Morgunblaðið - 07.01.2000, Síða 48
08 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA RÓSA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Jörfabakka 12,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá safnaðarheimilinu í
Sandgerði laugardaginn 8. janúar kl. 14.00.
Jónas Steinþórsson,
Guðmundur Friðriksson, Geri Friðriksson,
Sigurður Friðriksson, Margrét Sigurðardóttir,
Sæmundur Friðriksson, Sigrún K. Guðjónsdóttir,
Einar K. Friðriksson, María Vilbogadóttir,
Erlendur Friðriksson,
Guðlaug Friðriksdóttir, Ævar Jónasson,
Hafdís Friðriksdóttir, Kristinn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkaer eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi,
ÞÓRIR SÍMON MATTHÍASSON,
Fljótaseli 5,
Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
fimmtudaginn 6. janúar.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Olga Viktoría M. Sigurðardóttir,
Cecilia Heinesen,
Cecilia Ingibjörg Þórisdóttir, Helgi Már Hannesson,
Kristjana Margrét Þórisdóttir, Daouda Mbaye,
Matthías Karl Þórisson,
Alda María Helgadóttir.
+
Okkar ástkæra móðir, sambýliskona, dóttir og
systir,
ANNA MARÍA HÉÐINSDÓTTIR,
Brúnagerði 3,
Húsavík,
verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju
á morgun, laugardaginn 8. janúar, kl. 14.00.
Lilja Björg Jónsdóttir,
Snæbjörn Ragnarsson,
Sigríður Aðalgeirsdóttir,
Héðinn Helgason,
Helgi Héðinsson.
MAGNUS
GUÐNASON
+ Magnús Guðna-
son fæddist í
Kirkjulækjarkoti í
Fljótshlíð 25. sept-
ember 1919. Hann
lést í Hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlið
í Kópavogi 23. des-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Fíladelfíu-
kirkjunni, Hátúni 2,
Reykjavík, 4. janúar.
Þegar maður hefur tæmt
sig af öllu,
mun friðurinn mikli koma yfir hann.
Allir hlutir koma fram í tilvistina, og
menn sjá þá hverfa aftur. Eftir blóma
ævinnar fer hvað eina aftur til upp-
hafsins.
Að hverfa aftur til upphafsins er
friðurinn; það er að hafa náð tak-
marki tilvistar sinnar.
Að ná þessu er að öðlast eilífðina. Sá,
sem finnur til eilífðarinnar, nefnist vit-
ur. Sá, sem skypjar ekki eilífðina, veit-
ir ástríðum ráðrúm og verður fyrir
ógæfu. Að finna til eilífðarinnar víkkar
sálina og lyftir henni. Víðsýnn andi
hefur samúð með öllu. I samúðinni
finnst konungdómurinn, í konung-
dóminum himinninn, og í himninum
Alvaldið. Sá, sem dvelur með Alvald-
inu, líður ekki undir lok; þó að líkam-
inn leysist sundur, er engin hætta á
ferðum.
(LaoTse)
Elsku afi. Eg veit að sá staður
sem þú dvelur á núna er staðurinn
sem hugur þinn hefur leitað til í
gegnum tíðina og þér líður vel. Hug-
ur minn leitar þó til baka og upp
koma minningabrot úr sveitinni sem
var eins og himnaríki okkar krakk-
anna í sumarfríum eða á öðrum tím-
um þegar því varð við komið. Ekki
var aðgerðaleysinu fyrir að fara þar
og ef þú hafðir ekki verkefni handa
okkur vorum við ekki í vandræðum
með að finna þau sjálfar við mis-
mikla lukku hinna fullorðnu. Aldrei
kom þó til að farið var úr hófi fram
og ávallt komstu þínum boðskap til
leiðar sem mun fylgja mér á lífsleið-
inni þótt ekki hafi ég opnað dyr mín-
ar til fulls eins og þú gerðir ungur
að árum. Fullfrísks minnist ég þín
síðast í kotinu sem nú tilheyrir
pabba og þú hittir kærastann minn
fyrst. Verið góð hvert við annað
sagðir þú og talaðir um
hjálpsemi þess að
hleypa Jesú inn í hjart-
að sitt. Ekki efast ég
um þessi orð og mun
reyna að hafa þau að
leiðarljósi framvegis.
Takk fyrir allt.
Berglind Bára
Hansdóttir.
Örfá kveðju orð um
elsku bróður minn sem
lést 23. desember sl.
Það er margs að minn-
ast á langri lífsleið sem
ekki verður talið upp hér. Maggi
minn, þú varst búinn að
vera svo lengi veikur, bundinn við
hjólastól í um eitt og hálft ár. Það
var svo gaman að sjá hvað andlit
þitt ljómaði alltaf þegar ég kom til
þín og aldrei heyrði ég þig kvarta.
Hvert sinn er ég spurði þig hvernig
þú hefðir það leistu alltaf á mig
brosandi og sagðir: „ Ég hef það
bara mikið gott. Þessi svör fékk ég
alltaf þegar ég spurði þig um líðan
þína. Það var umtalað hvað þú varst
einstakur sjúklingur, þú varst alltaf
svo þakklátur fyrir allt sem gert var
fyrir þig. Ég gleymi ekki hvað þú
varst glaður þegar ég tók stólinn
þinn og sagði ætla með þig í ferða-
lag burt úr þessu herbergi. Já, sagð-
ir þú og ljómaðir. Ég keyrði þig
fram á gang svo þú gætir horft út.
Þá varð það í fyrsta skiptið sem
ég sá andlit þitt daprast, þú tókst
orð mín þannig að ég ætlaði með þig
út af spítalanum. Ó, hvað ég fann til
með þér þá en ekki sagðir þú orð.
En það lifnaði yfir þér aftur þeg-
ar ég fór að gefa þér að borða það
sem ég kom með, þú brostir og
sagðir: Þetta er mikið gott. Ég
gleymi ekki hvað það var gaman að
heimsækja þig og Hrefnu þegar þið
bjugguð á Akranesi. Þið glöddust
alltaf svo mikið þegar ég kom og síð-
an fórstu að sýna mér málverkin þín
sem þú varst búinn að mála. Þú
varst búinn að halda tvær sýningar
og varst að undirbúa þá þriðju, en
þá veiktist þú skyndilega og varst
aldrei samur eftir. Ég man þegar þú
komst heim til mín hvað þú reyndir
að uppörva mig þegar þú skoðaðir
málverkin mín og sagðir: „Þetta er
mjög gott, þú átt að drífa í að halda
sýningu og halda áfram að mála.
Maggi minn, ég er glöð að þú ert
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför elskulegrar móður minnar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
SOFFÍU VALGEIRSDÓTTUR.
Sólrún Aspar Elíasdóttir, Sigmar Ingvarsson,
Soffía Gestsdóttir,
Valgerður Gestsdóttir,
Jóhannes H. Sigmarsson,
Sigrún íris Sigmarsdóttir,
Sunna Hrönn Sigmarsdóttir
og barnabarnabörn.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ANNA MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR,
frá Gilsá í Eyjafjarðarsveit,
lést miðvikudaginn 5. janúar á dvalarheimilinu
Hlíð.
Jarðarförin auglýst síðar.
Björn Garðarsson, Ágústa Sverrisdóttir,
barnabörn og fjölskyldur.
+
Alúðar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru
ERNU KRISTINSDÓTTUR,
Fitjasmára 9,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkr-
unarfólki og öðrum sem veittu henni frábæra
umönnun í erfiðum veikindum.
Guðlaugur Helgason,
Kristinn Guðlaugsson,
Anna Guðlaugsdóttir, Hannes Leifsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSTU ÓLÍNU JÚNÍUSDÓTTUR,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði.
Vigfús Sigurðsson,
Inga Sigrún Vigfúsdóttir, Óli Rafn Sumarliðason,
Guðfinna Vigfúsdóttir, Eyjólfur Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
leystur undan þrautum þínum og
fékkst að koma inn i dýrð Drottins á
jólunum og vera með pabba og
mömmu og elsku systur okkar sem
farin var frá okkur fýrir stuttu. Nú
ert þú í náðarfaðmi Drottins sem þú
elskaðir.
Elsku Hrefna mín, börn og allir
ættingjar, ég votta ykkur samúð
mína. Drottinn vaki yfír ykkur. Ég
kveð þig elsku bróðir minn með Da-
víðsálmi 125-1:2.
Þeir sem treysta Drottni
eru sem Sioiífjall er eigi bifast,
sem stendur að eilífu.
Fjöll eru kringum Jerúsalem
og Drottinn er kringum lýð sinn
héðan í frá og að eilífu.
Oddný Guðnadóttir.
Hluti af umhverfi bernskuáranna,
þessari mynd sem maður ber innra
með sér og aldrei máist út og helst
lítt breytt, sama hversu miklum
breytingum æskuslóðirnar kunna
að taka, hluti af þessari mynd er
Maggi föðurbróðir minn.
Þegar ég fer fyrst að muna vel
eftir mér búa þeir félagsbúi í
Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, Maggi
og bræður hans tveir, þeir Guðni og
Grétar, ásamt föður þeirra, Guðna
Markússyni. Ekki var búið svo stórt
að framfleytt gæti fjórum fjölskyld-
um. Þeir feðgar þurftu því að hafa
fleiri járn í eldinum. Þeir stunduðu
því smíðar eins og forfeður þeirra á
sama stað höfðu gert.
Magga var fleira til lista lagt en
fara lipurlega með hamar og sög. I
frístundum stundaði hann málara-
list og náði þar góðum árangri, hélt
sýningar og seldi vel.
Ég minnist þess er ég einu sinni
sem oftar kom í heimsókn á æskust-
öðvarnar, sem ég nú er aftur fluttur
til, að ég kom inn í vinnuherbergið
hjá Magga. Á málaratrönum stóð
mynd sem hann var að ljúka við og
varð ég svo heillaður af henni að ég
sagði að þessa mynd vildi ég eignast
ef föl væri. I dag hangir þessi mynd
uppi á vegg í stofunni hjá mér sem
gott dæmi um eitt af því besta sem
Maggi gerði í þessum efnum.
Maggi hafði alla tíð yndi af gróðri
og bar vöxtulegur trjágróður við
hús hans þeim áhuga fagurt vitni.
Maggi átti einlæga trú á Guð og
frelsara sinn Jesú Krist og fór ekki
leynt með þá trú sína frekar en faðir
hans og bræður. Og þó að Magga sé
nú sárt saknað hér á jörðinni þá hef-
ur verið tekið vel á móti honum á
Himnum og honum fagnað af ætt-
ingjum og vinum sem á undan eru
farnir og með þeim hefur hann hald-
ið dýrðlegri jól en nokkurt okkar
hér á jörðinni.
Þó að eyða sé nú þar sem Maggi
var, þá er ekki eyða þar sem hann er
í minningum mínum og þar mun
hann alltaf vera.
Ég bið Guð að blessa og styrkja
Hrefnu konu hans, böm þeirra og
alla fjölskylduna.
Guð blessi minninguna um
Magga föðurbróður minn.
Yngvi Guðnason.
Skilafrestur
minningar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingai'dag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingai'degi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.