Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ ?56 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 KIRKJUSTARF ÍDAG Neskirkja Alfa-nám- skeið í , Neskirkju Alfa-námskeið hefst í Neskirkju mánudaginn 10. janúar kl. 19 og mun standa í 10 vikur. Á námskeiðinu verður fjallað um grundvallaratriði kristinnar trúar. Ræddar verða spumingar sem þessar: Stenst krist- indómurinn, er hann leiðinlegur, ósannur eða úr takti við tímana? Hver er Jesús Kristur? Hvers vegna dó hann? Hvemig er hægt að öðlast trúarvissu? Hvemig og hvers vegna ætti ég að lesa Biblíuna? Hvemig get 1 ég lært að biðja? Hvemig leiðbeinir Guð okkur? Hver er heilagur andi? Hvemig get ég kynnst anda Guðs? Hvemig get ég varist hinu iila í líf- inu? Hvers vegna ber okkur að segja öðmm frá Kristi? Læknar Guð fólk í dag? Hvers vegna er kirkjan til og hvaða hlutverki gegnir hún? Hvemig get ég gert sem mest úr lífi mínu það sem eftir er? Hvert kvöld hefst með málsverði, því næst er fyrirlestur og loks um- ræður, hópvinna og helgistund. Skráning er í Neskirkju í s. 5ll 1560 eða á Biskupsstofu í s. 535 1500. Kostnaður er 3.500 kr. og era kennslugögn innifalin. Kostnaði vegna máltíða verður stillt í hóf en dagskrá og önnur hagnýt atriði verða rædd fyrsta kvöldið. Kennari á nám- skeiðinu verður sr. Öm Bárður Jóns- son, settur prestur í Neskirkju, sem starfað hefur undanfarin ár sem fræðslustjóri kirkjunnar. Alfa-nám- skeiðið hefur farið sigurför innan margra kirkjudeilda í Evrópu og öðr- um álfum. Námskeiðið er upprannið í Holy Trinity Bromton-söfnuðinum í ensku biskupskirkjunni í London. Nú hafa verið haldin yfir 100 þúsund námskeið í Evrópu og víðar og er fjöldi þátttakenda kominn yfir 1,5 milljónir. Alfa-námskeiðið er kjörið handa öllum þeim sem vilja fræðast um kristna trú og láta uppbyggjast í samfélagi með öðram. Hvernig væri að byrja nýja öld með Alfa? Jákvætt nám- skeið um hjóna- band og sambúð Nú era einnig að fara af stað á nýj- an leik svokölluð „Jákvæð námskeið um hjónaband og sambúð“ á vegum Hafnarfjarðarkirkju. Er þetta fjórði veturinn sem þessi námskeið era haldin og hafa yfir 3000 manns tekið þátt í þeim. í haust vora námskeiðin haldin úti um landið en nú verða þau á ný í Hafnarfjarðarkirkju. Um er að ræða sjálfsstyrkingamámskeið þar sem farið er í gegnum sambúð og hjónaband og skoðað hvemig hægt er að bregðast við ýmsum vanda sem upp kann að koma í sambúðinni. Einnig er rætt hvemig best er að styrkja þá sambúð sem er „í góðum málum“. Hvert námskeið stendur að- eins eina kvöldstund en boðið er upp á einkaviðtöl síðar fyrir þau hjón sem telja sig þurfa á frekari stuðningi að halda. Námskeiðin era sem sagt ætl- uð öllum, bæði þeim sem vilja styrkja góða sambúð sem hinum er ratað hafa í erfiðleika. Fólk á öllum aldri hefur sótt þessi námskeið, allt frá ungum pöram á leið í hjónaband sem hjónum er hafa verið gift í fjölmörg ár. Aðeins 12 pör komast á námskeið- in hveiju sinni og er þessi fjöldi takmarkaður til þess að allir fái að njóta sín. Ef áramótaheitið ykkar var það að styrkja sambúðina á nýrri öld, væri þá ekki upplagt fyrir ykkur að skreppa á jákvætt hjónanámskeið í Hafnarfjarðarkirkju? Sr. Þórhallur Heimisson. Neskirkja. Félagsstarf aldraðra laugardag 8. jan. kl. 12.30. Þrett- ándagleði. Fram verður borin tví- réttuð heit máltíð og ýmislegt sér til gamans gert. Þátttaka tilkynnist kirkjuverði í dag kl. 10-12 og 16-18 í síma 5111560. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson. Laugarneskirkja. Kl. 10 mömmu- morgunn. KEFAS. Bænastund unga fólksins kl. 19.30. Sjöundadags aðventistar á íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl- íufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.15. Ræðumaður Jim Huzzey. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavik: Guðsþjónusta kl. 10.15. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Finn F. Eckhoff. Aðventkirkjan, Brekastig 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 11. Guðsþjónusta ki. 12. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar- firði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu- fræðsla að guðsþjónustu lokinni. Ræðumaður Graham Barham. Byggingaplatan WDK©€® sem allir hafa beðið eftir VIROCbyggingaplatan er fyrir VIROC®byggingaplatan er platan veggi, loft og gólf sem verkfræðingurinn getur VIROCbyggingaplatan er eldþolin, fyirskrifað blint. vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi VIROCbyggingaplötuna er hægt að nota úti sem inni J VIROC* byggingaplatan er umhverfisvæn PÞ &CO Leitið frekari uppLýsinga Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚU29 S: 5S3 8640 & 568 6100 LVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-lí frá mánudegi til föstudags Ábending til ljósabekkja- notenda ÞEGAR keypt er ljósakort á sólbaðsstofum eru iðu- lega nokkrir valmöguleikar í boði. Oft er hægt að kaupa kort á tilboðsverði sem gildir í stuttan tíma, en dýrasti kosturinn er yf- irleitt 3ja mánaða, 10 tíma kort. Undirrituð gerði þau mistök að kaupa eitt slíkt á Smart-sólbaðstofu, en nýtti aðeins 5 tíma áður en kortið rann út. Því miður, mín mistök, kortið rann út íyrir 6 dögum. Ekki mögu- leiki að nýta þá 5 tíma sem eftir eru og búið að greiða fyrir. Má bjóða þér að kaupa annað 5 tíma kort? Ekki nei? Svolítið furðulegt tilboð. Líka svolítið furðulegt að viðskiptavinir fá engan miða í hendumar sem sýn- ir hvenær þeir keyptu kortið eða hvenær það rennur út. Aðeins starfsfólk sólbaðsstofunnar fylgist grannt með því í tölvu vinnustaðarins. Einkenni- legt hvað síminn var mikil- vægur meðan við ræddum þetta mál. Og líka skrýtið að þegar ég bað um óskipta athygli viðkomandi þá var mér sagt að rífa ekki kjaft, og þar með var mér hent út. Af sólbaðsstofu. Á há- degi á miðvikudegi. Aldrei fyrr hefur mér verið hent út og aldrei hefði mig grun- að að það yrði, hvað þá á sólbaðsstofú. Mér til mik- illar mæðu var það eigand- inn sem brást svo mjúklega við. Það þýðir þá víst ekk- ert að biðja um hann til frekari viðræðna. Svolítið skítt að borga tæplega 1.000 kr. fyrir hvem ljósa- tíma. Líka svoh'tið skítt að fá ekkert svigrúm til að nýta þó ekki nema fáa af þessum 5 tímum sem eftir voru - eða að borga smá- ræði í viðbót með hveijum tíma. Það hefði margt verið hægt að gera til þess að halda í áframhaldandi við- skipti. Þetta eru þó pening- ar í kassann. Það er kannski einmitt málið, eða hvað? Maður borgar jú fyr- irfram. Mér er því spum, hvort vegur þyngra, gildistími korts eða fjöldi tíma sem þegar er búið að greiða iyr- ir? Helga Finnsdóttir. Aðþvo hendur sínar SAMKVÆMT fréttum þvær ríkisstjórn Rússlands hendur sínar af níðings- verkum hemaðar síns í Tsjetsjníu. Spuming: Hvemig veit hún hvað ein- stakir hermenn hafast að? Guðrún Jacobsen. Tapað/fundið Leikfangakisa fannst LOÐIN leikfangakisa fannst 27. desember sl. í Hlíðunum. Upplýsingar í síma 588-3313. Giftingarhringur týndist GIFTINGARHRINGUR týndist laugardaginn 18. desember sl. í miðbæ Reykjavíkur. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Helgu í síma 482-1636. Gráar buxur týndust GRAAR buxur týndust íyrir utan verslunina Blu di blu á Laugavegi eða á bíla- stæði Landsbankans við Laugaveg. Buxumar vom nýjar og ekki í poka. Skil- vís finnandi vinsamlegast hafi samband við Berglindi í síma 867-2632 eða 566- 6945. Þessi kisa fannst í Hafnarfirði I síðustu viku nóvember sL, fannst þessi kisa við Sólvang í Hafnarfirði. Hún er mjög loðin og með mikið loðið, ljósgrátt skott. Upp- lýsingar í síma 565-9551. í hamrahliðinni. Víkverji skrifar... TALSVERT var af útlendingum hér á landi um áramótin enda hafa frægðarsögur borist víða af skotgleði landans á gamlárskvöld. Víkverji var á góðum útsýnisstað um miðnættið, þar var hópur karla og kvenna og meðal þeirra tvær vin- konur sem honum heyrðist að væra breskar. Vfkveiji vissi ekki alveg hvort hann ætti að móðgast fyrir hönd þjóðarinnar þegar önnur sagði, á svipinn eins og einhver hefði sagt tvfræðan brandara sem hún vissi ekki hvort hún mætti hlæja að: „Þeir era kolvitlausir!“ Hún átti vafalaust ekki bara við þá sem gengu berserksgang í flugelda- skotunum heldur alla þjóðina. Víkverji veit vel að í grannlöndum okkar tíðkast ekki að hver sem er fái að leika sér eins og við geram flest á gamlárskvöld. Opinberfr aðilar eða aðrir útvaldir fá leyfi til þess; al- mennir borgarar verða að láta sér nægja stjömuljós eða minni háttar hvellgjafa og eldglæringar. Mönnum finnst hættan á slysum og eldsvoða of mikil ef sams konar stjómleysi og við höfum kosið fær að ríkja. Nú segja læknar að óvenju mikið hafi verið um augnskaða um áramót- in og dómsmálaráðherra segist vera að kanna hvort til greina komi að takmarka á einhvem hátt frelsi borgaranna á þessu sviði. Víkverji er ekki í nokkrum vafa um að upp muni rísa ný hreyfing föðurlandsvina og unnenda frelsis. Þeir gætu bent á að við fáum aldrei að rækta neina sér- visku til lengdar. Hér vora sjónvarpslausir fimmtu- dagar, bjórsala var bönnuð og böm vora átölulaust látin aka dráttarvél- um í sveitum landsins. Allt er þetta horfið. Vegna erlendra áhrifa og nú síðustu árin samninga um Evrópska efnahagssvæðið era boð og bönn samræmd, reynt að steypa alla í sama mót, munu þeir segja. Líklega er heilmikið til í því að verði sett takmörk við þjóðlegri bijálsemi á gamlárskvöld, sem Vík- verji og aðrir hafa unað sér við ára- tugum saman, sé forsjárhyggjan búin að vinna nýjan sigur. En rökin eru einum of augljós tíl að hægt sé að svara þeim með því að minna á frelsi einstaklingsins. Ónýtt auga í bami er býsna hátt verð fyrir frelsi fullorð- inna til að leika sér. xxx EN ÞAÐ er annað sem Víkveiji tók eftfr og honum fannst þá einum of langt gengið. Talsmaður eins flugeldasalanna gagnrýndi nefnilega Veðurstofuna fyrir að hafa skýrt landsmönnum frá því viku fyr- ir gamlárskvöld hvað langtímaspár gæfu til kynna um veðrið. Og það átti að verða slæmt en úr rættíst á síð- ustu stundu. Talsmanninum fannst að Veðurstofan, sem að sjálfsögðu greindi frá spánum með íyrirvara um áreiðanleika langtímaspáa, hefði átt að hafa enn meiri fyrirvara. Þá hefði salan á flugeldum gengið enn betur og var víst ærin lyrir. Svona gerir maður ekki, var einu sinni sagt í stjómarráðinu. Auðvitað á Veðurstofan ekki að spá veðri eftir pöntun frá hagsmunaaðilum heldur nota faglega þekkingu sína eins og endranær og vonandi gerir hún það áfrarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.