Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 1

Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 1
30. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ríkisstjórn hægriflokka tók við völdum í Austurríki 1 gær Forsetinn biður heiminn að gefa stj órninni tækifæri Reuters Mótmælcndur veifa rauðum fánum og takast á við óeirðalögreglu fyrir utan Hofburg-höll í Vínarborg, þar sem ný ríkissljórn hægriflokka sór embættiseið í gær. Vín. Reuters, AP. SAMSTEYPUSTJÓRN íhalds- manna og Frelsisflokks Jörgs Haid- ers tók við völdum í Austurríki í gær og bandalagsríki þess í Evrópusam- bandinu gerðu alvöru úr hótunum sínum um að skera á tvíhliða pólitísk tengsl af þessu tilefni. Bandaríkin sögðust myndu kalla sendiherra sinn í Vín heim tU skrafs og ráðagerða og ísraelski sendiherrann yfirgaf aust- mTÍsku höfuðborgina um óákveðinn tíma. í Hofburg-höllinni í Vínarborg sóru ráðherrar ríkisstjórnar Þjóðar- flokksins og Frelsisflokksins, sem hefur 104 af 183 þingsætum á bak við sig, embættiseið fyrir Thomas Klest- il forseta. KlestU dró enga dul á að sér mislíkaði þessi stjómarmyndun, en hvatti engu síður umheiminn eindregið til að dæma nýju stjómina ekki fyrirfram. Sendiherra ísraels var kallaður heim í mótmælaskyni við stjómar- þátttöku flokks sem ísraelar álíta óalandi og óferjandi vegna ummæla sem leiðtogi hans, Haider, hefur á stjómmálaferli sínum látið falla og hefur mátt skilja þannig að hann vUdi gera lítið úr glæpum nazista. Haider tekur ekki sæti í stjórninni, heldur verður áfram fylkisstjóri í Kámten. Msundir mótmælenda söfnuðust saman við forsetahöllina og laust þeim saman við óeirðalögreglu. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í Wash- ington að bandaríski sendiherrann yrði kallaður heim frá Vín um stund- arsakir. „Við höfum ákveðið að tak- marka tengsl okkar við hina nýju ríkisstjóm og vUjum bíða og sjá hvort frekari aðgerða er þörf af okk- ar hálfu tU vemdar málstaðar lýð- ræðisins,“ sagði Albright. Stjórnin verði dæmd af verkum sínum Ríkisstjómir hinna ESB-landanna fjórtán hófu að hrinda í framkvæmd hótunum sínum um pólitíska ein- angran Austurríkis, en með því blanda þau sér í fyrsta sinn í sögu sambandsins í innanríkismál eins að- ildarríkisins með beinum hætti. KlestU sýndi með látbragði sínu við athöfnina þar sem stjómin sór embættiseiðinn, að sér var þvert um geð að þetta væri að gerast, en sagði að virða bæri þingmeirihluta stjóra- arinnar og dæma bæri hana eftir gerðum hennar. „Viðbrögðin við myndun þessarar ríkisstjómar era svo sterk að mikUs átaks er þörf bæði heima fyrir og er- lendis til að eyða fordómum og órétt- mætri gagnrýni,“ sagði KlestU í sjónvarpsávarpi sem sent var út í gærkvöld. „Ég bið þess vegna öll stjórnmála- öfl í landinu, alla Austurríkismenn, sem og bandamenn okkar í Evrópu- sambandinu og úti um heim að gefa rfidsstjórninni tækifæri og dæma hana af verkum sínum," sagði for- setinn. ■ Refsiaðgerðum/31 Norður-Irland Þrýst álRA London, Belfast. AP, AFP, The Daily Telegraph. MJÖG er nú þrýst á írska lýðveldis- herinn (IRA) að hefja afvopnun, eins og friðarsamkomulag aðila á Norð- ur-írlandi gerir ráð fyrir. Ef lýðveld- isherinn hefur ekki afvopnun innan viku ganga ný bresk lög í gildi sem fela í sér að völd tveggja mánaða gamallar heimastjómar á Norður- Irlandi verða flutt aftur tU Lundúna. Það hefur enn orðið til að auka spennu milli aðila að jafnvel þótt lög- in geri einungis ráð fyrir að heima- stjómin verði leyst frá störfum tíma- bundið, hafa lýðveldissinnar varað við því að með gildistöku þeirra gæti grandvöllur friðarsamkomulagsins hranið. Gerry Adams, formaður Sinn Fein, hins pólitíska arms IRA, sak- aði í gær ráðherra Norður-írlands- mála í bresku stjórninni um að grafa undan viðleitni sinni til að finna lausn á deUunni um framkvæmd friðarsamkomulagsins. Adams sagði að ummæli Peters Mandelsons í breska þinginu í gærkvöldi, þar sem hann sakaði IRA um að standa ekki við sinn hluta friðarsamkomulagsins, hefðu verið „smánarleg“. „Einmitt á þeim tíma sem viðræð- ur stóðu yfir við fulltrúa IRA, hvað gerir Peter Mandelson þá? - Hann sakar þá um svik við friðarferlið," sagði Adams. A sama tíma var haft eftir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, að „h'tilsháttar árangur" hefði náðst í því að finna lausn á vandanum. Hann sagði þó að deilan yrði ekki leyst fyrr en tryggingar hefðu fengist fyrir því að meðlimir írska lýðveldishersins hefðu raunveralega tekið til við að afhenda vopn sín. Nýjar opinberanir um fjármál CDU Viðurkennir að hafa þegið hærri upphæðir Bonn. AP, AFP, Reuters. FUNDUR forystumanna Kristilegra demókrata (CDU) í Þýskalandi, sem haldinn var í gær, náði ekki því markmiði sínu að skýra hvaðan greiðslur inn á leynireUcninga flokksins komu. Hins vegar bendir framburður ýmissa meðlima flokksins, sem rætt vai' við á fundinum, tU þess að Helmut Kohl, fyrrverandi for- maður flokksins og kanslari Þýska- lands, hafi tekið við mun hærri fjár- hæðum en hann hingað til hefur við- urkennt. Kohl viðurkenndi í gær í fyrsta skipti að hann hefði tekið við fjárgjöf- um í flokkssjóði á áranum 1989-92, en hann hefur hingað tU sagt að hann hafi aðeins tekið við slíkum greiðslum á tímabUinu 1993-98. Að sögn fyrr- verandi háttsetts flokksbróður hans, Uwe Lúthje, tók Kohl við greiðslum upp á 2 tU 3 mUIjónir marka í sjóði flokksins frá 1989-92, sem er jafnvirði 74 tU 112 mUljóna íslenskra króna. Kohl hefur fram tfi þessa aðeins gengist við því að hafa tekið við gjafa- fé að andvirði um 74 milljóna króna. Hann sagði í gær að upphæðimar sem hann hefði tekið við á fyrra tíma- bUinu hafi verið „umtalsvert lægri“ en Lúthje heldur fram. Siemens greiddi milljónir í sjóði flokksins Áðumefndur Lúthje upplýsti einn- ig á fundinum í gær að hann hefði tek- ið við einni milljón marka úr hendi forstjóra þýska stórfyrirtækisins Siemens, einhvem tíma á tímabilinu frá 1980-1990. Svo virðist sem Siem- ens hafi í heUd greitt á bilinu fimm til sex milljónir marka í sjóði flokksins á tímabilinu, að sögn Willi Hausmanns, framkvæmdastjóra flokksins. Það era 185-222 milljónir króna. I eiðsvarinni yfirlýsingu Lúthjes frá í gær segir að hann hafi komið hluta fjárins fyrir á bankareikningi í Sviss en afgangurinn hafi verið af- hentm- Walter Kiep, gjaldkera Kristi- legra demókrata á tímabUinu. Lúthje segir að svissneska reikningnum hafi verið lokað árið 1992 og hafi hann og tveir aðrir flokksbræður skipt fénu á mUli sín. Það hafi þá verið orðið í kringum 1,5 milljónir svissneskra franka, eða um 65 milljónir íslenskra króna. í fréttatUkynningu frá Siemens í gær sagði að fyrirtækið gæti ekki staðfest að greiðslumar hafi verið inntar af hendi en að allt yrði gert til að varpa ljósi á málið. Reuters Eignaðist þríbura í annað sinn Baltimore. AP. 19 ÁRA bandarísk stúlka hefur eignast þribura í annað sinn á tæp- um tveimur árum. Líkurnar áþví að slíkt geti gerst munu vera einn á móti 50 milljónum. Crystal Cornick, sem notaði ekki frjósemislyf, ól fjórða, fimmta og sjötta barn sitt á sjúkrahúsi Mary- land-háskóla í Baltimore á þriðju- dag. Læknar hennar sögðu að móð- urinni og bömunum heilsaðist vel og ættu að geta farið heim eftir eina eða tvær vikur. Cornick og 22 ára unnusti henn- ar, Richard Williams, sögðust hafa orðið fyrir áfalli þegar þau komust að því að hún gengi með þríbura í annað sinn. Comick kvaðst hafa leitað til prests og hann hefði róað hana. „Hann sagði „bömin þín eru blessun og þú ættir að telja þig heppna að eignast þau vegna þess að sumir geta ekki átt böm og þú ert lánsöm að vera blessuð með þremur í einu“.“ MORQUNBLAÐK) 5. FEBRÚAR 2000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.