja
stórt hótel á uppfyllingunni sunnan
Strandgötu en varðandi minna hót-
el væru áhugaverðir möguleikar á
reitnum sunnan Sjallans og einnig
á svæðinu sunnan Kaupvangs-
strætis. Þar stendur gamla hita-
veituhúsið nú en ákveðið hefur ver-
ið að rífa það á þessu ári. Hann
sagði að um fleiri möguleika væri
að ræða en að þessi mál tengdust
uppkaupum á eignum, m.a. á
Sjallareitnum.
„Hótelin búa ekki til þetta um-
hverfi sem þau sækja í og þau eiga
því ekki heima á besta stað í miðj-
um miðbænum, heldur í jaðri mið-
bæjarins. Þar eru þau best sett
enda eru hótel í sjálfu sér ekki sá
aðdráttarkraftur sem miðja í mið-
bæ ætti að vera og þau njóta mið-
bæjarins best með því að vera í
jaðri hans,“ sagði Árni.
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr, við undirritun
samningsins, en lengst til vinstri er Erlingur Harðarson, kerfisstjóri háskólans, og t.h. er Jón Eyfjörð hjá Skýrr.
Háskólinn á Akureyri og Skýrr hf. undirrita samning
Kennsla og rann-
sóknir á sviði upp-
lýsingatækni
SAMNINGUR um samstarf Há-
skólans á Akureyri og SkýiT hf.
var undirrritaður í gær af Þor-
steini Gunnarssyni, rektor háskól-
ans, og Hreini Jakobssyni, for-
stjóra Skýrr, en í honum felst
samstarf um kennslu og rannsókn-
ir á sviði upplýsingatækni. Stefna
forsvarsmenn háskólans og Skýrr
Stefnum NORÐUR
A /}ÆöpiniarL’C’ppui f velrarfcrðamennshu á Nóróurlandi
Stefnum Norður er 2ja ára verfceíni sem miáar að Jrví að efla ferðamennslsu utan kins liefðliunclna sum-
artíma a NorðurlanJi. Er jjað til liagslióta fyrir j)au fyrirtæki sem koma aá slíkri ferðamennsku, jar með
talið ferðajjjónustuaðilar á Norðurlandi, ferðaskrifstofur og flugfélög. Þátttakendur í |>essu verkefni eru
skipaðir íulltrúum úr kinum jrremur máttarstólpum ferðamennskunnar: kirgjum, dreifingaraðilum og flug-
félögum. Tel jum við að kér sé um mjög merkilega vinnu að ræða ]?ví ekki er vitað til að áður kafi verið ráðist
í slíka vinnu með aðkoruu allra Jiessara aðila.
Hluti Jjessa verkefnis er aá koma á Nýsköpunarkeppni í vetrarferðamennsku á Norðurlancli.
Tilgangur með kappninni
Tilgangur með samkeppninni er að laða fram nýjar og ferskar kugmyndir er sýni á ákugavcrðan kátt
kvernig íerðajjjónusta á Norðurlandi geti verið sérstök og eftirsóknarverð fyrir ferðamenn. Keppnin
gengur út á Jiað að vera samkeppni um nýja „vöru“ sein getur nýst til að útvíkka og stækka Jiað framkoð
afjireyingar sem er í takt við væntingar ferðamannsins og laðar J>á að Norðurlandi. Einnig má vera um
að ræða kreytta útfærslu á eldri „vöru".
Keppnin er opin öllum, jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum og stenáur til 1 ?. jan. 2000
að því að koma á fót öflugu flutn-
ingsneti til tölvusamskipta og fjar-
funda sem byggist á örbylgjuteng-
ingum og þjónar menntastofnunum
með skilvirkum hætti.
Háskólinn mun nota LoftNet
Skýrr sem burðarlag undir rann-
sóknar- og þróunarnet sitt og nota
það einnig eftir því sem við á undir
aðra netumferð sína. Þá mun
Skýrr leggja háskólanum til tækni-
lega sérfræðiþekkingu hvað varðar
notkun búnaðar til fjarkennslu, s.s.
við myndfundabúnað og hugbúnað.
Háskólinn og Skýrr munu sam-
kvæmt samningnum eiga með sér
samstarf um kennslu og rannsókn-
ir á sviði upplýsingatækni og mun
Skýrr m.a. taka að sér kennslu á
námskeiðum í tölvu- og upplýsinga-
tækni og loks má nefna að háskól-
inn og Skýrr munu hafa frumkvæði
að nýjungum sem lúta að notkun
upplýsingatækni í skólastarfi.
Til hagsbóta fyrir báða
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, sagði samn-
inginn fyrsta skrefið í meira sam-
starfi stofnananna. Hann sagði
mikla þekkingu um gagnaflutninga
vera til innan Skýrr en háskólinn
þyrfti á öflugu neti að halda vegna
fjarkennslu, sem háskólinn býður í
auknum mæli. Með hæfum kennur-
um hefði góður árangur náðst á því
sviði, en gagnaflutningarnir væru
flöskuhálsinn, flutningsgetan væri
ekki næg og hana þyrfti að auka.
Var hann bjartsýnn á að það
markmið næðist í kjölfar samn-
ingsins við Skýrr.
Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, sagði Háskólann á Akureyri
hafa sýnt frumkvæði og áræði við
notkun upplýsingatækni í sinni
starfsemi og það væri ekki að
ástæðulausu sem fyrirtækið hefði
falast eftir samningi við háskólann.
Hann sagði uppi áform um að
byggja upp fyrirtæki á Akureyri á
sviði þjónustu og rannsókna um
upplýsingatækni og gæti Háskól-
inn á Akureyri jafnvel orðið þátt-
takandi í því. Hreinn sagði samn-
inginn til hagsbóta fyrir báða aðila
og að hann hlakkaði til samstarfs-
ins.
V arð 1 a un ráágjöl írá ■
1. wiÁlniin eiu I r. 500.1)00 i koði NýsL'öpunnrsjóö- atvinnultLins, VSO ráðijöf á Akurovri allt nð 30 lcl.-l. iil að tilf.vrn kugniýndina nuL’ J)e.-- I.vr vinnin^sliaf
2.-3. verclláttti vru kr. 160,000 auk ráðájalav:allí að 10 Usí. Irá V6C ráðiji'l á ALitrevri
.igmyndirnar mega vera á ýmsu fonni, en lykilatriði er að Jiær séu vel fram settar og útfærðar
Jiannig að dómnefnd geti inetið kversu framkvæinanlegar Jiær eru. Auk lýsingar á kugmyndinni Jmrfa
að fylgja kugleiðingar um kugsanlega kaupendur (markkópa), framkvæmdartíma og áætlacian kostnað.
Hugmyndir um markaðssetningu roega fylgja.
Alla'r tillögur er teljast framkvæmanlegar og vel fram settar fá viðurkenníngu.
Tillögum skal skiiað til Atvinnujiróunarfélags Eyjafjaráar, Strandgötu 29, 600 Ákureyri, merktar
„Stefrium Norður - verkefnasamkeppni". Þær skulu merktar aulnefni og skal fylgja með lokað umslag
meá nafni, kennilölu, keimílisfangi og símanúmeri Jiátttakanda.
eV^lÖUV.
■mHmMhhhhnHmmmnmbhmmnmmhmhmí
®BÚNADAHBANKINN SPAIUSJÓÐUR
-Traustur banki NORÐLENDINGA
HHHHHHHHHHHHHHHHHi
HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH
VSÓ
NÝSKÖPUNARSIÓÐUR Atvtnnuþróunarfaig FLUGFÉLAG Í5LAND5
l ir r . :
Air lceland
1 1 r i n g u r
Atv S innu»*6un«if(iac KACAF|A*ÐAR HF
LánarAko-
Plastos rúmar
50 milljónir
BÆJARRÁÐ Akureyrar staðfesti á
fundi sínum í gær samkomulag sem
gert hefur verið við Ako-Plastos hf.
og samþykkir að Framkvæmdasjóð-
ur veiti fyrirtækinu 5 ára lán að upp-
hæð tæpar 51,5 milljónir króna.
Lánið tengist kaupum Ako-Plast-
os á húsnæði Raíveitu Akureyrar á
Þórsstíg 4 og er það veitt með trygg-
ingu á 2. veðrétti hússins samhliða
veðrétti Byggingastofnunar fyrir
allt að 75 milljónum króna. Veðheim-
ild er veitt fyrir 50 milljóna króna
láni á 1. veðrétti á Þórsstíg 4. Eftir-
stöðvar kaupsamnings eru tryggðar
með greiðslum frá Byggðastofnun.
Oddur Helgi Halldórsson fulltrúi
L-lista í bæjarráði lét bóka á fundi
ráðsins að þar sem þær upplýsingar
sem bæjarráð hefði fengið frá
stjórnendum Ako-Plastos hf. hefðu
stundum verið villandi, gæti hann
ekki greitt málinu atkvæði sitt.
Starf bæjarlög-
manns á Akureyri
Þrjár um-
sóknir bárust
ÞRJÁR umsóknir bárust um starf
bæjarlögmanns á Akureyri en um-
sóknirnar voru kynntar á fundi bæj-
arráðs í gær.
Tveir umsækjendanna eru frá Ak-
ureyri, þeir Eyþór Þorbergsson og
Sigurður Eiríksson en þriðji um-
sækjandinn er Hákon Stefánsson úr
Reykjavík. Baldur Dýrfjörð hefur
látið af starfi bæjarlögmanns og tek-
ið við starfi starfsmannastjóra
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kyrrðarstund verður í Greni-
víkurkirkju sunnudagskvöldið
9. janúar næstkomandi kl. 21.